Morgunblaðið - 08.12.1963, Blaðsíða 13
Sunnudagur 8. des. 1963
MORGUHBLAÐID
13
Fræðsloróði
gefnar bækur
til litasfdn-
skoðunor
Á fundi fræðsluráðs miðviku-
daginn 23. október 1963, afhenti
Úlfar Þórðarson, augnlæknir,
að gjöf 10 bækur, sem sérstak-
lega eru gerðar til þess að nota
við litsjónskoðun.
Skólastjórum barnaskólanna
hefur verið afhent eitt eintak
hverjuim, sem eign skólanna og
til afnota fyrir skólalækni.
Fræðsluróð telur rétt, að ár-
lega ver >i framkvæmd litasjón-
skoðun á nemendum í 12 ára
deildum skólanna.
Er skólunum mikill fengur að
þessari myndarlegu gjöf.
(Frá Fræðsluskrifstofu Reyk-
javíkur).
Nátturufræði
f yrir barnaskóla
NÝLEGA hefur Ríkisútgáfa náms
bóka gefið út Náttúrufræði fyrir
barnaskóla. Höfundar eru tveir,
Geir Gígja hefur skrifað tvo
kafla um grasafræði annan fyrir
10 ára böcn, en hinn fyrir 11
éra börn. Annað efni bókarinn-
ar hefur Pálmi Jósefsson samið.
Bókin hetfst á kafla úr heilsu-
fræði, sem er ætlaður 10 ára
börnum, en meginefni bókarinnar
er dýrafræði, sem skipt er í
fjóra aðalkaifla: íslenzk dýr I. og
II., Erlend dýr og Hryggleys-
ingjar. í bókinni eru 16 mynd-
eíður í litum auk mjöig margra
evarthvítra skýringamynda.
Litsíður teiknuðu: Bjarni Jóns-
son, jurtir, Halldór Pétursson, úr
heilsufræði og íslenak og erlend
dýr, Jörundur Pálsson fislra o. fl.
sjávardýr, Þorvaldur Ágústsson
tók litljósmynd af eggjum fugla.
Höskuldur Björnsson gerði
fimm svarthvítar teikningar, en
aðrar gerði Bjarni Jónsson og
einnig káputeikningu.
Bókin er 106 bls. litmynda
arkar.
Litbrá hf. prentaði litmyndir,
en að öðru leyti annaðist Al-
þýðuprentsmiðjan prentun bók-
arinnar.
Sparitjáreigend ur
Avaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. Uppl. kl. 11-12
é h. og 8-9 e. h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3A.
Sími 15385 og 22714.
Skytla úr 100% cotton
Eykur vellíöan yöar
• Hlý í kultla
• Svöl i hita
• Gulnar ekkí
Snertingin við hörundið hægileg
Auk þess fer straujuö skyrta betur
ug er því hæfari, sem spariskyrta.
2274 ferðuðust með
Ferðafélaginu í ár
FERÐAFÉLAG íslands hélt sína
21. svokölluðu „sviðamessu" í
Skíðaskálanum nýlega, en
það er nokkurs konar lokaupp-
gjör á sumarferðum félagsins, þar
sem stjórn og ferðanefnd hitta
blaðamenn og ýmsa aðra gesti og
skýra m.a. frá því sem áunnizt
hefur á árinu. Sigurður Jóhanns-
son, forseti félagsins, bauð gesti
veikomna og gaf síðan fram-
kvæmdastjóra, Einari Guðjohn-
sen, orðið, en hann skýrði frá
ferðum sumarsins.
Heldur fleiri ferðamenn ferð-
uðust á vegum Ferðafélagsins sl.
sumar en árið áður. Farnar voru
87 ferðir með 2274 ferðamenn,
sem er liðlega 200 fleira en í
fyrra. Þar í eru taldar skógrækt-
arferðir undir stjórn Jóhannesar
Kolbeinssonar, þar sem gróður-
settar voru 6000 trjáplöntur í
Heiðmörk. Og einnig meðtalin
skíðanámskeið í Kerlingarfjöll-
um, sem 186 þátttakendur voru í.
