Morgunblaðið - 28.08.1963, Side 17
1 Miðvikudagur 28. ágúst 1963
MORCUNBLAÐIÐ
17
— Útflutningur
Framh. af bls. 14
trúa Sambandsstjórnarinnar, þar
sem rætt var um á hvern hátt
væri unnt að auka viðskitpin við
Austur-Evrópu. Áður höfðu ver-
ið gerðir 'samningar um aukin
viðskipti við tvö þessara landa,
þ. e. Pólland og Ungverjaland,
en framundan voru samningar
m.a. við Rúmeníu og Sovétrík-
in. Vestur-þýzki iðnaðurinn ósk-
aði eftir aðstoð af hálfu Sam-
bandsstjórnarinnar til að greiða
fyrir viðskiptunum. Voru það
einkum stórfyrirtæki í stáliðnað-
inum og skipasmíðastöðvar, sem
knúðu á i bessum efnum.
Bretar hafa stefnt að því í mörg
ár að auka útflutning sinn til
þessara landa, m.a. fisksölusam-
tökin Britfish Ltd. Það sem af
er þessa árs, hafa þau selt til
Sovétríkjanna fryst bolfiskflök
fyrir 32,5 milljónir kr. og gera
ráð fyrir að selja enn meir þang-
að síðar á árinu.
í blaðaviðtali í Norges Hand-
els og Sjöfartstidende 16. júlí sl.
segir einn af framkvæmdastjór-
um Frionor, Arne Asper, að Norð
menn hafi selt 4700 tonn af bol-
fiskflökum til Sovétríkjanna í ár
og að erfitt sé að segja, hvort
um aukningu verði að ræða, „en
að af hálfu þeirra (Norðmanna)
vonumst við að sjálfsögðu til, að
þetta leiði til aukinna viðskipta.
•— Orðrétt á norsku:
„Paa vort spörgsmaal om de
store leveransene til Sovjet-
Samveldet innebærer en
permanent ökning í salge av
norsk fisk til dette land, svar-
er direktör Asper at det er
• meget vanskeligt á si, men
fra norsk side haaper vi selv-
sagt at det skal före til ökt
samhandel, slutter han.“
Það eru því fleiri en íslenzkir
útflytjendur, sem geta hugsað sér
aukin viðskipti austur á bóginn,
en því geta allir verið sammála
að forsenda þess að svo beri að
gera af hálfu íslendinga, hlýtur
setíð að vera sú, að við fáum vör-
ur í staðinn^sem fullnægja kröf-
um okkar. Án nokkurs vafa má
auka enn meira hrávöruinnflutn-
ing frá þessum löndum. Hvort
innkaupamöguleikar frá Austur-
Evrópu hafi verið kannaðir til
hlítar, skal látið ósagt. Það er
t.d. mál margra, að Austur-Þjóð-
verjar og Pólverjar byggi prýði-
leg fiskiskip. Tékkar eru heims-
frægir fyrir framleiðslu sína á
glervörum o.s.frv. Að ræða um
slíkt er annað og meira mál.
Vostur-Evrópa.
Að lokum skal frá því skýrt,
að af hálfu SH hefur verið lögð
sérstök áherzla á að reyna að
auka sölur í Vestur-Evrópu. Hef-
ur sö'lustjórum fyrirtækisins ver-
ið tíðförulla á þessa markaði í
ár en nokkru sinni fyrr, en auk
þess hefur SH í fleiri ár haft sölu
6krifstofu í Englandi.
I Vestur-Evrópu er við mjög
ramman reip að draga, sem er
viðskiptastefna Efnahagsbanda-
lags Evrópu í sjávarútvegsmál-
um, en sem kunnugt er stefnir
bandalagið að því að setja 18%
ytri toll á freðfisk og hefur sú
Stefna þegar komið til fram-
kvæmda að hluta, þannig að I
löndum, eins og t.d. Hollandi, er
kominn á 6% tollur, þar sem áður
var enginn. Stærri og stærri hluti
innflutts síldarmagns til Vestur-
Þýzkalands er tollaður með 6%
tolli, en hún var áður svo til ó-
tolluð, vegna þess hve tollfrjáls-
ir innflutningskvótar voru rúmir.
Auk þess nýtur sjávarútvegur
EBE-landanna, t.d. hinn vestur-
þýzki, ríflegra ríkisstyrkja, en
það hefur mjög veikjandi áhrif á
samkeppnisaðstöðu fiskframleið-
enda utan svæðisins.
