Morgunblaðið - 30.08.1963, Síða 15
4 I*5studagur 30. ágúst 1963
MORCUNBLAÐIÐ
15
SISAM
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA SJALFSTÆÐISMANNA
1U0IU
. BITSTJÓRAR: BIRGIR ÍSL. CUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON j
HEIMDALLARFERÐ
að Tröllafossi
N.K. laugardag kl. 2 e.h. efnir
Heimdallur F.U.S. til eftir-
miídagsferðar. Skoðuð verð-
ur Dælusíöðin í Mosfellssveit,
gengið upp að Tröllafossi og
hann skoðaður og Laxaklak-
stöð ríkisins í Kollafirði
heimsótt
Upplýsingar í síma 17100.
Eggert
Hauksson:
Stjórn og starfræksla er erfið
ari í mjög stórum skóla, og því
fremur hætta á mistökum.
Ég tel því að starfrækja beri
Menntaskólann á sínum gamla
stað og húsi, sú gamla stofnun
verðskuldar sannarlega, að við
hlynnum sem bezt • að henni og
sýnum henni allan sóma.
En brýn r.auðsyn er að byggja
á öðrum stað nýjan menntaskóla
sem a fyrst.
v Jón MagnússoL.
ER ÉG skyldi láta í Ijós álit mitt
á byggingarframkvæmdunum
bak við menntaskólahúsið, lá
mér næst hjarta að hafna slíku,
þar sem tæpast væri velgjörn-
ingur að blása í glæður þess
óf’’iðarbáls, sem hafði logað svo
NVJAR BVRGINSAR VIB
GAMIA MENNTASKÚIANN
— Nemendur segja dlit sitt
glatt undanfarna áratugi og gert
að engu allar raunhæfar tilraun
ir til byggingar nýs skólahúss í
einhverri mynd. En svo hugsaði
ég, að varla kæmi að sök. þótt
einhverjar ályktanir yrðu dregn-
ar af framvindu þessa bygginga
máls skólans, einkum eftir að
núverandi framkvæmdir væru
komnar það vel á veg, að naum-
ast yrði spornað við þeim lengur.
Ég fagna því af heilum hug,
að loks hafi verið hafizt handa
í fullri alvöru og geri það í
þeirri vissu, að hér verði eigi
látið staðar numið, heldur jafn-
framt hafin hið bráðasta bygg-
ing nýs skólahús annars staðar
í borginni. Ég tel rangt að fella
nokkurn annan dóm um ágæti
þessara úrræða, er loksins voru
ókveðin, þar sem þau munu eina
færa undankomuleiðin -eftir að
allar fyrri ráðagerðir höfðu dag-
að uppi í sleitulausum þrætum
viðkomandi ráðamanna, sem ent
ist það í áratugi að koma i veg
fyrir að nokkuð væri gert, en
tókst þess í stað að baka þjóð-
inni slíkt tjón sem raun ber vitni.
Ég hef nú lokið námi við
Menntaskólann í Reykjavík og á
þaðan margar góðar endurminn-
ingar. Aðstæður voru oft erfið-
ar, en ég vona að þar hafi ég
öðlast það veganesti, er ég muni
njóta um ókomin ár. Öska ég
síðan skólanum alls velfarnaðar,
og megi sú lausn húsnæðisvand-
ans, sem nú er eygð, verða hon-
um til eflingar og sóma.
Jón
Magnússon:
Fyrir nokkrum árum var sam-
þykkt að hefja byggingu nýs
menntaskóla í Reykjavík. Ein af
ástæðunum til þess að frá því
Kjördæmisþing á
Hellu og Siglufirði
í LÖGUM Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna er gert ráð fyrir
því, að kjördæmisþing séu hald-
in í öllum kjördæmum á ári
hverju. Þar safnast saman full-
trúar hinna einstöku félaga ungra
Sjálfstæðismanna svo og menn
frá svæðum þar sem ekki eru
félög eftir nánari ákvörðun kjör
daemisþings hverju sinni.
Kjördæmisþing þessi eru nú
*ð hefjast og var hið fyrsta hald-
19 s.l. laugardag að Hellu. Jón
Þorgilsson setti það þing og
stjórnaði því. f sambandsráð S.
