Morgunblaðið - 27.08.1963, Síða 3
Þriðjudagur 27. ágúst 1963
MORGUNBLAÐIÐ
3
Manni bjargaö úr báti. 1 baksýn er mannfjöldinn fyrir framan flugturnana og einnig uppi á Öskjuhlíðinni.
Fjðldi áhorfenda á Flugdaginn
H I N N árlegi flugdagur var
síðastliðinn sunnudag. Veður
var hið ákjósanlegasta, sólsjcin
og norðan gola. Geysilegur
fjöldi fólks fylgdist með flug-
sýningunni á Reykjavíkur-
flugvélli og var Öskjuhlíðin
þakin fólki og bílum.
Hátíðin hófst með ávarpi
varaforseta Flugmálafélags-
ins, Leifs Magnússonar. Þá
setti flugmálastjóri, Agnar
Kofoed-Hansen, flugdaginn
með ræðu.
Fyrsti liður flugsýningarinn
ar var hópflug smávéla. Voru
þær 16 talsins. Næst var list-
flug á svifflugu, íem Runólfur
Sigupðsson stýrði. Var svif-
flugan dregin á loft af vél-
flugu.
Þrjár Douglas DC3 vélar
Flugfélags íslands flugu nú
yfir völlinn. Skömmu síðar
komu þær aftur og höfðu flug
mennirnir þá slökkt á öðrum
hreyfli vélanna, til að sýna
hve vel þær flygju þannig.
Næst á dagskrá var listflug
á Fleet Finch tvíþekju. Flug-
maður á henni var Erling Jó-
hannesson, íiugvirki, og lék
hann ýmsar listir.
Sigurður Þorkelsson, út-
varpsvirki, hefur smíðað gíró-
kopta, en hefur ekki enn feng-
ið vélina í hann til landsins.
Ekki lét hann það þó vgrna
sér flugs, heldur fékk jeppa-
bifreið til að draga sig á loft,
og sýndi þannig áhorfendum
flughæfni koptans.
• ••
Douglas DC3 vélar Flugfélagsins koma inn yfir völlinn.
Ljósm. Mbl. Sv. Þ.
Þá sýndu Sigvaldi Júlíus-
son og Þorgeir Pálsson, stud.
polyt., listflug á tveimur svif-
flugum. Var önnur dregin á
loft af Fleet-vélinni, en hin á
spili.-
Kristján Gunnlaugsson sýndi
hve stutta braut TF-LÓA, nýj-
asta flugvél Björns Pálssonar,
þarf til flugtaks og lendingar.
Björn, sem var að koma utan
af landi á TF-VOR (Beech-
craft Twin Bonanza) flaug
eina ferð mjög lágt fram hjá
væru bandamenn okkar á ferð
en ekki fjandmenn.
Um kvöldið komu svo marg-
ir áhugamenn um flug saman
í Hótel Sögu og gerðu sér glað
an dag.
Flugvélar frá varnarlíðinu voru til sýnis á Reykjavíkurflugvclli,
Hér sjást áhngamenn skoöa æfingaflugvél af gerðinni T 33.
mannfjöldanum á 220 mílna að hugsa til þess, að þarna
hraða.
Helikopter björgunarflugvél
frá Keflavíkurflugvelli sýndi
hvernig farið er að því, að
bjarga mönnum úr sjó. Var
gúmmíbátur lagður á flug-
brautina og taug látin síga of-
an í hann úr vélinni, sem hélzt
grafkyrr í loftinu nokkrum
metrum ofar.
Síðasta atriði sýningarinnar
var það, að fiórar orrústuþot-
ur frá varnarliðinu, af F 102
Delta Dagger gerð, flugu yfir
á 400 sjómílna hraða. Hafði þá
einhver á orði, að betra væri
UM hádegi í gær var lægðin,
sem var hér fyrir sunnan
land á sunnudaig, komin aust-
ur uim Skotland. önnur lægð
er yfir Nýfundnalandi en á
Grænlandssvæðinu er stillt
og aðgerðarlítið veður, þótt
eiginlegt háþrýstisvæði sé
ekki um að ræða. Hér á landi
er víðast skýjað og sólarlaust,
en meinlaust veður. Hiti var
ekki nema 4 st. á annesjum
fyrir norðan, en í innsveituim
og á sunnanverðu landinu
var 8—12 st. hiti.
