Morgunblaðið - 28.08.1963, Side 23
Miðvikudagur 28. ágúst 1963
MORGUNBLADIÐ
23
— Viefnam
Framh. af bls. 1
Haift er eftir starfsmönnum
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, að þeir séu ekki svartsýnni
en áður var, eftir þessar fyrstu
umræður.
I>á ræddi Lodge í dag við
bróður Diem, Ngo Dirnh Nhu,
sem almennt er talinn sá, sem
mestu ræður nú. Telja sumir
vestrænir sendimenn, að hann
hygigi jafnvel á alger yfirráð í
landinu. Stóð fundur þeirra í
rúmar tvær stundir. Ekki er
kunnugt um, hvað þeim hefur
farið á milli.
Sennilegt þykír að stjórn
Bandaríkjanna muni breyta af-
stöðu sinni til stjórnar Suður-
Vietnam. Þó hefur talsmaður og
yfirmaður utanríkishjálpar
Bandaríkjanna, David Bell, lýst
því yfir, .að fjárhagsaðstoð við
S-Vietnam muni ekki felld nið-
ur.
Mun afstaða Bandarikjastjórn-
ar í þessu máli erfið, þar sem
kommúnistar í N-Vietnam ógna
frelsi allra venjulegra borgara
suðurhluta landsins. Hins vegar
hefur komið fram af orðsendingu
þeirri sem Cabot Lodge afhenti
Diem, að stjórn Bandaríkjanna
fordæmir með öllu framkomu
stjórnarinnar við Búddatrúar-
menn.
í>að hefur vakið talsverða at-
hygli, að Vu Can Mau, fyrrver-
andi utanríkisráðherra S-Viet-
nam, var í dag handtekinn. Hann
sagði af sér ráðherraembætti
fyrir skemmstu, rakaði höfuð
sitt, og var nú á leið til Indlands
í pílagrímsför. Diem mun þó
ekki hafa þótt hlýða, að Mau
kæmist úr landi.
Sendiráð fjölda ríkja í Saigon
hafa undanfarna daga ekki getað
upplýst stjórnir viðkomandi ríkja
um ástandið í landinu, þar eð
stjórn Diem hefur Iokað venju-
legum boðleiðum. Verða sendi-
ráðin nú að koma skilaboðum sín
Sumar bridgemót
SUMARMÓT Bridgesambands fs-
lands verður haldið á Laugar-
vatni dagana 30., 31., ágúst og 1.
september n.k.
Þegar hafa tilkynnt þátttöku
sína um 150 manns. Þetta er í
fyrsta skiptið, setn sumarmótið
er haldið að Laugarvatni og er
meiri þátttaka í því frá félögum
á Suðurlandsundirlendi og suður
með sjó en verið hefur.
Af þátttakendum eru karlmenn
heldur í meirihluta og mikið um
hjoh. Áætlunarbifreið fer _ 30.
ágúst kl. 5 síðdegis frá BSÍ, en
mótið hefst kl. 8 með tvímenn-
ingi.
um eftir leiðum, sem stjórnin get
ur fylgzt með. Hefur þetta vakið
geysilega andúð erlendra sendi-
manna í Saigon, og telja þeir, að
hér sé um að ræða eitt alvarleg-
asta brot á réttindum erlendra
sendimanna, sem um getur. í
hópi þeirra sendimanna, sem
þannig hafa verið einangraðir,
eru fulltrúar Sviss og Vatikans-
ins.
Á fundum Sameinuðu þjóð-
anna í dag var rætt, hvort grípa
skyldi til þess ráðs að kalla sam-
an öryggisráðið til að fjalla um
ofsóknir þær gegn Búddatrúar-
mönnum, sem nú fara fram í S-
Vietnam. Það er einkum fulltrúi
Ceylons, sem berst fyrir því, að
ráðið verði kallað saman.
SNEMMA í gærmorgun
tókst að bjavga bandarísku
námumönnunum tveim,
Henry Throne og David
Fellin, sem í fjórtán daga
hafa verið lokaðir niðri á
hundrað metra dýpi í an-
trasit-kolanámu í Hazlton
í Pennsylvaníu.
