Morgunblaðið - 05.09.1963, Page 17
Fimmtudagur 5. sept. 1963
MORC U N B LAÐIÐ
17
— Landið okkar
Framh. ax bls. 13
ast hvar, en ég hef sléttað hér 10
ha og að auki 7 ha, sem sáð var í
í vor. Svolítið meira er í undir-
búningi og þarf að ræsa fram að
nýju.
Þegar ég byrjaði hafði ég um
200 f jár og 5 kýr á fóðrum, en sl.
vetur 413 og 6 í fjósi.
Haustið 1959 var skorið niður
og fjárlaust veturinn 1959—’60,
en þá um haustið voru tekin
lömb inn á svæðið aftur og voru
þau fengin úr InnSveit Reykhóla-
sveitar, Geiradal og úr Stein-
grímsfirði. Þetta fé hefur reynzt
ágætlega, gott fé og afurðagott.
Nokkuð af því er okkar gamli
stofn. Það er hraust en virðist
dálítið fóðurfrekt, en þetta er
ungt fé og það þarf alltaf meira.
Fjárhúsin á Stað vekja strax
athygli, stór og myndarleg hús.
Við höfum orð á því við Snæ-
björn.
— Sumarið 1960 byggði ég
hlöðu og hús yfir 134 kindur og
svo aftur sumarið 1961 tvö til við-
bótar fyrir 268, svo að ég get nú
hýst allan minn fjárstofn í þess-
um nýju húsum.
Ég hafði þann hátt á, að ég
einangraði öll húsin og get þá
RUÐUGLER
2 — 3 — 4 — 5 og 6 mm þykktir.
A og B gæðaflokkar.
Mars Trading Company
Klapparstíg 20. — Sími 17373.
Kona óskast
í uppþvott og önnur í afgreiðslu.
Upplýsingar í síma 19457.
Umsjónarmaður
óskast að barnaskó’anum Varmá, Mosfellssveit. —
Upplýsingar gefur Matthías Sveinsson, sveitarstjóri
sími 22060. Umsóknir berist skrifstofu sveitarstjóra,
Hlégarði fyrir 10. þ.m.
Sveitarstjóri Mosfellshrepps.
Verkstæðisplóss óskast
Viljum taka á leigu pláss undir vélaverkstæði í
Reykjavík eða nágrenni. Gjörið svo vel og hringja
í síma 20382 — 32480 — 32986.
Bílskúrar
Nokkrir bílskúrar til leigu í Miðbænum. Stórt og
steypt athafnasvæði fyrir íraman. — Þeir, sem vildu
sinna þessu sendi nöfn sín til afgr. Mbl. fyrir 10.
sept., merkt: „5319“.
íbúð oskasl
4—6 herb. íbúð óskast til leigu sem fyrst.
Sími 32382.
ráðið hitastiginu. Ég tel að sá
aukakostnaður, sem af einangrun
leiddi, vinnist upp með því að
minna fóður þurfi.
Er mest áherzla lögð á sauð-
fjárrækt hér um slóðir?
— Sveitin er vel fallin til sauð-
fjárræktar, en afréttarland er
takmarkað. Sennilega munu
bændur stefna að aukinni mjólk-
urvinnslu. Mjólk hefur verið
flutt í Borgarnes nokkur undan-
farin ár og hefur gengið ágæt-
lega. Mjólkursalan hefur verið
mikil búbót fyrir okkur og allt
gengið upp á við í þeim efnum.
Mjólkursalan hefur aukizt ár frá
ári og gera má ráð fyrir að grund
völlur fyrir rekstri mjólkurbúss
á Reykhólum hafi einmitt skap-
azt vegna mjólkursölunnar til
Borgarness. Byrjað var á bygg-
ingu mjólkurbúsins 1961 og er
vonast til að bað geti tekið til
starfa eftir eitt eða tvö ár.
Eru ekki talsverð hlunnindi
hér á Reykjanesi?
— Miklar hlunnindajarðir telj-
ast fjórar: Staður; Árbær, Reyk-
hólar og Miðhús, en lítils háttar
hlunnindi eru á öllum hinum
jörðunum. Á þessum fjórum jörð
um er bæði vorselur og haust-
selur. Vorselurinn er veiddur í
net, en haustselur rotaður á
skerjum.
Frá alda öðli hefur meðaltal
hér á Stað verið 30 selir, en
minnst verið 24, þar til í vor, að
aðeins fengust 12 selir. Mest hafa
fengizt 47 selir.
