Morgunblaðið - 03.09.1963, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.09.1963, Blaðsíða 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 3. sept. 1963 Heildaraflinn nær 900 þús. mál og tn. minni en í fyrra SÍÐASTLIÐNA viku veiddist síld á tveimur svæðum. NA af Langanesi og SA af Gerpi og Skrúð. Vikuaflinn var 131.843 mál og tunnur, en var 174.374 mál og tunnur sömu viku í fyrra. Heildaraflinn var í vikulokin 1.179 371 mál og tunnur en var 2.094.836 mál og tunnur á sama tíma í fyrra. Aflinn var hagnýttur þannig: í salt 443.447 uppsalt. tunnur 370.448 í fyrra. í frystingu 30.416 uppmæld. tunnur 38.905 í fyrra. í bræðslu 705.508 mál, 1.685.483 í fyrra. Á meðfylgjandi skrá eru 16í skip, en þau skip, sem eru hætt veiðum eru ekki tekin á skrá að þessu sinni. Mál og tunnur: Akraborg, Akureyri 13094 Akurey, Hornafirði 6949 Anna, Siglufirði 10058 Arnarnes, Hafnarfirði 4321 Arnfirðingur, Reykjavík 5839 Árni Geir, Keflavík 9171 Árni Magnússson, Sandgerði 10377 Arnkell, Rifi 3491 Ásbjörn, Reykjavík 2024 Ásgeir Torfason, Flateyri 1996 Ásketl, Grenivík 7933 Ásúlfur, ísafirði 3845 Auðunn, Hafnarfirði 6759 Baldur, Dalvík 7331 Baldur í»orvaldsson, Dalvík 7935 Bára, Keflavík 12614 Bergvík, Keflavík 5506 Bjarmi, Dalvík 10406 Björg, Neskaupstað 7130 Björg, Eskifirði 6738 Björgúlfur, Dalvík 12360 Björgvin, Dalvík 8510 Björn Jónsson, Reykjavík 4962 Bragi, Breiðdalsvík 4451 Búðafell, Fáskrúðsfirði 7026 Dalaröst, Neskaupstað 6154 Dorfi, Patreksfirði 6632 Draupnir, Súgandafirði 4998 Einir Hálfdáns, Bolungarvík 10892 Einir, Eskifirði 4312 Eldey, Keflavík 5742 Engey, Reykjavík 9650 Faxaborg, Hafnarfirði 6856 Fram, Hafnarfirði 7139 Framnes, Þingeyri 8170 F^eyfaxi, Keflavík 6781 Freyja, Garði 5652 Freyja, Súgandafirði 2376 Friðbert Guðmundsson, Súgandaf. 1554 Garðar, Garðahreppi 9808 Garðar, Rauðuvík 3404 Gísli lóðs, Hafnarfirði 2378 Gissur hvíti, Hornafirði 6853 Gjafar, Vestmannaeyjum 8355 Glófaxi, Neskaupstað 4579 Gnýfari, Grafarnesi 6634 Grótta, Reykjavík 19196 Guðbjartur Kristján, ísafirði 4702 Guðbjörg, ísafirði 7404 Guðbjörg, Olafsfirði 7573 Guðfinnur, Keflavík 4717 Guðmundur Péturss, Bolungarvík 9631 ...með kvöldkaffinu ÞEGAR ÞÉR gistið í Kaup- mannahöfn, getiö þér lesið Morgunblaðið samdægurs, — með kvöldkaffinu í stórborg- inni. FAXAR Flugfélags tslands flytja blaðið daglega c.'j það er komið samdægurs i blaða- söluturninn ■ aðaljambrautar- stöðinni við Ráðhústorgið — Hovedbanegardens Aviskiosk. FÁTT er ánægjule.jra en að lesa nýtt Morgunblað, þegar verið er á ferðalagi vtra eða dvalizt þar. Guðmundur Þórðarson, RVík 22108 Guðrún Jónsdóttir, ísafirði 8026 Guðrún Þorkelsdóttir, Eskifirði 13793 Gullfaxi, Neskaupstað 12752 Gullver.Seyðisfirði 