Morgunblaðið - 23.07.1963, Qupperneq 2
MORGVISBL A Ð I Ð
í>riðiuaagur 23. júlí 1963
Skotnir fuglar eins og
hráviði í Látrabjargi
I.ÁTRUM 22. júlí. — Á laug-ar-
daginn fór ég út á Látrabjarg
með ferðafólki, en margt fólk
hefur undanfarna góðviðrisdaga
f á bjargið til þess að sjá
< .alífið og stórbrotið landslag.
álkið er víða af landinu svo
og útlendingar, sem hafa áhuga
á fuglalífi og íslenzkri náttúru-
fegurð.
Það er ekki nema í fáum til-
fellum sem við heimamenn för-
um með þessu fólkL Er það
frjálst ferða sinna og gerða þeg-
ar á bjargið er komið og hefur
umgengni þess verið til sóma eins
og vera ber.
Þegar við komum á bjargið
að þessu sinni, hvað við ann-
an tón. Dauðir fuglar, er höfðu
verið skotnir til bana, lágu
hér og þar á sillum í berg-
veggnum. Ekki er hægt að
segja, hvað þeir, sem hér
voru að verki hafi ban-
að mörgum fuglum, þvi
að í flestum tilfellum velt-
ur hann fram úr sillun-
um, þegar hann er skotinn og
fer þá í sjó og rekur burt,
svo að skytturnar hafa enga
von haft um að geta náð
nokkrum fugli. Er því verkn-
aðurinn þeim mun óskiljan-
legri þar sem hann virðist
hafa þann einan tilgang að
svala einhvers konar morðþrá.
Sérstaklega fannst okkur átak
anlegt að sjá á einum stað,
þar sem fýll kúrði sig upp að
dauðum maka sínum, en ung-
inn lá dauður við brjóst
þeirra. Á öðrum stað hafði
fuglinn ekki dauðskotizt
strax, en í dauðateygjunum
hafði hann lagt vænginn yfir
ungann eins og honum til
varnar.
Þetta var í heild svo ógeðsleg
Ný fegurð-
ardrottning
Miami Beach, Florida,
22. júlí (AP).
IEDA MARIA VARGAS frá
Brasiliu var á laugardag kjör-
in „Ungfrú Alheimur (Miss Uni-
verse) á alþjóða fegurðarsam-
keppni í Miami Beach. Önnur
varð Aino Krowa frá Danmörku,
þriðja Marlene McKeown frá fr-
landi, fjórða Lalaine Bennett frá
Filipseyjum, og fimmta Kim
Yung-ja frá Suður Kóreu.
Alls voru þátttakendur nærri
100, en í síðustu viku voru vald-
ar úr 15 stúlkur, sem tóku þátt
í lokakeppninni á laugardag.
Hin nýja fegurðardrottning er
18 ára og býr í Porto Alegre í
Brasilíu. Meðal verðlauna, sem
hún hlýtur, eru 17.500, — doll-
arar í peningum (rúmlega 750
þúsund ísl. krónur), og heils árs
ferðalag umhverfis hnöttinn.
Theodóra Þórðardóttir tók þátt
1 keppninni fyrir íslands hönd,
en komst ekki í úrslit.
Siglaijorðar-
skarð óiært
litluoi bíluoi
í GÆRKVÖLDI var lesin til
kynning í útvarpið um að
Siglufjarðarskarð væri ófært
litlum bílum vegna snjóa og
stórum bílum aðeins fært með
keðjur. Samkvæmt upplýsing
um fréttaritara okkar á Siglu
firði snjóaði í skarðinu aðfara-
nótt sunnudags og í fyrrinótt
en ekki þótti ástæða til að
ryðja veginn, þar eð spáð var
batnándi veðri, og snjórinn
myndi brátt leysa.
Breiðablik í
úrslitum í
II deild
BBREIÐABLIK og Vestmanna-
eyingar kepptu s.l. laugardag í
Vestmannaeyjum og ladk leikn-
um með jafntefli 2-2. í hálfleik
var staðan 2-1 fyrir heimamenn.
Fyrri leik liðanna lauk með
sigri Breiðabliks 4-0 og hefur
Breiðablik þar með sigrað í öðr-
um riðlinum í II. deild og leik-
ur til úrslita við sigurvegarann
í hinum riðlinum, en þar er
keppni ekki lokið. Sigurvegarinn
í þeim leik mun leika í I. deild
næsta ár.
