Morgunblaðið - 22.08.1963, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.08.1963, Blaðsíða 6
6 MORGU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 22. ágúst 1983. E. J. Stardal: Veiöar og „drápsgleöi" Lokasvar til Hallgríms Jónassonar HALLGRIMUR Jónasson ritar grein í Mbl. hinn 17. þ.m. vegna greinarkorns, sem undirritaður hafði sett í sama blað til þess að bera til baka tvítekin ósann- indi í dagblaðinu Tímanum um að undirritaður hygðist leiðsaga erlenda veiðimenn á hreindýra- veiðar hér. Umræður þessar hafa spunnizt á þann veg í með- förum H.J. að erfitt er að leiða alveg hjá sér, þó ef til vill rétt ast væri. Gætir í senn hjá H.J. misskilnings, vanþekkingar og ó vandaðs málflutnings. I fyrsta lagi nefnir H.J. það rugl hjá mér er ég leiðrétti þann misskilning hans í upphafi að hreindýr séu friðuð á íslandi. Hann hafði á- litið þau alfriðuð nema að lógað væri nokkrum aflóga dýrum. Er ég hafði upplýst hann um að ár lega væri leyft að fella 500—600 fullorðin dýr frá 7. ágúst til 20. september segir hann, að fengn um þessum upplýsingum, að víst séu dýrin friðuð 10% mánuð af 12. Nema hvað? Veit H.J. ekki að næstum öll villt nytjadýr sem veidd eru, eru friðuð langan tíma ár hvert? Langflest þeirra um fengitíma og meðan þau ala og ala önn fyrir afkvæmum sínum. Leitast er við að veiða þau, þeg ar þau gefa mestan arð og minnst hætta er á að stofninn verði fyrir skerðingu. Rjúpan er til dæmis alfriðuð, — nema þann tíma sem leyft er að skjóta hanaH Les- endur geta svo sjálfir dæmt hvor okkar H.J. er að rugla í þessu tilliti. H.J. vill ekki trúa því að veiði menn geti verið dýravinir og segir síðan að þeir „láti slag standa“ hvort dýrunum sem send er banakúla „limlesti og særi til langvarandi kvala eða veldur bráðum bana“. Þetta eru ósvífn ar dylgjur sem H.J. getur ekki staðið við. Eg hygg mig hafa meiri kynni af veiðimönnum en H.J. og á ennþá eftir að finna þann í þeim hópi, sem lætur sér á sama standa um slíkt. Auð vitað er misjafn sauður í hópi þeirra þúsunda og milljóna karla og kvenna er við veiðar fást. En langflestir veiðimenn gera sér allt far um að vinna veiðidýrum bana á eins hreinleg an og skjótan hátt og auðið er. í veiðilöggjöf og reglugerðum flestrá landa gilda afarstrangar reglur um þetta atriði og eru þó hin óskráðu veiðimannalög venju lega strangari. Víða í Afríku m.a.s. eru fyrirmæli um að sært villidýr skuli skilyrðislaust leit að uppi og fellt þó það feli í sér hinn mesta lífsháska fyrir veiði manninn.' Sportveiðimenn munið Eftir þessa fuliyrðingu kem- ur H.J. með þá fölsun orða minna að ég hafi sagt að veiðimenn „umbæti líf hér á jörð“ og legg ur út af þessu. Eg sagði hins vegar að í hópi sportveiðimanna mætti finna fjölda ágætismanna og ýmsa mestu og beztu menn þessarar jarðkringlu, sem hefðu gert sitt til að bæta mannlíf hér á jörð; nefndi þar til menn eins og t.d. Friðþjóf Nansen. Hins vegar lagði H.J., óviljandi, mér sannleik í munn, því sportveiði menn hafa gert mikið til þess að fá bannaðar ómannúðlegar veiði aðferðir, t.d. gildruveiðar, veið ar með dýrabogum, útburð eit- urs gegn meindýrum o.fl. í mörgum löndum og ekki hvað sízt í Ameríku. Þeir hafa