Morgunblaðið - 09.01.1964, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.01.1964, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐID Fimmtudagur 9. jan. 1964 L En hinir 9 hafa samtals leikið í 91 landsleik LANDSLIÐ íslands í hand- knattleik, sem verja á heiður íslands í lokaátökum keppn- innar um heimsmeistaratitil í handknattleik hefur verið valið. Liðið fer til Tékkósló- vakíu þar sem 16 lönd keppa í úrslitakeppni um titilinn. — Keppnin stendur frá 6.—15. marz n.k. ísland hafnaði í 6. sæti í síð- ustu heimsmeistarakeppni sem haldin var í Þýzkalandi. Það er því mikið hlutverk sem eftirfarandi landsliði ís- lands er fengið er verja skal þann frækilega árangur er þá náðist. Landsliðið er þannig skipað: Hjalti Einarsson FH. Hann á 11 landsleiki að baki og hefur um árabil verið bezti markvörð- ur íslands. Guðmundur Gústafsson Þrótti, markvörður. Hann er nýliði í MOLAR Toni Sailer, „gúmmikarl inn“ austurríski, sem vann 3 gullverðlaun í alpagreinum vetrarleikanna í Cortina 1956, vinnur nú fyrir austurríska út varpið. Hann annaðist sína fyrstu lýsingu i gær er hann lýsti svigkeppni kvenna i Grindewald. Innsbruck. — Framkvæmda stjórn vetrarleikanna sagði í tilkynningu til blaða i gær, að vetrarleikarnir færu fram sam kvæmt útgefinni tímaskrá, þó ekkert einasta snjókorn félli fyrir setningu leikanna 29. janúar. En þrátt fyrir þessa bjartsýni framkvæmdastjórn- arinnar, eru ýms blöð svart- sýn. Brautir allar eru nú senn tilbúnar og verður fluttur i þær snjór og er sagt að allir íbúar nálægt keppnissvæðinu séu reiðubúnir til að aðstoða ef á þurfi að halda, svo leik arnir megi vel fram fara. BELGRAD, 8. jan. — Júgóslav neski hnefaleikarinn i bantam vigt Branislav Petritich, sem var hvað líklegastur allra Júgóslava til að hreppa verð- laun á Tokíóleikunum, hefur verið settur í keppnisbann af félagi sínu „Rauðu stjörn unni“, vegna þátttöku í götu- óeirðum í Belgrad. Petritich er júgóslavneskur meistari og silfurverðlaunahafi frá heims meistarakeppninni 1963. Hann var nýlega dæmdur fyrir að ráðast á konu á götu í Bel- grad. Liðu 15 dagar milli þess sem pilturinn hlaut dómana. Júgóslavneska hnefaleikasam- bandið hefur í hyggju að taka af honum keppnisleyfi. landsliði en hefur vakið athygli fyrir góða markvörzlu og oft verið í úrvalsliðum. Einar Sigurðsson FH einn reyndasti varnarleikmaður ís- lands. Hann hefur leikið 14 lands leiki. Ragnar Jónsson FH, eldsnögg- ur og snjall sóknarleikmaður og skytta góð. Hann hefur leikið 15 landsleiki. Hann verður fyrir- liði liðsins á leikvelli. Hörður Kristinsson Á er nýliði í landsliðinu. Hann hefur vakið sérstaka athygli að undanförnu ekki sízt fyrir vítaköst sín sem nær undantekningarlaust heppn- ast. Hann er stór og stæltur leik- maður. Gunnlaugur Hjálmarsson lR. Hann hefur 15 landsleiki að baki og margsinnis verið talinn bezti handknattleiksmaður landsins. í síðustu heimsmeistarakeppni var hann 3 markhæsti maður keppn- innar. Birgir Björnsson FH á 12 landsleiki að baki. Hann er óhemju dugmikill, sterkur og fylginn sér. Hefur oft verið fyrir liði landsliðsins. Guðjón Jónsson Fram á 2 landsleiki að baki. Hann hefur að undanförnu verið ein sterk- asta stoð" Framliðsins sem hefur forystu meðal ísl. handknatt- leiksliða. Hann er skytta góð en einnig afburða uppbyggjandi leiks. Ingólfur Óskarsson Fram á 2 landsleiki að baki. Hann er í fremstu röð meðal skotmanna, óvenjulega marksækinn og skot- fastur. Karl Jóhannsson KR á 13 landsleiki að baki. Hann er eld- ánöggur og liðlegur leikmaður, skotmaður góður. Sigurður Einarsson Fram er nýliði í landsliði. Hann er einn