Morgunblaðið - 21.02.1964, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.02.1964, Blaðsíða 15
I Fðstudagur 21. febr. 1964 1 MORCUNBLAÐIÐ 15 Ölafur Þorldksson, bóndi, Hraunn Veiöimál Árnesinga HINN 19. janúair birtist 1 Morgun blaðinu grein eftir undirriftaðan um veiðimál Ámesinga, sem svar við hinum rætnu og ómaklegu árásum sem forystumenn stang- veiðimála hafa að undanförnu Ihaft í frarnmi við okkur neta- bændur. Þessum tilefnLslau.su árásum Ihöfum við að mestu látið ósvar- að hingað til. En svo lengi má brýna deigt jáirn að það bíti að lokum. Ég hef orðið þess var, að grein þessi hefir vakið nokkra athygli, því Morgunblaðið hafði fljótlega aftur tal af hinum 5 forystumönnum. Komu svör þeirra í sama blaði hinn 21. jan- úar. Þessi svör hefði ég látið afskiptalaus, ef einn þessarra manna hefði ekki verið svo grunnhygginn, að falla fyrir þeirri freistingu að fara út í persónulegt nagg og útúrsnún- inga í svari sínu, sem ég þó ekki nennj að svara nema að litlu leyti. Slíkur málflutningur ber æfinlega vott um málefna- skort hins rökþrota manns. Því eegi ég: Svei þeim mönnum, sem tetla að verja málefni á þeim grundvelli. Og sveim þeim sam- tökum sem kjósa slíka irenn að forystumönnum. Guðmundur Kristjánsson og fleiri stangveiðimenn tala jafnan um jöfnun veiðihlunninda á milli árbænda. Á þetta sjónarmið þeirra gæti ég fallizt, en þó með einu Skilyrði, þ. e. ef hinir auð- ugu meðlimir stangveiðifélag- anna jafna tekjum sínum meðal hinna efnaminnj í sama félags- skap (eða annarra efnalítilla þjóðf élagsþegna). En vilji G. K. og aðrir þeir, sem hefir orðið þessi veiðijöfn- un svo töm í munni, ekki fallast é þetta sjónarmið mitt, þá dæm- ist þetta af sjálfu sér sem ómenkt 6lagorð, sagt í þeim tilgangi einum að sundra veiðibændum, svo þeir sjálfir (þ. e. stang- veiðimenn) eigi hægara með að ná tökum- á þessum hlunnindum okkar fyrir lítið fé. Guðmundur minnist á, að ekki liggi fyrir neinar kærur á stanga veiði-menn við ósa Ölfusár. Ónei, Guðmundur minni, ég veit nú ekki til þess heldur. En þó vil ég upplýsa lesendur Morgun- blaðsins um að oft gæti verið éstæða til slíkra hluta. Það væri kannske ástæða til að kæra, þegar veiðibátur er Ihvað eftir annað skorinn laus £rá stjóra, þegar net eru sundur- rist með hníf, brotizt inn í veiði- hús, ætt um landið skjótandi í skjóli stangaveiðileyfis, ég eleppi nú smámálum eins og rekaþjófnaði, eggjatöku o. s. frv. Þar sem margir fara um, er erfitt að sanna neitt á neinn eérstakan og saklausir gætu hæglega orðið fyrir óþægindum. Við erum yfirleitt friðsamir og nennum ekki að standa í mála- rekstrj að ástæðulitlu.___________ En það er fólk eins og lýst er hér að framan, sem við viljum vera lausir við og er það m. a. ein ástæðan fyrir því að við óskum að ráða sjálfir yfir land- areign okikar. Þá tæpir Guðmundur á því, hvort við netabændur við ár- ósinn höfum ekki fengið á okk- ur kærur fyrir ólöglegar neta- veiðar. Til þess að svala forvitni Guðmundur get ég vel upplýst bæði hann óg lesendur Morgun- blaðsins um að sumarið 1962 varð mér það á, ásamt nofckrum veiðibændum hér við ána, að hrasa á hinum þrönga og hála vegi veiðilaganna. Enda voru brot þessi miklu betur auglýst í dagblöðunum en þótt stang- veiðimanni verði eitthvað hnot- gjarnt á sama vegi. Þegar ég lærði minn barnalærdóm, man ég eftir því að syndir manna voru flokkaðar eftir eðli þeirra. Ég minnist t. d. ásetningssyndar, sem talin var versta tegund syndar. Svo var t. d. vanrækslu- synd, sem var stórum minni. Og sterkan grun hef ég um það, að heimsins réttlátasti dómari (þ. e. almenningsálitið) hafi talið