og jafn an hlutast til um, að þar sem skotvopnum er beitt séu þau af hæfilegum stærðum og gerðum. T.d. vakti Skotfélag Reykjavíkur yfir því á sínum tíma, er hrein- dýraveiðar hófust aftur að vænt anlegir hreinaveiðarar notuðu nægilega öfluga riffla til veið- anna, og benti á nauðsyn þess að litið væri eftir því að þeir kynnu með þau að fara. H.J. færir þessu næst til ljóta sögu af „veiðimanni“ sem laum- aðist heim að bæ einum og drap þar hálfgerðan alifugl fyrir aug um heimilisbarnanna, — segir þetta hafi verið alkunnur sport maður reykvískur, og semur síð an siðapredikun út frá þessum texta og kveður ekki ofmælt að þeir menn er slíka iðju stunda fá heitið mannskepnur. Þar urðum við H.J. algerlega sam- mála því mannfýla þessi er ef sagan er sönn, margsekur, bæði við veiðilöggjöf og almenn hegn ingarlög og ætti að hýðast með sinni eigin byssuól að loknum öðrum refsingum. En það er ósmekklega ræt ið af H.J. að taka þetta dæmi og reyna síðan lævíslega að klína svona verknaði almennt á veiðimenn. Það er sams konar röksemdafærsla eins og eg t.d. reyndi að telja mönnum trú um að ferðalang urinn Hallgrímur Jónasson væri fyllibytta og fjallagarp- ar þeir, sem leita öræfanna væru slarkarar, á þeim for sendum að nokkrir afvega- leiddir unglingar hafa stofnað til ölæðisskemmtana á ýms um fegurstu stöðum í óbyggð um landsins. H.J. segir að sportveiðimenn hafi þá sérstöðu meðal íþrótta- manna að þeir æfi sig á lifandi dýrum. Þetta er hálfur sannleik ur og tæplega það. í flestöllum menningarlöndum starfa veiði- og skotfélög þar sem byrjendum er kennt að fara með skotvopn og þeim gefin tækifæri á að æfa leikni sína á skotmörkum úr pappír o. þ. h. í Englandi er byrj endum ekki leyft að beina skot- vopni gegn lifandi dýrum fyrr en þeir hafa fengið næga leikm á öðrum vettvangi og þar er tek ið ómjúkum höndum á kæru- leysi eða klaufaskap. í Þýzka- landi verða menn að gangast und ir ströng próf um þekkingu á dýralífi og veiðiskap og ganga í samtök veiðimanna áður en þeir fá veiðileyfi. Hérlendis eru ágæt lega skipuglöð félög lax- og sil- ungsveiðimanna er setja meðlim um sínum strangar reglur, en hvað skotvopnum viðvíkur er þetta enn á byrjunarstigi. Skot- félag Reykjavíkur hefur ekki veiðiskap á stefnuskrá sinni heldur iðkun skotfimi, sem keppn isíþróttar, en í því félagi eru fjölmargir sportveiðimenn. Hér má því gjarnan skjóta því inn að þegar bóndi utan af landi aug- lýsti í útvarpi eftir skotmönnum til þess að drepa gæsir um há varptímann, er hrjáðu kornarkra hans og hét verðlaunum fyrir þessi lögbrot, bærði Dýravernd unarfélagið ekki á sér! ókunnugt er mér um að löggæzluvaldið hafi látið málið til sín taka og ekki rak Hallgrímur Jónasson upp skræk, en Skotféiag Reykja- víkur áminnti félagsmenn sína með útvarpsauglýsingu og skor aði jafnframt á alla aðra er með skotvopn fara að virða fugla- friðunarlögin. Dýravernd eða sentimentalismi H.J. klykkir út með senti- mental hugvekju um hversu ljótt það sé hjá sportveiðimönn um að drepa dýr. Kallar það takmörkun hugsunarinnar sem felist í því að líta á málið að- eins frá sjónarmiði veiðimanns- ins. Ójá. Þetta er virðingarvert sjónarmið svo langt sem