Morgunblaðið - 09.01.1964, Side 2
2
MORGUNBlAÐIÐ
Fimmtudagur 9. Jan. 1964
Julius Raab látinn
Frá hinum fjölmenna fundi trésmiða í Breiðfirðingabúð í gær.
Trésmiöir auglýsa taxta - vinnu-
veitendur mótmæla - ekkert unnið
Vín, 8. jan. (AP—NTB).
JtJLIUS Raab, fyrrverandi kanzl
ari Austurríkis, lézt í Vin í dag.
Hann var 72 ára. Hann hafði um
nokkurt skeið þjáðzt af lifrar-
sjúkdómi og sykursýki. Raab
lézt klukkan 6 í kvöld, en honum
hafði skömmu áður borizt
postulablessun Páls páfa VI.
Raab var fæddur í St. Pöten,
skammt frá Vín, 28. nóvember
1891, og var yfirmaður í austur-
riska hernum í fyrri heimsstyrj
öldinni. Að styrjöldinni lokinni
Julius Raab
sneri hann sér að stjórnmálum
og var fyrst kosinn á þing 1927.
Skömmu áður en Þjóðverjar inn
limuðu Austurríki árið 1938 var
Rabb skipaður flutninga og við-
skiptamálaráðherra í síðustu
stjórn Schushnigs. Að styrjöld-
inni lokinni tók hann að nýju
sæti í ríkisstjórninni um skeið.
Hann varð kanzlari Austurríkis
2. apríl 1953 og gegndi því em-
bætti þar til hann sagði af sér
í apríl 1961.
Raab hafði forustu um við-
reisn Austurríkis eftir styrjöld-
ina og hernámið. Honum er
einnig þakkað það að Austurríki
tókst að ná friðarsamningum
árið 1953 gegn því að hlutleysi
landsins væri tryggt og að Sovét
ríkjunum yrðu greiddar stríðs-
skaðabætur.
Aðalfundur Sjálf-
stæðisfélags
Garðahrepps
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lags Garða- og Bessastaðahreppa
verður haldinn að Garðaholti
sunnudaginn 12. janúar kl. 13:30.
Venjuleg aðalfundarstörf og inn
taka nýrra félaga. Félagar fjöl-
mennið. — Stjórn.
Sáttafundur með trésmiðum,
múrurum, málurum og pípulagn-
ingamönnum, en hinir fyrst-
nefndu hafa verið í verkfalli, var
settur að nýju kl. 14 á þriðjudag.
Klukkan hálffjögur á miðviku-
dagsmorgun lauk fundinum með
múrurum, málurum og pípulagn-
ingamönnum, án þess að sættir
hefðu tekizt. Fundinum með tré-
smiðum Iauk kl. 5 á miðvikudags
morgtm. Hafði þá náðst samkomu
lag um 15% hækkun á tímakaupi,
en samkomulag náðist ekki um
ákvæðisvinnukaup (uppmæling-
artaxta). — Láta mun nærri, að
um 40% allrar trésmíðavinnu sé
unnin á timakaupi, en um 60%
skv. uppmælingartaxta.
• Meistarafélag húsasmiða í
Reykjavík og Trésmiðafélag
Reykjavíkur boðuðu bæði til
fuinda í gærdag uom samkomu-
lagið um tímakaupið. Húsa-
smiðameistarar felldu samkoimu-
lagið með 29 atkvæðum gegn 24^
en trésmiðir samþykktu það með
160 atkvæðum gegn 51.
• Trésmiðatfélagið sendi siðau
Framh. á bls. 23
SAS
yfir
mun bjóða lægri fargjöld
veturinn en Loftleiðir nú
Montreal—New York, 8. jan.
Einkaskeyti til Morgiunblaðs
ins frá Associated Press.
E.S. PEFANIS, ritari IATA,
Alþjóðasamibands flugfélaga,
skýrði frá því í dag, að öll
viðkomandi flugfélög samtak-
anna hafi þegar sótt um, eða
sæki fljótlega um, samþykki
ríkisstjóma fyrir fargjalda-
læikkun á flugleiðum yfir At-
lantshaf.
