Morgunblaðið - 01.08.1963, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 1. Sgflst !§§S
TMORGVWTtl. AfílÐ
23
17 vegaeftirlitsbílar
til aðstoðar um næstu helgi
' FÉLAG ÍSL. bifreiðaeigenda
mun um verzlunarmannahelgina
hafa 15 bíla í vegaeftirliti og að-
stoð á suðurhluta landsins og 1
vegaþjónustubíl með talstöð frá
AkureyrL Þá er Brandur Stfáns-
son í Vík með aðstoðarbíl í
Skaftafellssýslum. í þessum bíl-
um öllum eru skátar til að veita
fyrstu aðstoð, ef komið er að
slösuðu fólki. Þá hefur FIB beitt
sér fyrir því að bifreiðaverk-
stæði verða opin víðs vegar alla
verzlunarmannahelgina.
Ef bifreiðastjórar lenda í
vandræðum geta þeir leitað á
náðir þessara FIB-bíla, annað
hvort gegnum talstöðvar ann-
arra bíla eða í síma. Má koma
orðum til Gufunessradio og er
þjónustusíminn 22384. En þeir
sem eru í námunda við Akur-
eyri hafa samband við slökkvi-
stöðina þar, ef þeir þurfa að ná
sambandi við öryggisbílinn.
Hvað viðgerðarverkstæðunum
viðvíkur, eiga vegfarendur að
geta áttað sig á auglýsingaskilt-
um frá FIB, sem segja til um
næsta viðgerðarstað. Félagið
greiðir ekki viðgerðarþjónustu
inni á verkstæðunum, en félags-
menn fá fría hjálp hjá hjálpar-
bílunum. Aðrir greiða fyrir að-
stoð.
Á Norðurlandsleið og Norður-
landi verða 6 verkstæði opin, 1
á Suðurnesjum og 4 á Suður-
landsundirlendi. En bifreiðarnar
á Suðurlandi verða á eftirtöldum
leiðum: Reykjavík — Hvera-
gerði, Ljósafoss — Hveragerði
og upp eftir Grímsnesi, Ljósafoss
—Þingvellir og niður að Stardal,
Stardalur—Elliðaár og upp að
Tíðaskarði, Tíðaskarð—Hvalfjarð
arbotn og eittbfvað upp eftir
Borgarfirði og Mýrum. Verða
bílarnir auðþekktir, enda vel
merktir á toppnum.
Vélbilun brezks togara
Þegar brezki togarinn LOR-
ENZO H-230 var að veiðum út
af Skagagrunni sl. föstudag, varð
hann fyrir því óhappi, að stykki
í 15. UMFERÐ á Evrópumótinu í
bridge tapaði ísland fyrir írlandi
með 72 stigum gegn 99.
Úrslit í 15. umferð urðu þessi:
Finnland — Svíþjóð .... .. 4-2
írland — ísland .. 6-0
Pólland — Egyptaland .. .. 5-1
Noregur — Danmörk .... .. 5-1
Frakkland — Spánn .... .. 6-0
Ítalía — Líbanon .. 6-0
Þýzkaland — Holland .. .. 3-3
England — Belgía .. 6-0
Sviss — Austurríki .... .. 6-0
í 12. umferð í kvennafl. urðu úrslit þessi:
írland — Finnland .. 6-0
Svíþjóð — Egyptaland .. .. 4-2
Frakkland — Líbanon .. .. 6-0
Spánn — Belgía .. 6-0
Danmörk — Sviss .. 6-0
Holland — Þýzkaland .. .. 6-0
Nooregur — Austurríki .. .. 6-0
Staðan í kvennaflokki að 12
umferðum loknum er þessi:
1. England 67 st.
2. Frakkland 60 —
3. Danmörk 45 —
4. írland 44 —
5. Sviss 43 —
6. Svíþjóð 43 —
7. Noregur 40 —
8. Belgía 37 —
9. Egyptaland 37 —
10. Holíand 34 —
11. Spánn 33 —
12. Þýzkaland 32 —
13. Líbanon 31 —
14. Austurríki 22 —
15. Finnland 8 —
Staðan í opna flokknum að 15
umferðum loknum er þessi:
1. England 88 st.
2. Ítalía 74 —
3. Pólland 61 —
4. Frakkland 56 —
5. Sviss 53 —
6. Finnland 52 —
7. Belgía 51 —
8. Svíþjóð 45 —
9. Noregur 40 —
10. Þýzkaland 36 —
11. ísland 35 —
12. Spánn 35 —
13. Líbanon 34 —
14. írland 32 —•
15. Danmörk 31 —
16. Austurríki 30 —
17. Holland ,. 30 —
18. Egyptaland . 27 —
í vélinni brotnaði, en það olli
aftur öðrum skemmdum á vél
togarans. Skipsmenn reyndu að
lagfæra skemmdirnar sjálfir, og
stóðu þær tilraunir í heilan sól-
arhring. Þegar þær báru ekki
árangur, var leitað aðstoðar tog-
arans Kingston Emerald, sem
gerður er út af sama félagi Kom
hann að Lorenzo um hádegi á
laugardag og dró hið ósjálfbjarga
skip inn til Akureyrar. Þangað
komu togararnir um kl. 8 um
kvöldið.
