Morgunblaðið - 03.09.1963, Page 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 3. sept. 1963
■C
Þrír menn barðir og rænd-
ir á gðtum Reykjavíkur
Fólskulegar árásir um helgina
F R Á aðfaranótt sl. laugardags
hefur verið ráðizt á þrjá menn
á götum Reykjavíkur og þeir
slegnir niður og rændir pening-
um. Talið er að tveir piltar séu
valdir að tveimur árásum aðfara-
nótt sunnudags og aðfaranótt
Iaugardags réðust fimm menn að
manni á Hverfisgötu, börðu hann
og rændu. Lögreglan leitar nú
árásarmannanna.
Liðlega klukkan 1 aðfaranótt
sunnudags var maður staddur
við Elliheimilið við Hringbraut
og beið þar eftir strætisvagni.
Settst hann á bekk þar, en leidd-
ist biðin og fór að ganga um í
nágrenninu. Mætti hann þá tveim
ur mönnum, báðum ungum, sem
hann Iýsir svo að annar hafi ver-
ið vart meðalmaður, hinn nokkru
hærri, báðir dökkhærðir og
dökkklæddir.
Um leið og mennirnir gengu
framhjá, barði annar þeirra
manninn mikið högg fyrir bring-
spalirnar. Fékk hann síðan fleiri
'högg og missti meðvitund.
Er hann raknaði við á gang-
stéttinni bar að lögreglubíl og
óku lögreglumenn manninum
heim. Sagði hann þeim að hann
hefði verið sleginn. Hinsvegar
var það ekki fyrr en daginn eft-
ir að maðurinn saknaði veskis
síns, en í því voru 1200—1400 kr.
í peningum, ávísanahefti, skil-
ríki o. fl. Kærði hann þá málið
til rannsóknarlögreglunnar.
Nokkru síðar þessa sömu nótt,
eða um tvöleytið, var 63 ára gam
all maður á heimleið úr Glaum-
bæ. Hélt hann niður í Miðbæ,
og gekk um Austurstræti. Hitti
hann þá tvo unga menn, og lýsir
þeim líkt og maðurinn, sem fyr-
ir órásinni varð á Hringbraut.
Piltar þessir höfðu í fórum
sínum hálfa flösku brennivíns
og buðu gamla manninum, sem
þáði. Kom síðan til tals að hann
væri á heimleið, og buðust pilt-
arnir þá til þess að aka honum
heim. Fóru þeir saman á leigu-
bílastöð, og óku upp á Vitastíg,
skammt frá heimili mannsins.
Þar greiddu piltarnir bílinn, og
fylgdu manninum heim að dyr-
um. Fóru þeir allir inn í port, en
n ðurinn hugðist ganga um bak-
dyrnar.
í því er maðurinn tók upp
lyklakippu sína heyrði hann að
annar piltanna sagði. „Nú“. Um
leið var hann sleginn í höfuðið
svo hann féll við. Reyndi gamli
maðurinn að standa á fætur en
var barinn niður jafnharðan þar
til hann missti meðvitund. Rakn-
aði hann þó brátt við og fór nið-
ur á Laugaveg, þar sem hann
hitti lögreglumann, sem kom
honum í Slysavarðstofuna. Þar
kom í ljós að veski, sem maður-
inn hafði i bakivasa, var komið í
brjóstvasann, og úr því horfnir
tveir þúsund króna seðlar.
Maðurinn hlaut glóðarauga,
slæmar blóðnasir og var að auki
hruflaður í andliti eftir höggin.
Þriðja árásin átti sér stað að-
fararnótt laugardags, um kl. hálf
þrjú. Átti þá 33 ára gamall gull-
smiður leið um Hverfisgötu á-
samt kunningja sínum. Er þeir
komu á móts við húsið nr. 33
var þar fyrir maður á gangstétt-
inni, og gaf sig á tal við kunn-
ingja gullsmiðsins. Skammt frá
stóð bifreið, sem gullsmiðurinn
telur sig ekki geta gefið lýsingu
á. —
Skyndilega stukku út úr bíl
þessum fjórir menn og réðust að
gullsmiðnum, en kunningi hans
tók til fótanna, Og hljóp niður á
lögreglustöð til að sækja hjálp.
Mennirnir fjórir börðu gull-
smiðinn allt hvað af tók, svo
hann hrökklaðist yfir götuna og
að grindverki, sena hann studdi
sig við. Kom þá fimmti maður-
inn, sem staðið hafði á gangstétt-
inni og greiddi honum þung
högg og stór þar sem hann hékk
utan í grindverkinu.
Framh. á bls. 23
< ‘í', ^ ?- ; & 1**^
■ - ^
' '' '
v • ' ■ r'' '7íú''Xt \
<■ "r , • :
1 í "1 ' ;
■ ! . ■ ■ ^ 1 ^
Náimubærinn í Meistaravík, þar sem fjöldi námumanna hefur
<i- búið og unnið blý úr jörðu í áratugi, en nú stendur auður.
Námubœnum í Meistara-
vík var lokað 24. ágúst
Lóa B|örns flaug norður fyrir 76. br.baug
f GÆRKVÖLDI kom Björn Páls
son á tveggja hreyfla flugvél
sinni Lóunni til Reykjavikur og
hafði flogið á henni hina 1450
km leið norður til Danmerkur-
havn á Austur-Grænlandi, á
breiddarbaug 76,50, og til baka til
fslands. Flogið var með 3 Dani,
til rannsókna á hugsanlegum
flugvelli þar norður frá, en
Björn lenti þar á 300 m sjálf-
gerðri hraut á siéttu fjalli
skammt frá veðurstöðinni. Einn-
ig var með til ráðuneytis um að
flugsskilyrði nýju brautarinnar
fulltrúi F.Í., Jóhann Gíslason.
Flogið var til Meistaravíkur
sl. miðvikudag með millilendingu
á ísafirði, en þaðan er 'iVz stunda
flug. Fréttamaður Mbl., sem var
með í ferðinni skoðaði þar hinn
auða námubæ, en í haust var
blýnámunum, sem Danir hafa
rekið þarna lokað og síðustu
starfsmennirnir nýfarnir. Var
námubænum lokað alveg fyrir
10 dögum eða 24. ágúst. Blý er
nú búið á þessum stað, en í fram
tíðinni er hugsanlegt að unnin
verði hinn dýrmæti málmur
„molubdæn" úr fjalli skammt
frá gömlu blýnámunum og höfn
in í Meistaravík notuð. Og fara
fram rannsóknir þar að lútandi.
Flug í stað siglingar um is.
Á miðvikudag var flogið í
góðu veðri ti.1 Danmarkshavn,
þar sem er um 12 km leið frá
veðurstöðinni sjálfgerð braut, en
Danir vilja gjarnan fá um 1200
m lendingarbraut til að geta lát
ið DC 4 flugvélar lenda þar einn
mánuð á ári með vistir til veð-
urstöðvarinnar og starfsmenn
til mannaskipta, en mjög dýrt er
að senda þangað skip. Þau kom-
ast ekki alla leið nema í hæsta
lagi annað hvert ár og verð því
oft að snúa við og senda nauð-
synjar með flugvélum frá Reykja
vík, sem varpað er niður. .
Danirnir, Nissen frá dönsku
flugmálastjórninni, og tveir sér-
fræðingar í jarðvegsrannsóknum
frá fyrirtæk Geoteknisk A/S,
fundu þar mjög vel til fallinn stað
þvert á núverandi braut, þar sem
hægt er að fá a.m.k. 1400 m braut
án þess að vinna hana mikið,
enda varla hægt að koma þangað
upp stórum vinnuvélum. Merktu
þeir staðinn út og tóku jarðvegs-
sýnishorn.
