Morgunblaðið - 05.09.1963, Blaðsíða 1
24 siður
Hörmulegt flugslys í Sviss:
80 manns fórust
bar af 19 hjón
40 börn munaðarlaus
í smáþorpi
Humlikon, Sviss, 4. sept.
— (NTB-AP) —
UM f jörutíu svissnesk börn í
þorpinu Hunilikon misstu
foreldra sína í morgun þegar
Caravelle-þota frá flugfélag-
inu Swissair hrapaði logandi
til jarðar skömmu eftir flug-
tak frá Ziirich. Alls fórust
með vélinni 74 farþegar og
sex manna áhöfn, og er þetta
fyrsta alvarlega slysið í 30 ára
sögu svissneska flugfélags-
ins. —
Ekki er vitað um orsök
slyssins, en sjónarvottar
segja að sprengingar hafi orð-
ið í vélinni, og að hún hafi
hrapað logandi til jarðar. I
fallinu reif flugvélin þak af
búgarði, en ekkert slys varð
á mönnum á jörðu. Minnstu
munaði þó að vélin lenti á
verksmiðjuhúsi þar sem 70
manns voru við vinnu.
Flugvélin var á leið frá Ziirich
til Genf, og meðal farþega voru
19 bændur frá þorpinu Humli-
kon ásamt konum sínum, en í
Framh. á bls. 23
Mynd þessi
slysstaðnum í
Í!ÍcWí;;:S;S:S*Sr~'.
var tekin á gær. Fremst á myndinni sést
Diirrenásch í gígurinn eftir flugvélina, en
Robert Schuman
Fulltrúar bænda vilja 36%
bækkun verögrundvallar
Miklar umræður um verblagsmál á
adalfundi Stéttarsambandsins i gær
Á AÐALFUNDI Stéttarsam-
bands bænda í gær urðu mikl
ar umræður um verðlagsmál
landbúnaðarins og afkomu-
möguleika bænda. Var deilt á
forsvarsmenn þeirra en þeir
báru af sér. Hvatt var til
sóknar á sviði verðlags- og
framkvæmdamála bænda. —
Formaður Stéttarsambands-
ins skýrði ýtarlega verðgrund
völlinn, sem fulltrúar bænda
.vilja að samið verði um. Sam-
kvæmt honum er farið fram
á 36,2% hækkun, sem þýðir
13—15% kauphækkun til
handa bændum.
Meðal gesta á aðalfundin-
um var Ingólfur Jónsson,
landbúnaðarráðherra, en
Robert Schuman, „faðir
einingar Evrópu", látinn
Átti v/ð langvarandi vanheilsu oð s/r/ðo
ROBERT SCHUMAN fyrrum
forsætisráðherra Frakklands,
sem hlotið hefur viðurnefnið
„faðir einingar Evrópu“ lézt
í gær að óðali sínu við Metz
í Austur Frakklandi 77 ára að
aldri. Schuman var einn
merkasti stjórnmálamaður,
sem uppi hefur verið í Ev-
rópu á síðari tímum, og átti
einna mestan þátt í þeirri ein-
ingu, sem náðst hefur milli
Evrópuríkja frá striöslokum.
Hefur sú þróun haft heim§-
sögulegar afleiðingar eins og
öllum er kunnugt.
Um lát þessa merka manns
segir m.a. svo í fréttaskeytum frá
AP og NTB fréttastofunum í
gær:
Schuman, sem var frumkvöð-
ull að stofnun Kola- og stál-
samsteypu Evrópu og skapaði
grundvöll fyrir stofnun Efna-
hagsbandalags Evrópu, hafði
lengi átt við heilsuskort að stríða.
Hann fékk aðkenningu að slagi
í ársbyrjun 1961 þegar hann var
í gönguferð í nánd við óðal sitt.
L.á hann hjálparvana úti alla
vetrarnóttina þar til leitarflokkar
fundu hann morguninn eftir. Eft-
ir það náði hann aldrei fullri
heilsu, og í síðasta mánuði fékk
hann enn alvarlegt hjartaáfall.
Schuman var tvisvar forsætis-
ráðherra Frakklands. í fyrra
skiptið frá nóvember 1947 þar
til í júlí 1948 og svo seinna fjóra
daga í september sama ár. Hann
var utanríkisráðherra frá því í
júlí 1948 þar til í ársbyrjun 1953.