Björgunartilraunir höfðu
staðið yfir allan þennan tinia
en þær voru hinar erfiðustu
og mátti ekkert útaf bregða,
svo að ekki féllu saman göng
Mynd þessa fékk Morgunhlaðið símsenda í gaer, en hún var tekin í sjúkrahúsinu í Hazle-
ton, er eiginkona Davids Fellin fékk loks að heilsa manni sínum eftir 14 daga kvíðafulla bið.
Komnir upp heilir á húfi
-eftir 14 daga dvöl í iðrum jarðar
• ■
Ottazt um líf þriðja námumaimsins,
en björgunartilraunum haldið áfram
in, sem boruð voru niður til
þeirra.
Mennirnir tveir voru hinir
kátustu, þegar þeir voru
dregnir upp, Throne fyrst,
síðan Fellin. Þeir skiptust á
gamanyrðum og sungu hástöf
um og gerðu þannig sitt til
þess að draga úr kvíða þeirra,
er uppi biðu og báðu þess
eftirvæntingarfullir, að allt
gengi vel. Engu að síður
grúfði sorg yfir öllum, því að
enn var óvist um örlög þriðja
mannsins, Louis Bova, sem
var í nokkurri fjarlægð frá
hinum tveim og ekki hefur
heyrzt til í tíu daga. Fjórum
sinnum hefur verið reynt að
bora niður til Bova, en allar
tilraunirnar misheppnastt
veggir holunnar hafa jafnóð-
um hrunið saman. Enn verð-
ur björgunartilraunum hald-
ið áfram og reyndar ýmsar
gerðir bora.
★ ★ ★
Björgunarmenn hafa verið
í stöðugu sambandi við þá
Throne og Fellin í marga
daga. Hafa matvæli og hjúkr-
unargögn verið látin síga nið-
ur til þeirra, eftir að tókst að
bora fyrstu holuna, er var 15
cm í þvermál. Vandinn hefur
síðan verið sá, að vikka hana
nægilega mikið til þess að
Unnt yrði að ná mönnunum
upp.
Throne lagði af stað upp
kl. 1.50 eftir miðnætti, að
staðartíma ( kl. 10 mínútur
fyrir sex í gærmorgun, að ísl.
tíma) og var 17 mínútur á
leiðinni. Fellin var hinsvegar
ekki nema rúmar 8 mínútur á
leiðinni upp. Báðir voru dá-
lítið skrámaðir, skeggjaðir og
mjög óhreinir, þegar þeir
komu upp en virtust hinir
hressustu. Óskuðu þeir þegar
eftir að komast í tæri við
heitt bað og rakvélar. Áður
en orðið var við bón þeirra,
voru þeir látnir í hendur
hjúkrunarliðs, sem beðið
hafði á staðnum, til þess að
veita aðstoð, ef með þyrfti.
Fór fram bráðabirgðaathug-
un á mönnunum, en síðan
voru þeir sendir með þyrlu
í sjúkrahús, þar sem beið
þeirra bað, rakstur og ýtar-
legri læknisrannsókn.
Eiginkonur mannanna biðu
þeirra í sjúkrahúsinu og urðu
þar að vonum fagnaðarfund-
ir, er þær höfðu heimt þá úr
helju. Undanfarið hafa þær
vart getað slitið sig frá slys-
staðnum; þær töluðu oft við
menn sína í síma, sem send-
ur hafði verið niður til þeirra
og vildu, að vonum, helzt
fylgjast með björguninni til
enda. Þó létu þær undan þrá-
beiðni manna um að bíða held
ur í sjúkrahúsinu, enda var
ekki vitað hvernig mennirnir
væru útleiknir.
Þegar tekizt hafði að víkka
holuna svo, að hún var orðin
um 50 cm í þvermál — og
undirbúningur hófst að ferða
lagi þeirra Throne og Fellins
— sendu þeir upp sín síðustu
boð úr iðrum jarðar. Óskuðu
þeir eftir að fá senda niður
góðan málsverð, vel tilreidda ,
nautasteik, kartöflustöppu og
allskyns grænmeti. Kváðust
þeir vilja fá eitthvað girni-
legt að borða, ef til þess kæmi
að það yrði síðasta máltíðin.
Matinn fengu þeir sendan frá
beata hóteli bæjarins — en
sem betur fer gekk allt vel
og þeir eiga þess áreiðanlega
kost á að snæða sig fullsadda
af nautasteik á næstunni.
Blaðamaðurinn, sem fann úrið, afhendir það Ingólfi Þor-
steinssyni yfirvarðstjóra. Ljósm.: Sv. Þ.
