Morgunblaðið - 28.11.1963, Page 14
14
MORCUNBLAÐÍD
Flmmtudagur 28. nóv. 1963
GOOD^EAR
SHIÓDE
520 x 15
560 x 15
600 x 15
P. STEFÁNSSON HF.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240.
,t,
Móðir mín,
ÓLÖF ÞORKELSDÓTTIR
andaðist að heimili mínu, Kambsvegi 24, þriðjudag-
inn 26. þ. m. Hallfríður Tómasdóttir.
Konan mín
GUÐRÚN PÁLMADÓTTIR
sem andaðist 21. þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstud. 29. þ.m. kl. 10,30.
Athöfninni verður útvarpað.
Sveinn Halldórsson.
Innilegt þakklæti til allra sem auðsýndu samúð og
hluttekningu við andlát og jarðarför mannsins míns
GUÐMUNDAR ÁGÚSTAR GUÐMUNDSSONAR
Klöpp, Grindavík.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Andrésdóttir.
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og jarðarför mannsins míns,
föður, tengdaföður, stjúpföður og afa
ÁRNA MAGNÚSSONAR
frá Nýja-bæ.
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför konu minnar og móður
SIGRÍÐAR SVÖVU ÁRNADÓTTUR
Þorkell Ingvarsson, Árni Þorkelsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför
SIGURJÓNS GUÐMUNDAR SIGURÐSSONAR
frá Húsavík.
Elísabet Guðmundsdóttir,
Hjörtur Bjarnason.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu í veik-
indum og við andlát
SIGRÍÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Fáskrúðsfirði.
Sérstaklega þökkum við Fáskrúðsfirðingum fyrir
trausta og ógleymanlega vináttu við þau hjón, til
margra tuga ára.
Vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og jarðarför eiginmanns míns og föður okkar
JÓNS ÞÓRARINS TÓMASSONAR
frá Nýhöfn, Eyrarbakka.
Guðríður Guðjónsdóttir og böm.
Þökkum hjartanlega öllum fjær og nær fyrir auð-
sýnda samúð og vinsemd við andlát og jarðarför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
STEFÁNS VAGNSSONAR
frá Hjaltastöðum.
Sérstaklega þökkum við Kaupfélagi Skagfirðinga
fyrir auðsýnda virðingu og vinsemd við útförina.
Helga Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnaböm.
— Guðrún
Framh. af bls. 8
þakkir hinna mörgu, er notið
'hafa og öll önnur líknarstörf,
er nefndin hefur með höndum.
Við samstarfskonur hennar í
nefndinni þökkum handleiðslu
og samstarf og munum aldrei
gleyma hinum fallna foringja. —
Persónulega hef ég í gegnum 25
ára starf með vinkonu minni
svo mikið og margt að þakka, að
það verður aldrei talið. Bið ég
því góðan guð sem öllu ræður
og allt sér að launa þér á þann
hátt, er bezt hentár. Ég sé þig í
anda á hinni gulinu strönd, al-
sæla með ástvininum við hlið
þér, íturvaxinn og bjartan yfir-
litum.
Við í Mæðrastyrksnefndinni
hjáipumst við að halda merkinu
hátt. Megi máttur kærleikans
styrkja okkur og leiðbeina til
þess.
Guðs friður fylgi þér og hafðu
enn einu sinni þökk fyrir allt og
allt.
Jónina Guðmundsdóttir
form. Mæðrastyrksnefndar.
FRÚ Guðrún Pétursdóttir, fyrrv.
formaður Kvenfélagasambands
íslands, er í dag kvödd hinstu
kveðju, og hlýhugur þeirra
kvenna, sem hún starfaði með í
félagssamtökum víðs vegar um
landið, fylgir henni yfir til fyrir-
heitna landsins.
Þegar Kvenfélagasamband ís-
lands var stofnað árið 1930, hafði
frú Guðrún lagt svo drjúgan
skerf til félagsmála kvenna að
hún var sjálfsögð í stjóm þeirra
samtaka. Árið 1947 var hún kjör-
in formaður K. í. og hélt því
starfi til ársins 1959 er hún á
landsþingi baðst eindregið und-
an endurkosningu, þá áttræð að
aldri. Frú Guðrún var frábær
stjórnandi, sem allir, er nokkuð
þekktu til, virtu og dáðu. Mál
sitt flutti hún af sérstakri festu
og djörfung, hver sem í hlut átti,
en um leið af einlægni og sann-
girni. Undirferli, rógur og tvö-
feldni var ekki til í hennar sál.
