Morgunblaðið - 09.01.1964, Page 1

Morgunblaðið - 09.01.1964, Page 1
24 slður 51. árgatigur 6. tbl. — Fimmtudagur 9. janúar 1964 Prentsmiðja Morgunblaðsins Takmark Bandaríkjanna: Fyrsta stórræða hins nýja Bandaríkjaforseta Washington, 8. jan. — (AP-NTB) — •je LYNDON B. Johnson, forseti Bandaríkjanna, flutti í gær áramótaávarp sitt til bandaríska þingsins um ástand og borfur í Bandaríkjunum. Sagði hann að lokatakmark Banda- ríkjanna væri heimur án styrjaldar, án haturs, heimur frið- ar og réttlætis um tíma og eilífð. „Við verðum að vera við- búnir því versta, og við verðum að leita þess bezta. Við verðum að vera nægilega öflugir til að vinna styrjöld «g nógu vitrir til að forðast styrjöld. — Við munum hvorki gera árásir, .né þola árásir. Við höfum ekki í hyggju að grafa neinn, og við höfum ekki í hyggju að iáta grafa okkur sjálfa.“ + Forsetinn sagði að stjórn hans vildi hér með lýsa yfir takmarkalausri styrjöld gegn atvinnuleysi og fátækt í Bandaríkjunum, en taka upp baráttu fyrir bættum atvinnu- skilyrðum, auknum skilyrðum til menntunar, bæftri heil- brigðislöggjöf, bættu húsnæði og bættum kjörum. Hann skoraði á þingið að samþykkja lög um skattalækkanir og um jafnrétti allra borgara landsins. „Við skulum láta það orð fara af þessu þingi að það hafi gert meira fyrir rétt- indi borgaranna en síðustu hundrað þing hafa gert samtals," sagði Johnson. Varðandi afvopnun sagði Johnson að Bandaríkin hyggðust leggja fram nýjar tillögur á næsta fundi afvopnunarráðstefn- unnar í Genf. Jafnframt sagði hann að birgðir af kjarnorku- vopnum í Bandaríkjunum yrðu takmarkaðar, úraníum- vinnsla minnkuð um 25%, fjórum verksmiðjum, er annast plútoníumvinnslu, lokað, og nokkrar herstöðvar lagðar nið- ur. Skoraði hann á Sovétríkin að fylgja fordæmi Banda- ríkjanna á þessu sviði. -je Þá sagði forsetinn að dregið yrði úr útgjöldum ríkisins. Væri í fjárlagafrumvarpi stjórnarinnar gert ráð fyrir 97,9 þúsund milljón dollara ríkisútgjöldum, og er það 500 milljón dollurum lægra en í síðustu áætlun Kennedy-stjórnarinnar. ,,Við skulum framkvæma fyrirætlanir og stefnuskrá Kenn- edys forseta“, sagði Johnson, „ekki vegna sorgar okkar né meðaumkvunar, heldur vegna þess að hann hafði á réttu f»ð standa.“ 1 ávarpi sími lagði Johnson fram stefnuisikriá í eftirfarandi 10 liðuim, sem miðar að því að skapa heim án styrjaldar: 1. Viðthalda ber þeim hernaðar- legu yfirburðum og öryggi, ®em náðst hafa. 2. Gera verður nýjar ráðstaf- aniir — m.a. með nýjum til- lögum í Genf — sem miða að því að koma á eftirliti með vígbúnaði, en lokatak- markið er algjör afvopnun. 3. Nota ber matvæli sem vopn í baráttunni fyrir friði. Hungraðar þjóðir um allan heim eiga að geta fengið mat væli keypt hjá Bandaríkjun- um, lánuð eða gefin, ef þær aðeins liéta vita um vandræði sín og fallast á skilyrði um dreifingu. 4. Bandaríkin verða að tryggja forustu sína á sviði geim- rannsókna, og miða að því að gera út leiðangur til tunglsins, helzt á næsta ára- tug — í samvinnu við önn- ur stórveldi ef mögulegt er, ein ef nauðsynlegt. 6. Auka verður utanríkisverzl- un Bandaríkjanna. „Við verð um að gera þá kröfu tii við- skiptalanda okkar, að, þau viðurkenni að við þurfum ekki aðeins að kaupa, held- ur einnig að selja“. 6. Skapa verður jafnvægi í greiðslum ríkisins til annarra landa og tryggja gullgengi dollarans. 7. Bandaríkin verða að stefna að bættri sambúð við hin frjálsu ríki Ameriku, og starfa náið með stjórn sam- taka Ameríkuríkja (O.A.S-). 8. Bandaríkin verða að vinna að því að efla getu frjálsra þjóða til að tryggja sjálf- stæði sitt og bæta lífskjör sin. 9. Efla ber samvinnuna við Atlantshafsbandalagið, Suð- austur Asíubandalagið og tryggja þau samtök. Sömu- leiðis að vinna að því að Sameinuðu þjóðirnar geti haft meiri áhrif til að trygigja frið í heiminum. STYRJALDAR Hafa sótt um fargialdalækkun FLEST, ef ekkl «11, IATA- flugfélög, sem fljúga á At- lantshafsleiðinni hafa þegar sótt um til viðkomandi ríkis- stjórna að fá að lækka flug- fargjöld frá 1. apríl n.k. Lækk unin nemur um 20%. 