Morgunblaðið - 01.04.1964, Qupperneq 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Mikið tjón m.a. brunnu pen-
ingar og verðmæt skjöl
Egilsstöðum, 31. marz.
tJM kl. 6.30 á páskadagsmorgun
varð þess vart að eldur var laus
í flugskýlinu við Egilsstaðaflug-
völl. Var slökkvilið Egilsstaða-
kauptúns þegar kvatt til og kom
það að skálanum rétt fyrir kl. 7.
Var skálinn þá gerfallinn, en log
aði í rústunum.
Nýja flugstöðvarbyggingin er
suðaustan við skálann aðeins
10—12 m. frá horni hans. Voru
nokkrar rúður sprungnar í norð-
urhlið þeirrar byggingar. Lítið
timburskýli er við norðurdyr
flugstöðvarinnar og var það
snarpheitt er að var komið.
Bogaskemma er norðvestur
af skálanum þar sem geymdur er
allskyn flutningur. Slapp
skemman alveg, enda mátti
heita að logn væri, en þó lítils-
háttar suðvestan goia og gat
ekki vindstaða verið hagstæðari
eftir aðstæðum.
Fljótt var slökkt í rústunum,
enda allt brunnið, sem brunmð
gat. Fólksvagn stóð vestan við
skýlið og hefir sloppið naum-
lega, en á tröppum, sem notaðar
eru við að ferma og afferma
flugvélar, brann eitt dekk, sömu
leiðis dekk undir vagni, sem
stóð vestan við skýlið og ná-
lægt.
Var eldurinn að læsa sig bæði
í vagninn og tröppurnar er að
var komið.
Húsið var yfirgefið síðast kl. 6
laugardagskvöld. Rafmagnshit-
un var í húsinu, en engin eld-
unartæki. Garðar Stefánson var
á vakt í flugturninum til kl. 11
á laugardagskvöld.
Tjón varð tilfinnanlegt. Þarna
brann allt bókhald F. í. skrif-
stofuáhöld, vigt og ýmiskonar
tæki, ennfremur talsvert af öli,
sælgæti og tóbaki. Guðmundur
Benediktsson afgreiðslumaður
varð fyrir allmiklu tjóni, missti
m. a. myndavél og ritvél. Lítill
eldtraustur skjalaskápur var í
byggingunni, en ekki var búið
að opna hann og því óvíst hvort
innihald hans er heilt.
Þarna brann talsvert af pen-
ingum, sem voru í venjulegum
peningakassa.
Öll afgreiðsla farþega fór
fram í þessu skýli, en nú verður
hluti af neðri hæð flugstöðvar-
byggingarinnar tekinn fyrir far-
þegaafgreiðslu, en þar var íbúð
fram að s.l. jólum. Fyrirhugað
var að bæta því húsnæði við af-
greiðsluna, en telja má að óhjá-
kvæmilegt verði að bæta við af-
greiðsluhúnæðið með nýbygg-
ingu. — J. P.
Stykkisihólmi, 31. marz
RÉTT fyrir hádegi á Skírdag
rákust tvær bifreiðar á í Kerl-
ingarskarði. Var önnur að koma
sunnan úr Reykjavík en hin frá
Stykkisihólmi. 1 samfloti með
Reykjavíkurbifreiðinni var önn-
ur bifreið og voru í hvorri 6
menn, sem ætluðu sér að eyða
páskahelginni á Snæfellsnesi,
taka myndir og skoða sig um.
■ :
Kuslir flugafgreidslunnar á Egilsstöð umu
Siffurður Ágústsson
skerst á hölði í bílslysi
í bifreiðinni sem kom frá Stykikis
hólmi ók Sigurður Ágústsson, al
þingismaður, en hann var á leið
inni út í Breiðuvíkurhrepp, þar
sem þingmenn kjördaemisins ætl
uðu að ræða við íbúa hreppsins.
