Morgunblaðið - 19.11.1963, Qupperneq 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
þ'riðjudagur 19. nðv. 1963
Rauða bókin:
Kröfum SÍA-manna vísað á bug
SVO sem kunnugt er af fréttum
blaða hafa nokkrir SÍA-manna
gert kröfur á hendur Heimdalli
FUS um greiðslu höfundarlauna
að upphæð kr. 150.000.00 vegna
útgáfu Rauðu bókarinnar, sem
út kom á vegum félagsins á sl.
vori.
Nú hefur lögfræðingur Heim-
dallar, Hjörtur Torfason hdl.,
sent Þorvaldi Þórarinssyni, Iög-
fræðingi þeirra SÍA-manna, svar
við kröfum þessum og vísað þeim
algjörlega á bug.
í bréfi sínu bendir lögmaður-
inn á það, að „tilgangurinn rits-
ins sé í sem stytztu máli, að skapa
íslenzkum almenningi aðstöðu til
áð gera samanburð á málflutn-
ingi hérlendra fulltrúa alþjóða-
kommúnismans út á við og inn á
við, því sem borið sé á borð fyrir
alþýðu manna og hinu, sem rök-
rætt sé og ráðið í innsta hring.“
Síðan segir í bréfinu: „f sam-
ræmi við tilgang ritsins hefur út-
gefandi ritað ýtarlegan formála
og skýringar að öllu því aðfengna
efni, sem birt er í ritinu, raðað
því niður á skipulegan hátt og
leitast við að draga fram kjarna
málsins í hinum ýmsu þáttum
þess. Gefur allt þetta bókinni
sjálfstætt gildi langt umfram
það, sem felst í hinu aðfengna
efni einu saman. Er vart gerandi
ráð fyrir því að umbj. yðar óski.
að eigna sér þetta. Þess er og að
gæta varðandi kröfu yðar, að út-
gáfustarf umbj. okkar — efnis-
val, efnisskipun, kaflaskipting og
gerð millifyrirsagna, leturbreyt-
ingar og áherzlu-, ritun skýringa,
efnisyfirlits o. s. frv. — leiðir til
þess eitt saman, að höfundarrétt-
ur og útgáfu — að ritinu í heild
sinni fellur þeim í skaut, sbr. 3.
gr. laga nr. 13/1905.“
Þá er í bréfinu fjallað um þá
fullyrðingu Þorvaldar Þórarins-
sonar að í Rauðu bókinni hafi
birzt aðallega einkabréf er þeir
SÍA-menn hafi skipzt á. Bendir
lögfræðingur Heimdallar á að öll
gögn sem félagið hafi lagt á borð-
ið máli sínu til stuðnings stafi
frá samtökum SÍA-manna. Sam-
tökin hafi á þeim tíma sem máli
skipti haft innan sinna vébanda
fjölda deilda í mörgum löndum
með tugum félagsmanna. Margir
aðilar hafi staðið að samningu
skýrslanna og þær verið gerðar í
nafni SÍA. Síðan segir: „Er ekki
annað vitað en að samyrkjurekst-
ur hafi verið á þessum félagsskap
þannig að fráleitt má telja að
einn meðlimur eigi rétt til þess
öðru fremur að ráðstafa því, sem
hann hefur lagt til í skýrslugerð
samtakanna og annan erindrekst-
ur. Gegnir það nokkurri furðu,
að einstakir félagsmenn skuli nú
hafa uppi kröfur um höfundarétt
og útgáfurétt að því sem þeir
hafa þannig tileinkað hinni sam-
eiginlegu hugsjón. Um fjárhæð
þeirrar kröfu sem SÍA-menn
gera segir lögmaðurinn að tæp-
ast sé ástæða til að ræða hana og
bætir við: „Mælt er að í bréfum
þessum felist nokkur lærdómur,
Framhald á bls. 23.
IR og KR eru sem stdr-
veldi í körfuboltanum
Guðmundur Þorsteinsson ÍR (hvítklæddur) í baráttu við tvo
Ármenninga. Guðmundur er hæstur islenzkra körfuknattleiks-
manna.
nógu þétt. Lokatölur leiksins
urðu 106—52.
Á ÍR — Ármann.
Eftir fremur jafna byrjun,
og oft dágóðan leik tókst ÍR að
ná algerum undirtökum í bar-
áttunni við Ármann. Ármann
ógnaði þó ÍR-liðinu mest á
Reykjavíkurmótinu í fyrra. Nú
vantaði að vísu Birgi Birgis í
Ármannsliðið og munaði það
miklu, en er á leið höfðu ÍR-ing-
ar öil völd í leiknum og unnu
75—43. ÍR-ingarnir virðast eins
liprir, fjoíbrögðóttir, snarpir og
öruggir og á fyrri árum, heil-
steypt lið sem ekki verður auð-
unnið af hérlendum liðum.
í öðrum leikjum urðu úrslit
þessi.
3. flokkur.
KR — ÍR-b-lið 21—15.
Ármann A-lið — KFR 31—25.
ÍR — KR 46—8.
2. flokkur.
ÍR — Ármann 80—17.
leikjunum. KR vann KFR á
laugardag með 106 gegn 59 og
á sunnudag vann ÍR lið Ár-
manns með 75-43.
★ Tvö „stórveldi".
Það virðist því svo, ef dæma
má eftir þessum fyrstu leikj-
um að um tvö „stórveldi" sé
að ræða í körfuknattleik. —
ÍR-ingar sem eru Reykjavík-
ur- og íslandsmeistarar virð-
ast eins góðir og nokkru sinni
og þar bætast við ungir og
mjög efnilegir leikmenn. KR-
liðið virðist í stöðugri fram-
för og var í þessum leik eink-
ar skemmtileg samvinna
Gunnars Gunnarssonar, sem
skoraði 42 stig sem mun eins-
dæmi hér, og Kolbeins Páls-
sonar. Þeir tveir ásamt öðrum
liðsmönnum er e.t.v. að vinna
KR-liðinu þann styrk sem
nægir til að rifta áralöngum
„konungdómi" ÍR í greininni.
* KR — KFR.
Leikur KR og KFR var sér-
staklega skemmtilegur fyrir góða
leikkafla þeirra Gunnars og
Kolbeins í KR. Einsdæmi er að
skora 42 stig en það gerði Gunn-
ar. En Kolbeinn átti engu síð-
ur góðan leik og þeir tveir báru
af á vellinum í leiknum. Hins
er að gæta að KFR er á fall-
anda fæti sem stendur, teflir
fram í skörðin sem myndast
hafa gömlum stjörnum sem hafa
misjafnlega litla æfingu að baki
og ekki snerpu á við unglinga
þegar þeir eru lítt æfðir. En lið-
ið skoraði samt 59 stig hjá KR
og sýnir það að vörn KR er ekki
Gunnar Gunnarsson KR skorabi 42
stig i leiknum gegn KFR — einsdæmi
KÖRFUKNATTLEIKSMÓT
Reykjavíkur hófst á laugar-
dag og annað leikkvöld var á
sunnudagskvöld. Fóru fram
tveir leikir í meistaraflokki
karla og auk þess leikir í
yngri flokkunum. í flestum
leikjanna náði annað liðið al-
gerum yfirburðum og svo var
t.d. í báðum meistaraflokks-
Gunnar Gunnarsson (no 9) leikur með hraða en fullri athygli
upp völlinn. Hann skoraði 42 stig fyrir KR — hæsta skor í ein-
um leik hér á landi. Ljósm.: Sveinn Þormóðsson.
Amerís
k Deliciores
Kristjánsson & Co.. H.r.