Morgunblaðið - 04.07.1963, Page 22

Morgunblaðið - 04.07.1963, Page 22
22 WORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 4. júlí 1963 Helgi Hólm og Claus Börsen heiðraðir — er Danir voru kvaddir í gær í GÆR var danska landsliðið kvatt. Viðstaddir voru flestir ísl. landsliðsmennirnir, flestir starfsmenn landskeppninnar og nokkrir aðrir gestir m.a. heiðurs- forseti ÍSÍ Ben. G. Waage. Ingi Þorsteinsson form. FRÍ Þórólfur meö KR ÍSÍ gaf í gærdag leyfi til að Þórólfur Beck léki með sínu gamla félagi KR er það í kvöld mætir Finnlandsmeisturum liðsins Haka. Áður höfðu feng izt leyfi frá St. Mirren. Þetta gefur Ieiknum mjög litmeiri svip og eftirvæntingin eykst. Ekki er vitað hvort Þór ólfur verður miðherji eða inn- herji, en sennilega verður þarna gamla góða framlínan með EUert, Gunnar og Þórólf sem miðjutríó og Sigþór og Gunnar Guðmannsson sem út- herja. Með Garðar, Svein, Hörð, Bjarna og Hreiðar og Heimi að baki gæti þetta orð- ið allra skemmtilegasti leikur. stjórnaði hófinu og flutti aðal- ræðuna. Emanuel Rose form. danska sambandsins þakkaði og einnig talaði Brynjólfur Ingólfs- son fyrrum form. IBR. Öllum landsliðsmönnunum var afhent gjöf til minningar um keppnina svo og starfsmönnum hennar. Verðlaun voru afhent frá báð- um liðum fyrir óvæntustu afrek- in. íslendingar gáfu gæruskinn Claus Börsen sem sigraði í 5000 m hlaupi og Danir veittu Helga Hólm, sem varð 2. í 400 m grinda hlaupi verðlaun fyrir óvæntasta afrek af hálfu íslendinga. Liðsmenn Haka að Hótel Garði. Héraðsmót á Núpi í Dýrafirði ÍSAFIRÐI, 28. júní. — Hið ár- lega héraðsmót Héraðssambands Vestur-ísafjarðarsýslu fer fram að Núpi um helgina. Keppendur verða 40—50 frá fimm félögum á sambandssvæðinu. Keppt verður í frjálsum íþróttum karla og kvenna og handknattleik og sýnd ir fimleikar Oig þjóðdansar. í kvöld lýkur á Núpi tíu daga í- þróttanámskeiði, sem 80 unjling ar af öllum Vestfjörðum sóttu. Stundaðar hafa verið frjálsar í- þróttir, fimleikar, handknattleik- ur, körfuknattleikur, knattspyrna og sund. Kvöldvökur hafa verið haldnar öll kvöldin, Stjórnandi námskeiðsins var Sigurður R. Guðmundsson, íþróttakennari við Núpskólann. — H.T. Finnsku knattspyrnumeist- ararnin gegn KR í kvöld SÍÐARI erlenda knattspyrnu- heimsóknin á þessu ári er frá Finnlandi. Það er Knattspymu- ráð Reykjavíkur sem sér umþessa heimsókn og liðið sem varð fyrir valinu er finnska liðið Haka, sem er Finnlandsmeistari 1962. Liðið leikur sinn fyrsta leik í kvöld gegn KR og vekur það ekki hvað minnsta athygli að Þórólfur Beck mun leika með KR, eins og frá er skýrt á öðrum stað. fr i'r* « \ ->•/*> ’ ■- UÍJ/f tW n ■ 1,^-1 'iiMiiá Björg Dam ★ Sterkt lið Finnska liðið Haka er mjög sterkt lið. Og segja má að það sé násegjulegt að sjá Finna í knattspyrnuskóm hér á landi. Langt er síðan slíkt hefur skeð og langt og aldrei mun það hafa skeð að Finnar ættu sterkari knattspyrnumönnum á að skipa en einmitt í ár. Finnar hafa nýlega gert jafn- tefli við Dani í Kaupmannahöfn og þeir unnu Norðmenn með 2—0 í Helsingfors á dögunum, en skömmu áður höfðu Norðmenn unnið atvinmumannalið Skota með 4—3. ★ 4 landsliðsmenn Haka kom mjög við þá sögu er þessir síðasttöldu leikir voru leiknir og átti 4 menn í finnska liðinu. Þeir eru hægri bakvörður Olli Makinen 28 ára