Morgunblaðið - 12.11.1963, Qupperneq 25
{ f»riðjudagur 12. nóv. 1963
MORGUNBLAÐIÐ
25
Innlendar fréttir
í stuttu máli
Börn niður um ís Veturinn kominn
Eftir að Reykjavíkurtjörn
fór að leggja um miðja s.l.
viku urðu að því nokkur
brögð að börn og unglingar
færu niður um ísinn. Var
hann ótraustur alveg fram á
laugardag og vakir í honum.
Á föstudag voru gagnfræða
skólastúlkur í hóp á leið yf-
ir Tjörnina, er ísinn brast
undir þeim. Blotnuðu þær
upp í mitti og skólatöskur
þeirra fullar af bókum blotn-
uðu einnig; Skömmu seinna
fóru tveir aðrir niður um ís-
inn. Og á laugardag duttu
10-20 börn niður um ísinn.
Hafði slökkviliðið nóg að
gera við að aka blautum börn
um heim og veita í sima þær
upplýsingar að ísinn væri ó-
traustur.
í sl. viku kólnaði um
allt land og veturinn er kom-
inn. Á þriðjudag kom kulda-
þræsingur yfir landið, en
lygndi á föstudag. Hefur yf-
irleitt verið nokkurt frost
nyrðra en um frostmark
syðra.
Ógœftir hjá
síldarbátum
Ógæftir hafa verið hjá síld-
arbátunum við Suðvesturland
nema á föstudag, þegar 21
bátur kom með um 11 þús.
tunnur. Á sunnudagsnótt stóð
síldin djúpt og var erfitt að
ná henni.
Mikið hefur verið um um-
ferðarslys og fara hér á eftir
IMeytendasamtökin fræða urn:
Reykingar og megrun
ÚT er kotnið 4. tbl. Neytenda-
blaðsins 1963, og er verið að
senda það út til félagsmanna.
Að þessu sinni fjalla tvær
aðalgreinarnar um „Reyking-
ar og lungnakrabba“ og
wMegrun“.
í blaðinu segir m.a.: „Mikið
hefur verið rætt og ritað um
það, hvað valdi krabbameini, og
er eðliilegt, að leikmenn eigi
erfitt að gera sér grein fyrir,
hvað er skoðun, bjargföst trú,
líkur eða sönnun. Einna mest
ber um þessar mundir á skrif-
um um samhengi lungnakrabba
og reykinga. í riti bandarísku
neytendasamtakanna, Consumer
reports, í júní 1963, er birt ýtar-
leg grein um þetta efni í því
skyni að skýra hlutlaust frá því,
hvað væri vitað og hvað ekki
vitað í þessu máli. Eru niður-
stöðurnar síðan dregnar saman í
einn kafla, og er hann birtur í
Neytendablaðinu með einka-
rétti þess.
Um hina aðalgreinina, sem
fengin er úr tímariti brezku neyt
endasamtakanna, segir svo í for-
mála: „Undanfarin ár hefur ým-
iss konar megrunarfæðu verið
slengt fram á markaðinn í „vel-
megunar“-rikjum með brauki og
brambolti. Lausn hefur átt að
vera fundin á viðkvæmu og erf-
iðu vandamáli hluta mannkyns-
ins. Margur vill megra sig bæði
vegna útlits síns og ótta við
sjúkdóma, en helzt ekki þurfa að
leggja mikið á sig og allra sízt
að þola sult.“ Síðan er skýrt
frá rannsóknum á ákveðnum
megrunar-fæðutegundum og
gefnar almennar ráðleggingar.
I>á er einnig í blaðinu m.a.
fróðleg grein: „Hvað er „Good
Housekeeping", en það merki
kannast margir við á markaði
hér, þóttt þeir þekki ekki fyrir-
tækið að baki því.
Nær allar bókaverzlanir í
Reykjavík taka á móti nýjum
félagsmönnum fyrir Neytenda-
samtökin, og fá menn þá afhent
um leið hin 6 fyrstu tölublöð
hins nýja og vandaða Neytenda-
biaðs.
frásagnir af slysum, ásamt
fleiri smáfréttum:
Ekið á tvo við
gangbraut
Fimmtudaginn 7. nóvember
var ekið á tvo vegfarendur
er voru á leið yfir götu í
í Reykjavík, nær á sömu mín-
útu eða um kl. 6 síðdegis.
Voru báðir á eða við merkta
braut.
9 ára drengur, Hallgrímur
Georgsson, Rauðalæk 9, var á
leið yfir götuna rétt vestan
við Sundlaugarnar, er hann
varð fyrir bíl, sem ekið var
með miklum hraða austur
Sundlaugaveginn. Var hann
fluttur í Slysavarðstofuna
en meiðsli hans ekki talin
mjög mikil.