það nær, en H.J. hugsar bara ekki kenningu sína til fulls, éða a.m.k. virðist dýraverndunaráhuga hans og dýraást þröngur stakkur skorinn. Það er nú einu sinni svo að I hinni miklu hringrás náttúrunnar virðist það vera ó- rjúfanleg lögmál að ein tegund lífvera er ætluð annarri til fæðu og stærsti liðurinn í fæðuöflun mannsins er og hefur verið dýra dráp og útlit til að verði um skeið. Hinn frumstæði maður forntíðarinnar gladdist er hann hafði drepið dýr sér og sínum til framdráttar. Hjarðmaðurinn og bóndi nútímans gleðjast yfir væn um fjárhjörðum, sem þeir hyggj ast innan tíðar reka á blóðvöll. Ef þetta er af „drápsgleði* þá er sjálfsbjargarviðleitni manns- ins lika drápsgleði. Leiðir H.J. hugann að því næst er hann hef ur lambasteik á borðum, að rif ið sem hann nagar, var fyrir skömmu partur af lifandi veru, er lék sér áhyggjulaust um laut og hól meðal lyngs og blóma, eða hvaða hugrenningar fóru um kýrheilann er hún var svipt af- kvæmi sínu, það rotað og étið svo manna börn fái mjólk? Lands- búar heyra ekki aðrar fregmr fúsari en, að Eggert á Sigurpáli og aðrir aflakóngar hafi kramið og kæft til dauða nýjar milljónir síldar og þorsks. Hvílíkir óþokk ar og gleðjast áreiðanlega yfir öllu athæfinu! Mannskepnan ræðst með eitri og öllum morð- tólum, sem henta, gegn rottum, refum, úlfum og öðrum að henn ar áliti meindýrum. ^>etta er nauðsyn, en ekki leikur kann einhver H.J. að segja. Alveg rétt, en gleymum bara ekki því að öll þessi dýr eiga bara sitt eina líf og jafnan rétt til lífsins. Annað er hræSni. Og ég hefi persónu- lega enga trú á því að ferfætt dýr, fuglar eða fiskar geri hinn minnsta mUn á því hvort það er ofsótt og drepið af nauðsyn at- vinnumannsins eða af sportveiði manni, sem veiðir í frístundum. Hitt veit ég, sem og allir, sem veiða og hafa alizt upp með dýr um, að af öllum þeim aragrúa dýra sem maðurinn aflífar sér til framdráttar munu þau dýr sem falla fyrir æfðri hendi góðs veiðimanns hljóta mannúðlegast an bana, sem kemur venjulegast að óvörum og slekkur líf þeirra eins og Ijós sem blásið er á. Og þá er ekki seinna vænna að skilgreina hugtakið góður veiðimaður ef skilningur þess skyldi enn vera óljós fyrir H.J. Veiðimaður kallast sá sem veið- ir villt dýr. Sportveiðimaður nefnist sá sem fer til veiða í frí- stundum sínum. Góður og sann ur veiðimaður hefur í fyrsta lagi til að bera nægilega leikni með veiðitæki sitt, hann fer að lögum og reglum á hverjum stað og tima og banar bráð sinni, hvort það er fiskur, fugl eða fer fætlingur á eins skjótan og hrein legan hátt og auðið er og líður ekki öðrum annað. Innilokaðir borgarbúar nútím ans leita meðfæddri ævintýraþrá hvers heilbrigðs manns útrásar á ýmsan hátt. Sumir lesa leyni- lögreglusögur og morðreyfara, aðrir fara til fjalla, en aðrir til veiða. Ef sá hópur æskumanna er það gerir stækkaði að mun er ég viss, að sá hópur gæti lagt lóð sitt á metaskálarnar þannig að íslenzkir unglingar reyndust ekki einhverjir þrekminnstu I heiminum eins og nú er að koma á daginn. Þessi blaðaskrif sem upphaf- lega spunnust út af einni Tíma- lygi eru þegar orðin of löng. Eg hefi leitast við að leiðrétta hár- toganir og misskilning H.J. og