Morgunblaðið - 09.01.1964, Síða 23
Fimmtudagur 9. Jan. 1964
MORGUNBLAÐID
23
Betty Allen ásamt hljómsve itarstjóranum og tónskáldinu
fræga, Igor S travinsky.
Betly Allen syrvgur með
Sinfómuhljómsveitinni
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands heldur í kvöld sjöundu
hljómleika sína á starfsárinu
og þá næst síðustu á fyrra
misserú Stjórnandi hljóm-
sveitarinnar verður að þessu
sinni dr. Róbert A. Ottósson,
söngmálastjóri, en einsöngv-
ari með hljómsveitinni handa
ríska blökkusöngkonan Betty
Allen.
Á efnisskránni verður sorgar-
forleikur — „Tragische Ouver-
tiire“ op. 81 eftir Johannes
Brahms, „Lieder eines fahrenden
Gesellen" — „Ljóð förusveins“,
eftir Gustav Mahler og Synfó-
oía nr. ? í C-dúr svokölluð
wStóra“ Symfónían.
Sem kunnugt er, kom Betty
Allen hingað fyrir fjórum árum
og vakti söngur hennar þá mikla
hrifningu. Svo hefur og verið á
þeim tvennum hljómleikum,
sem hiún hefur haldið á vegum
Tónlistarfélagsins. Hún syngur
hér í síðasta sinn, að þessu sinni,
• hljómleikum í kvöld.
Betty Allen hefur hlotið frá-
bæra dóma gagnrýnenda erlendis
fyrir söng sinn oig víða haldið
hljómleika, m.a. í mörgum riikj-
Um Suður-Ameriku og Asíu, auk
Bandaríkjanna og Bvrópu, þ.ájn.
6 Norðurlönduim. Hún er fyrst og
fremst Ijóða- og oratorium söng-
fcona, en hefur stungið nokkuð
1 óperum á siðari árum. Hún
hefur sungið einsöngahlutverk f
öUum helztu óratoriumverkum
tónbókmenntanna, undir stjórn
tnargra fremstu hljómsveitar-
- Þjóðleikhúsið
Framh. af bls. 3
oft fá ekki tíma til að fara
í mat. Að visu er þröngt á
þingi, en alit kvenfólkig úr
Læðunum kemur fyrst, síðan
karlmennirnir úr barnaleik-
ritinu Mjalíhvít og reyndar
Mjallhvít sjálf, Bryndís
Schram.
— Hatló, læður, lygnið
ekki svona augunum, kallar
Jóhann Pálsson.
— Halló, prins, svara þær.
Og Þóra raular „Someday
my prince will come.“
Matarhléinu er lokið og
aftur tekið til óspilltra mál-
anna. Fréttamaðurinn verður
nauðungur að fara í miðjum
öðrum þætti. En hann gengur
öfugur út og reynir að heyra
sem mest, þar til dyrnar lok-
ast.
stjóra heims. Námsferill Betty
Allen var allt frá upphafi sér-
lega glæsilegur. Hún vann tíðum
ineð nárni, allt frá því hún hóf
barnaskólanám, en hlaut jafn-
framt hvern námsstyrkinn á
fætur öðrum, sem gerði henni
kleift ag stunda söngnám. Há-
skólanám stundaði hún í Wilber
force University í Ohio, samtíða
Leontyne Price.
Ljóðaflokkurinn eftir Mahler,
sem Betty ALlen syngur í kvöld,
er undur fallegt tónverk, sem
hún hefur tekið sérstöku ást-
fóstri við, eins og verk Mahlers
yfirleitt. Hér á landi hefur Mah-
ler til þessa verið lítt kunnur af
hljómleikum. „Ljóð förusveins“
samdi hann í kringuim 1883, þá
rúmlega tvítugur (1860-1911)
að aldri. Ljóðið sarndi hann sjálf
ur, utan fyrstu vísuna, sem er
þýzk þjóðvisa, lítillega breytt.
Tónleikarnir fara að venju
fram í Háskólabíói.
- DAS
Framhald af bls. 24.
000.00 kom á nr. 23558. Umboð
Aðalumboð.
Bifreið eftir eigin vali kr. 120.
000.00 kom á nr. 48739. Umboð
Aðalumboð.
