Morgunblaðið - 17.09.1963, Side 20
20
MOtGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. sept. 1963
BarnamorBingjatma Beif-
að # Birmingham
Sprengjuárás á sunnudagaskóla
vekur viðhjóð
Isirmingham og Washington,
16. sept. (AP).
Á SUNNUDAG var varpað
sprengju að einni af kirkjuni
hlökkumanna í borginni Birm-
ingham í Alabama, og Iétust þá
fjögiir börn, sem voru þar í
sunnudagaskóla, en 23 særðust.
-fa Leiðtogar blökkumanna í
skoruðu í dag á Bandaríkjastjórn
að fela bandaríska hernum að
yfirtaka stjórn borgarinnar tii
að koma í veg fyrir frekari kyn-
þáttaóeirðir.
ir Kennedy forséti lýsti því
yfir í dag að hann væri harmi
lostinn yfir þessu svívirðilega
ofbeldisverki. Kvaðst hann vona
að það opnaði augu Bandaríkja-
manna fyrir því hve heimsku-
legt væri að beita órétti, hatri
og ofbeldi. Forsetinn sagði að
ef Bandarikjamenn öðluðust
þennan skilning, væri enn ekki
of seint fyrir alla að sameinast
og vinna að friðsamlegri lausn
málanna.
Morðið á börnunum í sunnu-
dagaskólanum hefur vakið við-
bjóð um öll Bandaríkin. Strax
og fréttin barst út á sunnudag,
féllst Wallace ríkisstjóri, sem
annars er þekktastur fyrir kyn-
þáttaofsóknir, á að senda herlið
til borgarinnar og hét jafnframt
5 þúsund dollara verðlaunum
(rúml. 200 þús. kr.) fyrir upp-
lýsingar, er leitt gætu til töku
hinna seku.
Clarence Allgood yfirdóm-
ari í Birmingham benti á að
undanfarið hafi sprengjuárásir
verið gerðar hvað eftir annað,
þótt ekki hafi þær haft jafn
alvarlegar afleiðingar fyrr. Með
þeim væru ofbeldismennirnit að
hæðast að bandarískum lögum
og réttarfari. Sagði Allgood að
dómstólarnir linntu ekki sókn-
inni fyrr en „þessi brjálaði morð
ingi eða morðingjar“ barnanna
væri kominn bak við lás og slá
Dr. Martin Luther King, einn
fremsti blökkumannaleiðtogi
Bandaríkjanna, var staddur í
Washington, þegar sprengjunni
var varpað á sunnudagaskólann
í Birmingham. Hélt hann þegar í
stað til Birmingham með það
fyrir augum að hvetja blökku-
menn til að sýna stillingu. Að
loknum fundi í dag með öðrum
leiðtogum blökkumanna skýrði
dr. King frá áskoruninni um að
herlið yrði sent til borgarinnar. j
Sagði hann að neyðarástand
ríkti í borginni, og nauðsynlegt j
væri fyrir Bandaríkjastjórn að
grípa nú þegar í taumana.
Ungur piltur drukkn-
ar í Keflavíkurhöfn
Féll khkBIí báts og bryggju
UM KLUKKAN 12 á sunnudags-
kvöld féll ungur maður, Jón
Karlsson, í sjóinn út af trillubát
við Miðbryggjuna og drukknaði
þar.
Lögreglunni bárust boð um það
að maður væri í trillubát og hróp
aði á hjálp og brá hún skjótt
við og kom þá í ljós að Jón hafði
Ánægö með viðtökur
Brezkur
togari í
land-
helgi
>
■
SEYÐISFIRÐI, 16. sept. —
Er Óðinn var að koma út frá
Seyðisfirði á miðnætti aðfara
nótt sunnudags, sást í rat-
sjánni skip, sem virtist vera
innan fiskveiðimarkanna fyr
ir sunnan Gletting,
Þetta reyndist vera brezki
togarinn Thuringia GY 321.
Hélt hann áfram að toga með
an Óðinn var á leið til hans.
Var farið með hann inn til,
Seyðisfjarðar. Taldi skipstjór
inn sig Tiafa verið utan fisk-
veiðimarkanna.
