Morgunblaðið - 06.03.1964, Blaðsíða 24
LEKTROLUX UMBOÐIÐ
1AUOAVEOI 69 sími 21800
55. tbl. — Föstudagur 6. marz 1964
iaugavegi 26 simi 200 70 t
Lóðum úthlutað fyrir 900 íbúðir VX •' •'
við Elliðavog, í Kleppsholti og Arbæjarblettum -s3
í MAÍMÁNUÐI n.k. hefst úthlut-
un lóða á þrem svæðum í borg-
inni. Eru svæðin þessi: Elliða-
vogur norðan Njörvasunds, Ár-
bæjarblettir og Kleppsholt norð-
an Austurbrúnar. * • •
f Árbæ-jarhverfi verður útfhlut-.
að lóðum undir einbýlis- og fjöl-
býiishús, og er reiknað með, að
á því svaeði muni búa 4-6 þús-
un'd manns. Einbýlishúsin, sem
eru 133 að tölu, verða að flatar-
máli aUt að 150 ferm. og er þó
bifreiðageymsla ékki með talin.
Fjölbýlishúsin verða 3ja hæða,
með minnst 570 íbúðum.
í' Eiliðavogi verður úthlutað
lóðum undir 4 fjölbýlishús, 3ja
hæða og 2 fjölbýlisbús 7-8 hæða,
með minnst íl€ ibúðum, 41 rað-
hús á einni hæð, sem mega vera*
að flafarmáli allt að 169 fenm.
og að rúmmáli alit að 700 rúmm.
og er þá bifreiðageymsla inn-
byggð í húsin,'15 tví'býlishús á
tveim hæðum með 1-2 íbúðum
á hæð og mega húsin vera að flat
anmáli allt að 170 ferm. og að
rúmmáli allt að 1450 rúmm. og
er þá bifreiðageymsla innbyggð,
12 einbýlishús, einnar hæðar og
mega þau vera allt að 170 ferm.
að flatarmáli^og 800 rúmm. að
rúmmáli með innbyggðri bifreiða
geymslu.
í Kleppsholti verður úthlutað
lóðum undir 10 raðhús með 20
íbúðum og verða hús þessi á
tveim hæðum allt að 130 ferm.
að flatarmáli hvor íbúð og að
rúmmáli 000 rúmm. og er þá
bifreiðageymsla innbyggð. *
I>eir, sem sækja vilja um lóðir
á svæðum þessum, þurfa að senda
umsókn til borgarráðs fyrir 5.
aprdl n.k. Þeir, sem þegar hafa
sent umsóknir um lóðir á svæð-
um þessum, þurfa að endurnýjö
þær fyrir sama tíma.
Önnur samfelld svæði kbma
ekki til úthlutunar á þessu ári,
en stefnt er að því, að skipulags-
vinnu í Fossvogsdal verði loikið
á þessu ári og kemur það svæði
væntanlega til úthlutunar á
næsta ári. Þá er enn fremur ver-
ið að vinna að skipulagi í Breið-
hoitshverfi. Þær umsóknir, sem
þegar hafa verið sendar úm' lóð-
ir á öðrum svæðum en þeim, sem
að framan greinir, halda gildi
sínu, þar til auglýst verður eftir
endurnýjun."
(Fréttatilkynning frá
skrifstofu borgarverkfræðings).
w rx' <. **
Sigið 1955. Myndina tók Sigurður Þórarinsson.
Sig í Vatnajökli vestan Grímsvatna
Bunaðorþingi
slitið í gær
BÚNAÐARÞINGI var slitið í
gær eÆtir 21 dags setu. Hafði
það fengið 30 mál til meðferð-
ar og afgreitt 28 þeirra á meðal
frumvarp til búfjárræktarlaga.
Forseti þingsins Þorsteinn Sig-
urðsson sleit þinginu, en aldUrs
forseti, Jón Sigurðsson á Reynis-
stað þakkaði fundastjórn.
Brennisteinsfýlu vart á Norðurlandi
— Hlaup. komið í Skaftá
í GÆRMORGUN bárust þær
fréttir frá Akureyri og Húsa
vík að megn brennisteins-
fýla fyndist þar. Og varðskip
út af Mánáreyjum hennar
vart. Sigurður Þúrarinsson
var spurður hverju bann
teldi að þetta sætti. Hann
áleit að þarna mundi vera
um að ræða sig í Vatnajökli,
um 10—15 km. vestur eða
suðvestur af Grímsvötnum,
og mundi vera að byrja
hlaup í Skaftá af þeim sök-
um. Þetta byggði hann á
því að 26. febrúar hafði
mælzt jarðskjálfti með upp-
tök á þessum slóðum, og að
árið 1955 hafði fyrsta merki
um slíkt sig í jöklinum verið
jöklafýla fyrir norðan. Það
kom líka á daginn við nán-
ari eftirgrennslan að einmitt
í gær fór Skaftá mjög að
vaxa og verða gruggug. Því
mun nær fullsannað að jök-
ullinn hefur sigið sennilega
myndast dæld um kílómeter
á hvern veg á fyrrnefndum
stað. En ekki var í gær flug-
veður til að fara og skoða
staðinn.
Bræösluvatn hleypur fram
og jökullinn sigur.
Jöklafýlunnar af siginu 1955
varð vart á Akureyri og Húsa-
vík og einnig austur á Héraði.