Eftirtalin númer hlutu húsbún-
að fyrir kr. 10.000,00 hvert:
8270 11342 18672 20726 20969
23612 26333 33324 39567 45224
Eftirtalin númer hlutu húsbún-
að fyrir kr. 5.000,00 hvert:
864 14648 25826 40511 51346
1111 14650 25957 40549 51901
1269 15039 26355 40834 51918
1451 15749 27105 41136 52582
2649 16102 28593 41317 53038
2859 16925 29028 41953 53615
3609 16974 29264 42974 54165
4148 17497 29457 43296 55204
4620 18048 30105 43674 55718
5149 18592 31565 44063 55778
6074 18682 32115 44508 56355
6351 18687 32490 44729 56526
6437 18766 32517 44749 56676
7549 19038 32544 45809 57071
7616 19498 33086 46901 58796
8147 19516 33092 47586 58985
8754 20123 33552 47601 59036
8901 20143 33792 49290 60709
9460 20993 33825 49306 61583
9676 21311 34979 49427 62073
9842 22111 35081 49481 62093
10682 35484 49636 62909
10748 22842 35943 50309 63058
11222 23571 36542 50878 63295
11745 23833 37124 50976 64027
12283 24621 37425 51037 64164
12963 25711 39552 51322 64490
(Birt án ábyrgðar).
Enginn árangur í gær
Fiskimalaráðstefna í London
um fiskveiðilögsögu, markaðs-
mál og eftirlit á fiskimiðum
hefur verið frá sameiginlegri
London, 8. jan. AP, NTB.
í DAG hófust að nýju í
London fundir fiskimálaráð-
stefnu 16 ríkja, sem frestað
var í byrjun desember sl. eft-
ir fjögurra daga umræður.
Tilgangur ráðstefnunnar er
m. a. að ræða fiskveiðilög-
sögn ríkjanna, samræmingu
á reglum um fiskveiðar í
Norðursjó og Norður Atlants
hafi, og um markaðsmál. Um
140 fulltrúar sitja ráðstefn-
una.
Fundurinn í dag bar engan
árangur, og telja fulltrúar
litlar horfur á því að sam-
komulag náist um samrým-
ingu á fiskveiðilögsögu ríkj-
anna.
Ekki var fréttamönnum heim-
ilað að fylgjast með umiræðun-
um í dag, en í fundarlok var
gefiin út tilkynning þar seim
segir að viðræðum verði haldið
áfram á morgun, fimmtudag. í>á
mæta á fundi aðeins aðalfulltrú-
ar hvers lands, og má hver þeirra
hafa einn ráðgjafa sér til að-
stoðar. Talið er að fjöldi fulltrúa
á fundinum í dag hafi torveldað
samkomulag, og að auðveldara
sé að ræða málin þegar aðeins
32 fulltrúar sitja fundinh.
Á það er bent að ekki sé ástæða
til að vonast eftir samkomulagi
um fiskveiðamar fyrr en gengið
—* Ræða Johnsons
Framh. af bls. 1
þurfum aldrei framar að berjast,
sagði Johnson.
Forsetinn hóf ávarp sitt með
loforði um að vera stuttorður,
og stóð við það. Ávarpið var
rúmlega 2.800 orð, og er það
styttsta áramótaávarp Bandaríkja
forseta síðan 1934.
— Síðasta þing var hið lengsta
sem haldið hefur verið á frið-
artímum, sagði hann. Með til-
liti til þess skulum við vinna
að því að þetta þing verði árang
ursríkasta þing sögunnar.
Við skulum láta það orð fara
aí þessu þingi að það hafi gert
meira fyrir réttindi borgaranna
en siðustu hundrað þing hafa
gert samtals;
að það hafi framkvæmt
mestu skattalækkanir okkar
tíma;
að það hafi sagt fátækt og
atvinnuleysi í Bandaríkjun-
um stríð á hendur;
að það hafi viðurkennt nauð-
syn heilsuverndar fyrir alla
eldri íbúa landsins;
að það hafi skapað áhrifa-
ríkustu stefnuna að því er
varðar aðstoð við erlend ríki;
og að það hafi stuðlað að
byggingu fleiri íbúða, fleiri
skóla, fleiri bókasafna og flei
ri sjúkrahúsa er. nokkurt ann-
að þing í sögu Bandaríkjanna.
Allt þetta, og meira, er unnt
að framkvæma og verður að
framkvæma, sagði Johnson. Og
það er unnt að framkvæma án
aukinna ríkisútgjaida.
