Morgunblaðið - 05.09.1963, Page 13

Morgunblaðið - 05.09.1963, Page 13
Fimmtudagur 5. sept. 1963 MORGUNBLAÐIÐ 13 Landib okkar UNDIR lok júlímánaðar leggjum við leið okkar í Reykhólasveit, eina fegurstu sveit landsins. Við Breiðafjörð er „þrútið loft“ enda kemur súld og nokkur rigning þegar líður á daginn, en með kvöldinu þornar til og það er friðsælt og lognvært í hinum fögru byggðum Reykhólasveitar. Yfir sveitinni norðanverðri rísa hin tignarlegu Vaðalfjöll, sem gnæfa yfir sveitinni og setja mik- inn svip á hana, háir og samstæð- ÚR REYKHÓLASVEIT vorum til húsa í gamla íbúðar- húsinu í Mýrartungu,; segir Jó- l^ann. — Árið 1959 byrjaði ég n»eð nýbýli úr landi Mýrartungu og hef nú um 100 kindur og 6 kýr mjólkandi. Jóhann hefur komið . sér upp myndarlegu íbúðarhúsi, tvílyftu úr steinsteypu, og ræktað mikið land. ■— Hér er mestmegnis um ný- rækt að ræða. Á sl. vori var sáð í 4.2 ha og nýlega var verið að Jóhann í Mýrartungu og fjölskylda hai»s. ir hnúkar, sem einna helzt minna á klaka. Við ökum framhjá hinu mikla höfuðbóli Bæ í Króksfirði, er þar hafa búið annáluðu myndarbúi frá aldamótum brír ættliðir, Ingi- mundur Magnússon, Magnús og nú Ingimundur, og allir verið hreppstjórar Reykhólahrepps, þannig að þessir þrír liðir hafa gegnt hreppstjórastarfinu sam- fleytt í liðlega sextíu ár. Við stöldrum við á næsta bæ, sem er Mýrartunga, en þaðan er skáldið Gestur Pálsson. Gestur er ekki eina skáldið, sem Reykhólasveitin hefur alið, því að skáldið Jón Thoroddsen fæddist á Reykhólum og skáld- jöfurinn Matthías Jochumsson er fæddur að Skógum í Þorskafirði. Á nýbýli úr landi Mýrartungu ætlum við að hitta oddvita sveit- arinnar, Jóhann Jónsson, en hér gegnir sama máli og um ættlið- ina þrjá í Bæ, að Jóhann, faðir hans og afi, Jóhann Guðmunds- son, hafa verið oddvitar Reyk- hólahrepps mann fram af manni; þó ekki samfleytt. — Við hjónin byrjuðum að búa hjá föður mínum árið 1953 og snæbjörn Jónsson, Stað. sá í um 3 ha stykki. Auk þess hef ég látið ræsa fram um 15 ha og vona að það komist í rækt, en hyggst taka það fyrir í áföngum. — Ég hef nokkuð af gamla tún- inu á móti Guðmundi bróður mín um, sem búið hefur á gömlu jörð- inni frá því að faðir okkár dó fyrir sex árum. Auk þess hef ég nokkur stór engjalönd, en þau eru öll þýfð. Það fer mikið eftir sprettu á tún- um, hve mikið þarf að slá á engj- um. Hvernig gengur að stofna ný- býli? — Mestu erfiðleikarnir eru við að koma upp byggingum. Á xbúðahúsi byrjaði ég 1959 og við fluttum inn í marz 1960. Þegar ég byggði var hámarkslán út á íbúðarhús 75 þús. kr. og það er mikið í skuld hjá mér. Ég er búinn að koma upp fjósi fyrir 10 kýr, en fjárhús höfum við bræðurnir sameiginlega enn- þá og hlaða er við það. Annars er ræktunin við stofnun nýbýlis auðveld með þeim styrkjum, sem nú eru veittir. Hvðrnig hefur heyskapurinn gengið í sumar? — Spretta hefur yfirleitt verið góð, en kuldarnir hafa tafið fyrir heyskapnum. Hey hefur yfirleitt ekki hrakið. Sláttur hófst al- mennt snemma í júlí, og nú und- ir lok mánaðarins er víðast kom- ið langt að slá, en mikið er af heyjum úti. Sauðburður gekk yfirleitt vel og fénaðarhöld voru góð. Það má segja, að hér séu orðnir árvissir vorkuldar og því verður að láta bera á húsum og kostar það að sjálfsögðu mikið erfiði og fyrir- höfn. ■— Hjá