Morgunblaðið - 01.08.1963, Page 12
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 1. ágúst 1963
12 ,
(Jtgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
tJtbrexðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðilstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Ask-riftargjald kr. 65.00 á mánuði innaniands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakió.
Ef landbúnaðarvéiarnar bila kann enginn að gera við þær.
Eins árs sjálfstæði og
vaxandi erfiðleikar
NÝJAR
Camkomulag Bandaríkjanna,
^ Sovétríkjanna og Bret-
lands um takmarkað bann
gegn tilraunum með kjarn-
orkuvopn hefur vakið nýjar
vonir í heimi kalda stríðsins.
Þessi þrjú stórveldi hafa kom
ið sér saman um bann við til-
raunum með kjarnorkuvopn í
andrúmsloftinu, úti í geimn-
um og neðansjávar. Hinsveg-
ar nær bannið ekki til til-
rauna neðanjarðar.
Þessu samkomulagi hefur
verið fagnað um allan heim,
nema í Kína. Það hefur vakið
vonir um að nýtt tímabil sé
að renna upp í sambúð vest-
rænna lýðræðisþjóða og Sov-
étríkjanna. — Kússar virðast
hafa gert sér ljóst, að áfram-
haldandi kapphlaup um kjarn
orkusprengingar hljóti að
leiða til ófarnaðar.
í framhaldi af samkomulag
inu í Moskvu um tilrauna-
bann, hefur svo afvopnunar-
ráðstefnan í Genf tekið upp
störf að nýju. Að þessari ráð-
stefnu standa sautján ríki, þar
á meðal Bandaríkin, Sovétrík
in og Bretland. Þegar ráð-
stefnan hóf störf sín aftur í
fyrradag, ríkti þar nokkur
bjartsýni um hugsanlegan ár-
angur af störfum hennar.
Bæði Macmillan, forsætis-
ráðherra Breta, og Kennedy,
forseti Bandaríkjanna, hafa
lýst yfir þeirri von sinni, að
samkomulagið í Moskvu
kunni að verða upphaf að
miklu víðtækari afvopnun.
Það er vissulega ósk hins lýð-
ræðissinnaða heims að þessar
vonir rætist.
Er síðari heimsstyrjöldinni
lauk tóku lýðræðisþjóðirnar
þegar að afvopnast. Það var
fyrst eftir að hinn Rauði her
Sovétríkjanna hafði svipt
margar þjóðir Austur- og
Mið-Evrópu frelsi þeirra, að
lýðræðisþjóðirnar tóku að víg
búast að nýju. Atlantshafs-
bandalagið og fleiri varnar-
samtök voru stofnuð til að
stöðva framsókn og yfirdrottn
unarstefnu hins alþjóðlega
kommúnisma.
Leiðtogar Rússa hafa nú
e.t.v. gert sér ljóst, að þeir
lögðu út á mikla óheillabraut,
þegar þeir létu Rauða herinn
hjálpa fámennum minnihluta
flokkum kommúnista til þess
að brjótast til valda í hverju
landinu á fætur öðru. Þar
með var vígbúnaðarkapp-
ið hafið.
Nú er hinsvegar svo
komið, að leiðtogar Rússa
skilja, að kjarnorkustyrjöld
myndi ieiða algera tortímingu
yfir þau lönd, sem kommún-
istar stjórna, ekki síður en
VONIR
vestrænar lýðræðisþjóðir. —
Á grundvelli þessa skilnings
hefur nú tekizt samkomulag
milli vestrænna þjóða og Sov-
étríkjanna um takmarkað til-
raunabann. Sá skuggi hvílir
að vísu enn yfir þessu sam-
komulagi, að Frakkar hafa
ekki viljað gerast aðilar að
því. Frakkar eru lýðræðis-
þjóð, sem ekki mun hefja
árásarstríð og hyggur fyrst og
fremst á eigin varnir. Von-
andi gerast Frakkar innan
skamms aðilar að því sam-
komulagi sem náðst hefur
milli austurs og vesturs.
