Morgunblaðið - 08.12.1963, Blaðsíða 16
16
MORGUN B LAÐIÐ
Sunnudagur 8. des. 1963
Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arm Garðar Kristinsson.
Otbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: AðaJstræti 6.
Auglýsingar og afgreíðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 80.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 4.00 eintakiö.
ALVÖRUSTUND
ildrei hefur íslenzku þjóð-
inni vegnað betur en á
undanförnum árum. Lífskjör
hafa batnað og tekjur vaxið
samhliða því sem þjóðin hef-
ur treyst aðstöðu sína út á
við, safnað verulegum gjald-
eyrisvarasjóðum og byggt
upp fyrir framtíðina. Þess
vegna hefði mátt ætla að
bjartsýni ríkti í hugum ís-
lendinga í dag.
En því miður eru nú blikur
á lofti, ekki vegna slæms ár-
ferðis eða utanaðkomandi erf-
iðleika, heldur vegna heima-
tilbúinna deilna.
Þetta er svo sem ekkert
nýtt. í tvo áratugi hafa ís-
lendingar búið við óskorað
frelsi og margt hefur á þeim
tíma áunnizt, en að einu leyti
hefur okkur farnazt illa. Við
höfum ekki megnað að koma
heilbrigðri skipan á launamál,
og sífelldar deilur hafa verið
um skiptingu þjóðarteknanna,
sem leitt hafa til jafnvægis-
leysis og vinnustöðvana.
Þetta hefur valdið því, að
framfarasókn þjóðarinnar hef
ur verið hægari en ella, og
þar af leiðandi hafa lífskjör
állra batnað minna en annars
hefði verið. Ef til vill má þó
segja að það sé ekki aðalatrið-
ið, því að það skeri ekki úr um
framtíð þjóðarinnar, hvort
lífskjörin séu hundraðshlut-
anum betri eða lakari. Hitt
varði meiru að sá skilningur
og þroski nái að ríkja, sem
tryggi heilbrigt lýðræðis-
skipulag.
En einmitt í launamálunum
hefur mjög á þetta skort. Hin-
ar ýmsu þjóðfélagsstéttir
hafa barizt óvægilega, og
reynt hefur verið að réttlæta
þrengstu eiginhagsmunasjón-
armið með faguryrðum eins
og stéttvísi. Undir slíkum víg-
orðum hefur hverjum ein-
stakling þótt sjálfsagt að berj
ast fyrir hag sinnar stéttar,
án tillits til hags annarra.
Það er þetta, sem menn
þurfa nú að leiða hugann að
og skoða aðstöðuna öfgalaust.
Og þá munu líka nást sættir
og heilbrigt samkomulag í
þeim vinnudeilum, sem nú
standa yfir.
. KJÖR HINNA
LÆGST
LAUNUÐU
A ðferðir þær, sem beitt hef-
ur verið í kjarabarátt-
unni hafa því miður leitt til
þess, að kjör hinna lægst laun
uðu hafa ekki batnað sem
skyldi. V erkf allshótanir og
óbilgirni hefur orðið þess vald
andi, að láglaunafólk hefur
fremur dregizt aftur úr en
hið gagnstæða.
Frekar ætti ekki að þurfa
vitnanna við um það, að verk
fallabarátta, þar sem knúin
eru fram hærri laun en líkur
eru til að efnahagslífið geti
staðið undir, leiðir ekki til
þess að kjör láglaunafólks
batni, heldur notfæra aðrir
starfshópar sér slíkt upplausn
arástand til að fá í sinn hlut
meiri skerf en áður. í því efni
er reynslan ólygnust.
Þetta hafa menn raunar
gert sér ljóst síðustu ár, og
þess vegna hefur Viðreisnar-
stjórnin gert ítrekaðar til-
raunir til að hafa áhrif í þá
átt, að kjör láglaunafólks
yrðu bætt, án þess, að það
yrði til þess að aðrir fengju
kauphækkanir. Á sl. vetri
tókst að fá samþykkta 5%
kauphækkun til láglauna-
manna, sem aðrir fengu ekki,
en vegna vinnudeilnanna,
sem hófust í sumar, raskað-
ist þetta á ný, láglaunamönn-
um í óhag. Sýnist sanngjarnt
að breyta þessu aftur, þannig
að verkamenn, verzlunar-
menn og annað láglaunafólk
fái nú meiri hækkanir en þeir,
sem betri kjör hafa.
KJARADÓMUR
¥ umræðunum um launa-
■*■ málin er nú mjög vitnað
til kjaradóms og þeirra hækk
ana, sem hann ákvað á laun-
um opinberra starfsmanna.
