Morgunblaðið - 12.11.1963, Blaðsíða 1
síftur
Þannig var umhorfs við inngang Mikawa-námurnar á Kyushu-eyju í Japan eftir Biöigunarmenn að störfum umhverfis eld, sem kom upp, er járnbrautarlestirnai
sprenginguna. rákust saman í Japan á laugardaginn.
Slysin í Japan
Ben Bella bjartsýnn á
lausn landamæradeilu
Tókíó 11. nóv. (NTB).
ENN er unnið að björgun
manna, sem lokuðust inni í
Mikawa-námunni í Japan, er
sprengingin varð á laugardag.
Rúmlega 400 menn eru enn
niðri í námunni, en talið er
nær vonlaust, að nokkur sé á
lífi. Þegar er vitað um 460
menn, sem létust af völdum
slyssins.
164 menn létust í járnbraut
arslysi í Japan á laugardaginn
og nú hafa yfirvöld í land-
inu ákveðið að grípa til að-
gerða til þess að reyna að
koma í veg fyrir að svo hörmu
leg slys endurtaki sig. Einnig
var ákveðið að setja á stofn
sérstaka nefnd, sem samræma
á aðgerðir til hjálpar þeim,
sem um sárt eiga að binda
vegna slysanna og aðra nefnd,
sem rannsaka á orsakir hins
mikla námuslyss. Hin síðar-
nefnda verður skipuð sérfræð
ingum í kolanámuslysum og
verður Yuzuru Yamada, fyrr-
verandi prófessor við háskól-
ann í Kyhshu, form. hennar.
Þegar í stað verður hafizt i
handa um, að greiða aðstand- t
endurn hinna látnu skaðabæt /
ur og á morgun ræðir stjórn 1
Japans slysin. \
Félag kolanámumanna, sem \
vinna við Mikawa-námuna,
hefur ákveðið að gera sólar-
hrings verkfall daginn, sem
félagar þeirra verða jarðaðir.
Með verkfallinu vilja námu-
menn mótmæla öryggisútbún
aði námunnar, sem þeir telja
ófullnægjandi.
Alsír, 11. nóv. — (NTB) —
ÞING Alsír hélt fyrsta fund
sinn í dag að afloknu hléi,
sem gert var á þingstörfum
vegna bardaganna á landa-
mærum Alsír og Marokkó.
Ben Bella, forsætisráðherra,
tók til máls á fundinum og
sagði, að nú benti allt til þess,
að friður myndi haldast á
landamærunum.
Forsætisráðherrann ræddi
væntanlegan fund utanríkisráð-
herra Afríkuríkja, sem hefs t i
Addis Abeba n.k. föstudag. Á
fundinum verða ræddar landa-
mæradeilur Alsír og Marokkó og
munu utanríkisráðherrarnir gers
tilraun til þess að finna endan-
lega lausn málsins. Ben Bells
kvaðst vera bjartsýnn á árangui
af fundinum í Addis Abeba.
S/r A/ec segist fullviss
um sigur íhaldsflokksins
Moro talin stjórn-
armyndun á Ítaiíu
K
London 11. nóvember (NTB).
1 DAG var Sir Alec Douglas-
Home, forsætisráffherra Breta,
einróma kjörinn leiðtogi brezka
thaldsflokksins. Viff það tæki-
færi kvaðst hann hlakka til aff
stjórna næstu kosningabaráttu
flokksins og sagðist fullviss um
að Ihaldsflokkurinn myndi sigra.
1 kvöld hélt Sir Alec ræðu i
veizlu borgarstjórans í London,
Clement Harman. Sagði hann
m.a., aff Bretar yrffu að auka
auffæfi lands síns ef þeir vildu
tryggja, aff í framtíffinni yrffi
tekiff tillit til þeirra á alþjóffa-
▼ettvangi.