Fólkið um víða veröld fagn-
ar hverju skrefi, sem stigið er
í áttina til afvopnunar og
heiðarlegs friðar. Alþjóðlegt
eftirlit með tilraunabanninu,
á að vera trygging þess, að
samkomulagið í Moskvu verði
haldið.
SKELFILEG
BLEKKING
yrir tveimur árum var því
lýst yfir, í einu málgagni
kínverskra kommúnista, að
Kínverjar væru eina þjóðin
sem gæti lifað af kjarnorku-
styrjöld. Þeir hefðu efni á því,
að missa þrjú til fjögur hundr
uð milljónir manna, en gætu
síðan risið upp á ný og haldið
áfram að byggja upp þjóðfé-
lag kommúnismans og lifað
hamingjusömu lífi!!
Það er þessi skelfilega
blekking sem virðist nú ráða
gerðum kínversku kommún-
istanna. — Leiðtogar þeirra
halda því nú blákalt fram, að
„þriðja heimsstyrjöldin muni
færa kommúnismanum loka-
sigur“.
Mao Tse-tung og menn
hans sjá ótrúlega skammt
fram í tímann. Þeir vita ekki
að eyðingarmáttur kjarnorku
sprengja er í dag. slíkur, að
allsherjarkjarnorkustríð milli
stórvelda hlyti að hafa í för
með sér gereyðingu heilla
heimsálfa. Það fólk, sem
kynni að lifa af slík ógnará-
tök, stæði á rústum, sem væru
hrikalegri en nokkurn mann
getur órað fyrir í dag.
Það sýnir botnlaust mann-
hatur og takmarkalausan van
þroska, þegar kínverskir
kommúnistar halda því nú
blákalt fram, að þessa áhættu
beri að taka til þess eins, ef
hugsanlegt væri, að tryggja
hinum alþjóðlega kommún-
isma heimsyfirráð.
En jafnvel hér uppi á ís-
landi eru til menn, sem ekki
hika við að dreifa út áróðri
kínversku kommúnistanna og
FRÉTTAMAÐURINN Frede-
rick C. Painton frá vikuritinu
U. S. News & World Report
var vel kunnugur í Alsír með-
an Serkir voru að berjast fyr-
ir sjálfstæði landsins. Ári eftir
að styrjöldinni lauk með sigri
Ben Bella, núverandi forsætis-
ráðherra, heimsótti Painton
Alsír að nýju. Þótti honum
margt hafa breytzt, og fæst til
batnaðar. Ritaði hann grein í
tímarit sitt við heimkomuna,
og fer hér á eftir útdráttur úr
henni. |
Ári eftir að Alsír hlaut sjálf-
stæði frá Frökkum, ríkir vax-
andi óánægja í landinu. Á yf-
irborðinu virðist þó allt með
kyrrum kjörum. Eftir sjö ára
frelsisbaráttu hafa Serkir
fengið nóg af styrjöldum. En
íbúarnir eru farnir að finna
áhrif þeirra efnahagsörðug-
leika, sem skapazt hafa í land-
inu. Örðugleikar þessir stafa
aðallega af brottflutningi um
90% evrópskra manna frá
Alsír, en það voni einmitt þess
ir menn, sem stóðu undir fjár-
hag landsins. Ekki hefur þjóð-
nýtingarstefna Ben Bella orð-
ið til að draga úr brottflutn-
ingnum.
Serkir vonuðust til þess að
sjálfstæðið færði þeim bætt
lífskjör, en þess í stað fara
kjörin sí-versnandi. Vanda-
málið er að stjórnin er að
verða gjaldþrota. Með hverj-
um mánuði, sem líður, aukast
ríkisskuldimar um 1300 millj.
króna að sögn sérfræðinga,
þrátt fyrir tekjur af olíu-
vinnslu og talsverðan fjárhags
stuðning frá Frökkum.
taka þar með undir málflutn-
ing þeirra. Það er íslenzku
jjóðinni ærj* umhugsunar-
efnL
SJÖSLYSIN
ITvert sjóslysið rekur annað.