ÍDómurinn dæmdi hann í
250 þús. kr. sekt og aflinn að
verðmæti 84.500 kr. og veið-
arfæri, að verðmæti 115 þús.
kr. var gert upptækt.
RAGNAR Stefánsson, fyrr
verandi ofursti í handa-
ríska hernum, sem var
túlkur Lyndons B. John-
sons, varaforseta, skýrði
Morgunblaðinu svo frá í
gær, að varaforsetinn og
kona hans hefðu verið ein-
staklega ánægð með mót-
tökurnar á Islandi. Höfðu
þau haft orð á því sín á
milli, að þau hefði aldrei
„upplifað“ annað eins,
„stemningin“ og vinsemd
almennings hefði yfir-
— Verkfallib
Framh. af bls. 1
1) farmenn fá aldursuppbæt-
ur eftir starfsaldri.
2) fyrirkomulag á eftirvinnu-
greiðslum breytist.
Byrjendakaup hækkar ekki
frá fyrra samkomulaginu, sem
var fellt.
Um'leið og fregnir bárust um
að verkfallið væri leyst lagði
fyrsta skip úr höfn. Það var
Drangajökull, sem tók strikið út
flóann. Mun skipið fara á strönd
ina til að lesta fyrir Ameríku-
markað. Eftir það fóru skipm
að halda úr höfn hvert af öðru.
gnæft allt, sem þau þekktu
áður.
Ekki dró það úr gleði
þeirra, þegar erlendir
sendiráðsmenn upplýstu
þau um það, að slíkar mót-
tökur væru mjög óvenju-
legar á Islandi. Islendingar
tækju yfirleitt kurteislega,
en e.t.v. fremur þurrlega
móti erlendum gestum,
klöppuðu þeim lof í lófa,
en hylltu ekki með húrra-
hrópum eins og nú hefði
gerzt. —
fallið í sjóinn, að sögn Þráins Sig
urðssonar, sem í bátnum var,
misst tak á bryggjunni og trill-
an um leið ýtst talsvert frá, svo
að hann gat ekki komið honum
til hjálpar á neinn hátt.
Lögreglan náði þegar í Högna
Kristinsson, froskmann og var
hafin leit um hálfri. stundu síðar
og leitað um klukkustund meðan
loftbirgðir hans entust en án
árangurs.
í birtingu morguninn eftir
hófu svo skátar leit með fjörum
og aftur um hádegi hóf Högni
froskmaður leit frá vélbátnum
Mána, og stóð sú leit til kl. 4,
en einnig án árangurs, sem þyk
ir mjög einkennilegt, því grunn-
sævi er í kringum bryggjuna, en
dýpkar fyrir framan, og var leit
in mjög skipulega og vel fram-
kvæmd.
Þeir félagar, Jón og Þráinn,
höfðu verið að ferðast á trill-
unni mikinn hluta sunnudags og
komið víða við, því blíðskapar
veður var svo sem bezt má verða
og voru þeir að ljúka ferðalag-
inu, þegar svo slysalega tókst tiL
Jón Karlsson var 21 árs, ó-
kvæntur og átti heima að Tjarn
ajgötu 20 í Keflavík. — hsj.
Elísabet II ó
von ó barni
London, 6. sept. (AP).
’TILKYNNT var í Bucking-
ham höll í dag að Elisabet II.
I Bretadrottning ætti von á
| fjórða barni sínu í byrjun
[ næsta árs.
Drottningin, sem er 37 ára,
Idvelur nú ásamt fjölskyldu
(sinni í Balmoral höll í Skot-
ilandi, en fer þaðan í næsta
i mánuði til London.
Stefnuskrá norsku stjórnarinnar
lögð fram í þinglnu
Osló, 16. sept. — (NTB) —
NORSKA Stórþingið var sett
í dag. Skýrði John Lyng for-
sætisráðherra þar frá stefnu-
skrá hinnar nýju ríkisstjórn-
ar, en á eftir ræðu ráðherr-
ans minntist Alv Kjös, forseti
þingsins, látinna þingmanna.
