Morgunblaðið - 21.02.1964, Page 22
22
MQRGUNBLAÐIÐ
Fögtudagur 21. febr. 1964
íi'iirimrnfrrin monusiiiis
Jóni Þ. Ólafssyni boiið að
þjálfa í Bandaríkjunum
Jón Þ. Ólafsson.
Fer innan
10 daga
SÁ iþróttamaður íslands sem
bezt hefur unnið afrekið á s.l.
ári — Jón Þ. Ólafsson, hefur
verið boðinn utan til Bandaríkj-
anna til náms og íþróttadvalar.
Hann hefur fengið styrk til að
stunda allt að 4 mánaða nám
MOLAR
BANDARÍSKI hnefaleika-
kappinn Eddie Machen vann í
gær 5. rothöggssigur sinn í
röð. Hann sló Duke Sabedong
eftir 2 mín. 56 sek. í 1. lotu.
Hafði hann algera yfirburði.
Machen er síðasti keppand-
inn sem staðið hefur út heilan
leik gegn Liston. Það var 1960
að Machen tapaði fyrir Liston
á stigum í 12 lotu leik. Hann
kvaðst nú vera reiðubúinn að
mæta Liston aftur og Liston
myndi ekki hafa mikið fyrir
að sigra Cassius Clay. Machen
var fyrir þennan síðasta ieik
nr. 5 á listanum yfir áskorend
ur Listons.
við háskóla í Kaliforníu, en eigi
er víst ennþá hvaða skóli það er.
Styrkur sá er Jón hlýtur er
samskonar og beztu íþrótta-
menn annara þjóða hafa hlot-
ið þ. e. þeir fá námsstyrk við
bandariskan háskóla og fríar
ferðir til og frá næstu höfn
í Baudaríkjunum frá heima-
landi sínu.
Jafnframt er þeim gefinn
kostur á að iðka sína íþrótt
undir tilsögn góðs þjálfara og
þeim gefst kostur á keppni
við beztu menn i hvaða grein
sem er.
Beztur íslendinga
Jón Þ. Ólafsson var á s.l. ári
í sérflokki hvað árangur snerti
á alþjóðlegan mælikvarða. Hann
einn hefði af ísl. íþróttamönnum
getað sómt sér á hvaða íþrótta-
móti sem var, árangurs vegna.
Þar við bætizt að Jón er vaxandi
maður í sinni grein og getur ef-
laust miklu meira en hann hefur
þegar sýnt. Það er því ekki til
ónýtis að hann kemst í hendur
beztu þjálfara og í keppni við
beztu menn.
Afrek Jóns eru stórkostleg á
Gamlir kappar tókust á.
ísl. mælikvarða. Hann hefur
stokkið 2.06 m utanhúss og sjálf
ur sagt að hann hafi alltaf verið
meira og minna hindraður af
þeim atrennubrautum sem gef-
izt hafa. Innanhúss hefur hann
stokkið 2.11 sem er afrek á
heimsmælikvarða. í Jóni búa
kraftar sem kannski nægja til
2.15 eða 2.18 eða jafnvel meir.
Hver veit. En með Bandaríkja-
förinni og þjálfun þar hefur
hann fengið meira og betra tæki
færi en nokkur ísl. íþróttamað-
ur hefur fengið til þessa ísl.
íþróttir vænta góðs af för Jóns.
Svíar
unnu
Rússa
i handknattleik
RÚSSAR og Svíar hafa undan
farna daga leikið tvo lands-
leiki i handknattleik og báðir
farið fram í Svíþjóð. í fyrri
lciknum s.I. þriðjudag í Gauta
borg unnu Svíar með 23:16.
Sá leikur þótti lélegur m. a.
lét hinn kunni danski dómari
Knud Knudsen sem hér dvel
ur þessa daga og þjálfar ísl.
dómara svo ummælt að eftir
að hafa séð fyrri leik Rússa
og Svía að Rússar væru á
framfarabraut en Svíar gætu
ekkert.
