Morgunblaðið - 22.08.1963, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.08.1963, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 22. ágúst 1963 MORCUNBLAÐIÐ 13 DAGSKRÁ ráðstefnu félags- málaráðherra Norðurlanda hófst í gær, en gera varð ýms- ar breytingar á henni, þar sem ýmsar tafir og óhöpp urðu á vegi þátttakendanna. Ráðstefnan er haldin að Bif- röst í Borgarfirði. Nokkrir ráðherranna, ásamt föruneyti, áttu að koma með Cloúdmastervél Flugfélagsins frá Kaupmannahöfn sl. þriðju dagskvöld. En þegar flugvél- in nálgaðist landið varð að snúa henni við til Prestvíkur, þar sem þoka kom í veg fyrir að lent yrði á íslandi. Með flugvélinni voru finnsku ráSherrarnir Verner Korsbáck og Onni Nárvánen og fjöldi finnskra, danskra og norskra ráðuneytismanna. Sænski ráðherrann Sven Aspl Ráðherramir, sem mættir voni í gær til ráðstefnunnar (frá vinstri): Verner Korsbáck, Finnlandi, Emil Jónsson, Sven Aspling, Svíþjóð, og Onni Nárvánen, Finnlandi. Raðherrar í hrakningum ing kom til Reykjavíkur sl. mánudagskvöld ásamt sinum mönnum. Enginn ráðherra kemur frá Noregi, en frá Dan mörku kemur innanríkisráð- herrann, Lars P. Jensen, í veikindaforföllum Bumdvad, félagsmálaráðherra. Larsen var væntanlegur til íslands í gærkvöldi, félli nokkur flug- ferð. Þegar Cloudmastervélin kom til Prestvíkur með hina þreyttu ferðalanga fengust þar ekki hótelherbergi. Urðu þeir að sofa í stólum í biðsal flugstöðvarinnar, þeir sem á annað borð gátu sofnað. Um níu leytið í gærmorgun var aftur búizt til íslandsferðar. Lenti flugvélin loks á Reykjavíkurflugvelli um kl. 1.30 síðdegis. Þar voru fyrir Emil Jónsson, félagsmálaráð- herra, Hjálmar Vilhjálmsson, ráðuneytisstjóri, og aðrir ís- lenzkir þátttakendur í ráð- stefnunni. Fögnuðu þeir vel gestunum, sem voru hátt í sól arhring á eftir áætlun. Dagskráin átti að hefjast kL 9.30 um morguninn með heimsókn að Reykjalundi og hódegisverði að Þingvöllum. Þar sem svo áliðið var dags varð að hætta við heimsókn- ina að Reykjalundi. Fóru all- ir ráðherrarnir og föruneyti inn í langferðabíl frá Norður- leið h.f. og innan tíðar var haldið af stað til Þingvalla. Blaðamaður og ljósmynd- ari frá Morgunblaðinu fylgdi á eftir hópnum. Þegar lang- ferðabíllinn var farinn að nálgast Leirvogsvatn sáu Morgunblaðsmennirnir mik- inn gufustrók stíga upp frá honum. Það leit út fyrir að ekki ætti af hinum þreyttu ferðalöngum að ganga. Það sauð á bílnum, svo hraust- lega, að Ásgeir, bílstjóri, varð að setja þurrkurnar í gang. Stanzað var við Leirvogsá, hjá Svanastöðum, og fór Ás- geir með brúsa til að sækja vatn. Þurfti að fara einar 8 eða 9 ferðir í ána þar til vatns kassinn var orðinn fullur. Síð asta brúsann sótti Salvesen norskur skrifstofustjóri. „Það er bezt að hafa þennan til vara“, sagði hann og brosti við. Vatnsburðinn tók alllangan tíma, einar 20 mínútur, og vöppuðu sumir hinna erlendu gesta í kringum bílinn á með- an, einn og einn kíkti í op vatnskassans til að gá að hvort hann færi ekki bráðum að fyllast. Langferðabíllinn er af Scania-Vabis gerð, sænskur. Vakti sú staðreynd mikla kátínu meðal hinna norrænu ferðalanga, einkum hlóu þeir norsku dátt að því er einn Svíinn sagði Morgunblaðs- mönnum. Aðrir töluðu um, að gufustrókurinn hefði verið nokkur raunabót, þar sem ekki gæfist tækifæri til að heimsækja Geysi. Loks var háldið af stað aft ur og komið að Valhöll kl. rúmlega 3, í fögru og kyrru veðri. Þar sem svo áliðið var dags var hætt við að stanza við Lögberg. Það voru þreyttir, syfjaðir og slæptir menn sem stigu út úr langferðabílnum á hlaðinu í Valhöll. Því kærkomnari var kokteillinn og maturinn sem beið, lax, kjúklingar, ost 1959, en þá hefði hann milli- lent á Keflavíkurflugvelli að nóttu til, er hann var á leið á þing Sameinuðu þjóðanna. Kvað Korsbáck þetta því vera í