Fullorðin kona, Stefanía
Einarsdóttir, Austurbrún 4,
var á leið vestur yfir Póst-
hússtræti frá Verzlun O. Erl-
ingsen, er bíll á leið norður
Pósthússtræti ók á hana. Datt
hún, er talin hafa lent á
Ijósastaur og viðbeinsbrotn-
aðL
Bifreiðaslys á
Mýrum
Borgarnesi, 7. okt. — Rétt
fyrir kl. 8 í morgun varð
árekstur rétt fyrir vestan
Borg á Mýrum á svokölluð-
um Skálmarási. Rákust þar
saman Landrover bifreið, M
710, og bíll frá Landssíman-
um, R-5480. í landbúnað-
arbifreiðinni voru 7 menn.
Slösuðust 6 þeirra. Gerði
læknirinn Eggert Einarsson
að sárum þeirra, og sendi tvo
áfram til Akraness til nánari
athugunar í sjúkrahúsinu.
Landroverbifreiðin er mjög
mikið skemmd.
Árekstrar verða oft á þess-
um stað. f>ar er blindbeygja
og oft mjög ógætilega ekið í
hana, einkum af þeim sem eru
á vesturleið. — Hörður
Ekið á dreng
á Selfossi
Kl. 2 á þriðjudaginn 5. nóv.
var jeppa ekið á 10 ára dreng
á Selfossi. Lenti drengurinn
upp á vélarhúsi bilsins og
framrúðu, og braut hana. Var
hann fluttur í sjúkrahús stað-
arins en síðan heim.
Maður i höfnina
Á mánudagskvöld féll mað-
ur í höfnina við Faxagarð.
Maðurinn var undir áhrifum
og var mjög af honum dreg-
ið er hann náðist. Var hann
fluttur í slysavarðstofuna.
Skýtaxi í
íshafsflugi
Skýfaxi Flugfélags íslands
mun verða í ísleitarflugi við
Grænland og fór hann fyrstu
ferðina s.l. miðvikudag. Mun
hann lenda í Narsassuaq og
taka um leið farþega.
Sœsímastrengurinn
slitinn
Sæsímastrengurinn milli
íslands og Færeyja slitnaði að
faranótt sunnudags um 100
km. fyrir norðan Þórshöfn í
. Færeyjum. Er búizt við að
viðgerðarskip komist þangað
á mánudagskvöld. Á meðan er
notuð ein lína um Ameríku
til Evrópu.
Fyrsta báti Stálskipasmiðj-
unnar hleypt af stokkum
FYRSTA bátnum, sem
Stálskipasmiðjan h.f. í Kópa-
vogi smíðar, var hleypt af
stokkunum á laugardaginn.
Á föstudaginn var báturinn
skírður Dimon. Átti hann að
hlaupa af stokkunum þann
dag, en því var frestað vegna
veðurs.
Dimon, sem er 24 rúmlestir,
fór í stutta reynslusiglingu á
laugardaginn og gekk hún mjög
vel. Báturinn er nær fullgerður
og verður afhentur eigendum,
Sveini Jónssyni og Gísla Þor-
steinssyni, innan fárra daga.
Dimon er skrásettur í Höfnum
og ber einkennisstafina GK 535.
Skipstjóri á honum verður Elís
Bjarnason, en 10 ára dóttir hans
Elísabet Birna, skírði bátinn.
Hafizt var handa um smíði
Dimons í apríl s.l., er hann stál-
bátur, frambyggður með gafli.
Stýrishús er úr alúminíum, en
þilfarið úr járni, klætt Semtex-
gúmmímassa. íbúð fyrir fimm
menn er í bátnum. Hann er knú-
inn 130 hestafla Albin dísilvél,
búinn vökvastýri og fjögurra
lesta vökvavindu. í Reykjavíkur
höfn verður ratsjá og dýptar-
mæli komið fyrir í bátnum.
Stálskipasmiðjan annaðist alla
smíði bátsins, nema tréverk, sem
Sverrir Gunnarsson, skipasmið-
ur sá um og raflagnir, en þær
annaðist Áslaugur Bjarnason, raf
virkjameistari.
Dimon er gerður fyrir humar
og dragnótaveiðar og verður
sennilega gerður út frá Þorláks-
höfn í vetur.
Framkvæmdastjóri Stálskipa-
smiðjunnar h.f. er Ólafur H. Jóns
son og þar starfa nú sex menn.
í húsakynnum fyrirtækisins er
hægt að smíða allt að 200 lesta
skip.
Dimon GK 535 hleypt af stokkunum.