— Bíabamenn
Framh. af bls. 24
sönnunargagn um umrædda
ferð.
Á tanganum við Vatnsvík
svipti sig ungur blaðamaður
klæðum og smeygði sér í sund
skýlu, því framundan var hlut
verk bjórsins, að grafa sig inn
í vatnsbakkann með 1—lVz
fets vatns undir sér og leir og
mold yfir. Skreið hann síðan
brynjaður ljóskastara og arfa
klóru inn í grenið og hóf leit,
meðan aðrir stóðu yfir og
voru fálátir á svip.
Enginn hafði trú á að til-
tækið bæri árangur.
En viti menn:
— Úr, úr! öskraði frétta-
maðurinn úr iðrum jarðar og
lét hljóðið eins og einhver
væri að kalla á hjálp vafinn
innan í sængina sína.
Var nú hlaupið af stað í
bílinn og myndavélm sótt, því
ekki var trúin á fyrirtækið
meiri en svo, að hún var ekki
höfð með út á tangann:
Fréttamaðurinn kom upp úr
gjánni, allur útataður aur og
leðju með lítið kvenúr úr
gulti, fiorngrip að útliti, sem
sennilega á aldrei eftir að
mæla tímann framar, en
verður aðeins skemmtileg
minning fyrir þá sem ferð-
ina fóru og hlátursefni rann-
sóknarlögreglunnar.
Úrið bar vörumerkið Métal
533731 og viðgerðarskráning-
arnúmer 24/8 J.S. 4811, en aft
an á gullkassa þess voru
greyptir stafirnir SH með
skrautletri.
Hér sjá menn í myndum
gamanefni blaðamanna Mbl.
V erkameimirnir
höfðu slökkt
Akranesi 27. ágúst.
MILLI klukkan 2 og 3 eftir há-
degi í dag kom eldur upp í síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðjunni
hér. Slökkviliðið kom á vettvang,
en þá voru verkamenmrnir þegar
búnir að slökkva eldinn, sem
kviknað hafði upp á lofti út frá
logsuðu. Náði eldurinn ekki að
breiðast út. — Oddur. >
— Iþróttir
Framh. af bls. 22
ur Lárusar, en hann varð einnig
íslandsmeistari í Reykjavík 1957
og þá fyrsti sem vannst til þess
'titils án þess að keppa á sinum
heimavelli. 1962 va>- Óttar Ingv-
arsson íslandsmeistari á þessum
velli með 307 höggum, svo að
sjá má að Lárus hefur leikið
mjög glæsilega.
Skilyrði voru mjög góð báða
dagana, sólarlaust, logn og pass-
lega heitt. Keppni þessi var
nokkuð erfið, þar sem byrjað
var kl. 8 f.h. báða dagana Og
spilaðar 36 holur hvorn dag. 7-8
tíma törn hvorn dag.
„Parið“ á vellinum er 35 högg
á 9 holur, 70 högg á 18 holur
Eftir fyrri dag var Lárus.lægst-
ur með 147 högg eða aðeins 7
yfir „pari“.
Þátttakendur voru 12 og var
skipt í meistaraflokk og 1. flokk.
Skiptingin miðaðist við forgjöf 8.
Þeir, sem hana höfðu eða lægra
voru í meistaraflokki, hinir í 1.
fl. Sex skipuðust þannig í hvorn
flokk.
Úrslit í meistaraflokki
1. Lárus Ársælsson Vestmanna
eyjum 296 högg.
2. Leifur Ársælsson 309 högg.
3. Ársæll Ársælsson 316.
4. Kristján Torfason 316.
Þeir Lárus, Leifiur og Ársæll eru
bræður — og sá fjórði er Sveinn
fyrrum íslandsmeistari, en hann
hefur ekki getað verið mejS
undanfarin ár vegna veikinda.
1. flokkur
Þar sigraði sonur Lárusar Ár-
sæll Lárusson með 328 högg,
2. Sveinn Þórarinsson 334 og
3. Magnús H. Magnússon 337.
Móðir okkar
JÓHANNA AMELÍA JÓNSDÓTTIR
ljósmóðir, Grandavegi 39, Rvík,
verður jarðsungin fimmtudaginn 29. ágúst, kl. 10,30
f. h. frá kapellunni í Fossvogi. — Athöfninni verður
útvarpað.
Synir.