Morgunblaðið - 05.09.1963, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 5. sept.,1963
74 ára drengur lá snögg-
klœddur úti
B_eit að hefjast er hann kom fram
AKUREYRI, 4. sept. — 14
ára drengur hér á Akureyri,
sem verið hefur í sveit í
sumar á Eyjadalsá í Bárðar-
dal, strauk þaðan síðdegis í
gær og lagði leið sína snögg-
klæddur yfir í Fnjóskadal.
Lá hann úti í nótt á fjall-
inu í þoku og kalsaveðri, en
kom fram í morgun heill á
húfi. Um 70 manns voru að
hefja leit í morgun, er dreng
urinn fannst, m.a. menn úr
Flugbjörgunarsveitinni á Ak-
ureyri. Og flugvél var þá
rétt ófarin af stað til leitar.
Um kl. 4 í gær varð drengn-
um eitthvað sundurorða við
félaga sinn á bænum. Sást hann
þá rölta upp í hlíðina fyrir ofan.
Heimafólk hélt að hann hefði
brugðið sér til berja og mundi
koma fljótlega aftur. Um kl. 6
fór þoku að leggja í dalinn og
var þ áfarið að huga að drengn-
um, en þá fannst hann ekki.
Heimamenn leituðu hans fram
í myrkur og faðir hans, sem
gert hafði verið viðvart um
hvarfið, leitaði með leitarljósum
í alla nótt meðfram þjóðveg-
inum til Akureyrar.
Snemma í morgun var Flug-
björgunarsveit Akureyrar beð-
in ásjár. Brást hún fljótt við og
fór 11 manna flokkur undir
stjórn Dúa Björnssonar austur
að Eyjadalsá kl. 7,30. Annar
13 manna flokkur undir stjórn
Jens Sumarliðasonar lagði upp
% tínoa seinha og skyldi hefja
leitina frá Hálsi í Fnjóskadal.
Fleiri Akureyringar voru við-
búnir að fara til leitar, ef þörf
hefði verið á. Flugvél stóð til-
búin á Akureyrarflugvelli og
beið eftir flugtaksheimild. Þoka
var á Akureyri, en henni var
áð létta með morgninum fyrir
austan. Rúmlega 40 mönnum úr
Bárðardal og nærsveitum hafði
verið stefnt heim að Eyjadalsá
og voru þeir sem óðast að koma
þangað á 9. tímanum, til að taka
þátt í leitinnL
VAR EKKI KALT
Það er af dreng að segja, að
hann gekk rösklega vestur á
fjallið í þokunni, klæddur einni
skyrtu að ofan og vitanlega
nestislaus. Hvorki lét hann þoku
né náttmyrkur aftra sér. Síðla
nætur er hann kominn að vest-
urbrún fjallsins. Finnur hann
þá að klettar eru þar og tor-
færur í brúninni og treysti
sér ekki ofan í myrkrinu. Leggst
hann þá til svefns í klettaskoru
og sefur þar vært fram í birt-
ingu. Kvað sér ekkert hafa
verið kalt. Ræðst hann þá til
niðurgöngu og gengur svo út
eftir Fnjóskadal, unz hann kem
ur að bænum Mörk. Þiggur
hann þar hressingu og heldur
svo áfram gegnum Vaglaskóg
og út á þjóðveginn. Fær hann
þar far með vörubíl áleiðis til
Akureyrar.
Um kl. 8,30 mæta leitarmenn
frá Akureyri bíl þessum og sjá
pilt sitja þar bísperrtan. Buðu
þeir honum af nesti sínu, en
hann kvaðst ekki matarþurfi og
var hinn hressasti.
Nú var ekið í ofboði til Akur
eyrar, en annar bíll sendur aust
ur í Háls til að stöðva leitar-
menn þá sem voru að leggja
upp þaðan. Þegar komið var
með drenginn til Akureyrar var
hringt þaðan til Eyjadalsár og
sögð tíðindin og voru menn þá
um það bil að fara þaðan til
leitarinnar.
Flugbjörgunarsveit Akureyr-
ar hefur nú í nokkur ár sótt fast
að fá litlar talsstöðvar til af-
nota, en árangurslaust. Verður
varla daufheyrzt við jafn sjálf-
sagðri málaleitan öllu lengur..
— Sv. P.
Vitni vantar
Á MILLI kl. 15 og 16 í gærdag
var ekið á Simca-fólksbíl á bíla
stæðinu við Vonarstræti og Tjarn
argötu. Skemdist bíllinn töluvert.
Þeir, sem einhverjar upplýsingar
gætu gefið um málið, eru vinsam
legast beðnir að snúa sér til um
ferðardeildar rannsóknarlögregl-
unnar.
Hér sitja saman Pétur Ottesen, Ingólfur Jónsson ráðherra og
Þorsteinn Sigurðsson formaður B. í.
