Morgunblaðið - 30.08.1963, Blaðsíða 20
20
MORCUNBLAÐIÐ
r
Fostudagur 30. ágúst 1963
William Drummond: / ZIA v/ /?1 TRÖÐ
30
vr, sem kvíðir fyrir að fara út
Úir horninu sínu og leggja til
næstu lotu. Hún kynni að hafa
unnið fyrstu lotuna með litlum
mun, en maðurinn sem hún hafði
gifzt, hafði alla yfirburði yfir
hana. Hún varð hinsvegar að
berjast með öllum þeim brögð-
um, sem kyn hennar hafði til að
bera. Hún hafði alltaf hugsað
sér hjónabandið, sem sléttan og
felldan samleik skyldra sálna, og
það voru óneitanlega vonbrigði
að þurfa að líkja því við hnefa-
leikakeppni.
Þegar hún kom niður var
Tony að fylla glasið sitt í annað
sinn. — Ertu betri? spurði hann.
Hún kinkaði kolli og tók glas
ið sitt. Hún smakkaði aðeins á
því, af því að hún vildi halda
öllum skilningarvitum óskertum.
— Hvernig gengur með hr.
Elliot? spurði hún.
— Fjandinn hirði hr. Elliot,
sagði hann.
— I>ú hefur nú lengi verið
þeirrar skoðunar, sagði hún. —
En hvernig gengur með hann í
dag?
— Þetta Elliot-mál skiptir
ekki máli, sagði hann með óþol
inmæði. — Að minnsta kosti
ekki í samanburði við þetta, sem
gengur að þér. Þú veizt það, Kat
rín. Hann setti frá sér glasið og
reyndi að taka hana i fang sér, en
hún sleit sig lausa. Hún fann, að
hún gat ráðið við hann, svo fram
arlega, sem hún gæti ráðið við
sjálfa sig.
— Hvers vegna hefurðu svona
miklar áhyggjur út af hr. Elliot?
spurði hún. — Hefur hann eitt
hvert þrælatak á Newton-námun
um?
Hún var að ýta við því, sem
hún hélt að væri helzti veikleiki
hans, en hann barðist á móti. —
Þessi veslings Elliot heldur sig
hafa upp á eitthvað að klaga.
En hann hefur engin lög sín meg
in. Hann beið eftir að hún héldi
áfram, en það gerði hún ekki. Ef
hún hefði haldið áfram, hefði tal
ið borizt aftur að veikindum
hennar, og ímyndunnum.
— Úr því svo er, vildi ég
leggja af stað til Feneyja á morg
un, sagði hún. — Þó ekki væri
nema vegna minnar eigin sálarró
semi.
— Eg er hræddur um, að það
séu engin tök á því. Auk þess
sem farseðlarnir hljóða upp á
hinn daginn, þá hef ég þrjá
fundi . . .
í þessu hringdi dyrabjallan, og
Kit gat ekki að því gert, að hún
kipptist við.
— Það er allt í lagi, elskan,
sagði hann. — Eg skal fara. —
Þetta er ekkert.
— Ertu viss um það? sagði
hún og kaldhæðnin leyndi sér
ekki í röddinni. — Það gæti ver
ið hann hr. Elliot með uppgerðar
kvartanirnar sínar. Það getur
verið dáiítið þreytandi þetta í-
myndunarveika fólk.
Hann leit á hana með hryggð
arsvip og gekk síðan fram en
skildi eftir hurðina í hálfa gátt.
Kit flutti sig til svo að hún gæti
séð, hver þetta væri, án þess þó
að opna meira. Bólóttur ungling
ur stóð þar með böggul í umbúða
pappír í hendinni. Það var auð-
vitað ferðataskan, sem hún hafði
verið að kaupa, enda þótt henm
fyndist hún koma aftan úr forn
eskju. Kit færði sig til og dró
tjöldin fyrir gluggana.
