Morgunblaðið - 12.11.1963, Page 32
SGÖGH
STERKOG
STÍLHRE?(sí
Kærður fyrir bréfastuld
Starfsmaður
í Reykjavík
MORGUNBLAÐIÐ fregnaði í
gær, að einn af starfsmönn-
um Póststofunnar í Reykja-
vík hafi verið grunaður um
að taka hréf ófrjálsri hendi.
Síldin
Bræla var á síldarmiðunum
aðfaranótt mánudags og fremur
lítill afli.
AKRANESI, 11. nóv.
í gær, sunnudag, lönduðu hér
tíu bátar 1600 tunnum af síld.
Aflahæstur var Sigurður með
500 tunnur. Sumt af síldinni var
saltað, en sumt hraðfryst.
Hann var hægur á síldarmið-
unum aðfaranótt laugardags ca.
45 sjómílur vestur af Jökli. 4
bátar fengu síld, samtals 2.800
tunnur. Höfrungur II. var afla-
hæstur með 1,200 tunnur, Sól-
fari þá með 600, Skipaskagi með
500 og Haraldur með 500. Sumt
af síldinni var saltað, sumt hrað
fryst. — Oddur.
Frú Beg-
trup 60 ára
f DAG verður frú Bodil Beg-
trup sendiherra Dana í Sviss
M ára. Frú Begtrup var
sendiherra lands síns á ís-
landi um árabil, frá 1948—
1956. — Er hún fyrsta konan,
sem gegnt hefur sendiherra-
embætti hér á landi.
Póststofunnar
handtekinn
Matthías Guðmundsson, póst-
meistari, grunaði manninn
fyrir skömmu og var hann
handtekinn nokkru síðar. Mál
þetta er á rannsóknarstigi og
sagði póstmeistari í gær í sam
tali við blaðið, að hann hefði
ekki enn séð skýrslu um yfir-
heyrslurnar frá rannsóknar-
lögreglunni. Þess má geta, að
maðurinn hefur starfað hjá
Póststofunni í Reykjavík um
30 ára skeið.
Eins og fyrr getur hafði Morg-
unblaðið tal af póstmeistaranum
í gær og spurði hann um mál
þetta, sem mun vart eiga sér
neina hliðstæðu hér á landi.
Hann sagðist ekki vilja segja
neitt um málið á þessu stigi, en
leyfði blaðinu þó að hafa eftir
sér svohljóðandi upplýsingar:
„Rétt er að fallið hefur grun-
ur á mann einn, sem starfar hér
í stofnuninni, um að hann hafi
tekið almenn bréf ófrjálsri hendi.
Hefur mál hans verið kært til
rannsóknarlögreglunnar og tek-
ið fyrir til rannsóknar. Ekki hef
ég enn fengið skýrslu um rann-
sókn málsins, en mun láta blöð-
unum í té upplýsingar, þegar
þær berast mér í hendur. Þess
skal getið að lokum“, sagði póst-
meistari, „að maðurinn hefur
ekki verið við störf hér í stofn-
uninni síðan málið var kært.“
Blaðið getur bætt því við, að
því er kunnugt um, að póstmeist-
ari lagði gildru fyrir manninn
þegar er hann fór að gruna hann.
Maðurinn uggði ekki að sér. enda
mun hann ekki hafa átt sér ills
von og gekk í gildruna. Mun
hann hafa verið staðinn að verki,
þegar hann var að koma bréfum
undan. Ekki er vitað um, að mað-
urinn hafi haft áhuga á öðrum en
almennum bréfum. Ekki er held-
ur vitað um ástæðuna fyrir þess-
um verknaði, en rannsóknin mun
væntanlega leiða hana í Ijós.
Þess má að lokum geta, að
maðurinn var handtekinn fimm
dögum eftir að grunur féll á
hann.
Innstœðulausir tékkar,
er skipta millj. í umferð
MORGUNBLAÐINU barst í
gær fréttatilkynning frá
Seðlabanka Islands, þar sem
skýrt er frá því, að 9. nóv. sl.
hafi allsherjar ávísanaupp-
gjör farið fram milli banka
og sparisjóða í Reykjavík og
nágrenni. I ljós hafi komið,
að um væri að ræða stór-
fellda útgáfu ávísana, sem
innistæða var ekki til fyrir.
Avísanirnar munu hafa verið
á þriðja hundrað og upphæð-
irnar nema samtals mörgum
milljóna króna. Þar á meðal
ávísanir frá stórfyrirtæki, svo
skipti milljónum króna. —
Fréttatilkynningin fer hér á
eftir:
„Fyrir forgöngu Seðlabankans
átti sér stað laugardaginn 9.
nóvember allsherjar tékkaupp-
gjör milli banka og sparisjóða í
Reykjavík og nágrenni. Tilgang-
ur þessa uppgjörs var að leiða í
Neind tiI að rann-
saka um/erð arslyx
MORGUNBLAÐINU barst í
gær þessi fréttatilkynning frá
Dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, dagsett 11. nóv.:
„Dómsmálaráðherra hefir í
dag ákveðið að skipa nefnd til
þess að rannsaka orsakir hins
sívaxandi fjölda umferðar-
slysa og að gera tillögur um
Uppdráttur að
Norrœna húsinu
Einkaskeyti til Mbl. frá
Khöfn. — 11. nóvember.
BYGGINGARNEFND Nor
ræna hússins, sem reisa á
í Reykjavík, hélt í dag fund
í Helsingfors með finnska
arkitektinum Alvari Aalto,
sem fenginn hefur verið
til þess að teikna húsið.