— Bændaþmg
Framh. af bls. 1
bú í landinu og rakti jafnframt
bústærð eftir sýslum.
Næst ræddi Sverrir lánaþörf
landbúnaðarins, fyrst og fremst
þörfina fyrir lánasjóði til jarða-
og bústofnskaupa. Benti hann á
nauðsyn stofnunar bústofnslána-
deildar. Þá skýrði hann frá
hvernig rafvæðing sveitanna
stæði nú.
Að lokum lagði hann fram
svofellda till. frá stjórninni:
,A-ðalfundur Stéttarsambands
bænda 1963 felur stjórn Sam-
bandsins að fara þess á leit við
Búnaðarfélag íslands, að það á-
samt Stéttarsambandi bænda
geri athugun á ástandi íslenzks
landbúnaðar með það fyrir aug
um, að þessi félagssamtök geri
heildaráætlun um framtíðar
Utför Braques
gerð í gær
Varengeville, Frakklandi,
4. september. -NTB).
I DAG var útför franska list
málarans Georges Braque
gerð frá bænum Varenge-
ville í Normandie, en þar átti
listamaðurinn heima um
margra ára skeið og þar mál-
aði hann margar af sínum
fegurstu myndum. Braque
var 81 árs er hann lézt í
lok síðustu viku.
Útförin var gerð frá þorps
kirkjunni, sem byggð var á
12. öld, en gluggaskreytingar
kirkjunnar eru eftir Braque.
Minningarathöfn um Braque
var haldin í Louvre safninu
í París á þriðjudag, og flutti
Andre Malraux menntamála-
ráðherra ávarp við það tæki
færi. Fylgdi ráðherrann kist-
unni þegar hún var flutt frá
París í nótt og var viðstadd-
ur útförina í Varengeville.
Seð yfir íundarsalinn. Sæmundur Frióriksson 1 ramnvæmdastjori ílyiur og skyrir reikninga.
Tvö slys í umferðinni
SÍÐDEGIS í gær varð það slys á
Suðurlandsbraut að drengur á
hjóli varð fyrir bíl og slasaðist.
Nánari atvik voru þau að tveir
drengir komu á hjólum niður
Grensásveg og hjóluðu yfir Suð
urlandsbrautina. Af Suðurlands-
braut bar að bíl og segist öku-
maðurinn hafa séð til ferða
drengjanna yfir götuna en talið
óhætt að aka framhjá, beygði
annar drengjanna út á götuna.
Reyndi ökumaðurinn að beygja
snögglega frá og setti bílinn útaf,
en ekki tókst að forða slysi.
Drengurinn varð fyrir vinstra
framhorni bílsins og féll í göt-
una. Var hann fluttur í slysa-
varðstofuna. Meiddur var hann
á höfði en meiðslin munu ekki
talin alvarlegs eðlis. Drengur-
inn heitir Valdemar Þórhallsson,
Hvassaleiti 105, 7 ára gamall.
Laust eftir kl. 5 í gær varð
einnig slys á Njálsgötu. Þar
hljóp 5 ára drengur, Bjarni Geir
Guðbjartsson, Njálsgötu 13, út á
götuna móts við húsið nr. 5
Varð hann fyrir bíl, og féll í göt
una við höggið. Hlaut hann
skrámur nokkrar, en var að öðru
leyti lítt meiddur.
skipulag um búvöru framleiðslu
á fslandi, og framtíðarskipulag
íslenzkra búnaðarmála yfirleitt.
Athugun þessi nái yfir öll svið
búnaðarmálanna. Skal með henni
fást samanburður á opinberri áð
stoð við landbúnaðinn hér á
landi og því sem gerist með
viðskiptaþjóðum okkar, svo um
það fáist upplýsingar hvaða á-
hrif mismunur í opinberri aðstoð
hefur á markaðsaðstöðu íslenzks
landbúnaðar á erlendum mörk
uðum.
Einnig skal gerður samanburð
ur á verði landbúnaðarafurða pr.
hverja vörueiningu og fyrirkomu
lag þeirra mála. Með þessum at-
hugunum skal leitt í ljós hvort
landbúnaðarframleiðsla hérlend-
is skuli miðast við þarfir þjóðar
innar eða vera jafnframt til út-
Atta sækja um yfirlæknisembætti
Borgarsjúkrahússins
HINN 1. september rann út um-
sóknarfrestur um stöður yfir-
lækna við handlækninga- og
röntgendeildir Borgarsjúkrahúss-
ins nýja, svo og um stöður for-
stöðu- og matráðskvenna. —
Um stöðu yfirlæknis handlækn-
ingadeildar sóttu eftirtaldir
læknar: Andrés Ásmundsson,
læknir á Hvitaöandinu, Einar
Eiríksson, læknir í Svíþjóð, dr.
med. Friðrik Einarsson, yfir-
læknir á Landspítalanum, Jón
K. Jóhannsson, sjúkrahússlæknir
í Keflavík, Magnús Bl. Bjarna-
son og Þórarinn Guðnason, lækn-
ir á Hvítabandinu.