SMSTflM
Aukið fylgi
Rikisstjórnin hlaut verðugt
traust kjóserida i kosriingunum
s.l. vor. Þrátt fyrir ósvífinn og
æðisgenginn áróður stjórnarand-
stæðinga, sáu kjósendur gegnum
blekkingavef þeirra og veittu
stjórninni ’ viðurkenningu fyrir
störf hennar með auknu fylgi.
í haustkosningunum 1959 fengu
stjórnarflokkarnir 54,89% át-
kvæða, en nú í vor fengu þeir
55,63%. Ekki er það venjulegt
hér á landi, að stjórnarflokkar
auki fylgi sitt á stjórnartimabil-
inu. Þá verður stjórnarandstæð-
ingum oft betur ágengt með
gagnrýni sinni á stjórnarstörfum
og loforðum um gull og græna
skóga, ef þeir nái völdunum.
Þetta aukna fylgi stjórnarflokk-
ana í vor er vafalaust ekki sízt
því að þakka, hve gott samstarf
stjórnarflokkanna hefur ætíð
verið og hve djarflega þeir
gengu til verks eftir eymd og úr-
ræðaleysi vinstri sijórnarinnar.
Aðvörunarorð
í sJ. viku birti fjármálaráð-
herra grein í Vísi, þar sem hann
bendir á þá hættu, sem stafar af
því, að jafnvægið í viðskiptunum
við útlönd hafi raskazt á þéssu
ári. Útflutningurinn hefur aukizt
eðlilega, um 5,5% frá sama tíma
í fyrra, en innflutningurinn
hefur tekið risasiökk — vaxið
um 28%. Er viðskipstajöfnuður-
inn gagnvart útlöndum frá fyrra
helmingi þessa árs um 400 millj.
kr. óhagstæðari heldur en á
sama tíma í fyrra. Er því fyrir-
sjáanlegur halli á viðskiptum við
útlönd á þessu ári.
Þétta orsakast vitanlegt fyrst
og fremsí af því, hve fram-
kvæmdir í landinu eru örar og
miklar — bæði til lands og sjáv-
ar — bæði í iðnaði og verzlun,
sjávarútvegi og landbúnaði. Með
þessu verður eftirspurnin eftir
vinnuaflinu gífurleg og fjárráð
almennings rúm svo að flestir
geta veitt sér mikið, þrátt fyrir
hækkandi verðlag. Þetta aallar á
aukinn innflutning bæði á þörf-
um hlutum og' óþörfum. Hinar
miklu framkvæmdir skapa vitan
lega auknar gjaldeyristekjur.
þegar frá líður. En hér á
það samt við sem oftar, að
kapp er bezt með forsjá, og þes3
er að vænta, að þjóðin noti með
fullri forsjá það athafna- og við-
skiptafrelsi, sem hún hefur nú
hlotið eftir haftafargan vinstri
mennskunnar. Það eru því sann-
arlega orð í tíma töluð. sem fjár
málaráðherra endar fyrrnefnda
grein sína með:
Þau verkefni eru nú fram-
undan að tryggja framhald
viðreisnar og jafnvægis í öll-
um búskap þjóðarinnar. 1
tíma verður áð finna og fram
kvæma þau úrræði, sem til
þess eru nauðsynleg. Nýtt
uppbóta- og haftakerfi má
ekki leiða inn á nýjan leik^
né heldur grípa lil gengisfell-
ingar. Allar aðgerðir verða að
miða að því markí að tryggja
og treysta gildi íslenzku
krónunnar.
Verðlagning búvara A
Forystugrein „Alþýðublaðs-
ins“ á sunnudag heitir „Verðlagn
ing búvara". Þar segir m. a.:
„íslendingar eiga í svo miklum
erfiðleikum með áð sigrast á
verðbólguþróuninni, að þeir
verða að gera allt til þess að
stöðva óþarfa víxlhækkanir
kaupgjalds og verðlags. Fyrir-
komulag verðlagningar ' búvara
er mikið viðkvæmnis- og vanda-
mál. En telja má þó víst, að
endurskoðun þeirra mála mundi
leiða til góðs“.