Viðgerð hefur gengið vel. Út-
Skipstjórinn á Lorenzo í brú tog
arans. — Ljósm.: Sv. P.
gerðarfélag Akureyringa hefir
lánað nauðsynlega varahluti, og
akureyrskir járniðnaðarmenn
hafa unnið að verkinu, sem er
all vandasamt. Skipstjóri vonar
að togarinn geti látið úr höfn í
kvöld eða nótt og heldur hann
þá rakleitt heim til Englands.
Lorenzo var búinn að vera að
veiðum 7—8 daga, er óhappið
varð, og aflinn er um 1000 kit.
Talið er, að hann komist ó-
skemmdur til heimahafnar, ef
ekkert óvænt kemur fyrir.
Skipstjórinn, Eric Thunder-
cliff, hefir verið skipstjóri á tog-
urum sama útgerðarfélags í 14
ár. Hann gegndi herþjónustu í
brezka flotanum á stríðsárunum
og var þá hér á landi, aðallega í
Reykjavík, á annað ár.
Laxar í Eyrar-
vatni
Akranesi, 30. júlí
SL. LAUGARDAG veiddi Kristj
án Ólafsson í Eyrarvatni í Svína
d:.. 12 punda lax og 9 silunga.
Fyrr í sumar veiddust þ?arna
40—50 silungar á eina stöng yfir
daginn. Fyrra laugardag veiddi
Gunnar Bjarnason 14 punda lax
af báti í Eyrarvatni, þann stærsta
í sumar
Eyrarvatn er á efra vatnasvæði
Laxár í Leirársveit.
Erlingur Gislason, Guðrún Stephensen, Helga Bachmann, Petur Einarsson og Helgi Skulason.
„Hlauptu af þér hornin“ úl um land
Leikflokkur Helga Skúla-
sonar leggur af stað í leikför
um landið á morgun, föstudag
með gamanleikinn „Hlauptu
af þér hornin“ (Come blow
your horn) eftir bandaríska
höfundinn Neil Simon. Frum
sýning verður á Blönduósi á
föstudagskvöld, þaðan haldið
til Siglufjarðar, Óiafsfjarðar
og austur um.
Leikendur eru sex, þau
Helga Bachmann, Guðrún
Stephensen, Brynja Bene-
diktsdóttir, Helgi Skúlason,
Erlingur Gíslason og Pétur
Einarsson. Leikstjóri er Helgi
Skúlason, en leiktjöld gerði
Steinþór Sigurðsson.
Hlauptu af þér hornin er
nýr gamanleikur, sem sýndur
hefur verið við mjög miklar
vinsældir austan hafs sem
vestan. Hefur leikritið verið
kvikmyndað, og var myndin
nýlega frumsýnd í New York.
— Utan úr heimi
Framhald af bls. 12.
ÓHÆFIB TIL AÐ
TAKA VIÐ
Reynslan sýnir að Serkir
eru yfirleitt ekki færir um að
taka við af evrópsukum mönn
um. Mjög er erfitt og stund-
um jafnvel útilokað, að fá bif-
reið eða vélar viðgerðar. — í
sumum verksmiðjunum, sem
þjóðnýttar hafa verið, eru eng
ir starfsmenn, sem vita einföld
ustu atriði um rekstur þeirra.
Nokkru öðru máli gegnir um
búgarðana, þó þar sé einnig
við mikil vandamál að stríða.
Til dæmis má nefna búgarð
einn . í Mitidja-héraði. Þar
vinna 120 manns og allir fá
sömu laun, um 65 krónur á
dag. En sá sem hefur yfir-
stjórn landbúnaðarvélanna, er
ólæs. Hann getur ekki lesið
sér til um viðhald vélanna.
Vélamar bila, og enginn veit
hvernig á að gera við þær. Og
á búgarðinum finnst enginn
maður með nauðsynlega bók-
haldskunnáttu.
