Morgunblaðið - 12.11.1963, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 12.11.1963, Qupperneq 30
30 MORGU NBLAÐIÐ T’riðjudagur 12. nóv. 1963 umjQ JmíJ m m ff 1 og 2 mörk réðu úrslitum í meistaraflokki — en leikirnir samt daufir TÍU leikir Reykjavíkurmótsins í handknattleik fóru fram um helgina. I nfeistaraflokki karla urSu tvö af liðum þeim er mættu Tékkunum á dögunum að sætta sig við lægri hlut, er Þróttur vann ÍR og Ármann vann Vík- ing. KR vann svo Val með 1 marki — og fagnaði enn heppni að hreppa bæði stigin. Tveir leikir fóru fram í m.flokki kvenna og 5 aðrir leikir í yngri flokkunum og í 1. flokki. Ármann — Víkingur 16—15 Ármenningar tóku völdin í byrjun leiks gegn Víking og höfðu örugga forystu framan af. Fjórum sinnum undir lok fyrri hálfleiks jöfnuðu þó Víkingar en í hálfleik var staðan 10—9 fyrir Ármann. í byrjun síðari hálfleiks gerðu Ármenningar eiginlega út um leikinn með 3 fyrstu mörkunum. Það var sú forysta er nægði þeim til sigurs þó Víkingar sæktu fast í leikslok og skoruðu 3 síðustu mörkin. Lokastaðan varð 16—15 fyrir Ármann. Mörk Ármanns skoruðu Árni Sam. 7, Hörður 5, Lúðvík 3 og Ingvar 1. Mörk Víkings skoruðu Þórarinn 4, Rósmundur og Björn Bjarnason 3 hvor, Pétur 2 Sig. Hauksson, Hannes og Óli sitt hver. Þróttur — ÍR 11—9 Það var sviplaust ÍR-liðið án Gunnlaugs Hjálmarssonar. Það var likast feimnum unglingi og 3 landa keppni í Rvík — i fugþraut Á ÞINGI frjálsíþróttasam- bands Norðurlanda, þar sem sátu fulltrúar frá frjáls- íþróttasamböndum allra land anna fimm, var ákveðið að efna til þriggja landa keppni í tugþraut í Reykjavík 8. og 9. ágúst næsta sumar. í keppn ‘inni taka þátt tveir keppend- ur frá Svíþjóð, Noregi og ís- landi. Þá var einnig ákveðið að stofna til Norðurlandamóts unglinga í frjálsum íþróttum. Verður fyrsta mótið í Osló næsta sumar. Loks voru ákveðnir keppn- isdagar í landskeppni ís lands og V-Noregs í Reykja vik næsta ár og verður keppn in 21. og 22. júlí. S.l. sumar kepptu íslendingar við V- Norðmenn í Noregi og unnu Norðmenn með miklum mun. Mörg önnur mál voru rædd á þessu 20. þingi norrænna frjálsíþróttaleiðtoga sem hald ið var í Kaupmannahöfn. Af íslands hálfu sátu það Björn Vilmundarson og Örn Eiðs- son stjórnarmenn FRÍ. lét mjög mótast af leikaðferð og hraða mótherjans, en byggði ekki upp sjálfstætt. Leikurinn var afar jafn en í hann vantaði þó alla spennu, hraðinn enginn og eins og allir væru syfjaðir. f hálfleik stóð 5—5 og rétt fyrir leikslok var staðan enn jöfn 9—91. En Þróttarar tryggðu sér sigur með tveim síðustu mörk- unum. 11—9 var lokastaðan. Mörk Þróttar skoruðu Þórður 4, Páll Pét. 2, Jón Björgvinsson, Gísli og Haukur sitt hver. — Mörk ÍR skoruðu Gylfi 4, Her- mann 2, Gunnar og Erlingur sitt hvor. Valur — KR 9—10 KR-ingar náðu góðum tökum á leiknum þegar í byrjun og for- ysta þeirra var örugg allan fyrri Enska knattspyrnan 17. umferð ensku nieildarkeppninnar fór fram sl. laugardag og urðu úrslit {>essi: 1. deild. Arsenal — Westham .... .... 