Morgunblaðið - 01.08.1963, Side 6
a
IUORCVJSBL 4 Ð1Ð
FJmmtudagur 1. ágúst 1963
103 áru árfíður Jóns firmanns
minnzt með gjöf til Húsavíkurkirkju
Hluti sýningarflokksins í búningum í Noregi
Islenzkur sýningarflokkur
á þjóðdansamóti í Noregi
Gengu um é sauðskinnsskóm
HÚSAVÍK, 30. júlí: —
t tilefni af því að í dag _eru liðin
100 ár frá fæðingu Jóns Ármanns
Árnasonar, smiðs frá Fossi í Húsa
vík, gáfu börn hans og nokkur
barnabörn Húsavíkurkirkju
raunarlega gjöf, 32 þús. kr., sem
leggjast eiga í orgelkaupasjóð
kirkj unnar.
Gjöfin er til minningar um þau
hjónin, Kristbjörgu Sigurðardótt
ur og Jón Ármann og afhenti son
ur þeirra, Árni, gjöfina fyrir
hönd þeirra systkina. En fyrir
hönd barnabarna Jón Ármann
Héðinsson, viðskiptafræðingur.
Formaður sóknarnefndar, Ingv
ar Þórarinsson, veitti gjöfinni
móttöku og minntist í ræðu Jóns
heitins Ármanns sem mikils
stuðningsmanns Húsavíkur-
kirkju. Hann var mikill smiður
bæði á járn, tré og stein og hjó
m.a. grjót í Húsavíkurkirkju og
sá um byggingu hennar. Hann
hafði mikið yndi af tónlist og
kenndi fiðluleik á sínum tíma.
Var einn af stofnendum karla-
kórsins Þryms og fyrsti stjórn-
andi hans. Við þjóðlagasöfnun
Stangaveiði-
klúbbur ung-
linga
í K V Ö L D klukkan 8 verður
Stangveiðiklúbbur unglinga stofn
aður að Lindargötu 50.
Sýnd verður stangveiðikvik-
mynd, en tilgangur Æskulýðsráðs
Reykjavíkur með stofnun klúbbs
ins er að veita unglingum fræðslu
um meðferð veiði'stanga, hirð-
ingu þeirra og viðhald, en þá
fræðslu og kastæfingar annast
þaulvanur veiðimaður.
Ennfremur að gefa unglingum
kost á ódýrum veiðiferðúm í ár
og vötn í nágrenninu.
Æskulýðsráð hefur heimild til
að gefa út leyfi til veiða í Elliða
vatni, þeim sem eru meðlimir í
veiðiklúbb æskulýðsráðs.
Allir unglingar, 12 ára og eldri
eru velkomnir í klúbbinn og
hvattir til að mæta á stofnfund
inum í kvöld, en nánari upplýs-
ingar eru veittar daglega kl. 2—4
í síma 15937.
(Frétt frá Æskulýðsráði
Reykjavíkur).
sína naut Bjarni Þorsteinsson
nokkurs stuðnings frá Jóni Ár-
manni. Þá Jón Ármann byggði
sér íbúðarhús í Húsavík, byggði
hann það -á árbakka Búðarár og
leiddi ána í gengum húsið til að
láta hana knýja rennibekk og
fleira en rennismiður var hann
ágætur. Ræðu sinni lauk sóknar
nefndarformaður með þeim orð
um, að gaman væri að minnast
slíkra manna sem Jóns Ármanns,
sem ætíð hefði verið mjög vaskur
maður til góðra verka.
— Fréttaritari.
Vilja aukið fé
íþáguveiðimála
LANDSSAMBAND veiðifélaga
hélt aðalfund sinn í Borgarnesi
20. júlí s.l. Fundinn sátu fulltrú-
ar veiðifélaga úr þremur lands-
fjórðungum. Yeiðimálastjóri,
Þór Guðjónsson, flutti erindi um
veiðimál og sýndi litskugga-
myndir. Rætt var meðal annars
um endurskoðun laxveiðilag-
anna. Fundurinn þakkaði Al-
þingi og ríkisstjórn fyrir fram-
tak við byggingu Laxeldisstöðv-
arinnar í Kollafirði. Jafnframt
skoraði hann á ríkisstjórnina að
auka verulega fjárframlög til
Veiðimálastofnunarinnar til þess
að hún geti mætt ört vaxandi
þörf fyrir leiðbeiningastarfsemi,
og rannsóknir í þágu veiðimála.
Á fundinum ríkti mikill áhugi
á eflingu samtakanna, og
taldi hann þörf á að stofnuð
yrðu veiðifélög við vatnasvæði
þar, sem þau væru ekki fyrir.
Stjórn Landssambands veiði-
félaga var endurkosin, en í henni
eiga sæti, Þórir Steinþórsson,
skólastjóri, Reykholti, formaður,
Hinrik Þórðarson, Útverkum, og
Óskar Teitsson, Víðidalstungu.
• Ósæmileg framkoma
í kirkju
Mikið hefur verið um hina
nýju Skálholtskirkju og gesta-
komur þangað skrifað. En síðan
kirkjan var vígð koma þar
margir til að skoða hana. — I
þessu sambandi get ég ekki lát-
ið hjá líða að minnast á fram-
komu margra þessara kirkju-
gesta, en hún er langt frá því
sem talizt getur sæmilegt. Og
tek ég hér dæmi.