Svo mættust Svíar og Rúss-
ar öðru sinni í gær (fimmtu-
dag) í Helsingborg. Þá unnu
Rússar með 25—20. En saman
lagður niarkafjöldi er Svíum
í vil 43—41.
— Borgarstjórn
Framh. af bls. 8
þessu stigi málsins að geta farið
fram í vor.
Fimmta og síðasta fyrirspurn-
in, sem á dagskrá var, var einn-
ig frá Óskari Hallgrímssyni. —
Spurðist hann fyrir um, hvort
athugun á húsnæðismálum ungs
fólks, í samræmi við samiþykkt
borgarstjórnar 16. maí s.l., hefði
farið fram.
Þessu svaraði borgarstjóri á
þá leið, að borgarhagfræðingi
hafi verið falið, í samráði við
skrifstofustjóra félags- og fram-
færslumála og húsnæðisulltrúa,
að gera þá athugun, sem í til-
lögunni ræðir um.
Borgarhagfræðingur hafi nú
skilað frumathugun, sem sé að
vísu aðeins lausleg, á þessu stigi
málsins, en athugunin verði lögð
fram í borgarráði í næstu viku.
Gert hafi verið ráð fyrir, að ýms
ar upplýsingar, í sambandi við
allsherjarmanntalið 1960, lægiu
á lausu, en svo hafi ekki vei>3.
Því sé rannsókn sú, sem tillag-
an fjallar um, ekki nægilega ýfar
leg, enn sem komið er. Þó muni
borgarráð, í samráði við tillögu
menn, þá borgarfulltrúana
Björn Guðmundsson og Þór
Vilhjálmsson, væntanlega fjalla
um, hvernig könnuninni skuli
haldið áfram.
Er borgarstjóri hafði svarað
fyrirspurnum, tóku fyrirspyrj-
endur til máls. Óskar Hallgrínvs-
son þafckaði svör þau, er hann
hafði fengið. Taldi hann nú nauð
syn á að fá þegar úr þvi skorið,
hvort umræðugrundvöllur væri
fyrir hendi, að því er varðaði
kaup á íbúðum þeim, sem ísl.
Aðalverktakar hafa nú í smíðum.
Taldi hann vafasamt, að kostur
væri nú á öðrum íbúðum, og
mætti þvi efcki draga málið á
langinn. — Ræðumaður ræddi
síðan byggingarkostnað, og nauð
syn þess, að reynt verði að lækka
hann. Vék hann m.a. að betri
tækni, og bentj á, að hér þyrfti
KFR og ÍR háöu
sama baráttu í 1
— ofj KFR
S.L. þriðjudagskvöld var fs-
landsmótinu í körfubolta haldið
áfram að Hálogalandi. KFR vann
KR í III. fl. karla, Ármann sigr-
aði KR og KRR vann ÍR í I.
.flokki karla.
Leikur þriðja flokks var all
góður og jafn allan tímann. KR-
ingar höfðu yfir í hálfleik 11 —
10 en í síðari hálfleik tókst KFR-
ingum að*'jafna og komast yfir,
þannig að leiknum lauk með
þeirra sigri 22 stig gegn 18.
Lið KR í I. flokki er all gott
og skipað vel leikandi og reynd-
um mönnum eins og Jóni Otta
Ólafsisym, Þórl Ai-inbjarnarsym,
Skúla Kristbergssyni og síðast
en ekki sízt Kristjáni Steinssyni
unglingalandsliðsmanni, sem
jafnframt er bezti maður liðsins.
Ármannsliðið er talsvert þyngra
og svifaseinna en þeir hafa
einnig gamla meistaraflokks-
vann 25-28
menn á sínum snærum eins og
Árna Samúelsson og Davíð Jóns
son. Það var heldur álit manna
að KR-ingar myndu vinna og
leit út fyrir að úr því rættist því
KR-ingar hafa yfir í hálfleik 22
gegn 17. Ármenningarnir jafna
leikinn í byrjun seinni hálfleiks
og þegar sjö mínútur eru af hálf
leiknum er staðan 27—28 KR
í vil. Þá taka Ármenningar allt
í einu sprett og á sex mínútum
skora þeir átján stig gegn engu
og kafsigldu KR gersamlega.
