Morgunblaðið - 09.01.1964, Síða 5

Morgunblaðið - 09.01.1964, Síða 5
Fimmtudagur 9. jan. 1964 MORGUNBLAÐID 5 I Finnbjörr skransali (Gísli Halldórsson) kemur í lieimsókn til Áróru spákonu (Helga Valtýsdóttir), Hart í bak 160 sýning í kvöld I LEIKFELAG Reykjavíkur sýnir leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í Iðnó í kvöld (fimmtudag), og er það 160. sýningin á þessu vinsæla leikriti. Aðsókn hefur jafnan verið mjög góð, húsfyllir á flestum sýningum. Má gera ráð fyrir að tala áhorfenda sé nú komin yfir 40 þúsund. Og ekkert lát er enn á aðsókninni. Þó niá telja sennilegt að sýningum fari senn að Ijúka, því síðar í þess um mánuði frumsýnir Leik- félagið nýjan gamanleik, og hefjast þá jafnframt æfingar á leikriti eftir William Shake spare, en í apríl n.k. eru 400 ár liðin frá fæðingu skáldsins. Ekkert hlé hefur orðið á sýningum á Hart í bak frá því þær hófust haustið 1962, því s.l. sumar fór Leikfélagið með sýninguna út um allt land. Hefur ekkert leikrit náð hér jafn miklum vinsældum né svipuðum sýningarfjölda. sá NÆST bezti Séra Biarna var boðið til kaffiarykkju með nokkrum konum, sem flestar voru komnar af léttssta skeiði. Þær ræddu mjög um kvilla sína. Eir. var taugaslöpp og gigtveik, önnur var tekin að missa heyrn og þeirri þriðju var farið að förlast sýn. Séra Bjarni tot og hlustaði á samræðurnar, en iagði ekki til málanna. Þegar svo haíði gengið urn hríð, snýr ein konar sér að séra Bjarna og segir: „Já, þeir eru margir kviilarnir, sem sækja á okkur kerlingarnar." Séra Biarni svaraði og stundi við: „En út yfir tekur þó, ef þið missið málið!” sem hreinsar, fægir og ver silfrið því að það falli á það, og þér þurfið ekki að nota á- burðinn aftur langtímum saman, en aðeins strjúka yf- ir silfrið með þurrum klúti, svo það gljái og skíni sjálfri yður og öðrum til augna- yndis. Fæst hjá silfursölum borgarinnar, hjá úrsmiðum o.fl. Heildsölubirgðir: H. ÓLAFSSON & BERNHÖFT Símar 1-97-90 •— Reykjavík. MSSI fallega mynd af húslesitrl birtist í blaðinu fyrir áramótin og var sögð eftir Ásgrím Jónsson, en það var misskilningur, og því er myndin birt hér aflur, enda mælir hún með sér sjálf. Myndin er eftir Kristínu Jónsdóttur og hangir á vegg í skrifstcfu bankastjóra Búnaðarbankans. JíHorcjmiMaðH* IMýjung sem sparar tíma og fyrirhöfn Silfur, sem skín og gljáir vik um saman án þess að á það falli, þegar þér notið undra silfur-áburðinn HAGERTY TARNISH PREVENTIVE Læknar fjarverandi Eyþór Gunnarsson fjarverandi I óákveðið. Staðgenglar: Björn Þ. I Þórðarson, Erlingur Þorsteinsson, Ste- | fán Ólafsson og Viktor Gestsson. Kristjana Helgadóttir læknir fjar- I verandi um óákveðinntíma. Stað- | gengill: Ragnar Arinbjarnar. Páll Sigurðsson eldri fjarverandi um óákveðinn tíma. Staðg. Hulda Sveinsson. Ólafur Þorsteinsson fjarverandi 6. til 18. janúar. Staðgengill Stefán Ólafs- VISUKORN Kvið ei sárum, sólin skín, svöl þó bára rjúki, blessað árið bjarta, þín burtu tárin strjúki. Sumarliði Halldórsson VDNDUÐ II n FALLEG H ODYR U M Siqurþörjónsson &co ^ Jlafnawtm’tí 4 Oljll! Slysavamadeildin Hraunprýði held- ur aðalfund í Sjálfstæðishúsinu þriðju | daginn 14. janúar kl. 8.30. Stjórnin. Bylgju konur! Munið fundinn í J kvöld að Bárugötu 11 ki. 8.30. Eigin- mennirnir boðnir með. Stjórnin Jólablað Fóxa Að vanda kom blaðið Faxi í Kefla- I vík, út í sérstöku jóiahefti, og var það efnismikið blað og vel úr garði gert. t>ó jólin séu liðin er ekki úr vegi að segja frá þessu jólablaði Faxa, en í það skrifa m.a. fyrrum biskup prof. Ásmundur Guðmundsson er skrifar jólahugleiðingu. Marta Valgerður Jónsdóttir skrifar endur- minningar frá Keflavik. Hallgrímur Björnsson ritstjóri Faxa, skrifar um Félag barnakennara á Suðurnesjum I 25 ára. Þætti úr sögu Hvalsneskirkju j ekriíiar GfcÆi Guðmundsson, fleiri læsilegar greinar eru í biaðinu sögur, | kvæði frásagnir og sitthvað fleira. A veglegri kápu blaðsms er mynd | úr Hvalsneskirkju. Kvenfélag Lágafellssóknar Fundur ] verður haldinn að Hlégarði fimmtu- daginn 9. janúar n.k. kl. 2.30, Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur | jólafund í Kirkjubæ næstkomandi föstudagskvöld kl. 8.30. Félagskonur | mega taka með sér gesti og öldruðu safnaðarfólki er sérsiaklega boðið. Lúðrasveitin Svanur leikur. Ennfrem- ur verður tvísöngur, kvikmyndasýn- ing og veizlukaffi. Frá Kvenfélagi Bústaðasóknar | Tilsögn í fegrun og snyrtingu fer | fram á fundinum, sem haldinn verð- ur 9. þ.m. í Háagerðisskóla. Félag austfirzkra kvenna heldur I skemmtifund fimmtudaginn 8. þ m. | kl. 8:30 að Hverfisgötu 21. Spiluð , verður félagsvist. FRÁ ÐÓMKIRKJUNNI Séra Hjalti Guðmundsson, settur prestur við Dómkirkjuna, I hefur viðtalstíma á heimili sínu, Brekkustíg 14, kl. 11—12 og 6 —7 alla virka daga. Þá eru af- greidd vottorð úr öllum prest- þjónustubókum, sem séra Jón Auðuns varðveitti Sími 12553. Happdrætti U.M.F. Breiðablik. — J Útdregin númer eru þessi: 2437, 4637, 575. Vinninga skal vitja til Gests [ Guðmundssonar, sími 41804. Kennari óskast 1—2 tíma á dag. Góð laun. Tilboð sendist Morgun- blaðinu, merkt: „Kennari — 9871“. —2 herb. íbúð óskast til leigu, fyrirframgreiðsla. Húshjálp kemur til greina. Uppl. í síma 12983. Dodge Wepon ’53, 18 manna með nýrri Diesel vél og góðu húsi. Skipti koma til greina. Uppl. í sima 10061 á kvöldin. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum ■blöðum. Frá Sjúkrasamlagi Njarðvíkurhrepps Vegna fráfalls Björns Sigurðssonar læknis, þurfa þeir samlagsmeðlimir sem höfðu hann fyrir heim- ilislækni að velja sér heimilislækni sem fyrst. í síðasta lagi fyrir 31. þ.m. Eftirfarandi læknar starfa á vegum samlagsins: Arnbjörn Ólafsson, læknir, Guðjón Klemenzson, læknir, Jón K. Jóhannsson, sjúkrahúslæknir, Kjartan Ólafsson, héraðslæknir. Sjúkrasamlag Njarðvíkurhrepps. Duglegur sendill óskast til starfa á afgr. Morgunblaðsins. Vinnutími kl. 6 — 9 árd. Sendisveinar Ó S K A S T . — Vinnutími fyrir hádegi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.