Morgunblaðið - 03.09.1963, Side 13
Þriðjudagur 3. sept. 1963
MORCUNBLAÐIÐ
13
*c. ' VWVBWCV' ' •" "W
Bólusótt í Búdapest
350 manns í sóttkví
I»essi mynd var tekin vid komu Hans Lenz, vísindamalaraðherr a, konu hans og dóttur, í Háskóla
íslands í g'aermorgun. f fylgd með J>eim var menntamálaráð herra Gylfi Þ. Gíslason, en dr«
Þórir Kr. Þórðarson prófessor tók á móti gestunum. (Ljósm. Sv. Þ.).
Vísindamálaráðherra V-
Þýzkalands í Reykjavík
Heimsótti Háskóla íslands i gær
VÍSINDAMÁLARÁÐHERRA V-
Þýzkalands, Hans Lentz, kom
hingað til lands í fyrrakvöld
ásamt konu sinni og dóttur. Á
flugvellinum tók menntamála-
ráðherra, Gylfi Þ. Gíslason, á
móti honum. Mun visindamála-
ráðherrann dveljast hér í nokkra
daga í boði stjómarvaldanna og
eiga viðræður við íslenzka ráða
menn, auk þess sem hann mun
ferðast um landið.
Vísindamálaráðherrann, frú
hans og dóttir heimsóttu há-
skólann í gær, mánudag, kl.
10,30 og voru í fylgd með þeim
menntamálaráðherra, dr. Gylfi
Þ. Gíslason og ráðuneytisstjóri
menntamálaráðuneytisins. Vara-
rektor háskólans, prófessor Þór-
ir Kr. Þórðarson, ávarpaði ráð-
herrann og gat hann þess m.a.
að þetta væri ekki í fyrsta sinn,
sem ráðherrann heimsækti ís-
land, þar sem hann var hér við
nám í íslenzku fyrir rúmum
SO árum. Hann lýsti hinni miklu
þróun, sem orðið hefði í starf-
semi háskólans síðustu 30 árin,
bæði byggingaframkvæmdum
háskólans, fjármálum og rann-
sóknarmálum og gat um helztu
fyrirætlanir háskólans í bygg-
ingamálum. Hann sagði: „Vér
erum þeirrar skoðunar, að • sá
háskóli, sem aðeins stundar
kennslu, sé ekki raunverulegur
háskólL Rannsóknir eru annað
tveggja meginverkefna hvers
háskóla og rannsóknirnar verða
að blása lífi í kennsluna“. Þór-
ir gat um þá miklu þýðingu,
sem háskólinn hefði sem upp-
eldisstofnun hinna verðandi
leiðtoga hins nýja íslands á öll-
um sviðum þjóðlífs. Hér stunda
nám tæplega 800 stúdentar en
margir eru erlendis og í Þýzka-
landi eru um 150 stúdentar við
nám. Þakkaði hann sérstaklega
þá vinsemd þýzkra tæknihá-
skóla að veita viðtöku íslenzk-
um verkfræðistúdentum, sem
námi lykju þar.
Vísindamálaráðherrann þakk-
aði ræðu vararektors og benti
á það, að hlutverk íslands væri
hið sama og hlutverk annarra
Evrópulanda í vísindamálum:
að stunda grundvallarvísindi.
Tæknileg útfærsla á niðurstöð-
um grundvallarrannsókna 'væri
sérstakt verkefni, sem stórveld-
in, t.d. Bandarikin, hefðu nægt
fjármagn til þess að leysa af
hendi. En grundvallarvísindin
mættu ekki gleymast, og til
þeirra tel ég hugvísindin (Geist-
eswissenschaften), sagði hann.
Háskóli íslands þarf sterka guð
fræðideild, lögfræðideild, heim-
spekideild, sagði ráðherrann,
jafnframt því sem áherzlan hvíl
ir á náttúruvísindum. Einnig
tóku til máls dr. Gylfi Þ. Gísla-
son, menntamálaráðherra og
prófessor Leifur Ásgeirsson,
deildarforseti verkfræðideildar.
Budapest og Vín, 2. sept. —
(AP-NTB): —
UNGVERSK yfirvöld hafa til
kynnt að nokkur hætta sé á
að bólusótt geti breiðst út í
höfuðborginni Budapest. —
Grunur leikur á því að þjónn
einn í Hótel Royal þar í borg
hafi tekið sóttina, og eru all-
ir gestir hótelsins, um 350
manns, í sóttkví.
Austurrísk blöð hafa sakað heil
brigðisyfirvöldin í Budapest um
seinagang, og segja að yfirvöldin
hafi dregið úr hófi fram að grípa
í taumana eftir að kunnugt var
um bólusóttartilfellið. Segja
blöðin að frá því fyrst fréttist
um þjóninn í Hotel Royal hafi
þúsundir ferðamanna komið frá
Ungverjalandi til Austurríkis án
eftirlits heilbrigðisyfirvalda.
