Morgunblaðið - 28.08.1963, Page 2
2
MORGUNtUADIÐ
Miðvikudagur 28. ágúst 1963
■t
*
IUannréttindagangan fer
fram í Washington i dag
Washington, 27. ágúst — AP
RÓSEMI og virðuleiki ein-
kennir væntanlega þátttak-
endur í kröfugöngunni, sem
farin verður í Washington á
morgun, miðvikudag, til að
leggja áherzlu á full mann-
réttindi til handa blökku-
mönnum.
Þó gætir nokkurs efa í röð-
um þeirra, sem að undirbún-
ingi standa; ekki vegna þess,
að þeir efist um málstaðinn
eða réttmæti göngunnar, held
ur vegna yfirvofandi verk-
falls járnbrautarstarfsmanna.
I»eir hafa boðað til verkfalls-
ins á miðnætti á miðvikudag.
Verði af því, getur farið svo, að
meginhluti þeirra, sem í kröfu-
göngunni taka þátt, verði að haf-
ast við í höfuðborginni um ó-
ákveðinn tíma.
í dag, þriðjudag, sat þing lands
ins að störfum og reyndi að koma
sér saman um lagasetningu, sem
komið geti í veg fyrir verkfallið.
Ljóst er nú, að verkfallshótun
járnbrautarstarfsmanna hefur
haft talsverð áhrif. Talsmaður
þeirra, sem að göngunni standa,
Sy Posner, sagði í dag, að a.m.k.
2000 manns, sem ákveðið höfðu
að koma til Washington, til þátt-
föku í kröfugöngunni, hafi dregið
sig til baka.
Þó er ljóst, að þátttaka verður
allmikil, og hafa verið gerðar sér
stakar ráðstafanir til að afla fjár
tjl að standa undir kostnaði við
þátttöku blökkumanna, sem lítið
fé hafa milli handa. Er þar um
að ræða nokkur hundruð blökku-
menn frá Suðurríkjunum.
Lögreglan í Washington hefur
gert sérstakar ráðstafanir til að
koma í veg fyrir alvarleg upp-
þot, en margir efast mn, að und-
irbúningurinn sé nógur, þar eð
enginn veit, hve margir munu
leggja leið sína tíl borgarinnar.
Lögreglan miðar þó ráðstafanir
sínar við þátttöku 100.000—250.-
000 manns.
A. Philip Randolph, sá, sem
annast stjórn göngunnar, hefur
tilkynnt, að allt verði gert, sem
hægt er, til að hindra, að til
óeirða komi.
Annað aðaláhyggjuefni borgar-
yfirvaldanna í Washington er, að
erfiðlega kunni að ganga að
flytja alla þátttakendur burt, að
göngunni lokinni. Einkum og sér
í lagi verður þetta vandamál erf-
itt viðureignar, ef járnbrautar-
verkfallið skellur á á miðviku-
dagskvöld.
Meðal þátttakenda í kröfu-
göngunni verða margir heims-
kunnir menn, þ.á.m. kvikmynda-
leikarar. Sumir koma langt að,
jafnvel alla leið frá Evrópu, s. s.
Charlton Heston. Aðrir leikarar
leggja leið sína frá Hollywood,
en þar virðist góður andi ríkja í
hópi leikara, þótt litarháttur allra
sé ekki sami.
Tilboðin í holræsið
frá 37-56 milliónir kr.
TILBOÐ í holræsið mikla, sem
liggja skal eftir Fossvogsdal og
út í Skerjafjörð, voru opnuð á
skrifstofu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar um helgina.
Fimm tilboð bárust, þar af tvö
frá sama aðilanum. Véltækni h.f.
• króna. Hæsta tilboðið var 56 milljónir króna. Innkaupastofnunin vinnur nú
Skemmdir
framdar á
skurðarvél
MAÐUR sem vinnur við skurð á
túnþökum við Grensásveg hefur
kært til- lögreglunnar vegna
skemmda, sem gerðar voru á
skurðarvélinni.
Þegar maðurinn kom tll
vinnu sl. föstudagsmorgun var
vélin í gangi og bar þess greini-
lega merki, að henni hafði verið
ekið um nóttina. í ljós kom, að
mótorinn er skemmdur.
