Morgunblaðið - 24.12.1963, Page 6
6
MORCU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 24. des. 1963
Sflíltvarpiö
Jóladagskráin
WlIf>JUDAGUR 24. DESEMBER
(Aðfangadagur jóla).
7jOO Morgunútvarp. (Veðurfregnir —
Tónleikar — 7:30 Fréttir. — Tón
leikar — 7:50 Morgunleikfimi —
8:00 Bæn. — Veðurfregnir. —
Tónleikar — 8:30 Fréttir. — Tón
leikar. — 9:00 Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna —
9:10 Veðurfregnir. — 9:20 Tón-
leikar. — 10:10 Fréttir).
12300 Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12:25 Fréttir og tilkynn.).
12:45 Jólakveðjur til sjómanna á
hafi úti.
14:40 „Við, sem heima sitjum“: Vig-
dís Jónsdóttir skólastjóri talar
um jólaannir.
15300 Fréttir.
Stund fyrir börnin: Barnakórar
syngja, og Gísli Halldórsson leS
ævintýrið ,,Grenitréð“ eftir H.
C. Andersen.
14:00 Veðurfregnir.
Síðdegistónleikar: „Lofsöngur á
fæðingarhátíð frelsarans" eftir
Respighi (Einsöngvarar, Roger-
Wagner-kórinn og Filharmoníu
sveitin í Los Angeles flytja: Al-
fred Wallenstein stjórnar).
1638 Fréttir. — (Hlé).
10:00 Aftansöngur í Dómkirkjunni
(Prestur: Séra Þorsteinn Jó
hannesson fyrrum prófastur í
Vatnsfirði.
Organleikari: Dr. Páll ísólfsson
10:00 Tónleikar:
*) Tríósónata í E-dúr eftir
Georg Benda (David og lgor
Oistrakh leika á fiðlu og
Vladimir Jampolskij á píanó).
b) Svend Saaby-kórinn syngur
jólasálma frá ýmsum löndum.
e) Konsert í C-dúr fyrir flautu
hörpu og hljómsveit (K299) eftir
Mozart (Karlheinz Zöller, Nic-
artor Zabaleta og Fílharmoníu-
aveit Berlínar leika; Ernst Márz
endorfer stj.).
20:00 Orgelleikur og einsöngur 1 Dóm
kirkjunni. Dr. Páll ísólfsson
leikur á orgel, Svala Nielsen og
Guðmundur Jónsson syngja.
20^0 Jólahugvekja (Séra Eiríkur J.
Eiríksson).
20:45 Orgelleikur og einsöngur í Dóm
kirkjunni; — framh.
21:45 „Nóttin var sú ágæt ein“, lestur
úr íslenzkum helgikvæðum með
hljómlist.
22)00 Veðurfregnir.
Kvöldtónleikar.
a) „Nóttin helga“, jólaóratóría
eftir Hilding Rosenberg, við
ljóð eftir Hjalmar Gullberg
(Lill-Kersti Torlind-Stripple,
Judith Garellick, Lars Billen-
gren, Arne Tyrén, Torsten For-
slöw, Helga Nilson og Carl-
Eric Hellström syngja með kór
og hljómsveit sænska útvarps-
ins; Eric Ericson stjórnar).
b) Konsert 1 E-dúr fyrir fiðlu
og strengjasveit eftir Bach (Fel
ix Ayo og I Musici leika).
23 M Náttsöngur í Dómkirkjunni (Bisk
up íslands, herra Sigurbjörn
Einarsson, messar. Organleik-
ari: Dr. Páll ísólfsson).
23 £& Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR 25. DES.
(Jóladagur)
10:45 Klukknahringing. — Blásara-
sexett leikur jólasálma.
11 M> Messa í Laugarneskirkju (Prest
ur: Séra Garðar Svavarsson.
Organleikari: Kristinn Ingvars-
son).
12:15 Hádegisútvarp.
12^)0 Jólakveðjur frá íslendingum er-
erlendis.
14M> Messa í Neskirkju (Prestur:
Séra Jón Thorarensen. Organ-
leikari: Jón ísleifsson).
15:1$ Miðdegistónleikar: — (16:00 Veð
urfregnir).
