Morgunblaðið - 06.03.1964, Page 5
Föstudagur 6. marz 1964
MORGUNBLADIÐ
5
UM LOKUNARTIMA SOLUBUÐA
í ÞÝZKA vikublaðinu „Stern'*
birtist nýlega grein um hina
„umdeildu og óþörfu“ reglu-
gerð um lokun sölubúða þar í
landi. Hér fara á eftir glefsur
úr grein þessari, í lauslegri
enduirsögn:
„Fólk treður hvort öðru um
tær. Það er þröng við búðar-
borðið og við gjaldkerastúk-
una, sölufóikið er þreytt og
úrillt, viðskiptavinirnir argir
og hafa aUt á hornum sér.
Klukkan er sex í Þýzkalandi.
Skrifstofufólkið hrannast út
af vinnustöðum og í búðirn-
ar. Allir verða að hafa hrað-
ann á, því ekki er nema hálf-
tími til stefnu. Klukkan 18:30
er búðum lokað. Svo segir í
reglugerðinni.
Kaupmaðurinn sem selur
gömlum viðskiptavini, er orð-
ið héfur seinn fyrir, eitthvað
lítilræði eftir lokunartíma, á
yfir höfði sér allt að 1000
maxka sekt ef upp kemst. Svo
segir í reglugerðinni.
Gullsmiðurinn vildi helzt fá
að sofa út- á morgnana, hann
selur hvort eð er sama og ekk-
ert fyrir hádegi, og hafa í þess
stað opið á kvöldin svo leik-
húsgestir og aðrir næturhrafn-
ar geti látið fangast af glóandi
gulli og glitrandi steinum
í dimmxi nóttunni. .. En hann
má það ekkL Svo segir í reglu
gerðinni.
Og tU hvers er leikurinn
eiginlega gerður? Hverjum
er þetta í hag?
Til þess að afgreiðslufólk í
sölubúðum sé ekki hlunnfar-
ið hvað vinnu snertir? Mér
er spurn — hvað mega þá
starfsmenn járnbrauta, vatns-
veitna, rafmagns, síma og út-
varps og annarra áþekkra
þjónustu leggja til málanna?
Eiga þeir líka að hætta að
vinna klukkan hálf-sjö á
kvöldin og hafa lokað yfir
helgar? Það er engin hætta á
því að nokkur kaupmaður geti
boðið starfsfólki sínu mun lak
ari kjör en annars staðar, inn-
an 'stéttarinnar eða utan. Hon
um héldist þá ekki lengi á
starfsfólki sínu.
Þetta er gert til þess að
jafna aðstöðu kaupmanna,
segja aðrir. En það er fjar-
stæða. Markaðsaðstaða verzl-
ana er undir svo mörgu öðru
komin og það er fjarstæða að
ætla sér að skakka hinn ó-
jafna lerk frjálsrar sam-
keppni. Kaupmannasamtök
ýmissa landa hafa lýst yfir
því að það brjóti í bága við
lög að kaupmenn taki sig sam
an um að loka sölubúðum á
sama tíma, það hefti eðlilega
samkeppni. En það hlýtur að
gilda einu máli hvort samtíma
lokun sölubúða er samkomu-
lagsatriði kaupmanna sjálfra
eða lagaleg þvingun.
í flestum stórborgum heims
er hægt að kaupa í sig og á
langt fram eftir kvöldum. í
París skiptast stórverzlanirnar
á að hafa opið fram eftir í
Róm er heldur ekki lokað, í
New York er næsta „drug-
store" opin daga og nætur —
já, meira að segja í Moskvu
geta menn verzlað á mið-
nættL
Það er engin ástæða fyrir
Þeim þykir mörgum gott í
París að geta verzlað til tíii.
því að þetta sé ekki hægt hér
í Þýzkalandi líka. Hið eina
sem kemur í veg fyrir að við
getum verzlað þegar okkur
kem,ur sjálfum bezt er þessi
allsendis óþarfa reglugerð um
lokunartíma sölubúða."
'Áheit og gjafir
Gjafir sem hafa borist í Hjálpar-
0jóð Rauða Kross Jslands 1963.