Ungir menn sigla smábát
út úr Reykjavíkurhöfn og
týnast, vélbátur stra*xdar við
Álftanes, undir stjórn ölvaðs
skipstjóra, en mannbjörg
KAUPGREIÐSLUR
DRAGAST
í austurhéruðum Alsír
stóðu hermenn fyrir óeirðum
til að mótmæla seinagangi í
Ahmed Ben Bella
kaupgreiðslum. Hermönnum
úr stríðinu við Frakka hafði
verið lofað eftirlaunum, sem
ekki hafa fengizt greidd. —
Margir þeirra eru nú atvinnu-
og bjargarlausir. — Franskir
tæknifræðingar við póst og
síma hafa sent de Gaulle
Frakklandsforseta mótmæli
vegna þess hve erfiðlega geng-
ur :.ð fá Alsírstjórn til að
greiða umsamin laun. Kennar-
ar, bæði franskir og serknesk-
ir, hafa krafizt þess að fá
greidd gjaldfallin laun.
Um tvær milljónir Serkja,
helmingur vinnufærra manna,
eru atvinnulausir. Frá því
landið fékk sjálfstæði hefur
verzlun og iðnaður minnkað
um 50—70% að því talið er.
verður. — Tveir síldarbátar
sökkva út af Austfjörðum,
en skipverjar þeirra bjargast.
Þetta eru vissulega miklir
slysadagar.
Orsakir þessara sjóslysa eru
vafalaust í sumum tilfellum
óviðráðanlegar, en í öðrum
fullkomið sjálfskaparvíti. —
Óvarkárni og skeytingarleysi
setur allt of oft svip sinn á
stjórn skipa og báta. Á sjón-
um, við strendur íslands, ger-
ist stundum sama sagan og á
BROTTFLUTNINGUR
Auðséð var fyrirfram að
Serkir ættu við fjárhagserfið-
leika að stríða eftir að þeir
fengju sjálfstæði. Meðan á
styrjöldinni stóð voru í Alsír
um 500 þúsund franskir her-
menn, sem eyddu þar launum
sínum, en eru nú flestir farn-
ir ásamt evrópsku landnemun-
um. Fyrir sjálfstæðið bjuggu
þar milljón evrópskir land-
nemar, en nú eru aðeins um
120 þúsund þeirra eftir. í ár
er talið að 50 þúsund til við-
bótar flytja úr landi, mest
vegna þjóðnýtingarstefnu Ben
Bella. Meðal þeirra, sem farn-
ir eru og að fara, eru læknar,
kennarar, iðjuhöldar, verk-
fræðingar, ríkisstarfsmenn og
faglærðir verkamenn, allt
menn, sem ekki er unnt að
komast af án. Það voru þessir
menn, sem mestar eignir áttu
í landinu og greiddu megnið
af opinberum gjöldum.
Á síðasta ári hefur ríkis-
stjórnin yfirtekið 3,75 milljón
ekrur af landbúnaðarjörðum.
Þá hefur stjórnin yfirtekið
rúmlega 500 verzlunar- og iðn
aðarfyrirtæki evrópskra
manna, sem nú eru horfnir úr
landi.
Margir hafa gagnrýnt þessa
þj óðnýtingarstefnu Ben Bella,
þeirra á meðal Ferhat Abbas,
forseti þingsins. Benda gagn-
rýnendur á að stjórnin sé að
brjóta niður grundvöllinn fyr-
ir skattatekjum sínum. í stað
þess að hirða opinber gjöld
frá búgörðum og iðnfyrirtækj-
um, neyðist stjórnin í æ rík-
ara mæli að styðja þennan
rekstur fjárhagslega.
Framh. á bls. 23.
landi, þar sem kærulaus öku-
maður veldur sjálfum sér og
öðrum slysum og háska.
Kæruleysið og skeytingar-
leysið er þannig allsstaðar að
verki. En þessar slysfarir eiga
að fela í sér áminningu um
meiri varfærni og ríkari á-
byrgðartilfinningu hjá þjóð-
inni, ekki aðeins hjá þeim sem
stjórna bát eða bifreið. Skeyt-
ingarleysið og ábyrgðarleysið
er óvinur þjóðfélagsins. Það
veldur tjóni og sárum, sem
aldrei gróa.