Morgunblaðið - 28.08.1963, Blaðsíða 3
1 Miðvikudagur 28. ágúst 1963
MORGUN BLAÐIÐ
3
Akureyri, 27. ágúst.
HINN þrísigldi barkur, Gorch
Fock, skólaskip í vestur-
þýzka flotanum, seig hátign-
arlega inn á Akureyrarhöfn
á tíunda tíinanum í morgun
og lagði að Ytri Torfunes-
hryggju. Svo seglprúður
knörr er fáséður hér á Akur-
yri, enda þustu margir ofan
á bryggju, ekki sízt yngri ár-
gangarnir, virtu fyrir sér
dýrðina og undruðust leikni
matrósanna, þegar þeir klifr-
uðu af mikilli fimi um reiða
og rár og hinar 45 metra háu
siglur.
Skipði lagði upp í þessa för
frá heimahöfn sinni, Kiel,
hinn 1. ágúst og verður þrjá
mánuði að heiman. Það sigldi
fyrst til Harstad í Noregi, síð-
an innan skerja norður með
endilöngum Noregi til Bar-
entshafs og Bjarnareyjar,
Svalbarða og allt norður á
77. gráðu norðurbreiddar, en
norðar hefur ekkert slíkt
skólaskipt farið. Þaðan var
stefnt til Jan Mayén og svo
til Eyjafjarðar og legið fyrir
festum við Hrísey í nótt. Héð
an heldur skipið á laugardag
Litið upp eftir rám og re'öum.
Vestur-þýzkt skólaskip kemur
úr Dumbshafi til Akureyrar
til Þórshafnar í Færeyjum,
Edinborgar og þaðan heim.
Á Gorch Fock eru nú 265
menn, foringjar, starfslið,
handverksmenn og sjónvarps
menn, sem eru að taka 45 mín.
kvikmynd af ferð skipsins, að
ógleymdum 164 sjóliðsfor-
ingjaefnum, sem í för þessari
fá 3ja mánaða þjálfun í sjó-
mennsku við mjög strangan
aga og erfiða vinnu. Þeir hafa
allir lokið stúdentsprófi og
auk þess mjög ströngu undir-
búningsnámskeiði í sjómanna
fræðum og ætla sér að verða
foringjar í þýzka flotanum.
Meðal þeirra eru þrír frá íran
(Persíu) óg tveir frá Thai-
landi (Síam), sem taka svo
við foringjastöðum í herflota
heimalanda sinna að þjálfun
þessari lokinni. Annar Pers-
inn er meira að segja nú þeg-
ar sjóliðsforingi, en starfar
um borð sem óbreyttur.
Fréttamönnum var boðið
um borð kl. 5 síðd., og þeim
sýnt skipið hátt og lágt. Þeir
ræddu þar við Kommandant
Hans Engel, Kapitan von Wit-
zendorf og Stackelberg, sjó-
liðsforingja. Auk þess voru
viðstaddir Hirschfeld, sendi-
herra, og Kurt Sonnenfeld,
ræðismaður.
Yfirmennirnir gátu þess, að
skipið hefði komið til Keykja
víkur fyrir röskum tveimur
árum, og kváðu áhöfnina hafa
talað um það mánuðum sam-
an á eftir, hve sú heimsókn
hefði orðið ánægjuleg og eftir
minnileg. Nú hefði þá langað
til að kynnast norðanverðu
landinu, og því væru þeir
hingað komnir. Síðasta ferð
var farin til Karabíska hafs-
ins. Þar var að vísu heitara,
en náttúrufegurð þykir þeirn
miklu meirr hér.
Þjóðverjunum verður boðið
Vaglaskóg, að Goðafossi og
(Ljósm. Mbl. Sv. P,)
til Mývatns, meðan skipið
stendur við, og fara þeir þang
að í tveimur hópum. Einnig
verða þeim sýndar íslenzkar
kvikmyndir.
Sjóliðarnir þýzku hafa sett
mikinn svip á Akureyrargöt-
ur í dag, enda þykir þeim
gott að stíga á fasta grund
eftir langa útivist í Dumbs-
hafi.
— Sv. P.
" < —7—~ ..
„Gorck Fock“ í Akureyrarhöfn.
Ungir Akureyringar þyrptust
skoðuöu það af miklum áhuga.
um borð í þýzka skipið
UM hádegi í gær var hæðar-
hryggur og mjög stillt veður
um ísland og Grænland.