Rannsóknarlögreglan beinir
þeim tilmælum til fólks, sem
kynni að hafa orðið vart við
skemmdarvargana að gera að-
vart hið fyrsta.
að útreikningum tilboðanna, sem
taka mjög mismunandi tillit til
ýmissa atriða. Þess má geta, að
eini fasti liðurinn í tilboðunum
er verð á pípunum, sem kosta um
10 millj. króna, miðað við verð-
lag Pípuverksmiðjunnar.
Áttræð í dag
ÁTTRÆÐ er í dag Ástríður
Helgadóttir frá Stokkseyri. Hún
dvelst nú að Lindarbraut 4, Sel-
tjarnarnesi.
Strokkur gýs
eftir háifrar aldar svefn
GEYSISNEFND fékk jarðhita um. unz þau hættu alveg upp
deild raforkumálaskrifstof- úr 1915 eða um líkt leyti og
unnar til þess að bora í hver-
inn Strokk, sem er skammt
gos Geysis. Mað borun 40
metra djúprar holu niður úr
frá Geysi í Haukadal, með botni Strokks hefur upp-
þeim árangri, að Strokkur er streymi heits vatns aukizt,
nú tekinn að gjósa á ný eftir vatnið stigið upp í hina fornu
um hálfrar aldar svefn. Hafa skál, sem er svipuð Geysis-
gosin mælzt allt að 35 metra skálinni, og gos hafizt að nýju.
há. Strokkur var áður fyrr Gosin eru mjög tíð, án þess
mesti goshrer í Haukadal að sápa sé látin í hverinn,
næst á eftir Geysi og er gos- — koma með fárra mínútna
um hans víða iýst í hinum millibili. Þau eru mishá og ná
eldri ferðabókum. Á seinm
hluta 19. aldar urðu gos hans
sum allt að 35 metra hæð.
Engra breytinga hefur orðið
treg, unz nýtt líf færðist í vart í öðrum hverum við bor-
þau við jarðskjálftana miklu unina í Strokk.
á Suðurlandi 1S96. Eftir alda-
mótin dró þó aftur úr gosun-
(Frétt frá Geysisnefnd).
5 humarbátar
með 23 tonn
Akranesi, 27. ágúst.
MOKAFLI hefur borizt hér á
land af humarbátunum í dag. Afli
5 báta var 23 tonn. Fram var
aflahæstur með 6,2 tonn, þá
Bjarni Jóhannesson 5.3, Sæfaxi
4.6, Ásmundur 3.6 og Svanur
3.3 tonn.
Logn og blíða er um allan sjó.
Einn bátur héðan fékk 50 tunnur
af síld í nótt. Heyrzt hefur, að
Skírnir og Haraldur hafi haldið
á miðin út af Austfjörðum.
— Norska stjórnin
Framh. af bls. 1
ins, var sagt, að komi til alvar-
Iegra umræðna á þingi um
stefnuskrá stjórnarinnar, verði
boðað til framhaldsfundar 19.
sept. —
Verkamannaflokkurinn lagði
til í dag, að stjórn Lyng hraði
störfum sínum, svo að unnt
verði að taka afstöðu til stefnu-
skrár hennar, áður en gengið
verður til bæjarstjórnarkosn-
inga.
Vinstri flokkurinn lýsti því yfir,
að þátttaka hans í stjórnarsam-
starfi muni verða í anda stefnu-
skrár flokksins.
Sósíaliski þjóðarflokkurinn
krefst yfirlýsingar stjórnarinn-
ar, svo að taka megi afstöðu til
hennar í tæka tíð fyrir bæjar-
stjórnarkosningar.
Stjórn Gerhardsens hélt ár-
degis síðasta fund sinn með Ól-
afi konungi, en nýja stjórnin var
útnefnd skömmu eftir hádegi.
í viðtali því, sem Lyng átti
við Briisselblaðið „Derniere
Heure“, segir forsætisráðherr
ann, að stjórn hans muni
fylgja óbreyttri stefnu í utan-
ríkismálum. Hann vék einnig
að Efnahagsbandalagi Ev-
rópu, og sagði, að það væri
ótímabært að ræða það nú,
hvort Noregur ætti að taka
þátt í því samstarfi.
Lyng vildi fátt segja um
framtíð stjórnar sinnar, ann-
að en það, að kosningarnar
23. sept. myndu segja til um,
hvort þjóðin vildi styðja
stjórn, sem ekki starfaði 1
anda sósíalisma.
Hinn nýi vegur fyrir Ólafsvíkurenni. Þegar hefur verið lokió
við um 400 af 1200 metrum.