rauninni í fyrsta skipti sem hann kæmi til landsins, sæi það með eigin augum. Kvað hann hin fyrstu áhrif mjög jákvæð. Ráðherrann kvaðst hafa les ið í flugvélinni bækling um fsland og í honum væri farið fögrum orðum um íslenzka náttúru. Þar væri ekki orðum aukið, því það sem hann hefði enn séð væri bæði tilkomu- mikið og fagurt Að lokum sagði Korsbáck, og brosti við: „í bæklingnum stendur einnig, að islenzkar konur séu mjög fagrar. Þær, sem ég hef enn séð, rísa fylli lega undir þeim ummælum". Sven Aspling sagði, að mörg þýðingarmikil mál yrðu rædd á ráðstefnunni, sem nú væri haldin í fyrsta skipti á íslandi. Vonandi fengjust ákveðin svör við ýmsum þeim erfiðu spurningum, sem ræddar yrðu, og alls ekki mætti gleyma hversu þýðing- armikil væru persónuleg kynni manna, sem fjölluðu um lausn svipaðra vanda- mála. Aspling kvaðst hafa einu sinni áður komið tii íslands, árið 1949. Hefði hann hrjfizt af landinu. Undraðist ráðherr ann, hversu nýtízkuleg borg Reykjavík væri og hina stór- kostlegu uppbyggingu, sem þar færi fram. Reykjavík væri fögur borg. í dag hefjast fundir á ráð- röst. Helztu mál, sem rædd stefnunni kl. 9 árdegis að Bif- verða, eru trygging tekna á meðan á veikindum stendur, hvenær borgarar öðlist rétt til ellilífeyris, námskeið til verkþjálfunar og vandamál varðandi heimilisaðstoð og ibúðamál aldraðs fólks. Emil Jónsson hellsar liinum norrænu gestum við komuna til Reykjavíkur. Ljósm. Sv. Þ. Ásgeir bílstjóri sækir vatn í brúsann. ar, kaffi með tilheyrandi veig um. Þegar snæðingi var lokið um kl. 5.30 voru menn hýrari á svip og var ákveðið. að far- in skyldi Kaldadalsleið að Bifröst, en það er nokkurra klukkustunda akstur. Áður en haldið var af stað tókst Morgunblaðinu að ná tali sem snöggvast af þeim ráðherrunum Verner Kors- báck og Sven Aspling. Korsbáck sagði, að fsland væri vel þekkt í Finnlandi, enda lærðu börn og ungling- ar um landið í skólunum, sem og hin Norðurlöndin. Þessi þekking kæmi sér vel þegar mönnum gæfist tækifæri til að heimsækja ísland. Hann kvaðst hafa aðeins einu sinni komið til landsins fyrr, árið Salvesen hinn norski kemur hlaupandi með vatn til vara. Tveggja alda afmælis Hóladóm- kirkju minnzt á prestastefnunni PRESTASTEFNA fslands 1963 (synodus) verður haldin á Hól- um í Hjaltadal n.k. mánudag. I sambandi við hana verður tveiggja alda afmæli Hóladóm- kirkju minnzt á Hólum daginn iður. Dagskrá prestastefnunnar er sern hér segir. Sunnudaginn 25. ágúst: Minnzt tveggja alda afmælis Hóladómkirkju. Kl. 2:00. Hátíðarmessa. Bisk- up íslands, dr. Sigurbjörn Ein- arsson og síra Björn Björnsson, prófastur, predika og þjóna fyrir altari. Kór Sauðárkrókskirkju syngur undir stjórn Eyþórs Stef ánssonar. KI. 5.00. Svipmyndir úr sögu Hóladómkirkju, dagskrá í um- sjón dr. Kristjáns Eldjárns, þjóðminjavarðar. Orgelleikur: Dr. Páll ísólfsson. Kl. 9:00. Kvöldsöngur með alt arisgöngu. Mánudaginn 26. ágúst: Kl. 9 árd.: Morgunsöngur. — Hugleiðing. Síra Finnbogi Krist jánsson. Kl. 10:00. Ávarp biskups Og yfirlitsskýrsla. Kl. 11:00. Þórarinn Þórarins- son, skólastjóri, flytur erindi og gerir grein fyrir störfum mennta málanefndar, er kjörin var á prestastefnu síðasta árs. Kl. 2:00. Síra Þorgrímur V. Sigurðsson segir frá lútherska heimsmótinu í Helsingfors. Kl. 4:00. Síra Sigurjón Guð- jónsson, prófastur, flytur erindi: Sálmar og sálmabók. Kl. 5:00. Síra Helgi Tryggva- son flytur erindi. Kennið þeim Kl. 9:00. Síra Sigurður Einars son flytur erindi: Gengið í heilög spor. Kvöldsöngur. Synodusslit. í sambandi við prestastefnuna verða flutt tvö erindi í útvarp: Síra Einar Guðnason: Hróðólfur biskup og Bæjarskólinn. Síra Sigurður Pálsson: Um kirkju- byggingar. Annað erindið verð- ur flutt á sunnudagskvöld en hitt sennilega á þriðjudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.