U. S. var kjörinn Óli Þ. Guð-
bjartsson, Selfossi og til vara
Jón Þorgilsson, Hellu og Guð'ni
Grímsson, Vestmannaeyjum.
Á þinginu var rætt um félags-
mál ungra Sjalfstæðismanna og
skýrði Birgir ísl. Gunnarsson frá
starfi S.U.S.
N.k. laugardag verður kjör-
dæmisþing haldið á Siglufirði
fyrir Norðurlandskjördæmi
vestra.
var horfið var sú, að mörgum
fannst að slitinn væri merkur
sögulegur þáttur, með því að
flytja skólann úr sínu gamla hús-
næði og umhverfi.
Nemendafjöldinn er kominn á
níunda hundrað og fer stöðugt
vaxandi, það gefur því auga leið
að ekki verður komist hjá að
byggja. Spurningin er aðeins,
hvort leitast á við að reisa eins
konar menntaslgplahverfi í kring
um og í tengslum við gamla
skólann — eða hafa skólana
tvo. Svo ljóst sé, hvora leiðina
á að fara, er rétt að gera s
grein fyrir, hvort er hagkvæmara
og hvort er líklegra til betri
rangurs fyrir nám og félags-
þroska nemenda.
Hvað hagkvæmni snertir, þá
er óneitanlega hætta á, að þær
byggingar, sem kæmu til með
að verða byggðar í kringum
gamla menntaskólann, yrðu á
ýmsan hátt háðar lóðatak-
mörkunum og afstöðu sinni
við gamla skólahúsið. Það
er því líklegt, að þess
arar takmarkanir mundu orsaka
hvorttveggja í senn, dýrari bygg
ingar og óhagkvæmari. En þótt
sjálfsagt sé, að gamli skólinn
standi og starfi áfram, þá má
hann ekki hefta byggingu og
eðlilega þróun á nýjum mennta-
skóla í Reykjavík. A nýju og
velvöldu skólasvæði væri ekk-
ert, sem hindraði, að skóli yrði
á allan hátt byggður sem hag-
kvæmast, bæði hvað kostnað og
húsaskipan áhrærði. Reykjavík
er það víðáttumikil, að hentugra
er fyrir nemendur að hafa tvo
skólastaði.
Þá er það starfsárangur skól-
ans. Enginn efi er á því að skól-
inn er þegar orðinn of fjölmenn-
ur. Skólinn ætt-i ekki að vera
fjölmennari en svo, að nemend-
ur vissu deili hver á öðrum, því
annars hljóta takmarkaðir félags
hópar eða „klíkur“ að myndast,
en engin samstæð félagsheild.
Félagsstarfið verður því í molum
og veitir nemendum ekki þann
þroska, sem æskilegur værL
Páll B.
Kristjónsson:
1 MÖRG herrans ár hafa hús-
næðisvandræði Menntaskólans í
Reykjavík verið ofarlega á baugi
bæði í ræðu og riti. Minna hef-
ur þó verið um raunhæfar úr-
bætur þar að lútandi, þrátt fyrir
brýna nauðsyn og fjölda tillagna
í þá átt. Að vísu var byrjað á
grunni nýs menntaskólahúss fyr-
ir nokkrum árum, en þær fram-
kvæmdir fórust fyrir, illu heilli,
aðallega vegna ósamkomulags
einhverra forráðamanna. Síðan
hafa framkvæmdir algjörlega
legið á láginni þar til nú, að
málið er komið í algjört öng-
þveiti.
í sumar var hafist handa að
reisa viðbótarbyggingu ofanvert
við gamla skólahúsið í svonefndu
Olíuporti og á nokkrum lóðum,
sem voru þar til keyptar við
geypiverði. Bygging þessi er hag-
anlega teiknuð, þannig að hún
mun ekki eyðileggja heildarsvip
gamla hússins, og er það vel. í
viðbótinni munu ætlaðar átta
kennslustofur. Flestar þeirra
munu verða sérkennslustofur til
handa starðfræðideild, svo og
eitthvað fyrir máladeild. Þarna
mun bætt úr þeim hörmulega
Framh. á bls. 23
Líkan af Menntaskólanum og nýbyggingunum þar.