Um stöðu yfirlæknis röntgen-
deildar sóttu þeir Ásmundur
Brekkan, yfirlæknir á Lands-
spítalanum og Ólafux Jóhanns-
son, yfirlæknir á Landakotsspít-
ala.
Ein umsókn barst um stöðu
forstöðukonu. Um hana sótti
Sigurlín Gunnarsdóttir, aðstoðar-
forstöðukona á Landsspítalanum.
Elínbong Finnbogadóttir, mat-
ráðskona á Bæjarspítalanum
sótti um stöðu matráðskonu
Borgarsjúkrahússins.
Óvíst er hvenær hinar nýju
stöður verða veittar, en þegar
því er lokið, munu yfirlæknarn-
ir vera ráðgjafandi um tækja-
kaup og annan útbúnað hins
nýja sjúkrahúss.
flutnings.
Þá skal gerð athugun á þvt
hver sé hlutur þeirra er landbún
að stunda úr heildarframleiðslu
þjóðarinnar, svo upplýsingar fá-
ist um það, hver sé hin efnahags
lega aðstaða landbúnaðarms
gagnvart öðrum atvinnuvegum.
Aðalfundur Stéttarsambands
bænda felur Sambandsstjórninni
að kjósa 3 menn er vinni væntan
lega með jafn mörgum mönnum
frá Búnaðarfélagi íslands að
þessu máli.
Nefndinni skal heimilt að ráða
starfsmann eftir því sem hún tel
ur þörf“.
Að síðustu kvað formaður það
von sína að þessi aðalfundur
mætti vel farnast.
Sæmundur Friðriksson fram-
kvæmdastjóri Stéttarsambands-
ins lagði fram reikninga þess og
Bændahallarinnar. Niðurstöður
rekstrarreiknings sambandsins er
2 millj. 146 þús. og efnahags-
reiknings 8 millj. 620 þús.
í Bændahöllina hafa nú verið
lagðar rúmar 100 milljónir
króna og er þó nokkuð eftir ó-
gert af henni m. a. innrétting
heillar þæðar. Framlag bænda-
samtakanna til byggingar nem-
ur til þessa 34% milljón króna.
Er gert ráð fyrir að til lúkningar
byggingarinnar þurfi 15—20
milljónir króna.
Þá gat framkvæmdastjórinn
nokkuð um rekstur hótelsins.
Rekstrarhagnaður á hótelinu
nam fyrri helming þessa árs,
þótt salir og tvær hæðir kæmu
ekki til nota fyrr en í byrjun
marz, tæpum 3 milljónum, sem
getur reiknast húsaleiga fyrir
hótelið.
Að loknum ræðum formanna
og framkvæmdastjóra hófust
miklar umræður og snérust fyrst
og fremst um verðlagsgrundvöll
inn. Töldu allmargir að ekki
hefði verið rétt að semja um
grundvöllinn í fyrra heldur
hefði átt að láta gerðardóm
ákveða hann. Einnig voru fram
sett ámæli á hendur stjórn, fram
leiðsluráðs og fulltrúa í sex-
mannanefnd af nokkrum fulltrú
anna. Þá kom fram óánægja með
hlut sauðfjárbænda í verðlag-
inu.
Öllu þessu svöruðu þeir Ein-
ar Ólafsson í Lækjarhvammi og
Sveinn Tryggvason framkvæmda
stjóri framleiðsluráðs skilmerki
lega, og kváðu bændur hafa
hagnast á samkomulaginu I
fyrra um a.m.k. 20 milljónir
króna, umfram það sem þeir
hefðu fengið með úrskurði yfir*
dóms.
Tuttugu ræðúr voru fluttar á
fundinum í gær og lauk fundi
ekki fyrr en klukkan rúmlega
8 í gærkvöldi með því að erind*
reki Stéttarsambands bænda.
Kristján Karlsson, las tillögur
sem borizt hefðu fundinum til
afgreiðslu. Síðan var kjörið I
nefndir og störfuðu þær í gær-
kvöldi og eiga að starfa fyrir
hádegi í dag, en fundur hefst
á ný kl. 13,30 í dag, og er
ætlað að ljúka þingi í kvöld.
Allmargt gesta sat fundinn,
svo sem landbúnaðarráðherríi,
Ingólfur Jónsson, formaður Bún
aðarfélags íslands, Dagsbrúnar,
forstjórar sölutyrirtækja bænda
og ýmsir framámenn um land-
búnað.