Morgunblaðið - 03.09.1963, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLADID
Þriðjudagur 3. sept. 1963
Hér sést hluti hins mikla mannfjölda, sem tók þátt í mannrétt indagöngunnl i Washlngton í
síðustu viku.
Segja Moskvusamkomulagið
„auvirðilegan hégóma"
Krúsjeff notfærir sér „pólitiskt lík“
Chiang Kai-Chek, segja Kínver jar
Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Otbreiðsiustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: AðsJstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakió.
ER OF MIKIÐ
FRAMKVÆMT?
Tj’ins og menn minnast var
meginárásarefni stjórnar-
andstæðinga á viðreisnina ár-
um saman, að hún mundi
leiða til samdráttar, kreppu
og atvinnuleysis — var jafn-
vel talað um móðuharðindi af
manna völdum og annað í
þeim dúrnum.
Reyndin varð samt sú, að
aldrei örlaði á atvinnuleysi,
en hinsvegar náðist sá tilætl-
aði árangur að endurreisa
efnahag landsins og styrkja
fjárhag þess með söfnun veru
legra gjaldeyrisvarasjóða og
frjálsum viðskiptaháttum.
Gagnstætt því sem stjórnar
andstæðingar spáðu, jókst
bjartsýni manna jafnt og
þétt, er þeir kynntust ávöxt-
um viðreisnarinnar. Hagur
almennings batnaði og fleiri
og fleiri vildu hagnýta aukna
fjármuni sína til fram-
kvæmda, ýmist til íbúðabygg-
inga eða til þátttöku í atvinnu
rekstri, bátakaupa, bifreiða-
kaupa o. s. frv.
Framkvæmdir hafa af þess-
um sökum aukizt jafnt og
þétt og enginn tekur lengur
alvarlega áróðurinn um það,
að hér sé samdráttur og of
lítið framkvæmt. Miklu frem-
ur er ástæða til að menn velti
því fyrir sér, hvort við förum
of geyst í sakirnar. Þegar
hvarvetna skortir vinnuafl og
slegizt er um hvern mann,
vilja. ýmsar framkvæmdir
dragast úr hömlu og verða
dýrari en ella. Líklega gæti
því meira áunnizt, ef nokkuð
yrði dregið úr þeirri spennu,
sem nú er. Að þessu víkur
Tíminn í ritstjórnargrein sl.
sunnudag. Blaðið segir:
„Menn óttast að stjórnar-
stefnan leiði til sívaxandi
verðbólgu og dýrtíðar og
keppast því við ýmiss konar
framkvæmdir og bílakaup.
Allir vilja vera búnir að koma
sínu á þurrt áður en meiri
hækkanir verða. Það er þessi
ótti við verðbólguna og þessi
vantrú á stjórnina, sem veld-
ur ofþenslunni nú“.
Þannig hefur Tíminn ger-
samlega snúið við blaðinu frá
því að tala um samdráttinn og
kreppuna, en talar nú um of-
þenslu og getur Morgunblaðið
játað, að þar eru þeir Tíma-'
menn nær sannleikanum.
Hinsvegar getur Morgun-
blaðið minnt Tímann á það,
að Viðreisnarstjórnin hefur
lýst því yfir, að hún muni
undir engum kringumstæðum
hvika frá viðreisnarstefn-
unni. Þess vegna mun hún án
efa, ef nauðsyn krefur, gera
ráðstafanir til að treysta efna-
haginn og koma í veg fyrir
frekari skerðingu krónunnar.
Að vísu eru stjórnarsinnar
ekki jafn svartsýnir og þeir
Framsóknarmenn. Viðreisnin
hefur verið treyst svo, að hún
þolir það, þótt nokkur spenna
sé og menn njóti góðs ár-
ferðis. En frá viðreisninni
verður ekki hvikað, og þess
vegna verða þær. ráðstafanir
gerðar á hverjum tíma, sem
nauðsynlegar þykja.
STEFNULAUS
FLOKKUR
FVamsóknarflokkurinn hef-
* ur nú í mörg ár verið
stefnulaust rekald, bæði í inn-
anlandsmálum og utanríkis-
málum, nema þá að hægt
væri að kalla það stefnu að
vera á móti öllum málum,
sem stjórnin ber fram til sig-
urs, hversu góð sem þau eru.
Nú segir Tíminn, að ugg-
vænlega horfi vegna þess að
alltof miklar framkvæmdir
séu í landinu, of mikil atvinna
og of hröð uppbygging. Má
vera að eitthvað sé til í þessu,
þó Morgunblaðið fái ekki séð
að neinn voði sé fyrir dyrum.
