Morgunblaðið - 05.09.1963, Page 10

Morgunblaðið - 05.09.1963, Page 10
10 MORGUNBLAÐID Flmmtudagur 5. sept. 1963 ■ Dagstund á Egilsd — Komið þið sælir, drengir. — Komdu sæll — Eigið þið allir heima hérna? Já, og m''klu fleiri. Við erum víst tíu eða tuttugu — og svo eru margar stelpur líka. — Eiga allir þessir hundar líka heim?. hérna? spyr ég, þegar ég «é þrjá hunda mæna á okkur forvitnisaugum, og margar raddir svara mér í einu. — J4, þessi krullaði, hann heitir Snati og hann er fljót- astur Þetta er Lappi, hann er beztur að smala. Og þetta er Vaskur, hann eltir fugla. -w Og Vaskur gabbar Snata, kailar lítill, ljóshærður snáði, sem stendur á bak við hina. Og nú heilsum við bóndan- um og skáldinu á Egilsá. Hann er að föndra við dráttarvél- ina sína norðan við húsið. — Mannmargt á þínum bæ, Guðmundur Friðfinnsson. — Já, nokkuð. Það munu vera hér 11 strákar og 14 stelpur á aldrinum 5—11 ára, svo er hér ein lítil heimasæta, dótturdóttir mín, við hjómn og tvær barnfóstrur: dóttir mín og stúlka að sunnan. Flest hafa börnin verið 33 i sumar, og um tíma var hér ein hjálparstúlka í viðbót. „Amnja“ — Anna Gunnars- dóttir og „Afi“ Guðmundur FriðfinnSson. — Og nú göngum við inn i hin rúmgóðu bæjarhús og heilsum húsmóðurinni Önnu Gunnarsdóttur, sem hlýtur að hafa í mörg horn að líta, ems og reyndar allt fullorðna fólk ið á þessum bæ. — Og hvenær byrjuðuð þið að reka barnaheimili? — Á liðnu vori. Þetta er byrjun, þetta er tilraun, segir Guðmundur — okkur hjónun um þykir báðum gaman að hafa börn í kringum okkur. Undanfarin sumur höfum við alltaf haft tökubörn, eitt, tvö, þrjú eða kannske fjögur. Og því þá ekki að bæta við. Eg byggði í vor sérstakt svefnhús fyrir stúlkurnar, það er hérna áfast við, og svo eru fleiri her bergi í húsinu. Herbergi í hús inu eru til þess að nota þau. Að vísu er gott að hafa eitt autt, ef gestir koma. En hve- nær koma annars gestir til fólks, sem býr fjarri alfara- leið, og vegurinn eins og þið sáuð. — Satt er það, vegurinn er varla fær. — Varla fær. Hann er ófær. Áin klippti hann í sundur í snarkasti á mörgum stöðum í vor. Þessi nýuppruddi vegur, sem þið sáuð, er vonandi byrj un að öðru betra. En það á s víst langt í land, því miður. — En hér er friðsælt og fal- legt. Það hlýtur að vera gott að yrkja í svona umhverfi.' — Gott, kannske. Eri hve- nær má bóndi vera að því að yrkja? Aldrei, nema þegar hann stelur stundum frá sjálf um sér. Þú sérð húsið hérna úti í garðinum. Þegar ég byggði það, datt mér ef til vill í hug, að þar væri gaman að sitja og skrifa. En ég skrifa þar ekki. Mín skrifstofa er hvergi. Kannske helzt í vas- anum, ef í hugann kemur eitt hvað, sem mig langar að festa á blað. En hvað um það. Kom ið þið og lítið á kvennabúrið. Og við Stefán ljósmyndari eltum þau hjónin eftir gangi inn í fallega og bjarta stofu. Þar inni eru 16 rúmstæði, ný úr ljósum viði. Þetta er aðal- svefnhús stúlknanna. Öll rúm in eru kyrfilega umbúin, og undan einni sænginni gægist lítið andlit. — Lasin? — Ekki mikið sem betur fer. Einhver smálumbra. Það er svo einstakt lán yfir okkur hér. Ekkert barnanna hefur orðið lasið á sumrinu. Við höf svo sem sjá má. wWM W'i f * 11/jj i fWmá K 1 I p "Séé , - ■ JHj mr 8yí. ísjfgp Allt heimilisfólkið samankomið í hlaðvarpanum. Húsið, sem stendur lengst til hægri á myndinni í hinum stóra og fallega garði frú Önnu er Herrasetrið, en þar búa allir karlmenn irnir á beimilinu. (Ljósm.: S. Pedersen). _________ Guðmundur Jens, Jens og Þorgeir. Þorgeir tók það fram að hann væri KR-ingur. um aldrei þurft að tala við lækni. — Og ég er orðin góð. Má ég ekki fara á fætur amma? heyrist nú úr rúminu. — Nei, góða mín, segir Anna. Eg held það sé bezt þú verðir alveg í rúminu i dag, þá verðurðu orðin vel frísk á morgun: — Já, kannski, segir sú litla og brosir. — Amma? Ert þú amma þeirrar litlu, spyr ég. — Neei, ekki er það nú bein línis, segir húsmóðirin. En strax í vor byrjaði eitthvert barnanna að kalla mig ömmu, og síðan hafa Öll hin tekið það eftír. Þau kalla Guðmund lika afa. — Já, þau kalla mig afa. Það er ágætt. Mér finnst líka hálfvegis að ég eigi þau öll. Manni fer að þykja vænt um þau. Eg held líka að þess þurfi með. Annars væri þetta tæpast hægt. — Og eru hlýðin? — Öll, skilyrðislaust. En það þarf að stjórna þeim, ann að væri ekki eðlilegt. En börn verða að kunna að hlýða. Þau gera það líka öll með góðu. Við viljum hafa reglu á hlut unum. Telpurnar hafa sjálfar gengið svona vel frá rúmun- um sínum. Þetta eru myndar stúlkur. Þær gera það alltaf á morgnana þegar þær eru komnar á fætur. Og á kvöldin brjóta þær fötin sín snyrti- lega saman og leggja þau fal- lega frá sér. Þetta gera dreng irnir líka. — En misjöfn hljóta þau að vera? — Nokkuð. En hér hafa all ir sömu siði. Þau bjóða öll góðan dag og góða nótt og þakka fyrxr matinn. Og sjáðu hurðina hérna, finnst þér hún ekki hrein og spegilfögur? Telpurnar snerta aldrei á *henni þegar þær opna eða loka. Þær taka bara í húninn. að sjá eintómar stelpur. Eg hélt kannske að strákarnir væru líka eilítið forvitnir, þeg ar komnir voru ókunnir gest ir. En ég fékk fljótt skýringu á því: Strákarnir koma aldrei inn í Kvennabúrið, nema sam kvæmt sérstöku leyfi. Eins er það með stelpurnar: Þær stíga ekki sínum fæti ínn á Herrasetrið, nema með heim ild yfirvaldanna- Hurðin hefur aldrei verjð þvegin í sumar. Satt er það. Hrein er hurð- in. Eg lít í kringum mig, og mæti brosandi, hróðugum telpnaandlitum. Þær áttu greínilega hrósið skilið og þær kunna líka að meta það. Sjálf ar eru þær líka hreinar og fal legar, enda stóð líka til mynda taka. En mér fannst skrítið Ása Ásmundsdóttir er berja- drottningin á heimilinu og var auðvitað að koma úr berjamó með fulla fötu. nn,nrrrr -|f—i* ~ 1 ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.