Lægð var austur undir
Noregsströndum og olli N-
kalda á Austurdjúpi en önnur
lægð var suður af Grænlands
odda og stefndi austur eftir
fyrir sunnan ísland. Loks var
talsverð lægð yfir Baffins-
landi og olli fallandi loftvog
og hægri S-átt á vestanverðu
Grænlandi. Getur lægð þessi
valdið veðrabrigðum hér á
landi innan tíðar.
IsunsniM
Eining undans
Siðustu dagana hefur komm-
únistablaðið verið að sækja í
sig veðrið út af samningum
þeim, sem nú er rætt um að
gera við Atlantshafsbandalagið
um að það byggi nýja olíugeyma
í Hvalfirði og nauðsynleg hafn-
armannvirki í því sambandi,
en eins og kunnugt er hafði
Tíminn, málgagn Framsóknar-
flokksins, alla forystu í árásum
á ríkisstjórnina út af þessu
máli, þegar fyrst var frá því
skýrt. Nú eru kommúnistar tekn
ir að nálgast málflutning Fram
sóknarblaðsins, enda hefur þeim
fundizt það súrt í broti að vera
eftirbátar Tímans, og er það að
vonum.
Bæði beina blöðin skeytum
sínum að Bjarna Benediktssyji,
formanni Sjálfstæðisflokksins.
Kommúnistablaðið hneykslast á
því, að hann skuli minna á þá
staðreynd að ísland dróst inn
í hernaðarátökin 1940, þótt hér
væru engar varnir og segir síð-
an:
„En byltingin í hertækni og
vopnabúnaði hefur orðið svo al-
gjör síðan 1940, að Bjarni Bene-
diktsson gæti með ámóta mikl-
um rétti vitnað til hermennsku
steinaldarmanna máli sínu til
sönnunar“.
Rússar vita um
mikilvægi íslands
En þótt ritstjórar kommúnista
blaðsins þykist ekki vita það,
þá hefur rússneskt tímarit glopr
að því upp úr sér, að rússnesk-
um hernaðarsérfræðingum sé
fullkunnugt um það, að hernað-
arþýðing íslands sé nú geysi-
mikil og ef til vill meiri en
nokkru sinni áður. Þetta rit
benti á það, að helztu kafbáta-
leiðir um Atlantshaf væru í ná-
lægð íslands, og þess vegna er
það, sem það skiptir meginmáli
fyrir íslendinga að hér sé sú
aðstaða og þær varnir, sem
nægi til þess að Rússum sé það
fyrirfram fullljóst, að þeir gætu
ekki náð yfirráðum á íslandi né
í námunda við landið.
Herfræðingar TímaiiS
Tíminn byrjar hins vegar rit-
stjórnargrein sína á eftirfarandi
orðum:
„Að vonum hefur sú túlkun
Morgunblaðsins vakið mikla at-
hygli, að það séu svik við
NATO, ef íslenzk stjórnarvöld
fallist ekki á allt sem hershöfð-
ingjar þess fara fram á. Enn
meiri athygli hefur þetta vakið,
vegna þess að tekið hefur ver-
ið kröftuglega undir þessa
kenningu í Reykjavíkurbréfum
þeim, sem formaður flokksins og
væntanlegur forsætisráðherra
skrifar í blaðið.
Það er m.ö.o. staðfesting þess,
að hér er um að ræða stefnu
helztu forvígismanna Sjálfstæðis
fIokksins“.
Tíminn hefur áður skrifað um
það, að herforingjar Atlants-
hafsbandalagsins væru frekir og
misvitrir. Hins vegar virðist rit-
stjórar Tímans telja sig sér-
staka herfræðinga og vita ná-
kvæmlega hvaða varnir henti
íslendingum bezt, án þess svo
mikið sem að leitast við að
kynna sér sjónarmið þeirra,
sem aðrir telja herfróða. En at-
hyglisverðust er samt yfirlýs-
ing blaðsins fyrir nokkrum dög-
um, að ekkert væri athugavert
við að láta Atlantshafsbandalag-
inu i té þá aðstöðu hér á landi,
sem það hefði ekkert gagn af,
en hins vegar bæri að forðast
eins og heitan eldinn að heim-
ila bandalaginu þær aðgerðir hér
á landi, sem styrkja nmn'lu
varnarmátt þess.