Okkur sambandsformönnum um
land allt, var hún ávallt hinn
trausti leiðbeinandi í félagsmál-
um og sannur vinur. Eitt af mestu
áhugamálum hennar var hús-
mæðrafræðslan og heill og hag-
ur íslenzkrá heimila, heimilanna,
sem eru og verða ávallt hornstein
ar þjóðfélagsins.
Sem formaður Kvenfélagasam-
bands íslands var hún einnig í
stjórn Húsmæðrasambands Norð
urlanda og sat þing þess bæði í
Noregi og Danmörku. Þar mátti
segja að frú Guðrún „kom og sá
og sigraði“, því að hún bar svo
frábæran persónuleika í sínum
fagra íslenzka búningi, að hún
var sem drottning, hvar sem hún
fór.
Við konur getum bezt heiðrað
minningu hennar með því að
vinna af alhug að þeim málum
sem henni voru kærust.
Kvenfélagasamband íslands og
kvenfélög víðs vegar um landið,
þakka henni ómetanlegt starf í
þágu lands og þjóðar, og út til
stranda og inn til dala mun minn
ing hennar lifa í þakklátum huga
íslenzkra húsmæðra.
Börnum hennar, tengdabörn-
um og öðrum ættingjum votta ég
innilega samúð.
Helga Magnúsdóttir.
Kveðjiaorð
frá Sjálfstœðis-
kvennafélaginu Hvöt
MEÐ hvarfi Guðrúnar Péturs-
dóttur úr hópi okkar er brost-
inn sterkur hlekkur. Hún var
ein af stofnendum Sjálfstæðis-
kvennafélagsins Hvatar 1937,
átti sæti í stjórn félagsins um
margra ára hil og gegndi for-
mennsku um skeið. Kjörin var
hún heiðursfélagi Hvatar. — Frá
því í æsku átti hún mörg
hugðarefni á sviði þjóðfélags-
mála. Voru henni efst í liuga
sjálfstæðismál, réttindamál
kvenna og velferðarmál heimila
vann hún með óbilandi dugn-
aði og kjarki, jafnframt því, sem
hún stóð fyrir myndarlegu heim
ili, studdi umsvifamikinn mann
og ól upp 7 mannkostabörn.
Hún var heil og sterk í bar-
attumálum. Hún var hörð og
traust í örðugleikum. Hún naut
þess að sjá glæsilegan árangur
lifsstarfs síns. Hún sá sín hug-
stæðustu mál leidd fram til sig-
urs hvert af öðru.
Á efri árum í langvinnum
veikindum naut hún ástar og
•“nhyggju barna og tengdabarna.
hún var hamingjukona.
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
vottar ástvinum hennar inni-
Iega samúð og minnist Guðrúnar
Pétursdóttur með þakklæti, —
virðingu og söknuðL
Skípoð í Vetr-
orhjdlpina
BORGARSTJÓRI skýrði frá þvl
á borgarráðsfundi sl. föstudag að
eftirtaldir menn heifðu verið skip
aðiir í forstöðoinefnd Vetrarthjálp-
arinnar: Skúli Tómasson, yfir-
framfærslufulltrúi, Sr. óekar J.
Þorláksson og Kristján Þorvarðs-
son, læknir. Framkvæmdastjóri
nefndarinnair var skipaður Magn-
ús Þorsteinsson.
Tökum að okkur
allskonar prentun
Hagprenf^
Bergþórugötu 3 — Síml 2 16 50
HINIR VINSÆLU
SPARIBAUKAR
með. talnalás
eru komnir aftur og verða
seldir viðskiptamönnum
bankans, nýjum sem eltlri.
Síðasta sending seldist upp
á nokkrum dögum.
Tilvalin jólagjöf
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
Austurstræti 5, Laugavegi 3, Lauga vegi 114, Vesturgötu 52, Reykjavík.
AKIJREYRI - BLÖIMDUÓSI - EGILSSTÖDUM