Forsetinn skoraði á þingmenn
að hafa ekki uppi of miklar
málalengjur, en taka sínar af-
stöður til hvers þingmáls fyrir
sig.
Hann minntist Kennedys for-
seta, og skoraði á þingmenn að
vinna að framgangi þeirra mála,
sem hann barðist fyrir, „ekki
vegna sorgar okkar né með-
aumkvunar, heldur vegna þess
að hann hafði á réttu að sanda.
I minningu hans vil ég sérstaik-
fiskimálastefnu Efnahagsbanda-
lagsríkjanna, sem verður í fyrsta
lagi á næsta snjmri.
Peter Thomas, ráðuneytis-
stjóri í brezka utanríkisráðuneyt
inu, var í forsæti á fundinum í
morgun, en á síðdegisfundinum
R. Wall, ráðunautur í landbún-
aðar- og fiskimálaráðuneytiniu.
Sagði Thomas nýlega við umræð
ur í brezka þinginu að ekki yrði
— Trésmiðir
Framih. af bls. 2
fná sér svofellda tilkynningu:
„Trésmáðafélag Reykijavílkiur
tilkynnir:
Frá og með 9. þessa mónaðar
hækka allir kauptaxtar Trésmiða
félags Reykjavíkur um 15%, og
gildir það til 21. júní 1964, hafi
ekki tekizt samningar fyrir þann
tíma. Jafnfraant er verkfalli tré-
smiða hér með aflýst“.
• Morgunblaðið bar þessa til-
kynningu undir Björgviin Siig-
urðsson, höl., fraimkvæimdastjóra
Vinnuveitendasambands íslands.
Sagði hann, að Vinnurveitenda-
samiband íslands og Meistarafél.
húsasmiða í Reykjavik mótmœltu
þessium taxta sem ólöglegum og
bönnuðu öllum félagsmönnuim
smum að greiða hærri taxta en
gilti áður en verkfallið hófst í
desemiber, þar til um annað yrði j
samið. — Breytir þetta þvi engu |
um vinnustöðvunina, og vinna
mun ekki hefjast að óbreyttu á-
standi.
lega biðja alla þingmenn, sem
hafa sömu stjórnmálaskoðun og
ég, að láta flokkshagsmuni víkja
fyrir þjóðarhagsmunum, að ræða
málin málefnalega, ekki persónu
lega.“
Þá vék forsetinn máli sínu að
fjárhagsáætluninni, þar sem
gert er ráð fyrir 500 milljón
dollara lækkun frá fyrra ári, og
verulegri fækkun opinberra
starfsmanna. En þótt heildarút-
gjöldin minnki sagði Johnson að
fjárhagsáætlunin fæli i sér
meiri fjárveitingar en nokkru
sinni fyrr til heilbrigðis- og
menntamála, atvinnuleysistrygg
inga, og til bágstaddra.
— Því miður búa margir
Bandaríkjamenn á mörkum von
leysis — sumir vegna fátæktar.
sumir vegna litarháttar, og allt
of margir af báðum ástæðum,
sagði Johnson. Verkefni okkar
er að láta vonleysi þeirra víkja
fyrir nýjum tækifærum. Núver-
andi ríkisstjórn vill hérmeð lýsa
yfir ótakmarkaðri styrjöld gegn
fátækt í Bandaríkjunum. Ég
skora á þingið og alla þjóðina
að fylgja mér i þeirri baráttu.
Forsetinn lauk máli sínu með
þessum orðum:
Landar mínir. Á síðustu sjö
sorgarvikum höfum við lært það
að nýju að ekkert er jafn varan-
legt og trúin, og ekkert jafn
niðurlægjandi og hatrið. John
Kennedy varð fórnardýr haturs-
ins — en hann var einnig skap-
ari trúarinnar — trúar á með-
landa okkar, án tillits til trúar-
bragða, litarháttar eða stöðu, og
trúar á framtíð mannikyns. Þessi
trú bergmálaði um allan heim.
