Morgunblaðið - 28.01.1964, Qupperneq 22
22
MORGUNPIAOIÐ
: Þriðjudagur 28. 'jan. 1964
ÍÞRdTTAFRfTTIfi AIORRUMRLARSIAS
Á-é'> <? h ■
-4 landsleikír í sumar
- stórátak í þjálfunarmálum
KNATTSPYRNUSAMBAND
íslands hefur nú lokið við að
skipuleggja þjálfun væntan-
legra landsliðsmanna og einn-
ig yngri manna sem kæmu til
greina með að verða í ungl-
ingalandsliði. Er stjónn KSÍ
ræddi við blaðameinn á iaug-
ardaginn sagði Björgvin
Sohram form. KSÍ að þetta
væri mesta átak sem gert
ihefði verið í þjálfunarmálum
fyrir knattspyrnumeim. Yrði
þetta dýrt fyrirtæki fyrir KSÍ
en vel þjálfaðir leikmenn
væru undirstaða góðrar knatt
spyrnu og góðrar aðsólknar.
Landsleikir sumarsins
T>að er nú fullvíst að tveir
landsleikir verða næsta sum-
ar og sennilega sá þriðji, þó
ekki sé lokið samningum um
ihann.
10. ágúst verður landsleikur
við Bermudamenn í Rvik og
þeir leika einnig 1—2 auka-
leiki. Liðið sem skipað er þel-
dökkum mönnum kemiur í
eigin leiguvél og er einnig
með í för liðsins hópur ferða-
fólks. Bermudamenn greiða
ferðir sínar en KSÍ sér um
uppihald hér og hafa
Bermudamenn farið fram á að
ísl. landslið komi a söimu
kjörum til Bermuda. Ekkert
er ákveðið um það.
23. ágúst verður landsleik-
ur við Finna í Rvík.
19. júlí á landslið í knatt-
spymu að leika í Færeyjum.
Færeyingar hafa boðið bæði
knattspymulandsliði og hand-
knattleiksliði heim til íslands
vegna 25 ára afmælis íþrótta-
sambandsins þar. KSÍ hefur
ekki ákveðið hvaða lið fari
en til greina koma unglinga-
landslið, B-landslið og A-
landslið eða sambland úr öll-
um.
Yfir standa samningar við
Skota um landsleik og eru
miklar horfur á að samning-
ar takist.
Átakið í þjálfunarmálunum
Þjálfunin sem fyrihbugað er
er gerð í samráði við tækni-
nefnd KSÍ. Karl Guðmunds-
son sem er form. tæknineÆnd-
arinnar og Reynir Karlsson
annar nefndarmanna munu
hafa tvær æfingar vikulega
fyrir öll lið 1. deildar. Verður
önnur æfingin í Austurbæjar-
skólanum en hin á „heima-
svæðum“ félaganna.
Með þessu fyrirkomulagi fá
1. deildarliðin þjálfara fram
á sumar á vegurn KSÍ. Kemur
það sér vel fýrir þau, því flest
eða öll munu félög 1. deildar
vera í vandræðum með þjálf-
ara að eimhverju eða öllu
leyti.
Tækninefndin útbýr einnig
þjálfunarskrá sem send er öll-
um þjálfurum knattspyrnu-
liða ef þeir æskja þess. Er þar
með femginn fastur grundivöll
ur til að fylgjast með því á
hverjum tíma hvaða leik-
ménn hafa æft nægilega og
komi til' greina með að geta
uppfyllt skyldur landsliðs-
rhanns.
Auk þessa mun KSf halda
uppi þjálfun vikulega fyrir
yngri menn. Komast þar að
allir piltar sem ná 18 ára aldri
á árinu. Má hvert félag í
Rvik og nágrenni senda 3—4
menn til æfinganna. Eru þess-
ar æfingar hugsaðar til að
hafa á að skipa þjálfuðu
unglingaliði ef til unglinga-
landsleikja kemur.
Kósmundur skorar fyrir Víking.
Víkingar ógnuðu sigri
íslandsmeistara Fram
fslandsmeistarar Fram í hand-
knattleik komust aftur í hann
krappann á sunudag er þeir
mættu Víking. Þeir máttu taka
á öllu sínu var Þó með naumind-
um að það dvgði. Eitt mark
skildi í leikslok, lokastaðan var
23-22. En stigin lentu bæði hjá
Fram og Fram heldur forystu
í mótinu með stigi yfir IR.
Víkingar skoruðu 2 fyrstu
mörkin en Fram jafnaði 3-3.
Síðan komst Fram yfir og í 7-4.
Það var mesta forskot sem Fram
náði í leiknum og fékkst ekki
sízt fyrir frábært línuspil Sigurð-
ar Einarssonar sem skoraði 5
ÍR gersigraði KR 28-17
EFTIR sigur KR yfir Fram um
fyrri helgi þótti KR öllu sigur-
stranglegra er það mætti hinu
ört vaxandi liði ÍR í 1. deild á
sunnudag. Byrjunin staðfesti
þessa trú því KR náði forystu
6—3 á fyrsta s'tundarfjórðungin-
um.
En ÍR-ingar þjöppuðust sam-
an og tóku leikinn smám,saman
í sínar hendur. Á stuttum tíma
jöfnuðu þeir komust yfir, og smá
uku forskotið unz þeir höfðu
unnið stórsigur í leikslok sigrað
með 28 mörkum gegn 17. Það
var verðskuldaður sigur, því ÍR-
liðið var betra bæði í vörn og
sókn og reyndist jafnara og sterk
ara heldur en KR-liðið.