Eftir síðdegismessuna á vígslu
daginn var skírn. Margir þeir,
sem voru við messuna, fóru út
strax að henni lokinni, hafa
kannski ekki vitað um skírnina.
í þeirra stað ruddist inn hópur
af fólki, sem óð um alla kirkj-
una meðan verið var að skíra,
og gekk svo langt að presturinn
ÞJÓÐDANSAFÉLAG Reykja-
víkur sendi 30 manna sýningar-
flokk á norrænt þjóðdansamót,
sem haldið var í Osló dagana 26.
til 30. júní og Bodö 4. til 6.
júlí.
Fyrir 2 árum var Þjóðdansa-
félaginu boðin þátttaka í móti
þessu og var þegar hafinn und-
irbúningur ferðarinnar. Eitt
versta vandamálið var skortur
á sæmandi búningum fyrir karl-
menn, en með góðri samvinnu
við Þjóðminjasafnið tókst að fá
allgóðar lýsingar á búnaði fólks
hér á landi á árunum 1600-1900.
Ákveðið var að líkja eftir sum-
um af bessum búningum eins og
frekast var urínt. Efnið í bún-
ingana var ofið í ullarverksmiðj-
unni á Álafossi eftir sýnishorn-
um frá Þjóðminjasafninu. Efni
og aðstandendurnir með börnin
ætluðu varla að komast að
skírnarfontinum. Þó kórinn
syngi fullum hálsi og varla gæti
farið fram hjá neinum að þarna
fór fram athöfn, óð fólk um og
hrópaði: — Nei, hvað þetta er
fallegt! Sjáið þið gluggana! o.
s. frv. Og yfirgnæfði þetta rödd
prestsins.
• Á óhreinum stíg- ^
vélum að altarinu
Sl. sunnudag var fermingar-
messa í kirkjunni. Fjöldi manns
kom á staðinn, sjálfsagt á ferða-
lagi um sveitirnar, og kom í
Skálholtskirkju til að skoða
hana. Margt af þessu fólki tók
ekkert tillit til þess að þar fór
fram messa, það óð inn á óhrein
um stígvélum og illa til haft,
í sauðskinnsskó var fengið aust-
an úr Öræfum. Vegna kostnaðar
við búningana urðu félagsmenn
að sjá sjálfir um Saumaskapinn.
Þetta tókst þrátt fyrir ýmsa erf-
iðleika og urðu búningarnir til-
búnir um það leyti er ferðin
skyldi hefjast. Svavar Guðmunds
son æfði dansana, er hópurinn
skyldi sýna, og sá um sviðsetn-
ingu þeirra.
íslenzka flokknum var mjög
vel tekið í Noregi og vöktu bún-
ingarnir sérstaka athygli. Þátt-
takendurnir gengu um á sauð-
skinnsskóm alla mótsdagana.
Fjórir söngvarar sungu fyrir
dansinum, Unnur Eyfells, Guð-
rún Hulda Guðmundsdóttir, Sæ-
mundur Nikulásson og Guðmund
ur Guðbrandsson. Einar Svein-
björnsson lék undir á fiðlu. Fjöl
stóð í miðju gólfj, jafnvel milli
kirkjugesta og altarisins og
glápti í allar áttir. Söfnuðurinn
hafði engan frið fyrir þessum
dónum meðan á messunni stóð.
Eftir að messu lauk fóru síð-
ustu hömlurnar af sumum þess-
ara dóna. Þeir óðu upp að altar-
inu, snertu á öllu, þrifu frá
tjöldin við krossinn, líklega til
að sjá hvort þrifið væri bak við
þau og komu á allan hátt fram
eins og það væri í pakkhúsi.
• Kantar upp spændir
Hlaðið og annað úti við, sem
á vígsludag var ákaflega snyrti-
legt og fallegt, er jafnvel líka
farið að oera þess merki hvers
konar fólk hefur farið þar um.
Bílar hafa t.d. ekið upp á gras-
kantana og spænt þá upp.
margar myndir og greinar birtust
um hópinn í norskum blöðum.
Meðan sýningarflokkurinn var
í Noregi, sýndi annar hópur frá
félaginu þjóðdansa hér heima
fyrir erlenda ferðamenn. í hon-
um eru einnig 30 manns, en alls
eru 400 til 500 manns í Þjóð-
dansafélagi Reykjavíkur. For-
maður þess er Dóra Jónsdóttir.
Varsjá. 27. júlí — AP
PÓLSK yfirvöld hafa tekið þá
ákvörðun að banna með öllu
ferðamannaskipti við Tékkó-
slóvakíu.
Pólska fréttastofan PAP
skýrir frá þessu í morgun. Seg
ir hún ástæðuna vera þá, að
mikill bólusóttarfaraldur hafi
gripið um sig , Tékkóslóvakíu,
og hafi tugir manna þegar
tekið sjúkdóminn þar.
Ættu gestir, sem hyggjast
skoða Skálholtskirkju að reyna
að hafa svolítinn hemil á sér og
koma fram þó ekki væri nema
af sæmilegri hæversku og tillits
semi.
AEG
MÆLITÆKI
BRÆÐURNIR ORMSSON
Sími 1146).