Björg Sigurjómsdóttir 200 — Gömul
hjón Inmri Njarðvíé 1000 — S.Á.B.
5000 — Ragnheiður Daníelsdóttir 500 —
6igríður Pálsdóttir 2000 — M.G. 125 —
Laufey Einarsd. Jeldiekova. 200 — G.S.
100 — Helgi Guðmundsson 500 —
Bjarni Jónsson 1000 — Inga áheit 100
— Halla Jónsdóttir 25 — Rauðasands
hreppur söfnun þorrablót 11975 —-
Björn Jónsson 200 — Þurfður Gísla-
dóttir 100 — Ólöf Sigurðardóttir Akra-
»esi 1000 — Gömul kona 1000 — A.J.
200 — M.E. 1000 — M.G. 100 — M.J.
3000 — N.N. 100 N.N. 100 Guðlaugur
Skúlason 225 — M.B. 1000 — Guðný
Þorsteinsdóttir 100 — Kona S.H. 100 —
í og O. 1000 — N. áheit 100 — Ragnhild
ur 300 — Guðbjörg O.F. Ólafsfirði 500
— N.N. 2000 — N.N. 100 — E.B. 210 —
N.N. 1000 — M.J. áheit 500 — Ónefnd
100 — Erlendsína Helgadóttir Sjónarh.
1000 — Una Gísladóttir Hverfisg. 106
500 — Ingibjörg Guðmundsttir 300 —
N.N. 100 — Gunnlaugur Hallgrímsson
500 — N.N. 200 — Jens Ögmundsson
100 — Grímur Jónsson 100 —
Jóhannes og Þórveig 3000 — Áheit
Sonný 100 — N.N. 1000 — GÖmul kona
á Grund. 200 — J.H.B. 200 — N.N 500
— Jósafat Jónsson Blöndu 500 — Júlí-
ana Sturlaugsd. 500 — Brynjólfur
Þorsteinss. 300 — Aðalheiður Sigurð-
ardóttir 200 — Herdís Jóhannsd. 300
— Ágústa Lúðvíksd. Fáskf. 200 —
G.S. 100. — Samtals 34.660.
Kúbu-söfnun Rauða Kross ísl.:
N.N. 300 — N.N. 400 — M.E. 1000 —
K.S.M. 100 — Magnús Jónasson 500 —
N.N. 100 — N.N. 500 — S.J.J. 100 —
Guðlaug Jónsdóttir 500 — Tveir Norð-
lendingar 100 — Guðleyí Ðárðardóttir
100 — N.N. 100 — Frá konu 200 —
Tíminn safnaði 100 — Morgunblaðið
safnaði 700 — Þjóðviljinn safnaði 800
—- orsteinn Einarsson 200 — Frá nokkr
um á Akranesi 1000 — G. Iðunn Jóns-
dóttir 500 — Samtals kr. 7400.
Rauði Kross íslands færir öllum
beztu þakkir fyrir.
VISUKORIM
TIL KJARTANS:
Konuna í vesturbænum
vantar botn. —
Vinur minn, þér verð að tjá
mig vantar botn í rúmið. —
FOSTUMESSA
EUiheimilið Grund. — Föstu-
messa í kvöld klukkan 6.30 —
Heimilispresturinn.
+ Gengið +
GenglS 3. marz 1964.
Kaup Sala
1 Enskt pund .. .. .... 120,20 120,50
1 Banaarikjadollar .. 42.90 +Ö.ÍH)
1 Kanadadollar ...... 39,80 39,91
100 Austurr. sch. _ 166,18 166,60
100 Danskar kr. .^..... 621,28 622,88
100 Norskar kr. _... ..... 600,25 601,79
100 Sænsk. kr 831,95 834,10
100 Fmnsk mörk 1.335,72 1.339,14
100 Fr. franki 874,08 876,32
100 Svissn. frankar 993,53 996.08
100 V-þýzk mörk 1.080,86 1.083.62
100 Gyllini 1J91 81 1.194,87
100 Belg. frankl _ ~ 86.17 86,39
London
Wien
Moskva
New York
Los Angeles
París
Tokyo
1 e.h.
2 e.h.
4 e.h.