gamall, h. úth. Mauri Paavilainen, 19 ára gam- all, h. innh. Juhani Peltonen, 27 ára gamall sem leikið hefur 37 landsleiki og miðframvörðurinn Valtonen 27 ára með 10 lands- leiki að baki. Þess má geta að þar sem eru tveir framlínumenn finnska iands íslenzk kona varð Dan- merkurmeistari í golti ÍSLENZK kona — sem að vísu nú er danskur ríkisborgari — varð danskur meistari í golfi nú á dögunum. Þetta er frú Björg Dam, dóttir Guðmundar Markússonar skipsstjóra, gift framkvæmdastjóra í Álaborg. Með sigri sínum í keppninni færði Björg Álaborg fyrsta meistaratitilinn sem nokkur borgarbúi þar vinnur. Björg vann yfirburðasigur í úrslita- leik við Karin Sigumfeldt frá Kaupmannahöfn. Hafði Björg 6 holur unnar þegar 5 voru eftir. Björg er 41 árs að aldri og hefur áður komið við sögu golf íþróttarinnar í Danmörku þó hún hafi aldrei náð svo Iangt sem nú. Úrslitakeppnin var mjög jöfn milli hennar og Kar in Sigumfeldt. Eftir 9 holur voru þær nákvæmlega jafnar, en síðar var Karin óörugg en Björg lék betur og betur eftir því sem á leið. Á tíma hafði hún 7 holur yfir og þó Karin tækizt að minnka forskotið á síðasta hring var sigur Bjargar aldrei í hættu. Meistari s.I. 15 ár hefur ver- ið Tove Geerts. Hún tók ekki þátt í keppninni nú, en dönsk blöð draga mjög í efa að henni hefði tekizt að verja titilinn fyrir Björgu sem lék að blað- anna sögn mjög glæsilega. liðsins með hér, að Finnar • og Norðmenn eru sammála um eftir landsleikinn gegn Noregi að finnsku framherjarnir þóttu mjög ákafir og góðir hver fyrir sig þótt þeir ekki leiki vel saman. Það reyndist nægja gegn norsku vörninni. Haka er Finnlandsmeistari 1962 og hefur liðið sem slíkt tekið þátt í Evrópukeppni meistaraliða. Það var slegið út í 2. umferð af Standard Liege í Belgíu. Félagið er stofnað 1932, komst í 1. deild 1950 og sigraði í bikar- keppni 55, 59, 60 og í deildakeppn inni 1960 og 1962. Meðalaldur leikmanna er 23 ár. Allir leikmennirnir vinna í sömu pappírsverksmiðjunni en fram- kvæmdastjóri hennar er fyrrum form. finnska knattspyrnusam- bandsins. Verksmiðjan er í litlum bæ með 14600 íbúa. Allir leik- menn félagsins eru upp aldir hjá félaginu nema einn. jár Sameiginlegar ferðir Haka leikur á laugardag kl. 4 gegn úrvali Rvikur og á mánu- dagskvöld gegn tilraunalandsliðL Haka fer árlega sameiginlega sumarleyfisför og hafa þá leik- menn konur sínar með og fleiri slást í hópinn. Liðið er hingað komið nú sem hluti af 75 manna hóp sem leigir flugvél til fararinnar, og má því búast við finnskum hrópum og hvatningarorðum í kvöld. Liðið heldur heimleiðis 9. júlL Úrslitin í 110 m grindahlaupi landskeppninnar. Valbjörn var nær dotúnn en hafði örugglega annað sætið. Ljósm.: ,Sv. Þorm. Somkomur Hjálpræðisherinn Samkomur á fimmtudag og föstudag kl. 8.30. Thorvald Fröytland syngur og talar. — Síðustu samkomur hans fyrir Ameríkuferð. Allir velkomnir. Fíladclfía Almenn samkoma í kvöld kl. 8,30. Ræðumenn: Garðar Ragnarsson og Guðmundur Markússon. Allir velkomnir. K.F.U.K. — Vindáshlíð Telpur munið Hliðarfund- inn í kvöld kl. 8. Fjölbreytt dagskrá. Munið eftir skála- sjóðL Stjórnin. VILHJÁLMUB ÁRNAS0N biL TÚMAS ÁRNASON hdL LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA lðnaðarbankahúsinu. Símar 2463S og 16307

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.