14769 Gunnar, Reyðarfirði 12313 Gunnhildur, ísafirði 4236 Gylfi II, Rauðuvík 3280 Hafrún, Bolungarvík 10492 Hafrún, Neskaupstað 6593 Hafþór, Rvik 7499 Halkion, Vestmannaeyjum 8873 Halldór Jónsson, Ólafsvík 14913 Hamravík, Keflavík 11347 Hannes Hafstein, Dalvík 15616 Haraldur, Akranesi 7244 Hávarður, Súgandafirði 5223 Heiðrún, Bolungarvík 5274 Heimaskagi, Akranesi 1997 Heimir, Keflavík 3445 Helga, Reykjavík 10030 Helga Björg, Höfðakaupstað 10239 Helgi Flóventsson, Húsavík 16073 Helgi Helgason, Vestmannaeyjum 15745 Héðinn, Húsavík 15981 Hilmir, Keflavík 3802 Hilmir II, Keflavík 3226 Hoffell, Fáskrúðsfirði 13314 Hólmanes, Eskifirði 2625 Hrafn Sveinbjarnarsson, II. Grv. 3418 Hringver, Vestmannaeyjum 5592 Hrönn II, Sandgerði 3416 Hugrún, Bolungarvík 3854 Húni, Höfðakaupstað 2638 Húni II, Höfðakaupstað 5117 Hvanney, Hornafirði 2836 Höfrungur, Akranesi 6687 Höfrungur II, Akranesi 6772 Ingiber Ólafsson, Keflavík 5026 Jón Finnsson, Garði 12680 Jón Garðar, Garði 18009 Jón Guðmundsson, Keflavík 8031 Jón Gunnlaugs, Sandgerði 6702 Jón Jónsson, Ólafsvík 6869 Jón á Stapa, Ólafsvík 9442 Jökull, Ólafsvík 3925 Kambaröst, Stöðvarfirði 6502 Kópur, Keflavík 10751 Leifur Eiríksson, Reykjavík 4977 Ljósafell, í'áskrúðsfirði 5615 Loftur Baldvinsson, Dalvík 2502 Lómur, Keflavík 13439 Mánatindur, Djúpavogi 12054 Manni, Keflavík 6578 Margrét, Siglufirði 13150 Mímir, Hnífsdal 5963 Mummi, Flateyri 6209 Mummi II, Garði 5951 Náttfari, Húsavík 5707 Oddgeir, Grenivik 14232 Ólafur Bekkur, Ólafsfirði 10026 Ólafur Magnússon, Akureyrl 18488 Ólafur Tryggvason, Hornafirði 9787 Páll Pálsson, Hnífsdal 5787 Pétur Ingjaldsson, Reykjavík 3934 Pétur Jónsson, Húsavík 7053 Pétur Sigurðsson, Reykjavík 8174 Rán, Hnífsdal 3120 Rán, Fáskrúðsfirði 7185 Rifsnes, Reykjavík 7633 Runólfur Grafarnesi 7575 Seley, Eskifirði 10052 Sigfús Bergmenn, Grindavík 6669 Sigrún, Akranesi 7619 Sigurbjörg, Keflavík 5114 Sigurður, Siglufirði 7578 Sigurður Bjarnason, Akureyrl 20687 Sigurpáll, Garði 24825 Skagaröst, Keflavík 10874 Skarðsvík, Rifi 11244 Skipaskagi, Akranesi 8169 Skírnir, Akranesi 6352 Smári, Húsavík 3862 Snæfell, Akureyri 16329 Sólrún, Bolungarvík 9356 Stapafell, Ólafsvík 6748 Stefán Árnasom, Fáskniðsfirði 5655 Stefán Ben, Neskaupstað 7685 Steingrímur trölli, Eskifirði 8830 Stígandi, Ólafsfirði 9394 Straumnes ísafirði 5027 Sunnutindur, Djúpavogi 9546 Svanur, Reykjavík 6612 Sæfari, Akranesi 4316 Sæfari, Tálknafirði 17667 Sæfaxi, Neskaupstað 10621 Sæúlfur, Tálknafirði 12090 Sæunn, Samigerði, 4585 Sæþór, Ólafsfirði 5949 Tjaldur, Rifi 6077 Valafell, Ólafsvík 8878 Vattarnes, Eskifirði 14341 Víðir II, Garði 9945 Víðir, Eskifirði 13659 Von, Keflavík 7389 Vörður, Grindavík 4237 Þorbjörn, Grindavík 