setja um leið að nokkru fram skoðanir mínar og fjölda ann- arra er veiði- og útilífi unna. H.J. getur síðan umsnúið þessu eins og hann vill, gert mér upp skoðanir og barist síðan við þær eins og hann er drengur til. Eg hygg ég muni ekki telja ómaks ins vert að svara því frekar né fara í mannjöínuð við hann. Reykjavík, 20. ágúst 1963. E. J. S. Moskva varð- veitir hrein- leikann MOSKVU, 20. ágúst. — Moskvu- blaðið „Pravda“ birti í dag í heild yfírlýsingu sýrlenzka kommúnistaflokksins um stuðn- ing- við Rússa í hugsjónadeilu kommúnistaflokkanna í Kína og Soyétríkjunum. I yfirlýsingunni eru Kínverj- ar meðal annars víttir fyrir til- raunir sínar til þess að einangra þjóðir í Asíu, Afríku og Suður- Ameríku frá sósíalísku ríkjunum, emkum Sovétríkjunum. Fyrirsögnin fyrir yfirlýsing- unni í Pravda var svohljóðandi. „Sovézki kommúnistaflokkurinn varðveitir hreinleikann í kenn- ingum Marx og Lenins“. • Umferðarmenningin „Þorri“ skrifar: „Kæri Velvakandi. í framhaldi af skrifum þín- um um umferðina á þjóðveg- unum langar mig til þess að leggja örfá orð í belg. Ég get vel samþykkt það, að bílstjórar stóru flutningabílanna og áætl unarbílanna séu yfirleitt mjög kurteisir og liprir. í þessu sam bandi get ég sagt þér frá einu atviki, sem kom fyrir mig á Norðurlandi í sumar, það gæti orðið öðrum til leiðbeiningar. Ég ók alllengi á eftir stórum flutningabíl, sem ekki vék þótt ég þeytti bílhornið eins og orka þess leyfði. Ég var orðinn sann færður um, að ég hefði þar hitt fyrir undantekninguna, einn, sem „ætti veginn“. En þá kom mér skyndilega í hug, að ef til vill heyrði maðurinn ekki „hljómleika" mína. Hann var ef til vill að hlusta á sama glymjandann í útvarpinu og ég í mínum bíl. Ók ég þá þegar utarlega á veginn, komst í sjón færi við spegil skelmisins á undan, kveikti ljós og blikkaði. Þetta hreif á stundinni. • Smábílarnir Því ber ekki að neita, að sum ir bílstjórar, sem óvanir eru að aka úti á vegum, kunna alls ekki að mæta bílum né hleypa þeim íram úr sér. Einum mætti ég t. d. á veginum upp að Geysi. Ofaníburður er laus bæði á vegarkantinum og hryggnum á miðjum veginum. Ég skipti niður að venju og fikraði mig út á vegarbrúnina, en hinn ók án þess að draga úr ferðinni eins og hann væri á sléttum og breiðum vegi. Mér er enn óskiljanlegt, hvernig hann skauzt framhjá, en hann fékk lexíuna, missti nær vald á bíin- um, en hélt honum þó á vegin- um. Þar stanzaði hann alveg og var þar enn, þegar ég hvarf fyrir næstu haeð. • Ef bíll er í „skottinu“ Ég hef haft það fyrir reglu, að nái bíll mér úti á vegi, só kominn „í skottið* á mér, eins og það er kallað, að hægja strax á ferðinni og hleypa hon- um framúr við fyrsta tækifæri. Bíll, sem nær mér, ekur hrað- ar en ég, og ég þarf ekki að hafa áhyggjur af honum, hann hverfur skjótt úr augsýn. Og nú í sumar tók ég eftir því, að fjölmargir bílstjórar, ég vil segja mikill meirihluti, fer eins að. Umferðarmenningin úti á vegum hefir aukizt svo mjög, að ef áframhaldið verður eins, geta menn glaðir lagt upp i sína ferð, án þess að eiga það á hættu að durtar eða angur- gapar eyðileggi alla ánægju. Þorrr1,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.