Tony kom aftur inn í setustof
una og bar töskuna. — Veiztu
hvað þetta er? sagði hann í gælu
tón.
— Eg get ímyndað mér það,
sagði hún, en það er bara sá gall
inn á, að ég þjáist af imyndun-
um. En áður en þú tekur utan
af því gæti ég getið mér til, að
það væri ferðataska, með fapga
markinu A. W. N. Eg gæti getið
mér til, að það væri gjöf frá þakk
látri konu til áhyggjufulls eigin
mans hennar, í þakklætisskyni
fyrir Feneyjaferð — brúðkaups-
ferð — þrem mánuðum eftir að
þau höfðu efni á henni.
Tony setti töskuna út að vegg,
gekk yfir að vínborðinu og fékk
sér aftur í glasið. — Það er eins
og nýtt tímabil sé upp runnið hjá
okkur, sagði hann.
— Ætlarðu ekki að taka hana
upp? spurði hún.
Hann kveikti sér í vindlingi.
— Eg vil gjarna þiggja gjöf en
síður hnefahögg í bakið, svar-
aði hann.
— Eins og demanta-gondólann?
spurði hún.
Hún sá reiðina í svip hans.
Henni var meinilla við svona
skæruhernað og það var honurn
sjálfsagt líka. En allt í einu lét
hann undan. — Þú vinnur, sagði
hann. Fyrirgefðu mér, elskan.
Eg er raunverulega áhyggjufull
ur út af honum Elliot — ég
meina ónæðinu, sem maður hef
ur af honum. Hann veit það. Það
hefur gert mig uppstökkan. —
Hann tók umbúðirnar utan af
ferðatöskunni. Þetta var fagur
gripur. Hann athugaði fóðrið og
fráganginn. — Eg hef verið svo
andstyggilegur. Hvernig geturðu
fyrirgefið mér, Katrín?
Hann gekk til hennar og kyssti
hana og horfði á hana með þess
um unglingssvip, sem hún gat
aldrei staðizt. — Þú ert svo góð!
Svo dásamleg! Og ég hef verið
þér vondur eiginmaður, elskan
mín, að láta þessa áhyggjur í
skrifstofunni taka mig frá þér,
enda þótt þær séu einskis virði,
að öllu samanlögðu.
Veslingurinn hafði látið bug-
ast svo algjörlega, að Kit fylltist
móðurást á honum. — Líkar þér
hún vel?
— Hún er dásamleg! Og það
ert þú lika. Dásamlegasta konan
á öllu Grosvernortorginu.
— Bara þar? spurði hún og
nuddaði saman nefjum við hann.
— Jæja, í Mayfair þá.
— Segðu heldur í aliri Lund-
únaborg . . . Jæja, gott og vel,
í aliri veröldinni ef þú vilt það
heldur. Ertu ánægð með það?
Allt var snögglega orðið dýrð
legt aftur. Það var rétt eins og
þegar þau hittust fyrst í Cleve-
land og sátu á legubekknum með
armana hvort um annað og
hlógu. Ó, guð minn góður, hvað
þetta líf getur verið skritið, sagði
Tony. — Allir þessir duttlungar!
— Kysstu mig! sagði hún. —
Kysstu mig!
Hann kyssti hana með miklum
ákafa. — Ó, elskan mín, sagði
hún. — Við skulum fara upp.
— Far þú upp, sagði hann
lágt. — Ég kem á eftir.
Þegar hún var að ganga upp
stigann, full eftirvæntingar, sá
hú að hann var að hella í glasið
því, sem eftir var í flöskunni.
En þetta var dásamlegt, þessi
kraftur hans og vald. Hún var
eins og hljóðfæri, sem hann lék
á, einmitt eins og hún vildi helzt.
Hún var eins og í töfraheimi og
það var eins og himinninn væri
alsettur stjörnuhröpum, en svo
kom hún aftur til jarðar, til þess
eins að stíga upp í geiminn aft-
ur.