Ekki mikill ís í ár.
í ár var ísinn ekki svo mikill
við Grænland, að skipið komst
leiðar sinnar alla leið inn til Dan-
markshavn. Og úr flugvél Björns
sást að enn lá eitt af hinum rauðu
Dan-Grænlandsförum í höfninni 1
Scoresbysund. Þar sem flugvélin
kom að ísröndinni var hún um
100 miíur frá íslandi. Víða þar
fyrir norðan var lausi ísinn þétt-
ur, en líka stór svæði með mjög
strjálunvís. En nú er ísinn sjáan
lega að leggja inn í firðina.
Framh. á: bls. 23
Farmannaverkfallinu frestað
Enn einn stdrþjdf-
ur handtekinn
r j*
Ijraþjófnaðuriim frá Jóhannesi
Norðfjörð upplýstur
SNEMMA á sunnudagsmorgun-
inn handtók lögreglan ungan
mann, sem hafði brotizt inn í
▼erzlunina Radíótóna að Laufás-
vegi 41. Ekki hafði pilturinn
stolið neinu, er lögreglumenn
handtóku haim inni í verzlun-
inni, en við húsleit heima hjá
honum og við yfirheyrslu kom á
daginn að hér var fundinn þjóf-
ur sá, sem aðfaranótt 17. janúar
sl. brauzt inn í Úra- og skart-
gripaverzlun Jóhannesar Norð-
fjörð og stal þaðan úrum og
skartgripum fyrir a annað hundr
að þús. kr.
Það var um kl. hálf sex á
sunnudagsmorguninn að .ögregl-
unni barst tilkynning um að
maður væri að brjótast inn í
umrædda verzlun á Laufásvegi.
Komu lögreglumenn þegar á
staðinn og handtóku piltinn, sem
reyndist drukkinn.
Hann var yfirheyrður strax á
sunnudag af rannsóknarlögregl-
u..ni, en ekki vildi hann þá við-
urkenna önnur brot utan einn
smáþjófnað. Að yfirheyrslunni
lokinni var gerð húsleit hjá pilt-
inum, og fundust þá í herbergi
hans úr og skartgripir, sem svör
uðu til lýsingar á úrum þeim og
munum, er stolið hafði verið frá
Jóhannesi Norðfjörð eftir ára-
mótin. Kom og á daginn að
númer á úrunum kom heim við
númer þeirra, sem stolið hafði
verið. Fannst þarna megnið af
þýfinu, eða alls 28 úr og allmik-
ið af gullhringum, steinhring-
um og öðrum skartgripum. Alls
var talið að stolið hefði verið 41
úri.
Við yfirheyrslu í gærmorgun
j.'.taði pilturinri síðan innbrotið,
og kvaðst hafa Verið ölvaður r
hann framdi það. Þá gerði hann
og grein fyrir þeim úrum, sem
á vantaði. Hafði hann selt þau í
vor og sumar.
Piltur þessi hefur ekki áður
komizt undir manna hendur svo
vitað sé.
Starfsmat mun fara fram
í GÆRMORGUN var undirrit-
aður samningur milli fulltrúa
farmanna og skipafélaganna um
frestun verkfallsins, er hófst á
kaupskipaflotanum á miðnætti
s.I. laugardags. Sáttafundir með
aðiljum í deilu þessari hófust á
fimmtudag og stóð síðasti fund
urinn í 40 klukkustundir. Logi
Einarsson var sáttasemjari á
fundum þessum vegna fjarveru
Torfa Hjartarsonar.
Verkfallinu er frestað meðan
atkvæðagreiðsla fer fram í við-
komandi félögum, en eins og gef
ur að skilja mun hún taka all-
langan tíma vegna fjarveru
margra skipshafna.