Það var ágætt línuspil KR
sem skapaði KR forystu framan
af. 5 af 6 fyrstu mörkum liðsins
voru skoruð af línu.
En vörn ÍR brotnaði ekki, held
ur bara þéttist og ágætur leik-
kafli breytti svip leiksins ger-
samlega. ÍR jafnar 6—6 og held-
ur áfram og kemst í 10—7 for-
ystu. Sem sagt leikkafli 7—1
fyrir ÍR. Eftir þetta komst for-
ysta ÍR aldrei í hættu. í hálfleik
stóð 13—9.
Byrjun síðaari hálfleiks var
þó spennandi — en einnig því
taugastríði lauk með sigri ÍR.
ÍR komst í 15—9 og nokkru síð-
ar var staðan 19—11 ÍR í vil.
Markvörður ÍR Jón Jónsson
átti ekki síztan þáttinn í hvernig
staðan breyttist æ meir ÍR í vil.
Hann varði víti Reynis og litlu
Framh. á bls. 23
af þessum 7 fyrslu mörk-um
Fram.
En Víkingar gáfu sig ekki held
ur minnkuðu bilið. Það var á-
kveðinn leikur þeirra sem Fram
fékk ekki bugað. Tvívegis varð
staðan jöfn í fyrri hálfleik, en
er til hlés var fláutað hefði
Fram yfir 14-13.
Barningurinn hélt áfram í síð-
ari hálfleik. íslandsmeisturunum
tókst aldrei að ná afgerandi
frumkvæði í leiknum, en hafði
þó yfirleitt nauma forystu. Sjö
mín fyrir leikslok ná Víkingar
að jafna og spennan nær há-
marki.
En Framarar ná aftur forystu
— en Víkingar jafna með marki
sem dæmt var fyrst löglegt en
síðan eftir málþóf dæmt ólög-
legt-
Framarar uku svo forskotið í
2 mörk 23-21 en Víkingar höfðu
síðasta orðið svo úrslit urðu 23-22
Markið sem dæmt var ólög-
legt hjá Víkingum varð því til-
efni til orðahnippinga og skoðana
munar en dómarinn kveðst ekki
hafa séð er línuvörður veifaði
til merkis um að sá er skoraði
fyrir Víking stæði á marklínu
en slíkt er ólöglegt.
Víkingar sýndu nú mjög á-
kveðinn leik og veittu íslands-
meiisturunum keppni sem vel
var 1 stigs virðis. En af stiginu
urðu Víkingar, en þeir staðfestu
að Fram hefur ekki fundið þann
neista er fyrr í mótinu skapaði
hvern stórsigurinn af öðrum —
og syndu að íslandsmeistararnir
eru ekki ósigrandi fyrir önnur
félög.
Enska
knattspyrnan
FJÓRÐA umferð erusfcu bikar-
kieppninnar fór fram s.l. laugar-
dag og urðu úrslit þessi:
\
Alderslhot—Swindom 1—2
Barnsley—Bury 2—1
Bedfiord—Carlisle 0—3
Blaokíbum—Futhaan 2—0
Bolton—Preston 2—2
Burniley—Newport 2—1
Chelsea—lludder&field 1—2
Ipswioh—Stoke 1—1
Leeds—Everton 1—1
Leytom O.—West Ham 1—1
Liverpool—Port Vale 0—0
Mancih. U.—Bristor. Rovers 4—I
Oxford—Brentfiord 2—2
Shefíield U.—Swansea 1—1
Suinderland—Bristol City 6—1
W.B.A.—Arsenal 3—3
Banaslys
« Innsbruck
Á LAUGARDAGINN varð
annað banaslysið í Innsbruck
er ástralski skíðamaðurinn
Ross Milne lézt er hann
missti stjórn á ferð sinni nið-
ur brunbrautina, sem keppa
á í á OL. Milne lenti með höf
uðið á tré og beið samstund-
is bana.
Fyrr í vikunni varð fimmt-
ugur Englendingur, sem keppa
átti í bobsleðaakstri fyrir
slysi í akstursbrautinni og
lézt af afleiðingum slyssins.
Dómnefnd leikanna kom
saman í gær og fyrirskipaði
auknar varúðarráðstafanir í
brunbrautinni. M.a. fyrirskip
aði hún að sett skuli upp 2
hiið í brautinni til viðbótar
til þess að skíðamenn dragi
úr ferð sirmi á hættulegum
stað, einmitt þar sem Milne
missti stjóm á ferð sinni og
lenti á trénu.
Þá hefur verið fyrirskipað
að setja mottur eða stuðpúða
á tré sem standa meðfram
allri brautinni. Hafði það
reyndar verið gert en nú á
klæða hærra upp á stofnana.
Milne lenti 3 metrum fyrir
ofan slíkan stuðpúða.
Brautarstjórinn sagði í gær.
„Enginn gat búizt við slíkri
flugferð sem henti Ástralíu-
manninn. Tilmæli hafa ver
ið lögð fram um þátttökulönd
dragi úr brunkeppninni þá
skíðamenn, sejn ekki telja sig
örugga á að fara hina snjó-
litlu og hörðu braut.
Annað slys varð í gær
mánudag. Franski skíðamaður
inn Emile Viollat viðbeins-
brotnaði er hann féll í brun-
brautinni og tekur ekki þátt
í OL.
ÍR-vörain „lokar“ markinu.
(Ljósm. M bl.: Sv. Þ.).;