í upphafi ræðu sinnar sagði
forsætisráðherrann: að engin
norsk rík-isstjórn hafi átt við jafn
mörg atkvæði að styðjast og nú-
verandi stjórn. Kvaðst hann
þakklátur stjórnarandstöðunni
fyrir að óska eftir stefnuyfirlýs-
ingu á þessu stigi málsins. Væri
það kærkomið tækifæri.
Þingfundur stóð aðeins í þrjá
stundarfjórðunga, og að honum
loknum komu þingmenn jafnað-
armanna saman til að ræða
stefnuyfirlýsinguna. Mannþröng
var á áheyrendapöllum og var
þar m. a. fjöldi blaðaljósmynd-
ara, Beindu þeir vélum sínum
aðallega að ráðherrasætunum, en
margir ráðherranna mættu nú í
fyrsta sinn á þingi.
í stefnuskrá stjórnarinnar er
KALLI KUREKI
•*-
Teiknari; FRED HARMAN
m. a. gert ráð fyrir eftirfarandií
Lækkun skatta fjölskyldna og
lágtekjumanna, skattalækkamr
til eflingar framleiðslunni, elli-
lífeyrir handa ekkjum og ein-
stæðingum, aukin tryggingar-
gjöld, breytingar á skipulagi rík
isfyrirtækja með það fyrir aug-
um að veita starfsmönnum meiri
áhrif, 30 þúsund' nýjar íbúðir á
árinu 1964, fjárveitingar til
skóla, sérstakar ráðstafanir til
að tryggja stöðuga atvinnu allt
árið í stað árstíðabundinnar at-
vinnu, og aukin aðild einkafram-
taksins í byggingarstarfseminni.
Talið er að umræður um
stefnuskrá stjórnarnnar standi
yfir í a. m. k. þrjá daga.
r--- H£ MEAR SOT HIS TAIL M
TH'SATE THIS TlME ! SAY, WE
NEVER SEE YOU TILL SCHOOL'S
OUT.-I HOPE YOU'RE FIXIM’_^
VT' STAY A WHILEf J——
YOU MEAN THE OLD-
tlMEEALMOST y
ÖOT MARRIEP ?)
jSavbd byhis own bll/ndez
FROM A FATE WOZSE THAU OEATH
MAMBLYMAKR/AGEf -- THEOLD-
T/MEfZ EETueWS TO THE EA/VCH~
•~2+
Eftir að mistök hans sjálfs hafa
bjárgað honum frá því að hljóta hin
verstu örlög, giftingu, snýr gamli
maðurinn aftur til búgarðsins.
— Þú átt við að gamli maðurinn
hafi næstum gifzt.
— Hann hafði nærri fest á sér
skottið í þetta sinn. Heyrðu, þú kem-
ur aldrei fyrr en skólinn er búinn,
svo ég vona að þú verðir hjá okk-
ur einhvern tíma.
— Sæll, Kalli. Ég var að heyra að
gamli maðurinn hefði sloppið naum-
lega.
— Sæl, Peg, það var gaman að
sjá þig.
— Frænka, ert þú viss um að þessi
ekkja sé farin? Ég er hræddur enn-
þá.
— Vertu rólegur, hún er örugg-
lega farin. Ég veit f kki hvort ykkar
er heppnar
3IÍItvarpiö
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER
8:00 Morgunútvarp.
12:00 Hádegisútvarp.
13:00 „Við vinnuna'; Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp.
18:30 Þjóðlög frá ýmsum löndum.
18:50 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir. — 19:30 Fréttir.
20:00 Einsöngur: Mario Del Monaco
syngur óperuaríur.
20:20 Erindi: Frá Mæri (Hallfreður
Örn Eiríksson cand. mag).
20:45 Tónleikar: Sinfónía x g-moll eftir
Franz Anton Rössler. (Kammer
hljómsveitin . í Kurpfalz leikux;
Wolfgang Homann stjórnar).
21:05 ,,Lati-Brúnn,“ smásaga eftir
Arna Ólafsson (Óskar Ingimars-
sson).
21:30 Gítarmúsík: Andrés Ségovia
leikur.
21:45 íþróttir (Sigurður Sigurðsson).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Lög ungafólksin*- <G’ v*aJ '
steinsdóttir).
23:00 Dagskrárlok.