Gestirnir í Hotel Royal hafa
verið algjörlega einangraðir í
tvo daga, og hafa ekkert sam-
band við umheiminn nema í
síma. Aðspurður sagði hótelstjór
inn í dag að allir væru við beztu
heilsu, og að enginn héfði sýkzt.
Verða gestirnir í einangrun í
þrjár vikur. Meðal gestanna eru
266 útlendingar.
Orðrómur hefur verið á kreiki
um að vart hafi orðið við fleiri
bólusóttartilfelli í Budapest, en
ungverska fréttastofan MTI bar
þennan orðróm til baka í dag.
Skömmu síðar var gefin út til-
kynning yfirvaldanna um smit-
hættu í borginni.
Austurrísk heilbrigðisyfirvöld
vöruðu í dag við óþarfa ótta
vegna bólusóttar. Sagði dr.
Franz Zwicka, talsmaður heil-
brigðismálastofnunarinnar, að
allir ferðamenn frá Ungverja-
landi yrðu krafðir um bólusétn-
ingarvottorð. Sagði hann að 28
Austurríkismenn hefðu verið
einangraðir eftir heimkomuna
frá Budapest þar sem þeir bjuggu
í Hotel Royal.
Vöruflutniiiga-
bíll veltur
NESKAUPSTAÐ, 2. sept. —
Stór vöruflutningabifreið frá
Akureyri valt á hliðina er hún
var á leiðinni yfir Oddskarð í
dag. Sprakk vegarkanturinn und
an þunga bifreiðarinnar og seig
hún rólega á hliðina. Þrír menn
voru í bílnum og sakaði engan
og engar skemmdir urðu á bif-
reiðinni. Fenginn var stór krani,
er vinnur við hafnargerðina hér,
til að ná bílnum upp.
— Ásgelr.
— Fór i kaf
Framh. af bls. 10
— Þetta var stórt kast. í
nótinni var miklu meira en
við hefðum getað tekið, þótt
gott veður hefði verið.
— Við köstuðum um hálf
átta leytið um kvöldið. Þá var
blíðskaparveður. Allir voru á
dekki nema kokkurinn.
— Það byrjaði að kula, þeg-
ar við vorum fast að því hálfn
aðir að draga nótina. Versn-
aði veðrið mjög og á örskömm
um tíma gerði mikið rok og
reif upp sjó.
— Við héldum áfram að
draga og þegar við vorum bún
ir, og „þurrka af því“, byrjuð-
um við að háfa. Gekk það
sæmilega fyrst, en brátt var
sjór orðinn svo mikill, að erf-
itt var að halda síldinni að
bátnum. Hún leitaði út frá
honum.
— Þegar við vorum búnir
að háfa hátt í lestina og á
dekkið, til að vega á móti
þunga nótarinnar, kom skyndi
lega stór hvika, sem lyfti bátn
um og saup hann á sig mik-
inn sjó. Lagðist hann á hliðina
og náði ekki að rétta sig aft-
ur. Hann fékk á sig aðra
hviku strax á eftir og gerði
það útlagið. Báturinn hélt á-
fram að velta og fór á hvolf.
— Þegar Leifur tók að halla
á hliðina var ég við háfinn.
Nokkuð af sild var stjórnborðs
megin og ætluðum við að
moka henni í lestina tU að
hjálpa til við að rétta bátinn.
En þetta gerðist allt svo
snöggt, að lítið var hægt að
gera.
— Þegar báturinn var far-
inn að hallast svona mikið fór
ég upp á síðuna bakborðsmeg-
in, en hann hélt áfram að
rúlla yfir. Stóð ég fyrir neðan
sjólínu og sparkaði aí mér
stígvélunum og fór úr regn-
úlpunni.
— Ég datt, tókst að komast
aftur á fætur og stakk mér í
sjóinn. Ég fann ekkert fyrir
kuldanum, tróð marvaðann og
hélt mér uppi svoleiðis.
— Ég ætlaði að reyna að
komast í gúmbátinn, en hald-
ið var í línuna á honum frá
bátnum. Mig hrakti í burtu á
bárunum. Ég fór í kaf á hverri
einustu báru. Það var svo
skratti mikill sjór.
— Jón Finnssön kom þarna
strax að og beindi hann ljósi
á svæðið. Ég lenti fljótlega í
ljósgeislanum og lagði bátur-
inn rétt að mér og henti til
mín björgunarhring. Ég náði
honum strax. Líka línu, sem
þeir hentu. Svo drógu þeir mig
að bátnum og kipptu mér inn
fyrir.
— Ég fór úr blautum fötun-
um og í þurr, sem þeir á Jóni
Finnssyni létu mig fá. Eftir að
ég fékk heitt kaffi var ég
fljótur að jafna mig.