Ekki er hægt að neita því að
sigur Breiðabliks kemur á óvart
því flestir höfðu spáð Vestmanna
eyingum sigri í þessum riðli og
var þá miðað við frammistöðu
liðsins s.l. ár. Sigur Breiðabliks
var réttlátur og verður gaman
að fylgjast með þessu efnilega
liði þeirra Kópavogsmanna.
Eysteinn Jóhannesson
Laugarvatni, minning
varðveita minningu þína af al-
hug.
Ágúsia Thorberg.
ALLA setti hjóða og ekki sízt
okkur atvinnuþega Eysteins Jó-
hannessonar, er hann varð bráð-
kvaddur hinn 17. þ. m. — En það
var táknrænt að hinzta kallið
kom, er hann var við vinnu sína
og var það slíkt andlát sem hann
hafði þráð.
Við, sem unnum undir þinni
stjórn, stöndum í mikilli þakkar-
skuld við þig, Eysteinn; aldrei
fáum við fullþakkað þér þolin-
mæði þína við að benda okkur á,
hvað rangt var eða rétt í starfi
okkar, svo og lífinu yfirleitt. —
Alltaf varst þú okkur sem bezti
faðir.
Það er mikil huggun fyrir
Ellu, hina déisamlegu konu þína,
og Sólveigu, dóttur ykkar, að lifa
í endurminningu um dásamlegan
heimilisföður, sem allra vanda
vildi leysa.
Við kveðjum þig, Eysteinn, í
miklu þakklæti fyrir alla góðvild
í okkar garð og munum ávallt
sjón, sem við okkur blasti, að
ég lýsi því ekki frekar.
Það varðar sektum að skjóta
þarna sem í öðrum varplöndum.
Lögbrotið er þó lítilf jörlegt sam-
anborið við verknaðinn sjálfan,
sem mér finnst svo sóðalegur að
ekki má kyrrt liggja.
Einhverjar ráðstafanir verður
að gera svo slíkt ódæðisverk end-
urtaki sig ekki. Sé ég þá helzt
tiltækt, að hin opinberu fugla-
og dýraverndunarfélög taki
höndum saman um að koma hér
á eftirliti með þvi, að fólk fari
ekki búið skotvopnum í þetta
fagra og friðsæla riki fuglanna.
— Þórður.
Sveinameistara-
mótið í fr jálsum
SVEINAMEISTARAMÓT íslands
fer fram á Akranesi dagana 27.
og 28. júlí. Keppt verður x eftir-
töldum greinum:
Fyrri dagur:
80 m. hlaup, kúluvarp, hástökk,
stangarstökk og 200 m. hlaup.
Síðari dagur:
80 m. grindahlaup, kringlukast,
lahgstökk, 800 m. hlaup og 4x100
m. boðhlaup. Þátttökurétt eiga
piltar, sem fæddir eru 1947 eða
síðar.
Þátttaka tilkynnist Magnúsi
Gunnlaugssyni co. Bjarnalaug,
Akranesi, í síðasta lagi 24. júlí
næstkomandi.
Liston
sektaður
SÍÐARI keppni þeirra Listons
og Pattersons um heimsmeist-
aratitilinn í hnefaleikum átti
að fara fram kl. 2.30 s.l. nótt
eftir ísl. tíma. Okkar tími er
7 stundum á undan staðartíma
þar.
Fyrr um daginn áttu þeir
kapparnir að mæta til að láta
vigta sig. Patterson kom á
réttum tíma en Liston mætti
ekki.
Ráðsmenn þeir sem sjá áttu
um vigtunina biðu í 15 mín.
en dæmdu síðan Liston sem
þá var enn ekki mættur í 500
dala sekt. Síðar er litið var
í pésa um reglur kom í ljós
að sekt við þessu eru 100
dalir og var dómnum breytt í
samræmi við það.
Seint og síðar meir kom
Liston og reyndist vega 215
pund.
Það gustaði um Skálholtsstað á sunnudaginn. Svo fór að veit-
ingatjaldið rifnaði og blaðamenn Mbl. tókui þá þessa sérkennilegu
mynd. — Fleiri myndir og frásögn á bls. 10.
Réttarhöld hafin i máli Stephens Wards
Christine Keeler
aðal vitnið í gœr
London, 22. júlí (NTB—AP).