8 f.h.
5 f.h.
2 e.h.
10 e.h.
Vélsog
Vil kaupa vélsög (plötu-
sög), tveggja fasa. Uppl. í
síma 15112.
Keflavík
Drengjaskyrtur. Allt á ung
barnið. Dömuundinföt í úr-
vali.
Verzlunin Elva.
Óska eftir
áhugamanni, 1—2, sem
vildi stofna félag um
aluminíum glugga og hurða
smíði. Tilíb. merkt: „Vanur
— 9144“ sendist Mbl. fyrir
15/3.
Keflavík — Nágrenni
Jakob sér utm sína og send
ir góðar matvörur og góðar
kartöflur inn á hvert heim-
ili.
Faxaborg — Sími 1826.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
HVAÐ [R KLUKKAIU?
Þegar klukkan er 12 á hádegi
í Reykjavík er hún í:
Kaupmannahöfn 2 e.h.
Læknar fjarverandi
Bjarni Snæbjórnsson. Lækninga- !
stofa mín verður lokuð 6. til 22. þ.m.
Jósef Ólafsson sinnir sjúklingum
mínum. Viðtalstími hans er mánud,
fimmtud. og fóstud. kl. 1— 2.30, !
þriðjud. og miðvd. 4.30 — 5.30 í nýju |
Sparisjóðsbyggingunni í Hafnarfirði.
Sími á stofu: 51828. Sfmi heima: 51820.
FRÉTTASÍMAR MBL.:
— eít»r lokun —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Keflavík
Dömupeysur með rúllu-
kraga í mörgum lituim. —
Nælonúlpur, ullarúlpur og
poplinúlpur.
Verzlunin Elva.
Peningaskápur til sölu
71x48x46 cm. Upplýsingar
í síma 1-3727.
Keflvíkingar
Sparið í dýrtíðinni, kaupið
vörur með gamla verðillu:
Hrossakjöt, dilkakjöt, salt-
fisk, hamsatólg, ávexti,
græumeti.
Jakob, Smáratúni.
Stúlka vön afgreiðslu
óskar eftir góðri vinnu um
næstu mánaðamót. Uppl. í
síma 21176 eftir kL 5.
Pípulagninganemi óskast
helzt úr Kópavogi. Uppl.
að Nýbýlaveg 27.
Tilkynningar, sem eiga
að birtast í Dagbók á
sunnudögum verða að
hafa borizt fyrir Ll. 7 á |
föstudögum.
Hjúkiunorkonnr ósknst
Hjúkrunarkonur vantar nú þegar í Vífilsstaðahælið.
Upplýsingar gefur forstöðukonan í sima 51857.
Reykjavík, 3. marz 1964.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Berklavörn, Reykjavík, heldur
Félagsvist
í Skátaheimilinu við Snorrabraut laugardaginn 7.
marz kl. 9,30. — Góð verðlaun — Mætið vel og
stundvíslega.
H. R. klúbburinn
Skemmtikvöld í Lido
föstudaginn 6. marz
(í kvöld) kl. 8,30. —
Aðgangskort við inn-
ganginn.
Nefndin.
Hafnarfjörður
Hafnarfjörður
Kvöldvcalca
Slysavarnardeildarinnar Hraunprýði verður haldin
í Bæjarbíó sunnudaginn 8. marz kl. 8,30 og mánu-
daginn 9. marz kl. 9.
DAGSKRÁ:
Skemmtunin sett: Frú Rannveig Vigfúsdóttir.
1. Erindi: Gísli Sigurgeirsson.
2. Söngur: Frú Álfheiður Guðmundsdóttir.
3. Danssýning: Guðrún Pálsdóttir og Heiðar Ást-
valdsson.
4. Hraunprýðiskvartett.
5. Omar Ragnarsson.
H L É .
6. Savannah-tríó.
7. Lúðrasveit drengja.
8. Hraunprýðisbragur.
9. Ballett.--10. Skrautsýning.
Kynnir: Frú Guðrún Ingvarsdóttir.
Miðasala í Bæjarbíói sunnudag kL 1 e.h. og á
seinni sýningu mánudag kL 4 e.h.
Stjómin.