Á fundinum lagði Aalto
fram uppdrátt að útlits-
teikningu hússins.
Fundinn í Helsingfors
sátu m.a. Eigil Thrane,
skrifstofustjóri menning-
armálaráðuneytis Dan-
merkur, en hann er for-
maður byggingarnefndar-
innar og Þórir Kr. Þórð-
arson, prófessor.
Rytgaard.
ráðstafanir til úrbóta.
í nefndinni eru: Lögreglu-
stjórinn í Reykjavík, sem er
formaður nefndarinnar, vega-
málastjóri og forstöðumaður
Bifreiðaeftirlits ríkisins, en
jafnframt hafa Slysavarna-
félag íslands, Félag íslenzkra
bifreiðaeigenda og félög at-
vinnubifreiðastjóra verið beð
in að tilnefna fulltrúa í nefnd-
ina.“
Minni fisknfli
en í fyrrn
Skv. skýrslu Fiskifélags fs-
lands var heildarfiskafli fyrstu
sjö mánuði þessa árs (til 31. júlí)
487,662 tonn. Á sama tíma í
fyrra var hann 18,551 tonni
meiri eða 506,231 tonn.
Af afla fyrstu sjö mánuðina
var 203,157 tonn þorskur og
196,025 tonn síld. Sambærilegar
tölur í fyrra voru 196,595 og
244,231. Bátafiskur var nú 443,301
tonn (í fyrra 487,329 tonn) og
togarafiskur 44,361 tonn (1 fyrra
18,884 tonn).
ljós, hvort í umferð væru inn-
stæðulausir tékkar, en mikil
brögð hafa verið að því um langt
skeið, þrátt fyrir ítrekaðar að-
gerðir af hálfu bankanna.
Tékkauppgjör þetta leiddi í
ljós, að í umferð var þó nokkur
fjöldi innstæðulausra tékka, og
nam upphæð þeirra verulegum
fjárhæðum. Ákveðið hefur verið,
að útgefendur þessara tékka
verði beittir þeim viðurlögum,
sem tékkareglur bankanna gera
ráð fyrir.
Ennfremur er ráðgert, að slík
allsherjar tékkauppgjör verði
látin fram fara við og við héðan
í frá. Verða þau gerð fyrirvara-
laust, svo að þau tryggi sem bezt
aðhald um að settum reglum um
meðferð tékka verði fylgt af
hálfu fyrirtækja og almennings."
,r
Haraldur A. Sigurðsson var
' síðastliðinn laugardag sæmi
ur orðunni O.B.E. (Officier
of the most excellent order of
I the British Empire). Ambassa
dor Breta á íslandi Mr. Eve-
lyn Basil Boothby afhenti
(Haraldi orðuna. Faðir Har
| alds, Ásgeir Sigurðsson, aðal-
I ræðismaður Breta á íslandi,
fékk þessa söm.u orðu fyrir
' tæplega 40 árum.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Fundur
blaðamanna
Helsingfors, 11. nóv. (NTB)
Á MORGUN hefst í Helsingfors
tveggja daga fundur Norræna
blaðamannasambandsins. M.a.
verða rædd menntamál, nánari
samvinna blaðamanna og hvort
þeir hyggjast taka þátt í alþjóð-
legu samstarfi um að auka mennt
un blaðamanna í vanþróuðu ríkj
unum. ísland á ekki fulltrúa á
fundinum í Helsingfors.
Þrír af höfundum SIA-
skýrslna krefjast
ritlauna!
ÞAU tíðind' gerðust í gær-
dag, að þrír af höfundum
hinna alræmdu SÍA-skýrslna,
þeir Hjalti Kristgeirsson, hag
fræðingur, Hjörleifur Gutt-
ormsson, Neskaupstað, og
Skúli Magnússon, sýsluskrif-
ari á Patreksfirði, gerðu kröfu
til höfundarlauna frá Heim-
dalli, félagi ungra Sjálfstæðis
manna í Reykjavík, vegna út-
gáfu félagsins á hluta af
skýrslunum.
Eins og kunnugt er, birti
Morgunblaðið á sínum tíma
nokkurn hluta skýrslnanna.
Vakti sú birting eðlilega
mikla athygli, enda var hér
um að ræða skýrslur, sem
rneiri og betri innsýn veita í
undirróðurstarfsemi og valda-
baráttu kommúnista á íslandi
en flest annað. Höfundar
skýrslnanna gerðu þá enga til
raun til þess að krefja Morg-
unblaðið um greiðslu, en hins
vegar krafðist Einar Olgeirs-
son þess, að allar SÍA-skýrsl-
ur, sem enn væru í höndum
flokksmanna hans, yrðu taf-
arlaust brenndar!
í vor gaf Heimdallur út þær
skýrslur, sem þegar höfðu
birzt í Mbl., og talsvert magn
að auki. Voru skýrslurnar,
sem kunnugt er, gefnar út
undir nafninu RAUÐA BÓK-
IN, leyniskýrslur SÍA. Hefur
mikið selzt af bókinni í sumar
og haust, en höfundar skýrsln
anna hafa ekki gert neina til-
raun til þess að fá peninga
fyrir ritstörf sín, fyrr en nú,
að þrír þeirra fá Þorvald
Þórarinsson, lögfræðing, til
þess að rukka inn 150.000 kr.
í höfundarlaun. Auk þess fer
Þorvaldur Þórarinsson fram
á að fá innheimtulaun.