Hin nýju fargjöld, sem til-
' kynnt voru s.l. þriðjudag í
Montreal, þar sem fulltrúar
24 flugfélaga hittust til að
taka ákvörðun í mólinu,
munu þýða yfir 200 dollara
lækkun á 1. farrýmis farmiða
fram og aftur frá Londoti til
Montreal. Verði hin nýju far-
gjöld viðurkennd koma þau
til framkvæmda 1. apríl n.k.
Hversu lengi hin nýja far-
gjaldasamþykkt verður í gildi
er eitt af hinum smærri at-
riðum, sem enn hefur efcki
verið gengið frá, að sögn Sir
Williams Hildred, aðalfram-
kvæmdastjóra IATA
Aer Lirvgus, írska flugfélag-
ið, vill að samþykktin gildi
í eitt ár, sagði Sir William,
en flest hin félögki aftur á
móti vilja að hún gildi í tvö
ár. Sagði hann, að búizt væri
við samkomulagi um öll at-
riði á miðvikudag eða fimmtu
dag.
1. farrýmismiði, fram og
aftur, frá London til Montre-
al mun kosta að sögn Hildr-
eds 741.60 dollara í stað 947
dollara eins og harm kostar
nú, lægstu fargjöldin fram og
aftur munu kosta 298,70 doll
ara en hækka í 491 dollar á
þeim 10% viku á sumrin, sem
annatíminn er mestur hjá fluig
félögunum.
Mörg hinna stærstu fluigfé-
laga, sem fljúga á Atlantshafs
leiðinni, tilkynntu í síðusfcu
viku, að þau hefðu í hyggju
að lækka fargjöldin og skutu
samtökunum ref fyrir rass, en
samkvæmt skipulagsskrá
þeirra verða slíkar samþykkt-
ir að vera gerðar einróma.
Hildred sagði, að þetta væri
engin ógnun við samtökin. —
FuHtrúar flugfélaganna á ráð
stefnunni hafa neitað að tjá
sig um málið.
Talsmaður SAS í New York
vildi ekki ræða hina fyrir-
huguðu fargjaldalækkun í
sambandi við samkeppni SAS
við Loftleiði. Hann sagði þó,
að SAS mýndu bjóða á hin-
um nýju fargjölduim 21 dags
ferðir á tímabilinu 1. októ-
ber til 30. apríl fyrir 15 doll-
ara lægra gjald en Loftleiðir
gera nú.
Á mesta annatíma SAS, frá
22. maí til 3. ágúst, sagði tals-
maðurinn, að fargjöldin yrðu
46.60 dollurum hærri en far-
gjöld Loftleiða.
Talamaður Pan American
sagði, að lækkuð fargjöld
myndu hafa í för með sér
aukin farþegafjölda fyrir öll
flugfélög. „Fargjaldalækkan-
ir auka ætíð farþegafjöldann
og sagan sýnir að þannig hef-
ur það alltaf verið,“ sagði
talsmaður Pan American.
Pan Am hefur
sótt um lækkun
til flugráðs
Flugmálastjóri, Agnar
Kofoed Hansen, skýrði Morg-
unblaðinu frá því, að Pan
American hefði sótt um að
mega lækka fargjöld sín á
leiðinni Keflavík — New
York.
Sagði Agnar, að flugráð
fjallaði enn um þessa umsókn
Pan American og málið því
ekki verið afgreitt. Hins veg-
ar væri flugfélaginu heimilt
að lækka fargjöld sín með
tilkynningu samkvæmt því
sem segði í loftferðasamningi
íslands og Bandaríkjanna.
Að lokum sagði flugmála-
stjóri, að sem stæði væru að-
eins tvö flugfélög, sem héldu
uppi áætlunarflugi milli ís-
lands og Bandaríkjanna, Loft-
leiðir og Pan American. En
sérhverju flugfélagi væri það
heimilt af okkar hálfu aðeins
ef viðkomandi lamd hefði loft-
ferðasamning við ísland.