3—3 Birmingham — Blackpool _ .... 3—2 Bolton — Liverpool ... .. _ 1—2 Burnley — Wolverhampton .... 1—0 Everton — Blackburn .... 2—4 Fulham — Aston Villa .... _ .... 2—0 Ipswich — Stoke ...... .. .. 0—2 Leicester — Sheffield U..... 0—1 Manchester U. — Tottenham 4—1 Sheffield W. — N. Forest .... .J. 3—1 W. B. A. — Chelsea .^. _ 1—1 2. deild. Charlton — Rotherham .... _ _ 5—3 Grimsby — Leeds ...... _ .... 0—2 Huddersfield — Norwich _ 1—l Leyton O. — Northampton .... 0—0 Middlesbraugh — Swindon .... 1—1 Newcastle — Cardiff ... «« .... 0—4 Plymouth — Portsmouth .... 0—4 Preston — Sunderland .... _ 1—1 Southampton — Manchester City 4—2 Swansea — Bury .... .... _ .... 0—2 Staðan er þá þessi: 1. deild (efstu og neðstu liðin). Sheffield U. 17 9-6-2 34:21 24 st. Arsenal 18 10-3-5 49:38 23 — Manchester U. 17 9-4-4 36:19 22 — Liverpool 16 10-1-5 32:19 21 — Tottenham 16 9-3-4 47:31 21 — Blackburn 18 8-5-5 38:26 21 — Burnley 18 8-5-5 28:24 21 — hálfléikinn og staðan í hléi 7—4. í síðari hálfleik sóttu Vals- menn mjög á og á síðustu mín- útunni komst spennan 1 algleym ing. Staðan var 10—9 fyrir KR og nokkrar sekúndur til leiks- loka. Hermann Gunnarsson Frh. á bls. 31 HEIMSÓKN Spartak Pilsen, handknattleiksliðsins fræga frá Tékkóslóvakíu, var vel heppnuð að mörgu leyti. Hún sýndi m. a. þær geysivaxandi vinsældir sem handknattleik- ur á að fagna hér á landi. Hún sýndi einnig, að beztu handknattleiksmenn okkar, og beztu handknattleikslið okkar standa beztu liðum Mið-Evrópu fyllilega á sporði og þá er mikið sagt því þar stendur handknattleikur með mestum blóma. Tékkar fyrr- Hörður Kristinsson vakti sérstaka athygli fyrir vel heppnuð vítaköst. Hann framkvæmdi mörg og öll höfnuðu í netinu. (Ljósm. Sv. Þorm.) Koma Spartak Pilsen Hótuou að fara heim eftir fyrsta tapið um heimsmeistarar, Rúmenar nú og allir handknattleiks- menn á þessum slóðum brýnd ir í harðri keppni við beztu menn heims. Spartak Pilsen kenndi okk- ar mönnum fátt í tækniupp- byggingu eða knattmeðferð. En meginn styrkur liðsins var hörð og óvægin leikaðferð. Sennilega má ætla að sú hlið sé einnig sterkasta stoð liðs ins heima í Tékkóslóvakíu, þar sem þeir standa framar í deildakeppninni en lið eins og Gottwaldov (er hingað kom) og sýnir betri og fall- egri handknattleik. Af þessum sökum var ekki að -undra þótt til átaka kæmi milli liðsmanna og dómara. Það fór og svo að Tékkar ætl uðu að fara heim eftir tapið gegn Reykjavíkurúrvalinu, en heyktust á því vegna af- leiðinga er slík ákvörðun hefði. Þeir ætluðu einnig að neita að leika á Keflavíkur- velli vegna vals í dómara- stöðu leiksins — en heyktust á því einnig eftir nokkurt þóf. Tékkarnir léku ákaflega fast. Þeir lögðu menn í einelti ef þeim þótti einn skara fram úr öðrum. Sú leikaðferð gaf þeim góða raun. Og m. a. tókst þeim með því að koma heilum liðum islenzkum úr jafnvægi. Slíkt sýnir að sjálf- sögðu reynsluleysi okkar manna. Hins vegar gengu Tékkam- ir of langt í þessum efnum og einnig