í öllum heimsálfum og öllum
löndum, sem ég heimsótti, fann
ég trú og von og kærleika gagn-
vart landi okkar og þjóð. Ég
bið ykkur nú, í þinginu og út
um allt land, að gera þessa trú
að veruleika. Að vinna að því
að skapa þjóð, sem er laus við
skort, að skapa heim, sem er
laus við hatur. Heim friðar og
réttlætis, frelsis og allsnægta,
í nútíð og framtíð.
lengur unað við óbreytta fisk-
veiðilögsögu við Bretland. Er því
talið að Bretax haldi fast við
kröfu sína um að breyta lög-
sögunni til samræmis við fisk-
veiðilögsögu íslands, Noregs og
fleiri landa. Einnig hefur komið
fram tillaga á ráðstefnunni um
12 mílna fiskveiðilögsögu og 6
mílna landhelgi.
Allmikið hefur verið rætt um
aðgang að fiskimiðum og eftirlit
á þeim, og er búizt við að því
máli verði vísað til sérstakrar
sérfræðinganefndar, og að Sovét-
ríkjunum og Póllandi verði boð-
ið að eiga fulltrúa í nefndinni.
Löndin, sem fulltrúa eiga á
ráðstefnunni í London, eru þessi:
Efnahagsbandalagsríkin sjö,
Friverzlunarsvæðisríkin sex, ís-
land, írland og Spánn.
— Þrumuveður
Framh. af bls. 24
arblossar hefðu sézt, og þór-
dunur fylgt. Hárlaugur sagði
að skyndilega hefði orðið mik
il sprenging í símatækinu að
Hlíðartúni, og sömu sögu
!hefði verið að segja á bæjun-
um Dalsmynni, Austurhlíö og
Stekikholti. Eldiblossi hefði
staðið út úr tækjunum. „Ég
hefi aldrei heyrt annan eins
hvell", sagði Hárlaugur og
bætt; því við, að tveir dreng-
ir hefðu staðið skammt fró
sámtækinu í Austurhlíð, og
hefðu þeir orðið fyrir mifelu
rafmagnshöggi, sem komið
hefði úr símtækinu. Að Aust-
urhlíð býr bróðir Hárlaugs,
Kristinn Ingvarsson.
Hárlaugur sagði að síma-
menn hefðu komið í fyrradag
og sett upp nýtt símtæki að
Hlíðartúni. Sögðu símamenn,
að allir þræðir í srántækinu
'hefðu bráðnað, og má nærri
geta bversu farið hefði ef ein
hver hefði verið að tala í
símann er þetta gerðist.
Hárlaugur sagði að skepnur
hefðu orðið mjög óttaslegnar
í veðrinu. Hross stukku um
allt tún, en sauðfé var flest
inni. Bæjarhundurinn lagði
niður skottið, skreiddist inn í
stofu og var hræddur.
Ekkert rafmagn er í Hlíðar
túni, en í Austurhlíð er heim
ilisrafstöð. Þar brá svo við
að öll öryggi £ stöðinni
sprungu svo gjörsamlega að
ekkert er eftir af þeim. Allar
ljósaperuir á bænum sprungu
utan tvær eða þrjár. Raf-
magnslaust er enn í Austur-
hlíð þar sem ekki hefur tek-
izt að gera við stöðina.
Hárlaugur sagði að von
væri sránamanna næstu daga
til þess að gera við símalfn-
una, þar sem hún varð verst
úti. Hann hætti því við að
lokum að þetta hefði verið
mesta þrumuveður, sem hann
myndi eftir, og aldrei fyrr
hefði hann heyrt neitt sem
jafnaðist við skruggurnar.
Þá átti Mbl. tal við sránstöð
ina í Aratungu. Þar stóðu eld-
glæringar úr skiptiborði
Landssímans á staðnum, og
takkar losnuðu, en ekki varð
skiptiborðið fyrir alvarlegum
skemmdum.
Einnig átti Mbl. tal við ólatf
Ögmundsson, bónda að Hjákn-
holti í Hraungerðishreppi. —
Ekki kvað ólatfur þrumuveðr-
ið hafa verið sérstaklega milk-
ið þar, en þó nóg til þess að
síminn bilaði og rafmagms-
lauist varð um hríð. Tvær eld
ingar sagði hann hafa verið
mjög nærri bænuim, og hetfði
allt skolfið og nötrað undan
þrumunum. Hefðu þær komið
að heita um leið og eldinga-
leiftrin, svo nærri hefðu eld-
ingarnar verið. Fénaður varð
dauðhrædur, sauðtfé kom þjót
andi heim að bæ og hross voru
á hlaupum í haga.