Forsætisráffherrann endurtók
loforð sitt um, aff gera þjóðinni
Ijóst á einfaldan hátt, hverjar
væru fyrirætlanir stjórnarinnar
og skoraði á atvinnurekendur aff
skýra fyrir starfsmönnum sínum
hvaffa stefnu þeir fylgdu í at-
vinnurekstrinum og hvers vegna.
Sir Al-ec sagði, að það væri
eingöngu óttinn við kjarnorku-
• Óeirðir í Kashmír
Jammur, 11. nóv. (NTB).
TJM 90 menn særðust, er til
óeirða kom í borginni Jamm-
ur í Kashmír í dag. Það
var stjórnarandstöðuflokkur-
inn sem stofnaði til óeirð-
anna. Réðust flokksmenn á
margar opinberar byggingar
í borginni áður en lögregl-
unni tókst að hafa hendur í
hári þeirra.
styrjöld stórveldanna, sem dreg-
ið hefði úr styrjaldarhættunni í
heiminum, iþví að Rússum og Kín
verjum væri ljóst, að þeir kæmu
ekki heilir á húfi úr þeim hild-
arleik. Hann lagði áherzlu á að
Bretar mættu ekki afsala sér
stöðu sinni sem kjarnorkuveldi,
því að um leið myndu þeir glata
áíhrifum sínum á gang mála
í heiminum og svíkja þær þjóðir,
sem treystu á forystu þeirra.
Að lokum sagði forsætisráð-
herrann, að brezka stjómin
myndi vinna að friði og öryggi,
þannig að allir menn gætu gegnt
sínum daglegu störfum án ótta
við styrjaldir og skort.
Róm, 11. nóv. (NTB - AP).
ANTONIO Segni, forseti
Ítalíu, fól í dag formanni
kristilega demókrataflokks-
ins, Aldo Moro, stjórnarmynd
un. Forsetmn hefur að und-
anförnu átt viðræður við leið
toga stjórnmálaflokka lands-
ins.
Stjórnarkreppa hefur verið
í ítalíu frá því að minnihluta-
stjórn kristilegra demókrata
með Giovanni Leoni í for-
Frh. á bls. 31
v ' '%Vv s ^
Bandarískir sérfræðingar álíta:
Ingstad hafa fundið
bústað Leifs heppna
BANDARISKIR fornleifa-
fræðingar, dr. Junius Bird
frá The American National
Museum í New York og dr.
Collins frá Smithsonian
Institute, hafa kannað forn
leifarannsóknir Norð-
mannsins Helge Ingstad á
Nýfundnalandi og komizt
að þeirri niðurstöðu, að
hann hafi að öllum líkind-
um fundið bústað Leifs
heppna í Vínlandi. Telja
þeir niðurstöður rannsókna
Ingstads sönnun þess, að
víkingar hafi haft þar að-
setur um 1000.
Danska blaðið Politiken hef
ur skýrt frá þessu og segir,
að fornleifafræðingarnir
bandarísku hafi farið með Ing
stad á staðinn og athugað forn
leifarnar, sem fram komu við
uppgreftina síðustu sumur.
Hafi þeir við heimkomuna
látið í Jjós þá skoðun sína,
m.a. við UPI-fréttastofuna, að
Helge Ingstad hafi fundið
sönnnunargögn fyrir búsetu
víkinga á þessum stað í kring-
um árið 1000. Fundizt hafi
leifar af híbýlum manna, þar
á meðal af dæmigerðum skála
frá víkingaöld og hlóðaeld-
húsi, og ennfremur merki um
rauðablástur. Bendi kolefna-
rannsóknir á leifum þessum til
þess, að þær séu frá því um
1000.
Segir blaðið, að á niðurstöð-
um þessara rannsókna og frá-
sögnum íslendingasagna byggi
bandarísku fornleifafræðing-
arnir þá skoðun sína, að Ing-
■mMftWftHMMiHMi
Helge Ingstad
stad hafi þarna fundið bústað
Leifs heppna, þar sem í ís-
lendingasögum sé kallað „á
Vínlandi“.