En þegar þessu var öllu iokið
og þau lágu þarna, sæl og þreytt
sagði hann allt í einu: — Eg vil
nú ekki fara spyrja þig, en. ef þú
vilt, geturðu sagt mér þetta, sem
Peggy var að tala utan að . . .
um strætisvagninn.
— Æ, við skulum ekki vara að
tala um það. Við höfum allt, sera
máli skiptir, finnst þér ekki?
En þá byrjaði síminn að
hringja í aukatækinu, sem var
hjá rúminu og skelíingin héit
aftur innreið sína. — Svaraðu
ekki! sagði hún. — Æ, lofaöu
honum að hringja, Tony. Síðar
sá hún, að þetta var heimskulega
mælt, því að það var eins og hún
vildi ekki lofa honum að sann
prófa það, sem hún hafði verjð
að halda fram.
En hann skeytti því ekki,
hvort sem var. Hann strauk
fingrinum glettnislega um nefið
á henni, og sneri sér síðan við
og tók símann. — Halló!
Röddin hinumegin var vel
heyranleg. — Þetta er miðstöð,
sem talar, sagði stúlkurödd. —
Eg ætlaði bara að segja yður, að
síminn yðar er kominn í lag aft
ur.
Hann lagði frá sér símann og
sneri sér að henni — Viltu
sígarettu?
Hún kinkaði kolli og hann
stakk tveimur upp í sig og
Þú glcymdir að salta spaghettiið.
kveikti, tók síðan aðra og gaf
henni.
Það var^Mðið skuggsýnt. Eld
urinn í vindlingunum glóði og
skein framan í þau, er þau sugu.
Ljósin utan af torginu þyrluðu
upp gullryki innan um lægri
greinarnar á trjánum. Líkami
hans lá heitur og grannur við
hliðina á henni. En nautnar-
kenndin var horfin — símahring
ingin hafði spillt henni. — O,
bara að þetta hefði verið hann,
hugsaði hún, — en nú getur
hann kannski komið aftur, þegar
siminn er kominn í lag. Eg var
örugg meðan hann var bilaður.
Undir eins og ég er orðin ein,
byrjar þessi djöfull aftur!
Hún drap í vindlingnum, fór
fram úr og gekk inn í baðher-
bergið. Hún fann, að hún þoldi
ekki að vera í sama herbergi og
Tony. Hún sótti fötin sín og
klæddi sig þarna inni. Hún
þurfti úmhugsunartima. Hún
kæmist ekki hjá því að segja
honum frá strætisvagninum, en
hún varð að segja söguna þann
ig, að hann gæti ekki snúið út
úr henni.
Þegar hún hafði klætt sig,
gekk hún aftur inn í svefnher-
'bergið. Tony var að kveikja
sér í öðrum vindlingi. Þarna var
enn dimmt inni. Hún kveikti ljós
ið og Tony fékk sem snöggvast
glýju í augun. — Gengur nokk
uð að, elskan? spurði hann. Hann
hafði orðið hissa, því að hann
hafði aldrei vitað hana taka sig
fram um neitt að fyrra bragði
— Eg mundi eftir því, að Bea
ætlaði að koma, sagði hún. —
Eg var búin að bjóða henm upp
á eitt glas.
— Þurfum við að hafa þetta
ljós? spurði hann og dró rúm-
fötin upp yfir bert brjóstið.
Kit dró gluggatjöldin fyrir. —
það er hægara að klæða sig í
björtu, sagði hún. —Bea kemur
eftir hálftíma. Svo gekk hún nið
ur í setustofuna, til þess að laga
þar til og þvo glösin.
Hún hafði ekkert að gera
þangað til Tony kæmi niður.
Upplyftingu hennar var lokið.