af beztu „línuleikmönnum" í ísl. handknattleik, snöggur og út- sjónarsamur. öm Hallsteinsson FH á 7 lands leiki að baki. Hann dugmikill leikmaður góður í vörn og sókn. Þjálfari liðsins er Karl Bene- diktsson en aðalfararstjóri í för- inni til Tékkóslóvakíu verður Ásbjörn Sigurjónsson form. HSÍ. Bandorísb stúlka kont öll- um d óvart UNG bandarísk stúlka Jean Saubert, vann yfirburðasigur í stórsvigskeppni kvenna i Grinde wald í Austurríki í gær. í keppn inni voru allar beztu svigkonur Mið-Evrópulanda og þykir sigur hinnar bandarísku stúlku mjög athyglisverður. Ferð hennar um brautina er sögð hafa verið stór kostleg. Hún varð 2 sek. á und- an þeirri næstu, Traud Hecker frá Austurríki og 2 sek. þar á eftir kom Goitschel Frakklandi sem sigraði í svigkeppninni á þriðjudag. Norðurlandastúlkurnar höfðu lítið að segja í þessari keppni. Norðmenn hrepptu 35. og 65. sæti, en meðal fjölda kvenna er var dæmdur úr keppninni voru 3 norskar stúlkur og sænsk. stúlka. Aldrei fleiri OL- keppendur en nú JAPANIR hafa snúið sér til Olympíunefnda allra landa og spurzt fyrir um hugsanlega þátt töku. Þegar hafa þeim borizt þátt tökutilkynningar 2500 keppenda frá 27 löndum. Eftir skoðana- könnunina telja Japanir að þátt- takendafjöldi verði ekki undir 5500, en það er nýtt met í fjölda keppenda. I Róm voru keppend- ur 5396 og höfðu aldrei verið jafnmargir. Bandaríkj amenn svöruðu fyrir- spurn Japana á þá leið, að 475 bandarískir íþróttamenn og kon ur yrðu keppendur eða leiðtog- ar. Þetta er 100 fleiri en Banda- ríkjamenn sendu til Rómar-leik- anna. Þá er búizt við 150 frá Ind landi, 110 frá Brazilíu, 66 frá Kenya, 50 frá Hong Kong og vit að er að Sovétríkin og A-Evrópu ríkin senda fjölmenna hópa. Norður-Rhodesía og Nepal taka í fyrsta skipti nú þátt í Olympíu leikum. ísJcnzkir Olympíukeppendur Þetta eru keppendur íslands á Olympíuleikunum — að einum undan skildum. — Frá vinstri talið: Valdimar Örnólfsson þjálfari, Árni Sigurðsson, ísafirði, Jóhann Vilbergsson, Siglufirði, Birgir Guðlaugsson, Siglufirði og Þórhallur Sveinsson, Siglufirði. Á myndina vantar Krist- in Benediktsson sem farinn var utan á undan. Þeir dveljast nú við æfingar í Austurríki. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.) Ovænt úrslit HIN óvæntu úrslit gerast nú mörg í 3. umferð ensku bikar- keppninnar. í kappleikjum er fram fóru í gærkvöld var Totten- ham — sem af yfirgnæfandi meirihluta manna hefur verið spáð sigri í bikarkeppninni, sleg- ið úr keppninni af Chelsea. 2—0 urðu úrslit leiksins og Chelsea fær Huddersfield sem næsta mót- herja og keppir á heimavelli sín- um. Gæfan var heldur ekki með 1, deildar liðinu Aston Villa. Það mætti Aldershot sem er í 9. sæti í 4. deild. Aldershot vann 2—1. Bolton sigraði 3—0 liðið Bath sem er skipað „hálf“-atvinnu- mönnum. Loks vann West Brom- wich Blackpool og mætir Arse- nal í 4. umferð. Marka- hátíð AUSTUR-ÞÝZKA Olympíu- liðið í knattspyrnu hélt mikla j „markahátíð“ í gær. Liðið keppti við úrvalslið í Ceylon | og fór leikurinn fram í j Colombo. Þjóðverjarnir unnu með 14—0. Mörkunum var jafnt skipt á báða hálfleiki. Þetta var fyrsti leikur Þjóðverja í i keppnisför þeirra um Ceylon. CASSIUS CLAY var af banda ríska hnefaleikatímaritinu „Ring Side“ kjörinn hnefaleik ari ársins 1963.Jafnframt var leikur hans við Doug Jones „kjörinn“ bezti kappleikur árs ins. Hér sjást þeir eigast við. Cassius Clay t.h. réttir hinum vel úti látið hægri handar högg svo að svitadroparnir þeytast af andliti Jones. — Þrír nýliðar í landsliðinu sem fer til heimsmeistarakeppninnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.