1 einkaskeyti frá Associated Press segir, að samkomulag á ráðstefnunni í Montreal hafi enn ekki tekizt um, hvort ný ju fargjöldin eigi að gilda í eitt eða tvö ár. í skeytinu segir og, að tals- maður SAS í New York hafi skýrt frá því, að SAS muni bjóða 15 dollara lægra far- gjald yfir vetrartimann en Loftleiðir gera nú. Talsmaður Pan American segir, að far- gjaldalækkunin komi öllum flugfélögum til góða vegna farþegaaukningar. ♦ Agnar Kofoed Hansen, flugmálastjóri, skýrði Morg- unblaðinu frá því í gær, að Pan American hafi sótt um far gjaldalækkun milli íslands og Bandaríkjanna. ♦ Einar Farestveit, umboðs- maður Pan American, skýrði blaðinu frá því, að fargjöld Pan American yrðu yfirleitt um 10% hærri en fargjöld Loftleiða eru nú, þrátt fyrir væntanlega fargjaldalækkun. 4 Loks skýrði Örn Johnson, forstjóri Flugfélags Islands, Morgunblaðinu frá því, að fulltrúar F.í. hefðu ekki sótt ráðstefnuna í Montreal og að fargjöld Pan Am. frá íslandi til Evrópu yrðu þau sömu og Flugfélagsins. Sjá nánari fréttir um þessi mál á blaðsíðu 2. 10. Bandaríkin verða að vinna að því í samvinnu við banda menn sína, að brúa bilið milli Austurs og Vesturs. „Við verðum að mæta hverri hættu með dirfsku — en við verðum að vera jafn djarfir í leit okkar að nýjum samn- ingum, sem geta aukig vonir allra án þess að ganga á rétt nokkurs. — Við getum barizt, tilneydd- ir, eins og við höfum barizt áð- ur. En við biðjum þess að við Framh. á bls. 23 Ekkja Oswalds við- urkennir sekt hans Dallas, Texas, 8. jan. (AP). FRÚ Marina Oswald, ekkja Lee Oswalds, sem sakaður var um morðið á Kennedy forseta í nóv- ember s.l., hefur viðurkennt sem I Kostar varnarliöiö hitaveitu til Keflavíkur og nágrennis? MORGUNBLAÐIÐ hefur frétt, að snemma á síðasta ári hafi varnarliðið beðið fyrirtækið Vermi s.f. að framkvæma rannsókn á því, hvort hagkvæmt mundi að hita byggingar með jarðhita. Ef fyrirtækið teldi að rannsókn lokinni, að svo væri, var það enn fremur beðið að segja álit sitt á því, hvort hagkvæmt yrði að tengja hitaveitu til Keflavíkurkaupstaðar og Njarðvíkna við hitaveitu, sem ef til vill yrði lögð til flugvallarins. Vermir s.f. vann að þessum athugunum á sl. ári, og um miðjan deserr.ber siðastliðinn skilaði fyrirtækið skýrslu um niðurstöður rannsókna sinna. Þær niðurstöður hafa ekki verið birtar enn. Ef úr því yrði, að varnar- liðið óskaði eftir því að leggja hitaveitu til Keflavíkurflug- vallar, og það yrði leyft, mætti ekki telja ólíklegt, að jarðhitasvæði á Reykjanesi yrðu virkjuð. Mundu íbúar í Keflavík og Njarðvíkum þá væntanlega njóta góðs af og • fengju hitaveitu fyrr en ella. staðreynd að maður hennar heit- inn hafi í rauninni framið morð ið. Ráðgjafi frúarinnar, James H. Martin, ræddi við fréttamenn í dag, og skýrði þá frá þessu. Sagði hann ennfremur að frú Oswald hefði ekki í hyggju að höfða skaðabótamál gegn borg- aryfirvöldunum í Dallas, ríkis- stjórn Bandaríkjanna, né Jack Ruby, manninum, sem myrti Oswald tveimur dögum eftir morðið á Kennedy. Bandaríska leyniþjónustan hefur undanfarið haldið vernd- arhendi sinni yfir frú Oswald, og verður þeirri gæzlu haldið áfram um óákveðinn tíma. Hins vegar sagði Martin áð „Marina er algjörlega frjáls ferða sinna, getur komið og farið eins og henni sýnist.“ Martin sagði að frú Oswald hafi sannfærzt um sök manns síns er hún sá gögn lögreglunn- ar í málinu. Það hefði auðveldað henni að viðurkenna sökina að maður hennar hafði tekið mikl- um breytingum eftir að þau fluttu til Bandaríkjanna frá So- vétríkjunum þar sem þau kynnt ust og giftust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.