„Jólaóratóría" eftir Bach (Gunt-
hild Weber, Sieglinde Wagner,
Helmut Krebs, Heinz Rehfuss,
ótettukór Berlínar, Rias-kamm-
erkórinn og fílharmoníusveit
Berlínar flytja: Fritz Lehmann
stj).
17 M> Upplestur: Herdís Þorvaldsdóttir
og Páll Berþórsson lesa jóla-
kvæði.
1730 Barnatími (Anna Snorradóttir):
a) Lárus Pálsson leikari les
jólasögu og Kristín Anna I>ór-
arinsdóttir og Kristín Árna
dóttir syngja um brúðujól.
b) Við jólatréð:
Hljómsveit Magnúsar Péturs-
sonar leikur jólalög, séra Ólaf-
ur Skúlason ávarpar börnin,
telpur úr Melaskólanum syngja
undir stjórn Tryggva Tryggva-
sonar, börnin ganga kringum
jólatréð og syngja, jólasvein-
arnir Hurðaskellir og Stúfur
bróðir hans koma í heimsókn.
Kristín Anna Þórarinsdóttir og
Jón Múli Árnason sy ngja
jólavísur.
19:00 Jól í sjúkrahúsi (Tryggvi Gísla-
son).
19:30 Fréttir.
20:00 Strengleikar á jóladagskvöld:
I Solisti Veneti leika þrjú ítölsk
verk. Stjórnandi: Claudio Scim-
one (Hljóðr. í Þjóðleikhúsinu
22. f.m.).
a) Concerto grosso í e-moll op.
3 nr. 3 eftir Geminiani.
b) Concerto grosso í g-moll op.
6 nr. 8 eftir Corelli.
c) Sónata 1 D-dúr eftir Rossini.
20:30 í kirkjum Rómaborgar:
Björn Th. Björnsson listfræð-
ingur bregður upp svipmynd-
um úr nokkrum basilíkum Róm-
ar.
21:15 Kórsöngur: Liljukórinn syngur
andleg lög.
Söngstjóri: Jón Ásgeirsson.
21:35 Upplestur: „Flóttinn til Egypta-
lands“ eftir Selmu Lagerlöf
(Ólöf Nordal).
22:00 Veðurfregnir. — Kvöldtónleik-
ar:
a) „Helg eru jól“, hljómsveitar
svíta eftir Árna Björnsson (Sin-
fóníusveit íslands leikur; Páll
Pampichler Pálsson stjórnar).
b) Daniel Pollack píanóleikari
leikur í Austurbæjarbíói (Hljóð
ritað 28. f.m.).
1. Fantasía í C-dúr (Wanderer-
fantasían) eftir Schubert.
2. Ricercare og Tokkata eftir
Menotti.
3. Capriccio 1 fs-moll op. 76 nr.
1 eftir Brahms.
4. Intermezzo, í C-dúr op. 119
eftir Brahms.
5. Intermezzo í E-dúr op. 116
nr. 4 eftir Brahms.
6. Rapsódía í Es-dúr op. 119
eftir Brahms.
c) Óbókonsert í C-dúr eftir
Haydn (Kurt Kalmus og kamm-
erhljómsveitin í Múnchen leika
Hans Stadlmair stj.).
23:25 Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR 26. DES.
(Annar í jólum).
9:10 Veðurfregnir.
9:20 Morguntónleikar:
Óratórían „Samson" eftir Hánd-
el (Hans-Ulrich Mielsch, Gert-
raud Stoklassa, Ursula Zollen-
kopf, Lothar Ostenburg o.fl.
syngja með kór Jakobskirkj-
unnar í Göttingen; útvarpshljóm
sveitin í Hannover leikur. Stjórn
andi: Gunther Weissenborn).
11:00 Messa í Hallgrímskirkju (Prest-
ur: Séra Sigurjón Þ. Árnason.
Organleikari: Páll Halldórsson).
12:15 Hádegisútvarp.
13:00 Jólakveðjur frá íslendingum er
lendis.