Leikurinn endaði þannig með
stórsigri þeirra 51:30. Stigahæst-
ir hjá Ármanni voru: Björn 17
stig, Davíð Jónsson 16 og Sveinn
með 7. Hjá KR: Kristján með 16.
Aðaldómari var Einar Ólafsson,
aðstoðardómari Óiafur Gestsson.
Leikur KFR og ÍR var mjög
jafn allan tímann og mátti vart
á milli sjá. KFR teflir fram meg
með forystu borgaryfirvalda.
Taldi hann stofnun stórra bygg-
íngarfélaga geta miklu fengið
áorkað á því sviði, þ.e., ef þau
létu ekki stjórnast af hagnaðar-
von. Benti ræðumaður á dæmi
erlendis, jnáli sínu til stuðmngs.
Adda Bára Sigfúsdóttir vék að
þörf þeirra, sem búa við lélegt
eða heílsuspillandi húsnæði. —
Benti hún á, að margir þeirra,
sem mest eru þurfandi, hafi
ekki bolmagn til íbúðakaupa.
Nefndi hún dæmi, máli sínu til
rökstuðnings. Lagði hún mikla
áherzlu á nauðsyn þess að koma
upp leiguhúsnæði, sem leyst geti
vandræði þeirra, er verst eru
staddir.
Ræðumaður vék nokkuð að
tsl. Aðalverktökum, og samn-
ingaumleitunum við þá. Kvaðst
hún vona, að enginn virti sér
það á verri veg, þótt hún benti
á, að vel mætti vera, að ekkert
fast tilboð hefði komið fram af
verktakanna hálfu enn, vegna
þess, hve miklar hækkanir ættu
sér stað. Sagðist hún vona, að
ekki færi svo, að taka yrði hvaða
tilboði, sem væri. Varpaði hún
þeirri fyrirspurn fram, hvort
ekki hefði verið hægt að semja
um íbúðarverðið, og fella þá
verðtryggingu inn í samningana,
t.d. binda það vísitölu bygging-
arkostnaðar.
Gísli Halldórsson, S, tók næst
til máls. Ræddi hann nokkuð
íbúðir ísl. Aðalverktaka við
Kaplaskjólsveg. Viðurkenndi
hann, að dráttur hefði orðið á
afgreiðslu málsins, en benti á
verkföll, m.a. trésmiða, sem
hindrað hefði og tafið fram-
kvæmdirnar, og ekkert hefði ver
ið hægt við að gera.
Nokkrar frekari umræður
urðu, áður en næsta dagskrár-
mál var tekið fyrir (Frásögn af
síðari hluta fundarins birtist í
blaðinu á morgun).
instoðum meistaraflokksliðsins
sem var og hét, þeim Ólafi
Thorlacius, Marínó Sveinssym og
Sigurði Helgasyni, og svo nokkr
um gamalkunnum leikmönnum
ÍR-ingar voru hinsvegar með
nokkurskonar cocktail, þ.e. leik-
menn úr öðrum flokki saman
með eldri mönnum félagsins sem
hættir eru að æfa að nokkru
ráði. Var þetta hin skemmtileg-
asta viðureign og sáust mörg
skemmtilegt tilþrif. Þó fór ems
og eðlilegt er margt aflaga og
lítil samæfing hjá liðumjm áber-
andi. í hálfleik voru KFR-mgar
yfir 22:19 og unnu þeir að lok-
um 45 gegn 43. Stigahæstir hjá
ÍR voru: Jón, sem var langbeztur
í liðinu 14 stig, Steinþór 9 og
Iingi Þór 8. Hjá KFR: Marinó
14, Ólafur 12 og Sigurður 10.
Þessir þrír voru eins og vænta
mátti beztir hjá KFR. Dómarar
voru Kristbjörn Albertsson og
Davíð Jónsson.
(