Þá flugu þeir Pálmi heitinn
Hannesson og dr. Sigurður Þór-
arinsson austur yfir jökuiinn.
Var þá sporöskjulaga sigdæld
vestur af Grímsvötnum og áætl-
uðu þeir lau§lega heildarrúm-
mál sigsins 100 til 200 millj.
rúmm. Orsök sigsins töldu þeir
Forstjóranum
falið að finna
lausn á
mjólkursölu-
deilunni
STJÓRN Mjólkursamsölunn-
ar hefur falið Stefáni Björns-
syni, forstjóra fyrirtækisins,
aff finna lausn á deilu þeirri
sem komin er upp vegna
mjólkursölu í þorpum á Snæ-
fellsnesi.
Stefán athugar þessa dag-
ana hvaða leiffir séu vænleg-
astar til aff neytendur og kaup
menn á Snæfellsnesi geti
unað vel viff mjólkursölu þar.
þá, að þar hafi safnazt fyrir
bræðsluvatn undir ísnum og
myndað hvelfingu, sem síðan
hefði tæzt að mestu eða öllu.
Væri hér annaðhvort um að
ræða stöðugan jarðhita eða þá
að smá eldgos hefði orðið undir
jöklinum án þess að ná upp 1
gegnum hann. Sigdæld hafði
einnig sézt á svipuðum slóðum
áður og komið jöklafýla í Sikaftá-
Töldu vísindamennirnir 1955 að
þekta sig gæfi góða hugmynd um
landslag undir suðvesturhluta
Vatnajökuls. Líklega séu þar mó
bergshryggir með Na-SV stefnu,
sem haldi áfram langt inn undir
jökul, en að vatnasvið Tungna-
ár sé nokkrú minna en ráða
megi af yfirborði jökulsins, mið-
að við rennslishlutfall Tungnaár
og Skaftár. Árið 1955 varð jökla-
fýlunnar vart sunnudaginn 4.
september, hlaupsins varð vart
3 september og óx Skaftá fram
til hádegis 5. september.
Framh. á bls. 23
Flugmálastjón»r
yfir Surtsey
í GÆR hélt áfram fimdur flug-
málastjóra Norðurlanda og full-
trúa þeirra, sem hér stendur nú.
í gærmorgun flugu flugmála-
stjórarnir til Surtseyjar í góðiu
veðri.
IVIinningarathöfn um Ða-
víð Stefánsson á Akureyri
Þyr'a lendir á Úöni
EINS og kunnugt er fór varff-
skipið Óðinn utan um nýjárið
í vetur og vax þyrluþilfar
skipsins stækkað nokkuff til
þess að þar gætu lent nýjar
stórar og þungar þyrlur sem
nú cru notaffar af varnarliff-
inu á Keflavíkurflugvelli. í
gær æfffi svo ein af þessum
þyrlum lendingar á hinu end-
urbætta þilfari. Meðan varff-
skipiff var á ferff í innanverff-
um Faxaflóa. Veffur var gott
og gengu allar lendingar alls
7 að tölu mjög vel. Mynd þessa
tók Helgi Hallvarðsson við
æfingarnar i gær.
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
gengst fyrir minningarathöfn
um Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi í Akureyrarkirkju
laugardaginn 7. marz kl. 15.
Athöfnin hefct með þvi að
Jakiob Tryggvason leikur forspil.
Því næst syngur kirkjukór Akur
eyrarikirkju „Ó þá náð að eiga
Jesú“ og þá flytur séra Pétur
Sigurgeirsson minningarræðu. Að
henni lokinni syngur Karlakór-
inn Geysir „Víst ert þú Jesús
kóngur klár“. Þá flytur biskup-
inn yfir íslandi herra Sigurbjörn
Einarsson ræðu og kveðju frá
íslenzku kirkjunni. Jóihan.n Kon
ráðsson yngur síðan „Ég kveiki
á kertum mínum“, með undir-
leiik Báls ísólfssonar. Því næst
syngur kirkjukór Akureyrar
„Hvað bindur vorn hug við
henmsins glaum“, og síðan lýsir
biskup blessun. Að því búnu
syngur karlakórinn Geysir „Ég
krýp og faðma fótskör þina'ö og
að lokum mun Báll ísólfeson
leiika útgöngulag.
Jakob Tryggvason annast und
irleik með kórsöngnum Lúðra-
sveit Akureyrar mun leika úti
fyrir kirikjudyum meðan kistan
verður hafin út
Að athöfninni lokinni ve. jur
kistan flutt út að Fagfaskógi, en
á mánudaginn kl 14 fer þar fram
húskveðja, sem séra Benjamín
Kristjánsson flytur. Jarðsungið
verður að Möðruvöllum í Hörg-
árdal.
Árshátíð Sjálf-
stæðisfélagsins
Stykkishólmi
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisifélags
ins Skjaldar í Stykkishólmi
verður haldin í sam í sam-
komuhúsinu þar laugardags-
kvöldið. 7. þ.m. og hefst með
borðhaídi. kl. 9.30. Bjarm
Benediktsson, forsætisráð-
herra mun flytja ræðu og
Sigurður Ágústsson, alþingis-
maður, ávarp. Ýms skemmti-
atriði verða, svo sem kvar-
tettsöngur, upplestur, gaman-
vísur og fleira.