'14:C5 Útvarpið býður börnunum í
Þjóðleikhúsið til þess að horfa
á „Kardemommubæinn4* eftir
Thorbjörn Egner. Þýðendur:
Hulda Valtýsdóttir og Kristján
frá Djúpalæk. Leikstjóri: Klem-
enz Jónsson. Hljómsveitarstjóri:
Carl Billich. Hijóðfæraleikarar
úr Sinfóníuhljómsveit íslands
leika. Leikendur: Róbert Arn-
finnsson, Anna Guðmundsdótt-
ir, Jón Aðils, Emilía Jónsdóttir,
Henny Hermannsdóttir, Þórarinn
Eldjárn, Kjartan Friðsteinsson,
Jón Sigurbjörnsson, Valdemar
Helgason, Lárus Ingólfsson, Þor
grímur Einarsson, Árni Tryggva
son, Jón Júlíusson, Rúrik Har-
aldsson, Ævar Kvaran, Baldvin
Halldórsson, Bessi Bjarnason,
Guðrún Guðmundsdóttir, Ólaf-
ur Magnússon o.fl.
15:45 Kaffitíminn: — (16:00 Veður-
fregnir).
a) Balalakhljómsveit leikur; Al-
esander Bochensky stj.
b) Havnar Hornorkestur —
Lúðrasveit Þórshafnar í Færeyj-
um leikur. Stjórnandi: Th.
Pauli Christiansen.
16:30 Léttir síðdegistónleikar:
a) Hljómsveit útvarpsins í Vín-
arborg leikur óperettulög; Bene
dict Silberman stj.
b) Paul Robeson syngur negra-
sálma: Lawrence Brown leikur
á píanó og syngur með.
c) Serenata fyrir strengjasveit
op. 48 eftir Tjaikovsky (FiLhar-
moníusveitin í ísrael leikur:
George Solti stj.).
17:30 „Við arineldinn.“ Ólöf Árna-
dóttir stjórnar leikjum og
skemmtunum fyrir börn og
fullorðna 1 heimahúsum.
18:20 Veðurfregnir.
18:30 Það gerðist um jólin: Bergsteinn
Jónsson og Ólafur Hannesson
menntaskólakennarar hafa safn-
að efni úr íslenzkum heimildar-
ritum. Lesnar með Bergsteini:
Guðrún Helgadóttir, Guðmundur
Arnlaugsson.
19:10 Tilkynningar.
19:30 Fréttir.
20:00 ,Heims um ból“: Elín Pálmadótt-
ir blaðamaður talar við íslend-
inga í sjö löndum í öllum heims
álfum, Alaska, Kaliforniu, Perú,
Nýja-Sjálandi, Ceylon, Ghana og
Tékkóslóvakíu.
20:40 Semjum óperu, — skemmtisýn-
ing í þremur þáttum fyrir ungt
fólk, með barnaóperunni „Litli
sótarinn. Tónlist eftir Benjamín
Britten. Texti eftir Eric Crozier.
Þýðandi: Tómas Guðmundsson.
— Ásgeir Beinteinsson, Þorkell
Sigurbjörnsson og Frank Her-
lufsen leika á píanó, en að öðru
leyti hljóðfæraleikarar úr Sin-
fóníuhljómsveit íslands. Hljóm-
sveitarstjóri: Proinnsías O’Du-
inn. Leikstjóri: Hildur. Kalman.
í hlutverkum fullorðinna:
Margrét Eggertsdóttir ....... Bagga
Guðmundur Jónsson ........... Surtur
Guðmundur Guðjónsson ........ Klunni
Þuríður Pálsdóttir .......... Rúna
Róbert Arnfinnsson flytur mál hljóm-
sveitarstjórans.
í hlutverkum barna:
Eygló Viktorsdóttir ............. Silja
Sesselja Halldórsdóttir ....... Tína
Ásgeir Ásgeirsson ............ Hörður
Sigurborg Billich ............ Soffa
Sigurður Jónsson ............. Glói
Ingólfur Jónsson .............. Nonni
Björg Sigurðardóttir ........ Bjartur
21:10 Veðurfregnir.
22:10 Danslög. Þar á meðal leikur
hljómsveit Björns R. Einarssonar. —
(24:00 Veðurfregnir).
02:00 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER
7:00 Morgunútvarp.
8:30 Fréttir.
9:00 Útdráttur úr forustugreinum
dagblaðanna.
9:20 Spjallað við bændur: Jóhannes
Eiríksson ráðunautur.
12:00 Hádegisútvarp.
13:15 Lesin dagskrá næstu viku.