í því að reyna að hagnast á brotum. Hjá sum- um dómurum tókst þeim þetta, hjá öðrum ekki. Þeir sem mest gátu af Tékkunum lært voru dómararnir og stóð ust þeir prófið misjafnlega — sumir afleitlega. En hvað um það. Heim- sóknin var góð og áreiðan- lega uppörvun og lyftistöng fyrir handknattleiksíþróttina. — A. St. FH og úrvalsliðin stóðu Tékkunum á sporði TEKKNESKA handknattleikslið- ið Spartak Pilsen og leikir þess við beztu lið hér var kjarni íþrótt anna mcðan á verkfallinu stóð. Föstudaginn 1. nóv. léku Tékk- arnir annan leik sinn hér og mættu úrvali Reykjavíkurliða. Leikurinn var afar spennandi og lauk með sigri Reykjavíkurliðs- ins, 24 gegn 23 mörk. Þetta var einn bezti leikur sem Reykjavíkurúrval hefur sýnt, einkum er á leið. Tékkarnir voru yfir í hálfleik 13—9, en það bil tókst úrvalinu að vinna upp og komast um tíma 4 mörk yfir. Sýnir þessi síðari hálfleikur veru legan styrkleika og hvers má vænta af handknattleiksmönnum okkar síðar í vetur. Gunnlaugur, Karl Jóh. og Ingólfur Óskarsson voru beztu menn — en samstill- ing liðsins í heild óvenju góð. Daginn eftir, 2. nóv., mættu Tékkarnir liði FH. FH hafði undirtökin í leiknum allan tím- ann og rétt fyrir leikslok voru þeir 2 mörk yfir og hafði þá einum Tékkanna verið vísað af velli fyrir gróf leikbrot. Sigurinn blasti við FH — en fyrir fljót- færni og klaufaskap misstu þeir tvívegis af knettinum í vonlaus- um markfærum og Tékkunum tókst að jafna leikinn 19 mörk gegn 19. Sunnudaginn 3. nóv. mættu Tékkarnir tilraunalandsliði suð- ur á Keflavíkurvelli. Leikurinn var daufur og lélegur framan af. Tékkar höfðu 11—7 í hálfleik. í síðari hálfleik kom meiri hraði og ákveðni í leikinn og undir lokin tókst íslendingum að jafna og 19—19 urðu lokatölur leiks- ins. Þarna gætti ekki eins og að Hálogalandi slagsmála og handa- pats sem skemmir alla leiki. — Sýnir það hversu handknattleik- urinn breytist við að koma á nægilega stórt salargólf. Á þriðjudagskvöld sl. léku Tékkarnir við Víking en með Víkingum lék hinn tékkneski þjálfari liðsins, Ruza. Framan af hafði Víkingur yfir en smám sam an sigu Tékkarnir á — og spör- uðu heldur ekki kraftana í því skyni. Náði Spartak Pilsen veru- legu forskoti, skoraði 6 síðustu mörk í fyrri hálfleik, svo stað- an var 11—19. — í síðari hálf- leik voru Víkingar ákveðnari og sigu á forskot Tékkanna svo loka staðan varð 26—22, Tékkunum í vil. Síðasti leikur gesta ÍR var gegn íslandsmeisturum Fram. Snemma í leiknum kom til leið- indaatvika sem settu Framara upp á móti dómaranum og dóm- arann upp á móti þeim. Eftir það gekk allt á afturfótum milli þeirra. Dómarinn tók öll brot Fram mjög ströngum tökum —• alveg réttilega. En sams konar brot Tékkanna átaldi hann ekki. Slíkt er að sönnu ranglátt. En Framarar náðu aldrei að standa verulega í Tékkunum, voru að vísu óheppnir, einkum með það að eiga aragrúa stang- arskota. Sigri Tékka var aldrei ógnað oe var 26—19 um það er lauk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.