Þessi þróun skapar ákveðna
tregðu hjá fiskkaupendum inn-
an EBE, sem sjá hvert stefnir
gagnvart séljendum utan svæð-
isins, þannig að þeir vilja held-
ur styrkja innkaupasambönd sín
við framleiðendur innan EBE.
Norðmenn og Danir njóta mun
betri tollakjara á freðfisksölum
sínum til Bretlands vegna stöðu
sinnar innan EFTA, en fslending
ar, sem standa utan svæðisins.
Af innfluttum íslenzkum fiski
verður að greiða 10% toll í Bret-
landi, en aðeins 5%, komi fisk-
urinn frá Danmörku og Noregi.
í framtíðinni mun SH, sem
ætíð áður, leggja áherzlu á að
seljá til þeirra markaða, sem hag
kvæmastir eru fyrir sjávarútveg
og fiskiðnað landsmanna. í stefnu
samtakanna í sölumálum felst
það að tryggja hjóðarhag og auka
velsæld þjóðarinnar fyrir til-
stuðlan íslenzkrar útflutnings-
framleiðslu.
Syndið
200
metrana
Ján Hjartarson,
Skagnesi-Kveðja
Á Eystranesi má auðan Stól
líta, nú fækkar ferðamönnum
fallinn er ein af hetjum sönnum.
Að viði gengin í vestri sól.
Hjarta ljúflingsins hætt að slá.
Ekkert fær grandað göfugmenni
í gömul spor þó aftur fenni.
Lifa minningar mörgum hjá.
Á Skagnesi var þitt ríki reist.
Ótrauður barðist alla daga
iðjumanns líf er hetjusaga.
Flestra vandræði fékkstu leyst.
Á nýjar leiðir nú liggja spor.
Framtíðarlandið nú færðu að
kanna
fegurð og hamingju reyna sanna.
Þar auganu mætir eilí. t vor.
Vinur og frændi far nú vel.
Aftur við sjáumst einhveintíma
við ellina verð eg enn að glíma.
Blessi þið drottinn bak við hel.
B. E.
Jón Rögnvaldsson, umsjónarmaður Lystigarðsins á Akureyri, lengst til hægri, sýnir skógræktar-
mönnum Lystigarðinn. Á myndinni sjást í fremstu röð talið frá vinstri: Halidór Sigurðsson, Eið-
um, Björn Ófeigsson, Reykjavík, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Reykjavík, Helgi Hersveinsson,
Patreksfirði, Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Patreks firði, Hákon Guðmundsson, Reykjavík, Ólöí
Árnadóttir, Reykjavík og Jón Rögnvaldsson, Akureyri.
— Skógrækt
Framh. ai bls. 13
Stjórn Skógræktarfélagsins
Á aðalfundinum áttu tveir
stjórnarmenn að ganga úr stjórn
Skógræktarfélagsins, þeir Einar
Sæmundsen og Hákon Guðmunds
son, hæstaréttarritari. Voru þeir
báðir endurkjörnir. Auk þeirra
eiga sæti í stjórninni þeir Sig-
urður Bjarnason, ritstjóri frá Vig
ur, Hermann Jónasson, alþingis-
maður og Haukur Jörundsson,
skólastjóri á Hólum.
Skógræktarfélag Eyfirðinga
hafði haft veg og vanda að und-
irbúningi þessa aðalfundar Skóg
ræktarfélagsins og var hann all-
ur hinn prýðilegasti, undir for-
ystu þeirra Guðmundar Karls
Péturssonar, yfirlæknis, form.
Skógræktarfélags Eyfirðinga og
Ármanns Dalmannssonar, fram-
kvæmdastjóra félagsins.
Skrúfstykki
Eigum fyrirliggjandi skrúí-
stykiki í miklu úrvali.
Hagstætt verð.
LUDVIG
STORR
Sími
1-33-33
\ *""£ t ;•* ;• % \ •• -T -Wv
Fablon-Topji Plastdúkur
Það er á allra færi að klæða og skreyta með
FABLON sjálflímandi plastdúk.
Mjög sterkt slitlag.
Nýkomið aftur um 30 munstur og í öllum viðarlitum.
Fæst hjá:
Málarabúðinni Vesturgötu
Helgi Magnússon & Co,
J. Þorláksson & Norðmann,
Skiltagerðin Skólavörðustíg
Brynja verzlun, P. Hjaltested,
Heildsölubirgðir:
Davlð S. Jónsson & Co. hf.
ÍTSALA »j karlmannafatnaði
í DAG HEFST ÚTSALA Á KARLMANNAFÖTUM OG STÖKUM JÖKKUM.
IVSikið úrvað — Stórlækkað vero
KOMIÐ SNEMMA
O G GERIÐ GÓÐ KAUP.