13:25 „Við vinnuna.'4 Tónleikar.
14:40 „Við, sem heima sitjum."
Steindór Hjörleifsson les síðari
hluta sögunnar „Barnið í Betle-
hem“ eftir Selmu Lagerlöf, í
þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar.
15:00 Síðdegisútvarp.
18:00 Merkir erlendir samtíðarmenn:
Guðmundur M. Þorláksson talar
18:20 Veðurfregnir.
18:30 Þingfréttir.
18:50 Tilkynningar.
20:00 Lestur fornrita: Þorvalds þátt-
ur víðförla: síðari hluti (Helgl
Hjörvar).
20:30 „Marlboroujffh", þjóðvísan um
forföður Churchills, í tali og
tónum. Þýðandi: Árni Gunnara
son. Flytjendur: Kristín Anna
Þórarinsdóttir og Jón Múli Árna
son.
21:00 Útvarpssagan: „Brekkukotsann-
áll“ eftir Halldór Kiljan Lax-
ness, XVI. (Höfundur les).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 „Það er myrkrið", smásaga eft-
ir Arthur Farestveit. (Helga
Bachmann leikkona).
22:00 Næturhljómleikar:
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
íslands: Stjórnandi: Proinnsíaa
O’Duinn. Einleikari á fiðlu;
Ricardo Odnoposoff.
23:00 Dagskrárlok.
a) Divertimento fyrir strengja-
sveit eftir Bodley.
b) Fiðlukonsert nr. 1 í D-dúr
op. 19 eftir Prokofjeff.
Svör við
frétta-
getraun
1—3, 2—1, 3—2, 4—2, 5—3, 6—4,
7—3, 8—1, 9—2, 10—1, 11—1,
12—2, 13—1, 14—4, 15—1, 16—3,
17—3, 18—4, 19—1, 20—2, 21—1,
22—4, 23—2, 24—1, 25—4, 26—1,
27—3, 28—2, 29—, 30—2, 31—2,
32—4, 33—1, 34—1, 35—4, 36—1,
37—4, 38—1, 39—1, 40—2, 41—1,
42—2, 43—1, 44—3, 45—2, 46—3,
47—4, 48—4, 49—1, 50—3, 51—1,
52—2, 53—3.
Myndir: 1) John Smith, skip-
stjóri á Milwood, 2) Johnson, þá-
verandi varaforseti Bandaríkj-
anna, fer upp á girðinguna fyrir
neðan stjórnarráðið og ávarpar
mannfjölda. 3) Nelson Rockefell-
er og hin nýja eiginkona hans,
Margaretha. 4) Ekkja og börn
Tippits lögregluþjóns í Dallas,
þess, er Lee Oswald skaut nokkr-
um mínútum eftir morðið á
öðru sinnl um Charlie Chaplin. Kennedy.
• Mamma, af hverju . .?
Lítil stúlka, sem horfði frá
sér numin á jólasveinana í Vest-
urveri fyrir nokkrum dögum,
sneri sér allt í einu að mömmu
sem hélt á henni, og spurði:
„Mamma, af hverju vita jóla-
sveinarnir að jólin eru að
koma?“
En reyndin er sú, að það eru
ekki aðeins jólasveinarnir, sem
skynja nálægð jólanna. Það er
eins og allir finni það á sér,
að jólin eru að koma. Það má
sjá þau í svip fólksins, sem við
mætum á götunni, jafnvel í
göngulagi þess — já, öllu yfir-
bragði. Og það er ekkert, sem
jafnast á við þetta sérkennilega
andrúmsloft jólanna.
Að undanförnu hefur fólk
verið meira og minna upptekið
við jólaundirbúning — og ekki
dregur sú fyrirhöfn úr ánægj-
unni. En þeir, sem halda að jól-
in fáist í búðunum, — Þeir sem
halda, að varningur verzlan-
anna skapi jólin — þeir finna
það bezt hve gjafaflóð og íburð-
ur skapar í rauninni lítið af
jólunum. Og ef einhver bíður
eftir því, að það, sem keypt var
í búðum, flytji jólagleðina —
þá kemst hann að raun um, að
jólin verða ekki keypt hversu
mikið sem annars er verzlað
fyrir jólin.