í sumar keypti Ferðafélagið
skála af Vegagerðinni og flutti
hann að norðan á Hveravelli. Og
var hann notaður til íbúðar fyrir
umsjónarmann, sem í sumar
dvaldi á Hveravöllum og stund-
aði jafnframt veðurathuganir fyr
ir Veðurstofuna, gróðurrannsókn-
ir fyrir Atvinnudeildina og olíu-
sölu. Þá var í sumar unnið að
breytingu á Skagfjörðsskála í
Þórsmörk, kvistur stækkaður og
skálinn málaður. Dýnur í skálum
félagsins voru einnig endurnýjað-
ar. Á Hveravöllum og í Þórs-
mörk voru í sumar hafðar tal-
stöðvar. Sendistöðin í Þórsmörk
reyndist ekki mjög vel vegna
staðsetningar markarinnar inn á
milli hárra fjalla, en reynt verð-
ur að bæta úr því með hærri
stöngum. Þá hefur eins og áður
verið reynt að lagfæra vegar-
spotta, t.d. inn með Bláfjöllunum
að vestanverðu og sagði Einar
Guðjohnsen að nú vanti aðeins
herzlumuninn til að fært sé vest-
an með Bláfjöllunum öllum.
íslandskortin í 10 þúsund
eintaka upplagi
Á árinu kom út ný útgáfa af fs-
landskortum Ferðafélagsins í 10
þúsund eintaka upplagi. Ágúst
Böðvarsson sér um kortin fyrir
félagið.
Þá skýrði Valdemar örnólfsson
frá skíðanámskeiðunum, sem
hann og tveir aðrir skíðakennar-
ar hafa haft í Kerlingarfjöllum
á végum Ferðafélagsins sl. 3 ár.
Hafa þau gefið svo góða raun, að
fremur hefur þurft að neita fólki
um þátttöku en hvetja það til að
koma. Kvaðst Valdemar hafa þá
trú að þarna yrði framtíðarskiða-
land fslendinga, svo Lárus Otte-
sen, fyrrv. framkvæmdastjóri, og
forráðamenn Ferðafélagsins
þyrftu ekki að sjá eftir góðri að-
stoð við að koma þeim af stað.
Þá drap hann á þá erfiðleika sem
sköpuðust af því að meðan skál-
inn í Kerlingarfjöllum væri full-
setinn skíðafólki, yrðu einstakir
meðlimir Ferðafélagsins óánægð-
ir yfir að geta ekki komizt þar að
ef þeir eru á ferðinni. Þessvegna
væri nú í ráði að reisa annan
skála fyrir skíðafólk og væri það
eðlileg þróun.
Jón Eyþórsson, ritstjóri Árbók-
anna, skýrði frá næstu Árbókum,
og er sagt frá því í annarri frétt.
Að lokum tóku til máls þeir
Hallgrímur Jónasson, kennari,
Hákon Bjarnason, skógræktar-
stjóri, og Andrés Kristjánsson, rit
stjóri. Þökkuðu þeir Ferðafélag-
inu og komu með ábendingar,
sem mættu verða til bóta í starf-
semi þess.
Landlega
Akranesi, 7. des.
HÉR er landlega hjá síldarbát-
unum í dag. Allir í höfn. f nótt
gerði hávaðabrælu vestur i
Kolluál, einmitt þegar síldin
var að hækka sig í sjónum,
komin upp á 24 faðma dýpi og
þótti mörgum sjómarLninum súrt
í broti að þurfa að hverfa frá
við svo búið.
Oddur.
GARÐAR GÍSLASON HF
11500 BYGGINGAVÓRUR
N Y T T
„Balamundi“
plastgólf-
dúkur með FILT- undir-
lagi.
HVERFISGATA 4-6