Morgunblaðið - 28.08.1963, Síða 1
24 eíður
50 árgangur
183. tbl. — Miðvikudagur 28. ágúst 1963
Frentsmiðja Morgunblaðsins
Hans Lenz væntanlegur
til íslands um helgina
— vísindamálardðheria V-Þýzkalands
ræðir hér við ráðamenn, og flytur
fyrirlestur við H.Í.
Einkaskeyti
til Morgunblaðsins,
Bonn, 27. ágúst — AP.
FRÁ því var skýrt í Bonn í
dag, að vísindamálaráðherra
V-Þýzkalands, Hans Lenz,
WWM
Hans Lenz
muni koma 1 heimsókn til
Keykjavíkur nk. sunnudag.
Með ráðherranum í förinni
verður kona hans.
Hans Lenz mun m. a. flytja
fyrirlestur við Háskóla ís-
lands, auk þess, sem hann
heimsækir rannsóknarstofnan
ir á ferð sinni. Þá mun hann
eiga viðræður við forseta ís-
lands, herra Ásgeir Ásgeirs-
son, og ræða við forsætisráð-
herra, Ólaf Xhors, utanríkis-
ráðherra, Guðmund í. Guð-
mundsson, og menntamálaráð
herra, Gylfa Þ. Gíslason.
Hans Lenz var á sínum
tíma nemandi við Háskóla ís-
lands, og er Islandi allvel
kunnur. Hann mun dveljast i
landinu um vikutíma.
Þess má geta, vegna frétt-
arinnar um komu ráðherrans,
að Morgunblaðið ræddi við
hann í síma á sl. vetri. í við-
tali því, sem þá fór fram,
lýsti Lenz því yfir, að hann
hefði mikinn áhuga á að
koma til íslands á nýjan leik.
Stendur norska
stjórnin 3 vikur?
Búddatrúarmenn biðjast fyrir innan gaddavírs girðingar, sem stjórnin í S-Vietnam hefur látið
gera um dvalarstað þeirra. Herlög ríkja enn í landinu.
Kosningum slegið á
frest í S-Vietnam
Boðleiðum erlendra sendiráða í Saigon
lokað; Ceylon krefst fundar ^ryggis-
ráðsins
Hún mun lylgja óbreyttri stetnu í
utanríkismálum
Osló, Briissel, 27. ágúst. —NTB
ALMENNT er gert ráð fyr-
ir, að stjóm John Lyng
muni fá starfsfrið í a.m.k.
þrjár vikur.
Þá var frá því skýrt í
Osló síðdegis í dag, að norska
stórþingið muni koma sam-
an 16. sept. Þá leggur stjórn-
in fyrir þingið yfirlýsingu,
þar sem greint verður frá,
á hvem hátt ráðherrar telja,
að bezt verði unnið að hags-
munamálum þjóðarinnar.-
Saigon, New York, 27. ágúst.
— (AP — NTB) —
ÁSTANDIÐ í S.-Vietnam er
enn mjög alvarlegt, Stjórn
Ngo Dinh Diems, forseta, hef
ur látið þau boð út ganga, að
kosningum þeim, sem fram
áttu að fara eftir 4 daga, hafi
verið frestað um óákveðinn
tíma. Er borið við, að herlög
Yfirlýsingin mun liggja þau, sem sett vom fyrir
frammi í tvo daga, en síðan , nokkrum dögum, hafi hindr-
verður hún tekin til umræðu að eðlilegan kosningaundir-
á þingi.
búning.
í ljós kom í dag, að stjóm
S.-Vietnam hefur nú um
nokkurra daga skeið bannað
sendiráðum erlendra ríkja,
John Lyng, nýi, norski forsæt-
isráðherrann, hefur lýst því yf-
ir í viðtali við blaðið „Derniere
Heure“, sem gefið er út í j
Briissel, að stjórnin þarfnist *
tíma til að koma áhugamálum j . . . ...
sínum í framkvæmd. Viðtalið t talsins, a.m.k., allt sam-
við forsætisráðherrann birtist í band við viðkomandi stjórnir,
daf' I eftir venjulegum leiðum.
Jafnframt þvi, sem skýrt var !
frá væntanlegum störfum þings ] Mál S.-Vietnam var í dag
Framh. á bls. 2 | tekið fyrir á fundum Sam-
einuðu þjóðanna í New York,
og var rætt, hvort kalla
skyldi saman öryggisráð sam
takanna, vegna framferðis
stjómar Diems við Búdda-
trúarmenn.