14553 Þórkatla, Grindavík 12177 Þorlákur, Bolungarvík 4850 Þorleifur Rögnvaldsson, Olafsfirði 4983 Þráinn, Neskaupstað 12049 Kynna séi skólnmdl ó íslondi Osló, 2. sept. (NTB); _ Þingmaðurinn Kristian I.anglo er nýkominn heim til Osló eftir vikudvöl á íslandi þar sem hann kynnti sér skólamál ásamt landa sínum Kristen Örbeck Sörheim skólastjóra. Við heimkomuna kvaðst Lang- lo mjög hrifinn af skólafram- kvæmdum á íslandi, og minntist sérstaklega á skólamiðstöðina við Laugarvatn. Á íslandi ræddu Norðmennirn ir við Gylfa Þ. Gíslason, mennta málaráðherra og stjórnendur ým issa skóla. Láta þeir mjög vel af ferðinni. Báðir eru þeir fulltrúar í sérstakri skólamálanefnd norska þingsins, en nefnd þessi á m.a. að kynna sér skólamál á hinum Norðurlöndunum og Bret landi. Ljósmyndasamkepprci um Reykjavíkurmyndir ALMENNA bókafélagið hefur ákveðið að efna til verðlauna- samkeppni um beztu ljósmyndir frá Reykjavík og er samkeppn- in einn þáttur í undirbúningi nýrrar myndabókar um Reykja- vík, sem félagið hyggst gefa út í náinni framtíð. Ætlast er til, að myndirnar sýni höfuðborg- ina og næsta umhverfi hennar eins og það er í dag, vöxt borg- arinnar og viðgang og daglegt líf og störf í henni — með sér- stakri áherzlu á því, sem talizt getur einkennandi fyrir borg- ina. Veitt verða 4 peningaverð- laun og sex bókaverðlaun; fyrir litmyndir verða 1. verðlaun 10.000 krónur og 2. verðlaun 5.000.00 krónur — og fyrir svart hvítar myndir verða 1. verð- laun 7.000,00 krónur og 2. verð laun 3.000,00 krónur. Bókaverð- laun verða þrenn í hvorum flokki og getur hver sem þau hreppir, valið úr útgáfubókum Almenna bókafélagsins bækur að verðmæti 1.000,00 krónur, reiknað á hinu lága félagsmanna verði. Við mat á öllum mynd- um, sem til keppninnar eru send ar, verður í senn tekið tillit til uppbyggingar þeirra og efnis. Dómnefnd skipa þeir Sigurður Magnússon og Guðmundur W. Vilhjálmsson ásamt einum full- trúa Almenna bókafélagsíns. Hver þátttakandi getur sent allt að 5 myndir til keppninnar, en engin þeirra má hafa birzt í bók áður. Jafnt áhugaljósmynd- arar sem atvinnuijósmyndarar geta tekið þátt í keppninni. Skila frestur mynda er til 15. október 1963. Nánari reglur um sam- keppnina verður að finna í blaða auglýsingum og ennfremur í næsta hefti af „Félagsbréfum“ Almenna bókafélagsins, sem út kemur innan skamms. Mynda- bók sú um Reykjavík, sem, ljós- myndasamkeppnin er undirbún- ingur að, verður gefin út í sam- vinnu við forlag Hanns Reich í Þýzkalandi, sem m.a. gaf út myndabókina Ísland í samvinnu við Almenna bókafélagið, en sú bók hefur nú selzt í yfir 20 þúsund eintökum, sem mun vera meira en áður eru dæmi til um slíka bók. + SKOKK NOTKUN STEFNULJÓSA Kæri Velvakandi. í