En ef Framsóknarmenn eru
svo sannfærðir um, að nauð-
synlegt sé að draga úr „of-
þenslunni", sem þeir svo
nefna, þá er nú gott tækifæri
fyrir þá að marka stefnu í
efnahagsmálum. Þeir geta nú
sagt, hvað það sé, sem þeir
vilja að gert verði til þess að
draga úr spennunrt.
Slíkar tillögur frá stjórnar-
andstöðunni yrðu vafalaust
teknar til gaumgæfilegrar at-
hugunar af stjórninni, og
Framsóknarf lokkurinn mundi
sýna það, að hann væri ekki
algerlega ábyrgðarlaus.
Morgunblaðið telur raunar,
að þess verði langt að bíða, að
Framsóknarflokkurinn leggi
fram slíkar tillögur. Hann
mun vafalaust héðan í frá
eins og hingað til hafa það að
meginmarkmiði að vera á
móti öllu, sem stjórnin gerir,
og þess vegna mundi hann
ekki hætta á að leggja fram
neinar skynsamlegar tillögur.
Hann ætti þá á hættu að
stjórnin féllist á þær, og þá
væri erfitt um vik að berjast
gegn ákvörðunum hennar.
BJARTSÝNI
Annars hafa menn yfirleitt
ekki harmað það, þótt
borgararnir væru bjartsýnir,
Peking, 30. ágúst.
— (NTB-Reuter) —
MÁLGAGN kínverska kommún
istaflokksins, „Alþýðudagblaðið“
í Peking réðist að leiðtogum
Sovétríkjanna í dag og sakaði
þá um að taka þátt í alls kyns
svikasamningum til þess að
tryggja framgang uppgjafar-
stefnu sinar, og að sárbæna
Bandaríkjamenn um frið.
legðu í miklar framkvæmdir
og bættu hag sinn.
Hitt er rétt, að það eru tak-
mörk fyrir því, hve hratt er
hægt að byggja upp. Það er
ekki hægt að ætlast' til þess,
að ein eða tvær kynslóðir geri
allt. Menn verða líka að gefa
sér tóm til nauðsynlegrar
hvíldar og heilbrigðrar dægra
styttingar.
íslendingar vinna mikið og
munu halda áfram að gera
það, þótt fráleitt sé að tala
Blaðið segir í ritstjórnargrein
að sovézkir ráðamenn hiki ekki
við að svíkja skoðanabræður
sína til þess að mæta þeim ósk-
um Bandaríkjamanna að kín-
versku ríkin verði áfram tvö,
Alþýðulýðveldið Kína og For-
mósa undir stjórn Þjóðernis-
sinna. „Sovézku leiðtogarnir
hafa fallið frá fyrri stefnu sinni
varðandi Formósu og þeir hafa
um „vinnuþrælkun“ og hvað
það nú allt heitir á máli
stjórnarandstæðinga.
Launakjör eru nú með
þeim hætti, að menn þurfa
yfirleitt ekki að þræla til að
sjá sér og sínum sæmilega far
borða.
Þess vegna virðist skað-
laust, þótt nokkuð dragi úr
eftirspurn eftir vinnuafli, og
má vera, að það sé rétt álykt-
að hjá Tímanum, að of mikil
spenna sé að því leyti.
selt hagsmuni A.-Þýzkalands fyr
ir samkomulagið um tilrauna-
bann“, segir blaðið. Ritstjórnar-
grein þessi fjallar um mestu um
andstöðu Kína við samkomulag-
ið um takmarkað bann gegn
kjarnorkuvopnatilraunum, sem
bláðið nefnir „auvirðilegan hé-
góma“.
Blaðið beinir síðan skeytum
sínum að Krúsjeff, forsætisráð-
herra, þótt ekki sé hann til-
greindur með nafni, og segir:
„Úr því að maður nokkur hefur
lagzt svo lágt að notfæra sér
pólitískt lík Chiang Kai-Chek og
klíkunnar að baki hans, verður
það einmitt þessi maður, aum-
ingja skepnan, sem mun iðrast
þessa ,en alls ekki hin kín-
verska þjóð....“
í annari grein í blaðinu í dag
er ráðizt að Krúsjeff fyrir að
hafa svikið Moskvu-yfirlýsing-
una frá 1960, en í henni var
Júgóslavía fordæmd. Er greinin
byggð á opinberum tilkynning-
um um fundi þeirra Krúsjeffs og
Títós á dögunum.