Hinn nýi samningur gildir til
1 marz n.k. og má segja hon-
um upp með mánaðarfyrirvara
hækki vísitala framfærslukostn-
aðar um 10 stig eða meira á
þessu tímabili. í honum felst
samkomulag samningsaðila um
að starfsmat fari fram á næstu
sex mánuðum og nýir samning-
ar verði síðan byggðir á niður-
stöðum þess.
Helztu kaup- og kjarabreyt-
ingar eru þær, að mánaðarlaun
hækka um 7 V2 % frá 1. júlí að
telja. A-taxti í tímavinnu verð-
ur 15,50 kr. fyrir byrjaða hálfa
klst., B-taxti timavinnu verður
28,00 kr. fyrir byrjaða hálfa
klst. Hámark lægri taxta í strand
ferðasiglingum verður 30% í
stað 35% áður. Fæðispeningar
verða 60 kr. á dag í stað 50 kr.
áður, verkfærapeningar timbur-
manna verða 340 kr. á mánuði.
Þá munu skipafélögin greiða
1 kr. á dag í styrktar- og sjúkra-
sjóð sjómanna fyrri hvern lög-
skráðan skipverja. Þau skuld-
binda sig einnig til að gefa yfir-
mönnum á skipum sínum fyrir-
mæli um, að kalla ekki menn
til vinnu að ástæðulausu í frí-
tíma og yfirmönnum verða gef-
in fyrirmæli um að láta skip-
KAUPMANNAHAFNARBLAÐ-
IÐ Folitiken skýrir frá því á
sunnudag að átta slökkviliðsbif-
reiðir hafi tekið á móti Loft-
leiðaflugvélinni Snorra Sturlu-
syni er hún lenti á Kastrupflug-
velli sl. laugardag á leið frá
Hamborg til Reykjavikur. Tutt-
ugu farþegar voru með vélinni,
og segir blaðið að meðan þeir
hafi verið á leið frá vélinni að
flugstöðinni hafi reykur gosið
undan vélinni.
Ekki var þó um alvarlegan
bruna að ræða, heldur aðeins of-
hitun á hemlum á einu af fjór-
um lendingarhjólum. Tókst fljót-
lega að gera við vélina, en á
meðan snæddu farþegar hádeg-
isverð í biðsal flughafnarinnar.
í tilefni þessarar frásagnar í
Politiken, sneri Mbl. sér til Sig-
verja ekki vinna óhófléga lengl
í frystilestum. Sérstakt kæli-
kerfi verður sett í íbúðir há-
seta, er sigla til erlendra hafna,
þar sem veðurlag krefst þess.
Þá voru og gerðir samningar
til bráðabirgða fyrir vikadrengi,
Lágmarkslaun á mánuði verða
3000 krónur fyrir átta stunda
vinnudag, en áður var enginn
vinnutími ákveðinn. Er þetta í
fyrsta skipti sem gerðir hafa
verið slíkir samningar fyrir ungl
inga á kaupskipunum.
urðar Magnússonar fulltrúa hjá
Loftleiðum og innti hann frekari
fré’tta.
— Lendingin á Kastrupflugvelli
var eðlileg, og vissu farþegar og
áhöfn ekki annað en að allt væri
í lagi. En þegar út kom kom sást
að það rauk úr einu af fjórum
lendingarhj ólum. Var þá kallað
í slökkvilið. Til að forðast
skemmdir kaus slökkviliðið að
láta hitann minnka smám saman
í stað þess að slökkva strax, og
úðaði því hjólið dufti. Tók
slökkvistarfið því nokkurn tíma,
Flugvélin átti að hafa klukku-
stundar viðdvöl í Kaupmanna-
höfn, en varð að bíða þar í sex
klukkustundir, aðallega vegna
útvegun varahluta. Við rann-
sókn kom í ljós smábilun á hemla
kerfi í einu hjólanna, sem gert
var við á staðnum.
Smáhilun tafði
Snorra Sturluson