einstaka mönnum er tví lembt, en hjá öðrum er hugsað minna um sl'kt, þótt æ fleiri stefni nú að því að fá tvílembt. Bændur hér í sveit hafa jöfn- um höndum sauðfjárrækt og nautgriparækt, og nú er almenn- ur áhugi á því að auka kúastofn- inn með hliðsjón af því, að hafin er mjólkursala úr héraðinu og í byggingu er mjólkurbú á Reyk- hólum. — Fyrir þremur árum var byrjað að selja mjólk til Borgar- ness yfir sumartímann, en að vetrarlagi höfum við ekki getað selt neitt, því að þá lokast vegir, einkum í Gilsfirði. Þeir erfiðleikar ættu að verða úr sögunni þegar mjólkurbúið er komið á Reykhólum, sem stefnt er að að verði fullgert á næsta ári. Hvað er margt fólk hér í hreppnum? — Fólki hefur heldur farið fækkandi hér í hreppnum, íbúar eru nú um 230. Unga fólkið leitar að heiman að vetrinum til vinnu eða náms, en er heima að sumr- inu. Hér í hreppnum eru um 35 býli og ábúendur og auk þess nokkurt skepnuhald á Reykhóli hjí prófasti og kennara þar. Jarðirnar eru nokkuð misstór- ar, en ræktun hefur verið mikil hér á undanförnum árum; mikið ræst fram, sléttað og sáð, enda er land hér nokkuð vel fallið til ræktunar. Mýrlent er víða í sveit- inni, svo að tilkostnaður við fram ræslu er mikill, en flatlendi er víða mikið; víða samfelldir mýra- flákar, sem vel eru fallnir til ræktunar. Mönnum búnast hér yfirleitt •vel og búin eru flest í vexti, sér- staklega eftir að hugur kom í menn að auka kúastofninn. Búnaðarfélag hreppsins er í Ræktunarsambandi A-Barða strandarsýslu, en sambandið nær yfir 4 hreppa. Það á tvær beltis- ýtur og eina hjóladráttarvél með tætara. Hafa þessi verkfæri verið mikið notuð. Til framræslu hafa verið fengnar gröfur frá Véla- sjóði ríkisins. neðan þjóðveginn út á Reykja- nes. Við höldum- til fundar við frú Ingibjörgu Árnadóttur, sem er formaður Kvenfélagsins Lilj- unnar g á einnig sæti í stjórn Sambands breiðfirzkra kvenna. Við spyrjum hana um félagsstarf- semina. — Kvenfélagið Liljan var stofnað 1941 og eru nú í hví 23 konur í sveitinni. Það er aðili að Kvenfélagasambandi íslands og að Sambandi breiðfirzkra kvenna sem nær frá Öndverðarnesi að Skor, en innan vébanda þess eru um 20 félög. Félag okkar hefur á stefnuskrá sinni að stuðla að heimilisiðnaði, vinna að uppeldismálum og garð- rækt og hefur látið sig varða helztu menningarmál byggðar- lagsins. — Um þessar mundir er félagið að safna til kirkjunnar nýju á Reykhólum, en lokadagur hennar mun bráðum upp runninn. Við höfum hugsað okkur að gefa henni eitthvað; dregil á kórinn og altarisklæði. Við höfum þegar safnað um 20 þús. kr., sem á að verja til kirkjunnar. Hvernig gengur fjáröflun? — Erfiðlega. Við höfum ekkert samkomuhús og það háir félags- starfseminni. Að vetrinum höfum við unnið ýmsa muni og höldum bazar og bögglauppboð, og við erum nýbúnar að halda skemmt- un. Félagskonum hefur verið skipt í nefnair, sem hafa starfað vel. Gamla kirkjan á stað. Vélakostur bænda hér um slóð- ir er yfirleitt sæmilegur; dráttar- vélar á flestum bæjum með sláttuvélum, tæturum og blásur- um, en minna með nýju tækin, eins og t.d. sláttutætara, enda lítið verkað í vothey. Er ekki komið rafmagn víða í hreppnum? — Sumarið 1961 var lögð há- spennulína frá Þverárvirkjun við Hólmavík yfir Tröllatunguheiði og rafmagni dreift á marga bæi í Geiradalshreppi