Skýrt var að nokkru frá því
í Washington í dag, hvað þeim
hefði farið á milli, Henry Cabot
Lodge, sendiherra Bandaríkj-
anna í Saigon, og Diem, er þeir
hittust í gær. Þá var sagt síðar í
dag, að þeir Lodge og Ngo Dinh
Diem, yfirmaður öryggisþjón-
ustu S.-Vietnam, hafi'ræðzt við
í dag.
Þjóðþing Kambódíu sam-
þykkti í dag að slíta stjórnmála-
sambandi við S.-Vietnam.
f fréttum síðdegis í dag herm-
ir, að allt hafi verið með kyrr-
um kjörum í Saigon í dag. Hins
vegar segir, að Búddatrúar-
mönn-um sé ákaflega heitt í
skapi, en þeir eigi erfitt með að
skipuleggja frekari mótmæla-
starfsemi, þar eð leiðtogar
þeirra séu flestir undir lás og
slá. Fangelsaðir munu vera um
900 úr þeirra hópi. Þá voru og
um 3000 stúdentar handteknir
um helgina. Hafa þeir mjög haft
sig framrni í mótmælunum í síð-
ustu viku.
í fréttum frá Washinpton í
dag segir, að Cabot Lodge og
Tiem hafi rætt ástandið í S-Vi-
etnam á tveimur fundum í gær.
Framh. á bls. 23.
Sendimenn S.Þ. í
Sarawak fyrir árás
Sibu,Sarawak, 27. ágúst — NTB.
EFTIRLITSNEFND Sameinuðu
***‘ ‘ ** ~ ‘ * 1 ■ y iri~ITLJL.
Nýtt söltunarmet
A
■
Þegar saltað
425 þús. tunnur
SÍLDARSÖLTUNIN nam í
gær yfir landið allt um 425
þúsund tunnum. Er heild-
arsöltunin þá orðin meiri
en hún hefur nokkru sinni
áður orðið.
Árið 1938 var sett söltunar-
met, sem stóð fram til ársins
1961. Árið 1938 var alls saltað
í 338.641 tunnu. Þar af var
saltað í 253.618 tunnur í Siglu-
firði, og ekki var saltað í svo
mikið sem eina tunnu austan
Húsavíkur.
Þetta met var ekki slegið
fyrr en 23 árum seinna. Árið
1961 varð heildarsöltunin 363.-
741 tunna, og þar af var saltað
í Siglufirði í 139.757 tunnur.
Metið stóð þó ekki nema til
næsta árs, því að í fyrra var
alls saltað í 375.213 tunnur.
Nú er söltunin orðin um 425
þús. tunnur, eins og að fram-
an greinir, svo að Ijóst er, að
nýtt og glæsilegt söltunarmet
verður sett í ár, og hefur
reyndar þegar verið sett.
Eitt met stendur þó enn frá
árinu 1938. Það er tunnufjöldi
einstakrar söltunarstöðvar. —
1938 var saltað í 29.536 tunn-
ur á söltunarstöð Ingvars Guð
jónssonar í Siglufirði, og hef-
ur hvorki fyrr né síðar verið
saltað jafn mikið magn á einni
stöð. Sama ár var saltað hjá
bróður Ingvars, Friðriki Guð-
jónssyni, í 25.335 tunnur. Stöð
Friðriks var einnig í Siglu-
firði.
I gærkvöldi var búizt við,
að söltunin hjá Haföldunni á
Seyðisfirði kæmist upp í 21.-
300 tunnur í nótt, og er það
mesta magn, sem saltað hefur
verið hjá einni stöð eftir stríð.
Árið 1958 saltaði Hafsilfur á
Raufarhöfn í 17.700 tunnur, og
árið 1961 saltaði Hafaldan á
Seyðisfirði í 17.800 tunnur.
þjóðanna í Sibu í Sarawak varð
í dag fyrir árás íbúa þorpsins.
I’lutverk nefndarinnar er að
ganga úr skugga um, hvort íbú-
ar landsins eru hlynntir því, að
Sarawak gerist aðili að fyrir-
hugaðri ríkjasamsteypu, Mal-
aysia.
Tekið er fram, að enginn
nefndarmanna hafi slasazt. Hins
vegar urðu tveir lögregluþjónar
í þorpinu fyrir áverkum. Varð
að leggja þá í sjúkrahús.
Árásin var gerð, er nefndar-
menn sátu á fundi í skólahúsi
þorpsins. Um 3000 mannj réðust
þá að byggingunni með grjót-
kasti. Lögregla kom þegar á
vettvang, og skaut aðvörunar-
skotum.
íbúar Sibu eru af kinversku
h rgi brotnir, og eru yfirleitt
and.vígir þátttöku landsins í ríkja
sambandinu.