FRÉTTAMENN víða að úr heim-
inum og nafntogaðir brezkir leið
togar voru samankomnir i Old
Bailey réttarsalnum i London í
dag þegar réttarhöld hófust að
nýju í máli læknisins dr. Step-
hen Wards, sem m. a. er sakaður
um að hafa lifað að miklu eða
öllu leyti á tekjum vændis-
kverrna.
Aðal vitnið við réttarhöldin í
dag var ungfrú Christine Keeler.
Skýrði hún frá nöfnum nokkurra
þeirra manna, er hún hefur haft
mök við, en neitaði því að hún
stundaði vændi.
Ákæran gegn dr. Ward er í
fimm liðum. í þremur þeirra eru
ásakanir um að hann hafi lifað
á vændi, en hinir tveir saka hann
um að hafa tælt stúlkur yngri en
21 árs. Neitaði dr. Ward öllum
fimm ákæruliðunum.
Mál þetta leiddi meðal annars
til þess að John Profumo, þáver-
andi hermálaráðherra, sagði af
sér í síðasta mánuði eftir að hafa
játað að hafa átt mök við ungfrú
Keeler um svipað leyti og hún
Fyrsta áœtlunarferðin til
Vogeyjar fyrirhuguð í dag
í MORGUN kl. 8,30 var fyrirhug-
að, að leiguflugvél Flugfélags ís-
lands legði upp í fyrsta áætlunar-
flugið til Færeyja. Samkvæmt á-
ætlun mun hún lenda á flugvell-
inum á Vogey skömmu fyrir há-
degi. Frá Vogey heldur vélin á-
fram til Bergen og Kaupmanna-
hafnar, verður þar xun kyrrt á
miðvikudag og fer síðan aftur til
Færeyja á fimmtudag. Frá Fær-
eyjum verður svo flogið samdæg-
urs til Glasgow og daginn eftir
til íslands með viðkomu í Fær-
eyjum. Er Færeyingum þannig
séð fyrir þremur ferðum til út-
landa á viku hverri í sumar.
Fullskipað er í þessa fyrstu
ferð, og í gær voru margir skráð-
ir á biðlista, en flugvélin, sem er
af gerðinni DC 3, tekur 20 far-
þega.
Mikill áhugi er ríkjandi á Fær-
eyjafluginu, búið er að taká frá
sæti í margar ferðir, og í Glas-
gow hafa sérstaklega margar fyr-
irspumir verið gerðar um tilhög-
un þeirra og pantanir gerðar á
fari.
Flugstjóri í Færeyjaferðinni í
dag verður Jón R. Steindórsson,
en aðrir í áhöfn verða: Frosti
Bjarnason, flugmaður, Henning
Bjarnason, vélamaður, og Unnur
Gunnarsdóttir, flugfreyja. Full-
trúi Flugfélags íslands í þessu
fyrsta áætlunarflugi verður Jó-
hann Gíslason.
átti vingott við Evgeny Ivanov,
flotamálafulltrúa við rússneska
sendiráðið í London
ALLT AÐ 25 ÁR
Mervyn Giffith-Jones sak-
sóknari flutti málið af hálfu hins
opinbera. Sagði hann að á tíma-
bilinu júní 1961 til ágúst 1962
hafi Christine Keeler búið með
dr. Ward, og hafi læknirinn á
þeim tíma selt öðrum mönnum
blíðu hennar. Eftir að Christine
fluttist úr íbúð þeirra, flutti
Mandy Rice-Davies þangað inn
í staðinn. Segir Griffith-Jones að
eftir að báðar voru fluttar frá
Ward hafi hann lánað vændis-
konum íbúðina en hirt hluta af
tekjum þeirra.
Ef dr. Ward reynist sekur af
öilum liðum ákærunnar mætti
dæma hann í allt að 25 ára fang-
elsi.
MARIHUANA
Yfirheyrslur yfir Christine
Keeler stóðu í tvær og hálfa
Framhald á bls. 23.
Loasúríaagelsi
— og stal
AÐFARANÓTT sunnudags
/ar brotin rúða í sýningar-
glugga að Laugavegi 10 og
stolið þremur armbandsúrum
að því er talið var.
Á sunnudaginn var brotizt
inn í skrifvélaverkstæði að
Bergstaðastr.'-ti 3 og stolið það
an 140—150 dollurum og 700
ísl. krónum. Þjófurinn náðist
seint á sunnudagskvöld og
var hann þá búinn að eyða
fénu utan 75 dollurum. Var
þarna um að ræða mann, sem
látinn hafði verið laus fyrr um
daginn, að því er rannsóknar
lögreglan upplýsti I gœr.