dálkum þínum hefir nýlega verið rætt nokkuð um umferð- armál, og það ekki að ástæðu- lausu. Slysin eru orðin óhugn- aniega mörg fyrir utan allt það tjón, sem þeim er samfara. Sum slysin verða að sjálfsögðu ekki umflúin, en þó er mikill meiri hluti þeirra ökumönnum, eða gangandi vegfarendum að kenna. Mikið öryggi er í notkun stefnuljósa, en þau verður þá líka að nota rétt. Röng notk- un stefnuljósa er háskaleg. Ég var t.d. fyrir nokkru á leið inn Borgartúnið. Á undan mér ekur bíll, sem gefur til kynna með stefnuljósi að honum eigi að aka til hægri upp Nóatún. Hann hægir ferðina og stanzar alveg á gatnamótunum, enda kemur bíll á móti. Ég beygi til vinstri út fyrir malbikaða veginn og ætla ’">ar framhjá, en einmitt í því er bílnum ekið af stað til vinstri, þótt stefnuljósið gefi hægri-beygju til kynna. Það eina, sem bjargaði árekstri, var að þarna er nóg rými. Karl. + ÞJÓNUSTAN Á HERJÓLFI Kæri Velvakandi. Fyrir nokkru birtir þú bréf frá manni nokkrum, sem farið hafði með Herjólfi milli Eyja og lands og hlotið slæma með- ferð. Kvartaði hann sáran yfir lélegum og litlum mat — og sagði, að pylsur hefðu kostað 10 krónur um borð — og gos- drykkir verið seldir út um gat á hurð. Við skipverjar á Herjólfi urð- um mjög leiðir yfir þessum skrifum, bæði vegna þess að brytinn er mesti sómamaður — og líka-vegna þess að við sjá- um ekki neina ástæðu til að gera veður út af því, þótt pyls- ur kosti 10 krónur og gosið sé selt út um gat á hurð. Það er auðvitað matsatriði hve mikið pylsur ættu að kosta, en ef þeir, sem ferðast, hafa ekki efni á að kaupa sér mat í ferðunum, þá eiga þeir að hafa með sér nestisbita eða að svelta. Við hásetar fáum nóg að borða, ég veit ekki til að far- þegar hafi verið sveltir á Herj- ólfi. + SKIPI OG ÚTGERÐ TIL SKAMMAR Þótt bréf þetta sé í hvatvís- ara lagi, telur Velvakandi á- stæðu til að birta það, þótt ekki væri nema til að svara því sjálf- ur. Hann fór með Herjólfi sl. vetur. Skal ekkert um það sagt hvort brytinn er sá sami nú og þá. Ferðin var að næturþeli, brytinn var önugur og endaði svo samskiptum við hann að flúið var á náðir annara yfir- manna skipsins, sem greiddu fyrir Velvakanda með stakri prýði. Um morguninn var hon- um boðið til árdegisverðar með skipshöfn og var þar hinn bezti matur á borðum. Hins vegar var þjónusta öll fyrir farþega skipi og útgerð til sHammar, farþegar súpandi gos um alla ganga, en engan ætan bita að fá. Þetta er eigin reynsla Vel- vakanda og gott þegar hann hefir jafn ágætt tækifæri til að svara og nú. BOSCH Höfum varahluti i flestar tegundir Bosch jSmJiBÍ*- . BOSCH f startara og dynamóa. Kaupfélag Eyf., Akureyrl. Veladcild BOSCH

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.