Jú, selskinn eru nú í mjög háu
verði og menn nefna allt upp í
1700 kr. fyrir skinnið. Eru þá
borgaðar út 1600 kr. og getur ver-
ið meira, svo að þú sérð að það
er vont að veiða ekki meira. I
gamla daga töldu menn það eins
mikið tap að missa eina urtu eins
og að missa eina rollu. ?' er
þetta orðið þannig, að það þarf 3
lömb til að borga eitt skinn, en
var talið jafnræði áður að gam-
alla manna máli.
En æðarvarpið?
— Æðarvarpið minnkaði fyrir
fáum árum og fór niður í 26 kg.
af dún á báðum bæjunum, Stað
og Árbæ, en var ; kringum 40 kg.
á Stað í gamla daga. Nú sargar
það frá 34—38 kg. Dúnverðið er
gott, um 1600 kr. kg. og hlunn-
indi hafa haldizt í góðu verði.
— Svartbakur spillir alltaf
varpi, en örn hefur ekki gert það
í langan tima. Minkur kom hér í
eyjarnar í fyrravor, en við telj-
um hér, að það megi alveg halda
honum niðri með því að fara með
góða minkahunda í varpið í byrj-
un varptímans.
Snæbjörn á Stað segir okkur
að lokum, að Eyjabændur komi
þangað oft.
— Nú er verið að gera veg nið-
ur að sjónum og verður mikil
samgöngubót að honum fyrir
Eyjabændur og Staðarbændur og
þó sérstaklega fyrir ferðafólk,
sem fer út í Eyjar, en talsvert er
um ferðalög í þær fjórar eyjar,
sem eru i byggð: Skáleyjar, Hval-
látur, Svefneyjar og Flatey.
Næst liggur leið okkar á hið
forna höfuðból Reykhóla, og seg-
ir frá heimsókn þeirri í næstu
grein.
H. T.
141 sjó-
maður fékk
frelsi
Moskva, 3. september — AP
TILKYNNT var í Moskvu
að japanskir sjómenn sem
í haldi hafa verið í Sovétríkj-
unum, 141 talsins, hafi verið
látnir lausir.
Hermt ei að þessi ráðstöf-
un sé gerð til að auka á góð
tengsl Japan og Sovétríkj-
anna. Sjómennirnir hafa sum
ir verið í haldi í allt að
tvö ár.
Þeim er gefið að sök að
hafa verið að fiskveiðum í
sovézkri landhelgi. Þau brot
hafa nú verið fyrirgefin.
Biireiðir og fl. til sölu
G.M.C. 10 hjóla módel ’42, ásamt ýmsum vara-
hlutum. Bifreiðin selst til niðurrifs.
G.M.C. 6 hjóla, módel ’41, frambyggður. Heppi-
legur undir loftpressu, rafsuðuvél eða þess
háttar.
Chverolet Pic Up, model ’42.
2 stk. járnpallar af Reo Studebaker herbílum.
4 hjóla aftanívagn ásamt fleiru.
Framanskráð er til sýnis innst á Laugarnestanga.
Upplýsingar þar í síma 32480 og 20382 eftir kl.
7 e.h.
1.
2.
3.
4.
5.
PÍPULAGIMIINIGAMEIMIM
Óskum eftir að ráða nokkra pípulagningasveina og
aðstoðarmenn. — Mestmegnis uppmælingavinna. —
Upplýsingar í símum 32186 og 34235.
Múrarar
óskast. Mikil og góð vinna. Útihúðun o. fl. við
sambýlishús. — Góð kjör. — Upplýsingar í
síma 16155.
Stúlka óskast
til framreiðslustarfa í Kjörgarðskaffi.
Upplýsingar á staðnum.
Reglusnmur muður óskast
Glerskurðarmaður eða handlaginn maður getur
fengið atvinnu nú þegar í glerslípun vorri.
Glerslípun og speglagerð
Klapparstíg 16.
LögresJu- og tol!þjóns-
starf
í Ólafsvík er laust til umsóknar. Umsóknir ásamt
upplýsingum um fyrri störf sendist oddvita Ölafs-
víkurhrepps er gefur nánari upplýsingar. — Um-
sóknarfrestur framlengist til 15. september.
Hrcppsnefnd Ólafsvíkur.
Vélrítun
Vön stúlka óskast til vélritunar í skrifstofu hér í
bænum. — Góð vinnuskilyrði. — ðátt kaup. —
Tilboð merkt: „Vélritun — 5201“ sendist afgr. Mbl.
fyrir 7. þ.m.
Lítil 2ja herbergja
íbúð óskast fyrir tvennt fullorðið. Engin börn.
Upplýsingar í síma 37195.
Veiðileyfi
Vegna forfalla er til sölu veiðileyfi í Hrútafjarðará
daganna 10., 11. og 12. september.
Upplýsingar í síma 18909.