og vestur að Bæ í Króksfirði. í fyrra var svo lögð lína áfram frá Bæ til Reykhóla. Nú er verið að vinna við línu frá Reykhólum út í Árbæ á Reykjanesi og nú er einnig ráðgert að leggja línu að Hafrafelli. Þegar þær línur eru komnar má telja að rafmagn verði komið á um 75% af bæjum í hreppnum. Mikil ánægja er með þessar fram kvæmdir og rafmagnið mikið not að; mest til lýsingar og annarra heimilisþarfa enn sem komið er. Að lokum spyrjum við JóHann í Mýrartungu um félagslíf í Reyk hólasveit. — Hér er starfandi ungmenna- félag, búnaðarfélag og kvenfé- lag og hefur það unnið mjög gott starf. Þú ættir að skreppa að Mið húsum og ræða við Ingibjörgu Árnadóttur, sem er formaður kvenfélagsins. - ♦ — Við förum að ráði Jóhanns og höldum næst að Miðhúsum, en bærinn stendur skammt fyrir Þið hafið beitt ykkur fyrir ræktun skrúðgarðs, er það ekki? — Landnám ríkisins og Pálmi Einarsson landnámsstjóri úthlut- aði félaginu land á Reykhólum í svonefndri Hvanngarðabrekku á Reykhólum. Það land höfum við girt og gróðursett þar tré, og þar ætlum við að gróðursetja í upp- eldisreit. Við bíðum eiginlega eftir skipulagi á skrúðgarðinum, en Óli Valur Hansson hefur kom- ið hingað og mælt upp garðinn og gert uppdrátt að skipulagi hans. Þarna höfum við gróðursett undanfarin ár birki og víði, eitt- hvað á annað þúsund plöntur, og þetta hefur dafnað vel. Það eru 15 ár síðan við fengum garðinn, Ingibjörg Arnadóttir, Miðhúsum. en fyrstu árin var lítið gert ann- að en að girða hann, sem var mjög kostnaðarsamt. Þegar við fáum uppdráttinn, er ætlunin að gera reiti, götur og beð. En matjurtarækt? — Fyrstu árin hafði félagið grænmetisrækt og skipti kál- plöntum niður á bæina, en því var mikið til hætt þegar maðkur kom í'kálið og við gáfumst upp. Annars vantar tilfinnanlega gróð urhúsarækt á Reykhólum og þar mætti fá kálplöntur. Önnur starfsemi félagsins? — Við höfum haldið uppi nám- skeiðum með styrk frá Kvenfé- lagasambandinu í saumi, vefnaði og utskurði, en það hefur verið erfitt að fá kennara og námskeið- in hafa orðið nokkuð dýr. En það er mikill áhugi á þessu starfi og það skapar aukna fjölbreytni að vetrinum. Utanfélagskonur njóta einnig þessarar kennslu. Að vetrinum höfum við einnig beitt okkur fyrir skemmtunum, en sú starfsemi nýtur sín ekki sem skyldi vegna húsnæðisskorts. Rætt hefur verið um byggingu samkomuhúss hér í sveitinni og hefur kvenfélagið samþykkt að gerast aðili að því, en það mál er enn í deiglunni, þó er það komið á undirbúningsstig. Við höldum áfran út á Reykja- nes og förum hjá garði á Reyk- hólum og látum frásögn þaðan bíða næstu greinar. Leið okkar liggur að Stað á Reykjanesi, sem á sér langa sögu sem prestssetur, menntasetur og stórbýli. Þarna er mjög fagurt og útsýni vítt um nesin, eyjarnar og Breiðafjörð og allt yfir til Snæfellsjökuls, en of- an bæjarins fellur fallegur foss stall af stalli. Hér höldum við til fundar við gildan bónda, Snæbjörn Jónsson, sem er systursonur hins alkunna sægarps, Snæbjarnar Kristjáns- sonar í Hergilsey. Snæbjörn á Stað hefur ræktað mikið og húsað vel á Stað og við innum hann eftir þeim fram- kvæmdum. — Ég hóf búskap árið 1939 hér á stað, segir Snæbjörn. — Þá voru hér sáralítil tún eins og víð- Framh. á bls. 17 Mýrartunga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.