Morgunblaðið - 03.09.1963, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 3. sept. 1963
PRIMLS
GAS-AHOLD
NAUÐSYNLEG VETUR OG SUMAR
í ferðalög, sumarbústaði og heimili.
Tilgangur leiksins — og
þessara leikja yfirleitt — er
eins konar lokapróf fyrir
landsleik. Sá tilgangur var að
nokkru eyðilagður vegna fjar-
vista leikmanna. í landsliðið
vantaði 3 menn (Ellert
Schram, Garðar Árnason og
Svein Jónsson) og 1 í blaða-
liðið (Skúla Ágústsson). Það
gerist æ algengara að menn
mæti ekki til slíkra leikja en
komast samt í landsliðið. Það
hlýtur að sjálfsögðu að auka
fjarvistirnar en ekki draga
úr þeim. Það er betra að vera
fjarverandi — og komast í
landsliðið, en að vera með —
og spila sig út úr landsliðinu
ef til vill.
Heildarsvipur leiksins var
heldur daufur. Það vantaði spenn
ing. Hins vegar reyndu bæði lið
að ná spili og tókst það báðum
á köflum. -Fyrst var landsliðið
öllu betra, en í síðari hluta fyrri
hálfleiks náði blaðaliðið tökum
á leiknum og oft mjög lagleg-
um samleik. í síðari hálfleik
LANDSMOT í knattspymn í 3.
aldursflokki lauk á sunnudag.
Til úrslita kepptu Akurnesingar
og Vestmannaeyingar. Er það í
fyrsta sinn sem utanbæjarfélög
ur. —
Í mótslok tóku þeir við bik-
arnurn, sem fylgir sigrinum, úr
hendi Björgvin? Schram, íonu.
KSÍ. —
vann landsliðið á og því meir
sem á leið.
>á sá greinilega á að lands-
liðið er vanara að leika saman,
reyndari menn, en aðeins í þvi
hafði landsliðið vinning. Blaða-
liðið átti eins góða einstaka
kafla, en ekki eins góðan heild-
arsvip.
Mörkin
Fyrsta markið kom eftir 2
mín. og lá í marki landsliðsins.
Hermann GunnarssOn, hinn ungi
en lagni miðherji, lék upp hægri
kant og komst inn fyrir. Helgi
hálfvarði en boltinn skoppaði
fyrir markið þar sem Skúli
Hákonarson rak smiðshöggið á,
Á 14. mín. jafnar landsliðið.
Eftir leik á vínstri kanti berst
knötturinn inn á miðju þar sem
Gunnar Felixson er í greinilegri
rangstöðu, svo að varnarmenn
hættu. En Gunnar fékk að skora
án þess að línuvörður veifaði.
Þrem mínútum síðar nær
landsliðið forskoti á sjálfsmarki
blaðaliðsins. Ríkharður hafði
skotið, knötturinn stefndi rétt ut-
an við stöng en Hreiðar bakvörð
ur ætlaði að sparka frá en blaut-
ur boltinn skall í markið í
staðinn.
A 27. mín. jafnar blaðaliðið.
Gunnar Guðmannsson, Skúli og
Hermann samléku inn í víta-
teig landsliðsins og Hermann
skaut laglega framhjá úthlaup-
andi Helga Dan.
Þannig stóð í hálfleik.
Á 9. mín. síðari hálfleiks átti
landsliðið laglegt upphlaup. —
Steingrímur, innherji Vals, gaf
vel fyrir þar sem Sigurþór og
Gunnar Fel. stóðu óvaldaðir. G.
Fel. fékk skallað yfir neimi,
sem gerði einu skyssu sína I
leiknum, að fara á móti honum.
Um miðjan hálfleik jafnar
blaðaliðið. Mistök urðu hjá Jóni
Stefánssyni og Helga Dan. svo
að Skúli komst á milli og fékk
rennt knettinum í markið —
með harmkvælum þó, því fyrst
snerti hann báðar stengur.
Sigurmarkið kon. á 40. mín.
Gunnar Felixson lék upp miðju
og út til vinstri og skaut. Heim-
ir varði skotið en héít ekki. Bolt-
inn stefndi framhjá en Krann-
ari mistókst spyrna frá og í netið
fór boltinn.
Það var sem sagt enginn glans
yfir sigri landsliðsins og betur
má ef duga skal í landsleiknum
á laugardaginn. Framlína lands-
liðsins var sundurlaus, sáralítið
kantspil og eini maðurinn sem
barðist verulega var Ríkharður
og átti raunar glæsilega skalla
að marki, sem ekki urðu þó að
mörkum, m.a. var varið á línu.
Skot átti Rikharður einriig góð
þó varin væru og önnur mis-
tækjust. Varla er vafi á að Rík-
harður hefur leikið sig inn í
landsliðið, en þar lék hann nú í
forföllum annars.
''Aftasta vörnin var ekki sem
traustust, m.a. í samskiptum við
markvörð.
Blaðaliðið gerði áberandi leik-
villur. ekki sizt í því hve Jón
Leósson lék framarlega sem bak-
vörður. Það dró Hrannar aftur
í hans stöðu og veikti miðju-
vörn, þó landsliðið notaði sér
furðulítið af því. En í heild var
vel barizt og góður baráttuvilji
í báðum liðum.
berjast um sigurinn í þessum
flokki — og í knattspyrnu yfir-
leitt.
Akurnesingar sigruðu í leikn-
um með 3-2, verðskuldaður sig-
Seld í verzlunum um
allt land.
AB BAHCO
STOCKHOLM
Umboð:
Þórður Sveinsson &
Co. hf.
Eftir allt kom sigurmarkið með sjálfsmarki. Gunnar Fel. (lengst t. h.) skaut. Heimir varði en
Hrannar mistókst spyrna og ýtti knettinum í netið. Myndir: Sv. Þ.
IÞRÍTTAfRfTTIR MORCRITABSK
Tvö sjálfsmörk sköpuðu
sigur landsliðsins 4:3
Spennulitill leikur með góðum
samleikstilraunum
LANDSLIÐIÐ og „blaðalið“
mættust á sunnudag og landslið-
ið sigraði með 4 mörkum gegn
3. Sigurinn var þó ekki rismik-
ill, tvö markanna hjá „blaðalið-
inu“ voru sjálfsmörk og hið
þriðja var skorað úr greinilegri
rangstöðu. í heild átti þó lands-
liðið öllu meira í leiknum, eink-
um er á leið og átti tækifæri sem
vel hefðu getað orðið mörk, en
þrívegis bjargaði Heimir Guð-
jónsson í marki „blaðaliðsins“
meistaralega vel.
Heimir varði glæsilega.