Er það út af fyrir sig ekki ó-
eðlilegt, en menn verða þó að
hafa eftirfarandi í huga:
Allir þingflokkar stóðu að
ákvörðuninni um þá skipan
kjaramála opinberra starfs-
manna, sem nú er. Óháður
dómstóll ákvað laun starfs-
manna ríkisins mun hærri
en ríkisstjórnin hafði viljað
fallast á í samningaviðræð-
um.
Opinberir starfsmenn krofð
ust miklu meiri mismununar
í launum en kjaradómur þó
féllst á. Þær kröfur studdu
stjórnarandstæðingar með
odd og egg og kommúnistar
töldu kjaradóm hafa gengið
alltof skammt. Hann hefði átt
að ákveða hæstu launin miklu
hærri en hann gerði.
Launahækkanir opinberra
starfsmanna voru í raun
réttri ekki eins miklar og í
fljótu bragði virðist, vegna
þess að ýmsir þeirra höfðu
margháttaðar aukagreiðslur
og uppbætur á laun, sem nú
Stúlkan á meðfylgjandi mynd
fannst látin 1 herbergi sínu í
Hollywood sl. laugardag. Hún
heitir Karyn Kupcinet, dóttir
hins þekkta blaðamanns í Chi-
cago Irv Kupcinet.
Karyn var aðeins 23 ára göm-
ul og var að fikra sig áfram á
leiklistarbrautinni. Hún kom
ekki alls fyrir löngu fram í
sjónvarpi með Jerry Lewis, og
margir spáði henni glæsilegri
framtíð.
Þegar stúlkan fannst, lá hún
nakin á sófa í stofu sinni, og
komust læknar að þeirri niður-
stöður að hún hefði verið látin
í 2—3 daga. Það voru nokkrir
vinir hennar sem fundu hana,
þegar þeir hugðust heimsækja
hana. Enn hefur ekkert komið
fram opinberlega, sem gefur til
kynna, með hvaða hætti lát
hennar bar að.
Danska prinsessan Anne-
Marie var ekki svo lítið undr-
andi, þegar unnusti hennar,
Konstantín krónprins af Grikk-
landi, skaut upp kollinum í
skóla þeim, sem hún stundar nú
nám í í Montreux í Sviss. Hún
fékk frí í skólanum í tilefni
er reynt að afnema sem mest.
En þrátt fyrir allt þetta er
það rétt, að ráðstafanir verð-
ur að gera til að jafna kjörin
í þjóðfélaginu, vegna þess að
láglaunafólk ber ekki nægi-
lega mikið úr býtum. Ríkis-
stjórnin hefur lýst sig reiðu-
búna til að gera ráðstafanir
í þessa átt, sem verulega mun
ar um.
Fráleitt væri, ef launþega-
samtökin höfnuðu þessu til-
boði og stefndu kjaramálun-
um enn einu sinni út í algera
óvissu. Þess vegna verður að
gera ráð fyrir því, að sam-
komulag náist í vinnudeilun-
um og vinnufriður ríki.
heimsóknarinnar og fóru hjóna-
leysin í gönguferð í góða veðr-
inu, og er meðfylgjandi mynd
tekin við það tækifæri. — Gift-
ingardagur þeirra hefur ekki
verið ákveðinn enn, og virðast
aðstandendur þeirra ekki vera á
eitt sáttir í þeim efnum, en opin
berlega hefur verið gefin út til-
kynning þess efnis, að brúðkaup
ið fari ekki fram fyrr en eftir
31. ágúst n.k., en þann dag verð
ur prinsessan 18 ára gömul.
Sir Alec Douglas-Home, for-
sætisráðherra Bretlands, fór á
veiðar um síðustu helgi, ásamt
nokkrum kunningjum. Við það
tækifæri var meðfylgjandi
mynd tekin. Sir Alec hefur
plástrað kinn sína ef svo kynni
að fara að byssan slægi til baka.
Þeir félagarnir kornu ekki tóm-
hentir til baka, veiðifengurinn
var: 362 fasanar, 79 akurhænur
og 20 hérar. Veiðarnar áttu sér
stað í Scopwick, Lincolnshire.
í fréttunum
Hér sjáum við tvær fegurð-
ardrottningar á dansleik í
London. Til hægri er Carol
Crawford frá Jamaica, sem
hlaut „Miss World“ titilinn fyrir
skömmu. Hún dansar með tígu-
legri ró, eins og stöðu hennar
sæmir. En á bak við hana tvist-
ar „Miss World“ 1962, Rosemary
Frankland frá London, af miklu
fjöri við ónafngreindap berra.
★