• Að fara heim um jólin
Vissulega hjálpar góður mat-
ur og íburður til þess að gera
hátíðina frábrugðna hversdags-
leikanum. En jólagleðin er
sennilega sízt minni meðal fá-
tækra en efnaðra. Milljónir um
allan hinn kristna heim flýta
sér heim um jólin. Þúsundir ís-
lendinga hafa beðið í ofvæni
undanfarna daga eftir því að
verkföll leystust og samgöngu-
leiðir opnuðust svo að hægt
yrði að komast heim um jól-
in. Skólafólk og aðrir fara í
flugvélum, með skipum og bíl-
um milli bæja og út um sveitir
— allir á heimleið fyrir jól. ís-
lendingar koma alla leið frá
Ameríku — og frá fjarlægum
Evrópulöndum, — heim um jól-
in. Allur þessi skari leggur ekki
á sig fyrirhöfnina og eyðir ekki
fjármununum, sem til þarf,
vegna þess að ekki sé hægt að
opna jólaböggla eða borða góð-
an mat um jólin annars stað-
ar en heima. Nei, við leitum til
skyldmenna, okkar nánustu, til
þess að geta notið þeirra
strauma, sem tengja okkur —
notið þeirra einmitt um jólin.
Þá reyna allir, sem geta, að
njóta sameiginlega sálargleð-
innar, sem boðskapur jólanna
skapar með hverjum manni. Og
jafnvel þeir, sem hversdags eru
kallaðir durgar og pokar,
geisla af góðvild og löngun til
þess að fá að njóta fagnaðarins
með öðrum. Jólin eru sterkt að-
dráttarafl, þau opna hverja sál
og brjóta niður múrana, sem
aðskilja menn og þjóðir — í eig-
inlegri sem óeiginlegri merk-
ingu. Slíkt er fagnaðarerindið
— og jafnvel þeir, sem annars
afneita kristinni trú, sækjast
eftir samneyti við fólk í jóla-
gleði — hafi þeir á annað borð
kynnzt jólahaldinu.
• Það, sem við
kaupum ekki
Mikið er það nú annars gott
að hafa jólin einu sinni á hverju
ári. Þau þyrftu að vera miklu
oftar, jólaskapið þyrfti að vera
eiginlegra mannfólkinu í dag-
legum sam'skiptum einstaklinga
og þjóða. Auðvitað ættum vi3
alltaf að vera í jólaskapi. Menn
þreytast aldrei á að predika
slíkt. En mjög margir ætlast til
meira af náunganum í þeim
efnum en þeir eru sjálfir fúsir
til að miðla. Því fer oft sem fer.
En meðan við höfum jólin til
að miða að og jólaskapið til a5
miða við, þá erum við ekki illa
á vegi stödd, þegar allt kemur
til alls. Jólaskapið laðar fram
það bezta í hverjum einstakl-
ingi, það tengir ósýnilegum
böndum, það gefur fyrirheit.
Það er þetta, sem við kaupum
ekki í búðunum, — og það er
þetta, sem við erum öll að
sækja, þegar við flýtum okkur
heim fyrir jólin.
• Við kveikjum
á kertum
Fegurstu minningarnar frá
æskuárunum eru ekki ósjaldan
tengdar jólunum. Foreldrarnir
gera líka allt, sem þeir geta, til
þess að gera börnunum jólin
ánægjuleg og eftirminnileg. Við,
sem minnumst með hlýju jól-
anna í foreldrahúsum, viljum
gjarnan, að okkar börn geri hið
sama þegar þar að kemur — og
að þau læri að halda sínum börn
um jólin á sama hátt. Þá verður
margt öðru vísi en það er núna
— um þessi jól. Hvort skrautið
verður það sama, gjafirnar hlið
stæðar og maturinn álíka
skiptir okkur engu máli. En
það, sem við vitum, — og það,
sem skiptir máli, er, að áfram
munu jólin tengja sálir kynslóð
anna eins og hlekki í keðju. Það
er þetta, sem jólin gefa okkur.
Þau gefa okkur bæði fortíð og
framtíð — þau gefa okkur það,
sem bezt er og fegurst. Við finn-
um það, þegar við kveikjum á
kertinu í kvöld og óskum hevrt
öðru
Gleðilegra jóla!