Hún hafði hert sig upp í að fara
með Tony eins og hann væri ó-
vinur hennar í staðinn fyrir
manninn í símanum, eða þann
sem hafði hrint henni fyrir
strætisvagninn. Hún var alveg
máttlaus. Hún blandaði sér í
glas og kallaði svo á Tony og bað
hann að koma niður, þvi að hún
þyrfti að tala við hann áður en
Bea kæmi.
Nú, er hún hafði loks ákveðið
að segja honum frá strætisvagn-
inum, var hún óþolinmóð eftir
að geta framkvæmt það. Hún
hellti í sig úr glasinu eins og i
.hugsunarleysi og hafði fyllt og
tæmt annað til, áður en Tony
kom niður. "*
— Ég hef ákveðið að segja þér
frá þesstx með strætisvagmnn,
sagði hún. Hún var ofurlitið
loðmælt.
— Lofaðu mér að ná í þig,
sagði hann og hellti 1 glas handa
sér. — þú hefur fengið forskot.
Það var vitanlega engin ástæða
til þess, að hann fengi sér ekki
hressingu líka, en Kit þótti það
miður að þurfa að bíða eftir því,
— Gott og vel, sagði hann.
Láttu það koma.
— Þú ert hræddur um að ég
sé með einhverjar ímyndanir, er
ekki svo? spurði hún.
KALLI KUREKI
■Xr'
Teiknari; FRED HARMAN
KJOOWS WHáT'S GOT \NOT ME, OC-TIMEG / N
VObB SWEETHEART
GOTTH'DWKÍER* SHE
BRDILEDTH'STEAKS,
MADE TH' SALAD AN'
TH’ BISCUITS AH' TH'
PIE AM'
ME DOWM, DUCHESS .•'BUT
1 WILL SAYTHIS ISTH'
BEST COOKIN'YOU EVER
COMEUPWITH'
IFl 00 SAYIT AN’li
SH0U LDM' T, l'M THE J
BEST COOKYOU'LL
MEET UP WITH.'J
' — Þú ert ekki sérstaklega glaður
í bragði, gamli minn. Ég hefði haldið
að þú værir veikur ef þú hámaðir
ekki í þig eins og þú hefðir aldrei
áður bragðað mat.
k — Kalli veit hvað er að mér,
frænka. En ég segi bara, að þetta
er bezti matur, sem þú hefur nokk-
urii tima borið á borð.
— Ekki ég, gamli minn. Það er
kærastan þín sem hefur hefur búið
til matiniL Hún steikti kjötið, bjó
til sósuna, brauðið og.....
— Mabel! Bjóstu þetta til?
— Ég skal segja þér, þó ég eigi
kannski ekki að gera það, að ég er
bezti kokkur, sem bú hittir nokkurn
tíma.
ajlltvarpiö
FÖSTUDAGUR 30. ágúst.
8:00 Morgunútvarp.
12:00 Hádegisútvarp.
13:15 Lesin dagskrá næstu viku.
13:25 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk.
— Tónleikar. 16:30 Veðurfr. —
Tónleikar. — 17:00 Fréttir. —
Endurt. tónlistarefni).
18:30 Harmonikulög.
19:30 Fréttir.
20:00 Efst á baugi (Björgvin Guð-
mundsson og Tómas Karlsson).
20:30 Nýja sinfóníuhljómsveitin í Lund
únum leikur.
20:45 Erindi: Hálflærður prestur 1
hálft annað ár (Séra Gisli Bryn»
jólfsson).
21:10 Solomon leikur píanósónötu nr.
13 í Es-dúr, op. 27 nr. 1 eftir
Beethoven.
21:30 Útvarpssagan: „Herfjötur" eftir
Dagmar Edquist; VIII (Guðjón
Guðjónsson).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Menn og músik: IX. þáttur. Hugo
Wolf. (Ólafur Ragnar Grímsson).
23:15 Dagskrárlok.
Vöru* .
happdra’ttí
16250 VINNINGAR!
Fjórði hver miði vinnur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur*
Lægstu 1000 krónur.
Pregid 5. hvers mánaðar.