þessi brot okkar veiðibænda falla undir hina. síðar töldu. En á sama sumri vissi ég ekki betur en einn af forystumönnum stangaveiðimanna væri kærður fyrir ólöglegan veiðiskap á stöng upp með ánni. Ekki veit ég hivernig því máli reiddi af, og kemur það enda ekkert við. En eiigi veit ég annað en hann haldi öllum ‘sínum réttindum í sam- tökum stangaveiðimanna. Og oft hafa stangaveiðimenn verið rekn ir frá Ölfusá fyrir að vera að vera að veiðurn fram yfir lö'g- legan veiðitíma og af fleiri ástæðum, en ekki þótt ástæða til að fylgja því eftir með kæru. Vilji svo G. K. spyrja um fleira, skal ekki standa á mér að veita honum upplýsingar um ýmisskonar undariegt hátterni 9umra stangaveiðimanna, bæði 'hér og annarsstaðar og skulu þeir þá veita honunr. þakkir sín- ar fyrir. Um veiðilei'gutilboðið sé ég ekki ástæðu til að ræða frekar. Um það vona ég að allur þorri veiðibænda hafi þegar myndað sér sjálfstæðar skoðanir. Eðli- legast væri, að sú atkvæða- greiðsla sem fram fer urn þetta mál verði opinber, svo það verði storáð á spjöld sögunnar, eftirkom endum okkar til fróðleiks, hverjir það kynnu að hafa verið, sem selja vildu á leigu eina dýrustu perluna, sem skrýðir okkar ágæta hérað, fyrir 30 silfurpen- inga. Og vonandi er að við sem á móti þessu tilboði munum greiða atkvæði, getum sagt að aflokinni atkvæðagreiðslu um þetta raál: „Og það voru hljóðir og hógværir, menn sem héldu til Reykjavíkur“. Ólafur Þorláksson bóndi, Hrauni. Undargata BLAÐBURÐAFOLK \ ÓSKAST í þessi blaðahverfi vantar Morgunbiaðið nú þegar unglinga, röska krakka eða eldra fólk, til þess að bera blaðið til kaupenda þcss. Gjörið svo vel að tala við afgreiðsíu blaðslns eða skrifstofu. 2ttor£imI>Taí>ií> SÍMI 2 2 4 8 0 Það má skríða um móana, án þess að vö«;na, og tína ber — frá í fyrra. SÍÐAN um áramót hefur ver- ið einmuna tíð hér í Austur- Húnavátnssýslu, skrifar frétta rit. blaðsins á Blönduósi. Um miðjan janúar fór allur ís af ám og lækjum ög Svínavatn og Hópið urðu auð. Vötnin lag'ði aftur, en sá ís er nú að mestu farinn. Eru þess ekki dæmi síðan 1942 að is hafi leyst af Svínavatni og Hópinu á þesum tíma árs. Laust fyrir miðjan janúar blómstraði prímúla í garði á Blönduósi og er í blóma enn, þrátt fyrir talsvert frost um tíma. Og í fleiri görðum má nú sjá útsprungin blóm. Gróð urnál er víða komin í garða og á tún. Á háfjöllum er talsverður snjór, enda hefur septemiber- snjóinn aldrei leyst þar, en fjallshlíðar eru að mestu auð- ar upp í brúnir. Krakkarnir kunna auðvitað vel að meta þetta góðviðri. Bjöm Bergmann kennari skil- ur það sýnilega vel, því hann fór með yngstu börnin í barna skólanum, sem eru 7 ára í gönguferð einn daginn í stað þess að halda áfram að koma stafrófinu í litlu kollana og kenna þeim að draga til stafs. . Börnin voru hin kátustu, rétt eins og kálfar sem sleppt er út á vorin. Þau gengu upp í móana, sem eru svo þurrir að þau gátu s'kriðið um þá, án þess að bleyta sig. Og því fóru þau í berjamó nú á þorra. Nóg • er af berjum — frá í fyrra. Og hvað gerir það til. Þau bragðast vel, þó þau- hafi frosið svolítið. Á veginum varð líka malar- gryfja, sem strákunum þótti merkilegt rannsóknarefni. Þar hafði verið fleygt ræfli af vél Bekkjarsysturnar Lára Ás- geirsdóttir, Anna Hjálmars- dóttir og Lára Sveinbjöras- duttir sýna berin sín. Og bílræksni var þar í polli. Það er semsagt nóg af ævin- týrum úti um holt og móa, þegar vorveður kemur í febrúar. Strákamir finna ævintýri í gamalli malargryíju. — Ljósm. B. öexgu.an. Hestarnir eru ekki siður káti r eu krakkarnir í góða veðrinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.