Gegndi hann fleiri ráðherraem-
Framh. á bls. 23.
hann mun ávarpa fundinn um
það er honum lýkur í dag
eða kvöld.
Aðalfundur Stéttarsambanðs
bænda var settur í Bændahöll-
inni kl. 10 f.h. í gærmorgun.
Fundarstjórar voru kjörnir
Bjarni Bjarnason, Laugarvatni
og Bjarni Halldórsson, Uppsöl-
um, Skagafirði. Fundarritarar
Guðm. I. Kristjánsson, skáld og
Einar Halldórsson, Setbergi.
Sverrir Gíslason bóndi í
Hvammi og formaður Stéttarsam
bandsins flutti skýrslu stjórnar.
í upphafi ræddi hann og skýrði
samninga um síðasta verðlags-
grundvöll. Síðan ræddi hann um
verðgrundvöll þann, sem nú væri
til umræðu í sexmannanefnd og
sem ósamið væri um.
Hækkun á verðlagsgrundvellin
um er samkvæmt tillögum full-
trúa framleiðenda í sex-manna-
nefnd 36,2% og þýðir það hækk-
un landbúnaðarvara sem því svar
ar, en það þýðir 13—15% kaup-
hækkun til bænda.
Form. lagði fram greinargerð
’með hinum nýja grundvelli.
Samkvæmt þeirri greinargerð
er hækkun gjaldaliða sem hér
segir:
Til gjalda er fært kjarnfóður
samkvæmt skýrslum Hagstofunn
ar á verði sem nú gildir eftir
að niðurgreiðslur á fóðurbæti
hefir verið hætt. Áburður er
tekinn á sama hátt. Viðhald og
fyrning húsa hefir hækkað um
20 þúsund eða sem nemur bygg-
ingu útihúsa pr. bónda á árinu
1962 og 3% fyrning er 5.531 kr.
Kostn. við girðingar hefir verið
hækkaður um 2.449 kr. og kostn-
aður við vélar um 4.233 kr. Flutn '
ingskostnaður hefir verið hækk-
aður úr umreiknuðum grundvelli i
á miðri mynd húsið, sem flug
vélin tók þakið af í fallinu.
um 487 kr. Vextir hafa verið
hækkaðir um 10.938 k.r. Annar
reksturskostnaður er tekinn eftir
úrtaki Hagstofunnar. Kaup bónd
ans er nú reiknað 122.757 kr.
og aðkeypt vinna 20.901.00 kr.
Um tekjurnar segir að afurða
magn sé látið haldast óbreytt
utan hvað mjólkurmagn er auk-
ið um 500 lítra með tilliti til
kúafjölgunar úr 7,3 í 7,5 í grund
vellinum. Aukabúgrejnar lækka
úr rúmum 12 þús í rúmar 5 þús.-
en samkvæmt búnaðarskýrslum
eru þessar tekjur 4.745 en eru
hækkaðar um 12% vegna verð
hækkana. Launatekjur hefir ver
ið lagt til að verði 9 650 og hækk
aðar í hlutfalli við laun bónd-
ans um 30%.
Þá vék formaður að niður-
greiðslum afurða og útflutnings-
uppbótum «em nóma á síðasta
án samtals 372 miiljónum 215
þús. kr. þegar allt væri talið.
f>essi upphæð yrði hærri í ár
og færi yfir 400 milljónir.
Þá skýrði forðmaður frá þvi
að 244 ærgildi væri nú meðal-
Framh. á bls. 2
IMorðmenn
moka upp
sild
Bergen, 4. sept. — (NTB) —
MORGENAVISEN í Álasundi
hefur það í dag eftir talsmönn
um síldariðnaðarins þar í bæ
að norskir síldarbátar afli nú
vel við ísland. „Fullfermdir
snurpubátar liggja nú eins og
perlur á bandi á heimleið,“
segir blaðið. Undanfarna tvo
sólarhringa hafa 28 veiðiskip
og tvö flutningaskip lagt af1
stað heim til Noregs af mið-
unum við fsland, og eru skip
þessi með alls um 100 þúsund
hl. af síld.
Heildarafli norsku skipanna
er nú rúmlega 750 þúsund
hektólítrar, en var á sama,
tima í fyrra 1,5 milljónir hl.
Síldveiðum var að mestu lok-
ið um þetta leyti í fyrra.