Grjóthruii lenti á 2
mönnum i Ólafsvíkurenni
GRÓTHRUN lenti á tveim mönn-
um um kl. 8 í fyrrakvöld þegar
verið var að sprengja í nýja veg
inum fyrir Ólafsvíkurenni. Ör-
skömmu eftir sprenginguna kom
grjót fljúgandi ofan úr hlíðinni
og lenti á mönnum. Slasaðist
annar þeirra svo mikið, að sjúkra
flugvél Björns Pálssonar varð
að flytja hann á Landsspítalann.
Líkur eru taldar til, að grjót-
flugið hafi stafað af sprengmg-
unni. Lentu tveir steinar, frem-
ur litlir, á mönnunum tveim um
axlir eða þar um bil. Annar
þeirra, Björgúlfur Þorvaldsson,
fékk þyngra högg og hrapaði
hann nokkra metra mður eftir
hlíðinni. Hinn maðurmn var
minna slasaður.
Læknirinn í Ólafsvík kom á
staðinn og lét hann flytja Björg-
úlf á börum vestur með Ólafs-
víkurenni. Þurfti að flytja mann-
inn í fjörunni. Bíll kom á móti
frá Gufuskálum, sem flutti hinn
slasaða til flugvallarins. Flugvél
frá Birni Pálssyni flutti manninn
svo til Reykjavíkur, þar sem
hann var settur inn á Landsspít-
alann. Meiðslin munu ekki vera
lífshættuleg.
Patet Lao segist
vilja frið í Laos
Vientiane, 27. ágúst — AP
PHOUMI Vongchivit, upp-
lýsingamálaráðherra stjórnar
innar í Laos, hélt í dag á fund
forsætisráðherrans Souvanna
Phouma, prins, og beiddist
þess, að viðræður yrðu tekn-
ar upp um lausn ófriðar þess,
sem steðjað hefur að innan-
lands, undanfarna 5 mánuði.
í för með upplýsingamálaráð-
herranum var talsmaður Pat-
et Lao (kommúnista) í N-
Laos.
Þetta er fyrsti fundur, sem
Vongchivit á með Souvanna
Phouma, frá því sá síðarnefndi
kom úr heimsókn til aðalstöðva
Patet Lao, sl. mánudag.
Talið er nú fullvíst, að fyrir
liggi viljayfirlýsing Souphanou-
vong, prins, leiðtoga Patet Lao,
þess efnis. að sainningaumleitun-
um beri að hraða. Hefur styrjald-
arástand það, sem ríkt hefur und
anfarna mánuði, valdið mikilli
ringulreið í landinu. Berlega hef-
ur komið fram, að Genfarsam-
komulagið um Laos hefur ekki
verið haldið.
Vongchvit átti tveggja stunda
fund með Souvanna Phouma. Að
honum loknum skýrði upplýsinga
málaráðherrann fréttamönnum
svo frá, að það væri ætlun og
vilji Patet Lao að komast að frið-
samlegri lausn mála í Laos. Sagði
ráðherrann, að brýna nauðsyn
bæri til þess að koma í veg fyrir
frekari bardaga í landinu.
Vongchivit sagðist hafa fengið
Souvanna Phouma orðsendingu
frá Souphanauvong, en þar væri
að finna tillögur um friðsamlega
lausn. Er þar einkum að finna,
að sögn ráðherrans, tillögur, er
miða að því að finna frambúðar-
lausn deilu þeirrar, sem staðið
hefur um Krukkusléttu. Þar hafa
bardagar verið mestir undan-
farna mánuði.
Ekki vildi ráðherrann greina
frá tillögunum í einstökum atrið-
um, en forsætisráðherrann mun
nú hafa þær til athugunar.
Höfnuðu
Keeler
London, 27. ágúst — NTB.
FÉLAG brezkra leikara hefur
látið fara frá sér yfirlýsingu,
vegna Christine Keeler, sem mest
kom við sögu Profumo-málsíns.
Segir í tilkynningu félagsins,
að ungfrú Keeler fái ekki inn-
göngu í félagið, þar eð þátttaka
hennar í kvikmynd um Profumo
málið sé ekki til þess fallin að
auka hróður félagsins.
Önnur stúlka, Yvonne Bucking
ham, leikur hlutverk Keeler í
myndinni, en taka hennar fer nú
fram 1 Kaupmannahöfn.