BJARTSÝNI
Þrátt fyrir alla erfiðleika,
hefur ekki dregið verulega úr
landbúnaðarframleiðslunni —
enn sem komið er. í vor rigndi
mikið, þessvegna verður upp-
skeran mjög góð. Þetta hjálp-
ar til að fæða þjóðina, en gef-
ur ekki Ben Bella þær ríkis-
tekjur, sem nauðsynlegar eru.
Horfumar eru ekki góðar
fyrir næstu framtíð. En til eru
bjartsýnir kaupsýslumenn í
landinu, sem hafa trú á að
ástandið lagist. Þeir benda á
arfinn frá Frökkum — gott
vegakerfi, vatnsveitu, síma og
orkunet, heimsborgir með ný-
tízku íbúðarhúsum. Einnig eru
félög, sem ekki höfðu aðstöðu
á stríðsárunum, að undirbúa
leit að oliu og jarðgasi á Mið-
jarðarhafsströndinni. í Tind-
ouf, fyrir sunnan Marokkó, er
tfjall, þar sem áætlað er að
séu 3 þúsund milljón lestir af
járngrýti o. s. frv.
★
Til að nýta þessar auðlindir
þarf mikið fjármagn og þekk-
ingu, og erlendir sérfræðingar
spyrja: Hvaðan kemur það?
Þjóðnýtingarstefna Ben Bella
fælir burt fjármagnið, jafnvel
frá Serkjum sjálfum.
Ekki er gott að spá um
hvað skeður, en svo til allir
eru sammála um að „svona
getur það ekki gengið lengur".
Engin síld
ENGIN síldveiði var í gær. Lágu
skipin inni á Austfjarðarhöfn-
um, en voru að byrja að tínast
út um 10 leytið í gærkvöldi. Þá
var komið ágætis veður.
Bifreið stolið
í Keflavík
MANUDAGSNÓTTINA 29. júlí
sl. var bifreiðinni J 0290 stolið
frá Vesturgötu 16 í Keflavík. Bif
reiðin er Chevrolet árigerð 1951,
gráblá að neðan en Ijósgrá að
ofan. Þeir sem gætu gefið upp-
lýsingar láti næsta yfirvald vita.
Söltun á Seyðis-
firði rúmlega
35 þús. tunnur
A ÞRIÐJUDAGSKVÖLD höfðu
alls verið saltaðar 35056 tunnur
á Seyðisfirði. Skiptist það þann
ig á milli söltunarstöðvanna: —
Hafaldan 9396 tunnur, Ströndin
7947, Sunnuver 7263, Sókn 3203,
Neptún 2627, Valtýr Þorsteins-
son 2330 og Borgir 2291.
— Ægir
Framhald af bls. 1.
sigið að framan, sáum við að
við áttum ekki annars úrkosta
en yfirgefa bátinn. Þegar á-
reksturinn varð höfðum við
látið reka í hálftíma og lágum
kyrrir í þokunni.
— Hver heldur þú að hafi
verið orsök slyssins?
Guðlaugur svaraði: — Æ,
ég veit ekki hvað hægt er að
segja um það og vil ekki full-
yrða neitt.
Telurðu ekki að þið hafið
verið í mikilli hættu?
— Jú, tvímælalaust vorum
við allir í mikilli hættu, og
þegar ég hugsa um það á eftir
hvernig áreksturinn varð,
finnst mér eiginlega óskiljan-
legt að a.m.k. einn skipverja
okkar skyldi ekki hafa stór-
slasast. Hann lá fram á koju-
stokkinn og talaði við strák-
ana, þegar byrðingurinn á
Ægi kom allt í einu inn, en þá
kastaðist hann út úr kojunni.
Það bjargaði lífi hans.
Að lokum spurði fréttamað-
ur Mbl. Guðlaug Óskarsson,
formann, hvað hann hyggist
gera nú, þegar svo illa hefur
farið um bát hans.
— Það er ekkert framund-
an, sagði hann dapur í bragðL
Þetta er allt mjög leiðinlegt.
Ég get þó huggað mig við það
að allt hefði getað farið miklu
verr.
Þess má að lokum geta, að
Guðlaugur er Gnndvíkingur,
og þegar hann sagði frétta-
manni Mbl. frá því að þetta
væri fyrsta skiptL sem hann
væri formaður á báti, var ekki
laust við að honum þætti sárt
að svo skyldi fara um fyrsta
farkost hans. En við minntum
hann á þau gömlu gullvægu
orð, að fall er fararheilL
Háteigsv. — Stangarholt
Unglingur óskast til þess að bera MoLjjunblaðið tll
kaupenda við Háteigsveg og Stangarholt.
Gjörið svo vel að tala við afgr., sími 22480.