Fargjöld Pan
Am IO°Jo hærri
en Loftleiða
Einar Farestveit forstjóri
G. Helgason & Melsted, um-
boðsaðila Pan American á ís-
landi, sagði í viðtali við Morg
unblaðið í gær, að ástæðan
fyrir fargjaldalækkuninni
væri sú, að Pan Am og önnur
IATA-félög vonuðust til að fá
fleiri farþega í hinar stóru
þotur sínar, enda hefði reyn-
sla Loftleiða sýnt, að lægri
fargjöld gæfu fleiri farþega.
Sagði hann, að Pan Am
hefði sótt um fargjaldalækk-
un fyrir 10 árum en hin IATA
félögin staðið á móti þvi. Það
hafl ekki verig fyrr en SAS
fékik lækkuð fargjöld vegna
samkeppninnar við Loftleiðir
að Pan Am fékk byr undir
báða vængi í baráttu sinni
fyrir lægri fargjöldum.
Einar sagði, að auðvitað
væri fargjaldalækikun Pan
Am ekikj gerð til að klekkja
á Loftleiðuim heldur væru það
hagsmunir flugfélagsins sjálfs
í heild sem þar réðu úxslitum.
Gat hann þess, að þegar far
gjaldalækkunin væri komin
til framikvæmda yrðu far-
gjöld Loftleiða, eins og >au
eru nú, um 10% lægri en far-
gjöld Pan Am verða miðað
við ferðir fram og aftur. Þó
væri þess að gæta, að 21 dags
fargjöldin svokölluðu yrðu ör
lítið lægri hjá Pan Am en þau
eru nú hjá Loftleiðum (mis-
rounur innan við 100 kr).
Sagði Einar Farestveit að
lokum, að fargjöld Pan Am
hefðu verið um 30% hærri en
fargjöld Loftleiða en yrðu nú
im 10% hærri eins og áður
er getið.
Fargjöld innan
Evrópu bundin
til 1. april 1965
öm Johnson, forstjóri Flug
félags íslands h.f., sagði blað-
inu, að fulltrúar félagsins
sætu ekki á IATA-ráðstefn-
unni í Montreal, þar sem þar
væri fjallað um fargjöld á
milli Ameríku og Evrópu, en
F. í. héldi ekki uppi áætlunar
flugi á þeirri leið, heldur að-
eins á Evrópuleiðum.
örn sagði, að fargjöld á
flugleiðum innan Evrópu
væru bundin til 1. apríl 1965,
en ráðstefna IATA-félaganna
um Evrópufargjöld yrði að
líkindum haldin í október-
mánuði næsta haust og þá
yrði tekin ákvörðun um hver
Evrópufargjöldin skyldu
verða frá 1. april 1965, og
gilda í 2 ár.
Sagði forstjórinn, að Pan
American, sem heldur uppi
áætlunarflugi frá Keflavík
til Evrópu, sé bundið af IATA
fargjöldunum á þeirri leið og
hafi þess vegna sömu fargjöld
og Flugfélag íslands, enda
eru þau samþykkt af viðkom-
andi ríkisstjóraum.
Aðspurður sagði Örn John-
son, að satt bezt að segja
hefði F. í. engar ákveðnar
tölur um flutninga Pan
American á farþegum frá ís-
landi til Evrópu, en „við vit-
um af samkeppninni og finn-
um fyrir henni. Það er ekk-
ert launungarmál."
Fargjöldin milli íslands og
annara Evrópulanda hafa
verið óbreytt í ein 10 ár,
sagði forstjórinn, að vísu
hafa þau hækkað í íslenzkum
krónum, en ekki í sterlings-
pundum og dollurum, en þau
eru ákveðin í þeim gjald-
miðlum. Flugfélagið hefur
barizt fyrir því innan IATA
að fslandsfargjöldin hækki
ekki, sagði hann, og það hef-
ur tekizt þótt fargjöldin
milli annara Evrópulanda
hafi hækkað talsvert
Að lokum sagði örn John-
son, að Flugfélag íslands
hefði ekki enn sent úrsögn
sína úr IATA, en beðið væri
átekta i því máli þar til .þró-
un fargjaldamálanna lægi
Ijóst fyrir.
Frá lATA-ráðstefnunni I
Montreal — rætt við flug-
málastjóra, umboðsmann Pan
*
Am og forstjóra F. I.