— í sjónum fann ég varla
til kulda, skalf ekki einu
sinni. Enda hef ég ekki verið
í sjónum nema nokkrar mín-
útur. Myrkur var komið og ég
horfði móti öldunum svo ég
sá ekki þegar Leifur sökk, sá
aðeins kjölinn þegar mig var
að reka burtu.
— Þeir á Jóni Finnssyni
björguðu félögum mínum og
svo var hafin leit að Símoni
Símonarsyni. Hún tók langan
tíma og var mjög rækilag, en
án árangurs.
— Þegar við komum til
Seyðisfjarðar seinnipart laug
ardags þurftum við að fá okk-
ur ýmislegt fatarkyns, því við
misstum hvert einasta „pút og
Plagg“.
— Loks bið ég blaðið að
flytja skipverjum á Jóni
Finnssyni beztu þakkir og
kveðjur fyrir björgunina og
móttökurnar um borð
6 prestaköll augiýst
laus í Reykjavík
BISKUPINN yfir íslandi hefur
auglýst 6 ný prestsembætti í
Reykjavík laus, og er umsóknar-
f: :stur til 15. október nk. Tvö
þeirra prestsembætta sem aug-
lýst hafa verið, eru ný einmerin-
ingsprestaköll, Grensásprestakall
og Ásprestakall, sem verður
milli Laugarnesprestakalls og
Langholtsprestakalls, en þessu
svæði hefur nú þjónað Kópa-
vogspresturinn.
Þá verður presti bætt við í
hverju eftirtalinna prestakalla:
Nesprestakalli, Háteigspresta-
kalli og Langholtsprestakalli og
1 r þar með gerð að tvímenn-
ingsprestaköllum.
Skipting Reykjavíkurprófasts-
dæmis í sóknir og prestaköll er
þá sem hér segir. Takmörk
Dómkirkjuprestakallsins og Hall
grímsprestakalls verða óbreytt,
Nesprestakall á að takmarkast
við Nessókn, og verða takmörk
þess óbreytt að norðan og aust
an. Gert er ráð fyrir að Sel
tjarnarnessókn verði síðar sjálf-
stætt prestakall, og taki við vest
an við Nesprestakall, sem það
fylgir fyrst um sinn.
Háteigsprestakall á að takmark
ast af Hallgrímsprestakalli að
vestan, Reykjanesbraut að sunn-
an til Kringlumýrarbrautar, en
síðan ræður Kringlumýrarbraut
in að Sauðurlandsbraut, þaðan
að Nóatúni og Nóatún að sjó. —
Laugarnesprestakall á að ná frá
mörkum Háteigsprestakalls um
Nóatún og Suðurlandsbraut að
Múlavegi til Dalbrautar, sem ræð
ur síðan norður til sjávar aust
an Köllunarkletts. Hið nýja Ás
prestakall á að ná að vestan að
Laugarnesprestakalli að sunnan
að Suðurlandsbraut að Holta
vegi, og af Holtavegi að austan
Framh. á bls. 23.
Hclgi Aðalgeirsson
skipstjórinn á Sigfúsi Bergmann.
— Mjólkurbrúsinn
Framh. af bls. 10
upp aftur var ég alldasaður,
því ég var í klofháum stíg-
vélum og stakk, sem gerðu
mér erfitt um vik. Annars
var ég hálf ruglaðiu', því allt
þetta gerðist í hendingskasti.
—Þegar hér var komið
var mér mest í mun að reyna
að fjarlægjast bátinn til að
lenda ekki í soginu. Tókst
mér að svamla í burt. Álít
ég að það hafi bjargað mér,
að ég er alinn upp við Laug-
arnar í Reykjavík og vanur
að vera í vatni.
— Ég sá á floti skammt
frá mér tóman mjólkurbrúsa,
sem mér tókst að ná í. Hann
var hið ákjósanlegasta flot-
holt, bæði var flotmagn hans
mikið og eins hélt hann mér
alltaf réttum í sjónum, en
sjór var talsverður. Brúsinn
varð mér til lífs.
— Ég sá alltaf til skipverj-
anna á gúmmíbátnum og
þegar Jón Finnsson nálgaðist
hlýnaði mér um hjartaræturn
ar, er ég heyrði þá kalla að
taka fyrst þá menn sem væru
í sjónum.
— Fyrst var Jóhann Þor-
steinsson tekinn upp, en hann
var bakborðsmegin við hið
sokkna skip, eins og menn-
irnir í gúmbátnum, en ég
var sá eini, sem var stjórn-
borðsmeginn. Svo var ég tek-
inn upp og loks mennirnir
á gúmbátnum.
— Um borð var ég háttað-
ur úr öllu og settur í koju.
Hlúð var að mér á hinn bezta
hátt. Ég var all slæptur, en
jafnaði mig fljótlega. Mér
er sagt, að ég hafi verið 10—
15 mínútur í sjónum.
— Loks vil ég þakka skip-
verjum á Jóni Finnssyni fyr-
ir hina snarlegu björgun og
góða aðhlynningu.