Á brú, sem er skammt fyrir
ofan Seljafell á Kerlingarskarði
mættust bílarnir með þeim af-
leiðingum að þeir skemmdust
mikið. Annan þeirra var farið
strax með til Reykjavíkur á vöru
bíl. Á fjallinu var þoka og
skyggni þannig að bifreiðastjór-
arnir sáu ekki hver annars bíl
fyrr en rétt áður en árekstur-
inn varð. Við áreksturinn skarst
alþingismaðurinn mjög á höfði
þannig að það varð að sauma
í enni hans um 20 spor, og eins
varð að sauma höku og smá-
hruflur annars staðar. Hann hlaut
engin beinbrot.
Bifreið Sigurðar var Landrov
er-bifreið, en hin bifreiðin var
Willys-bifreið. Bifreiðastjórann í
þeirri bifreið sakaði ekki, fékk
aðeins smáhruflur, en einn far-
þeginn, Rafn Hafnfjörð, féikk
heilahristing og skrámur og rank
aði hánn ekki við sér fyrr ea
í sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. —
Bifreiðin sem á eftir var flutti
Sigurð og hann beint í sjúkra-
'húsið. Rafn var flu-.ur til Reykja
vikur á páskadag með flugvél
Björns Pálssonar og Sigurður
Ágústsson kom úr sjúikraHúsinu
í dag heim til sín, og er líðaa
hans góð. — Fréttáritari.
Miðvikudagur 1. apríl 'Í964
Yfirmaöur Atlants-
hafsflota NATO htr
SMITH aðmíráll, yfirmaður flota
Atlantshafsbandalagsins á Norð-
ur-Atlantshafi, kom til Keflavík
urflugvallar í gærmorgun. Þar
tóku á móti honurn Buie, yfir^
maður Varnarliðsins, James K.
Penfield, sendiherra Bandaríkj-
anna og Hörður Helgason, for-
maður Varnarmálanefndar.
I gær heimsóti Smith aðmíráll
m.a. forseta íslands, forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra. Þá
hafði Penfield sendiherra síðdeg
isboð inni i sendiherrabústaðnum
en í gærkvöld sat aðmírállinn
síðan kvöldverðarboð utanríkis-
ráðherra í Ráðherrabústaðnum
við Tjarnargötu.
1 dag mun aðmírállinn flytja
erindi að Hótel Sögu í hádegis-
verði, sem Varðiberg býður tiL
Síðar um daginn mun aðmíráll-
inn ræða við fréttamenn, en um
kvöldið efnir hann til veizlu að
Hótel Borg.
Nýjar reglur um af-
greibsluiíma í dag
Hverfaskipting til framkvæmda á
mánudag — Kvöldsala nú um söluop
Í DAG, 1. apríl, koma til
framkvæmda hinar nýju reglur
um aílgreiðslutíma verzlana í
Reykjavík, en þær gera ráð fyrir
að borginni verði skipt í hverfi
og verði ein verzlun í hverju
hverfi opin til kl. 9 á kvöldin
frá mánudegi til fimmtudags.
Olium verzlununum er og heim- i
ilt að hafa opið til kl 10 e.h. á
föstudagskvöldum án sérstaks
leyfis. Kvöldsalan, sem verið
hefur til þessa, færist nú í það
form, að þær verzlanir, sem
leyfi hafa til slíks, geta selt tak-
markaðan vörutegundafjölda
um söluop til kl. 23.30 á kvöld-
in. Slík lúguverzlun getur farið
fram allan daginn og fram til
23.30, en „sjoppur", af þeirri
tegund sem til þessa hafa tíðkazt |
leslgjast niður frá og með deg-
inum í dag.
Tillögur Kaupmannasamtak-
anna um skiptingu bæjarins í
hverfi komu fyrir borgarráð í
gær, og verða þær væintanlega
afgreiddar fyrir vikulokin. Ráð-
gert er að skiptingin komi til
framkvæmda frá og með næst-
komandi mánudegi. Leggja Kaup
mannasamtökin til að bænum
verði skipt í 9 hverfi.
Þá er það nýmæli upp tekið,
að verzlanir, sem selja innpakk-
aðan mat, svo sem smurbrauðs-
stofur, geta fengið leyfi til þess
Framhald á bls. 31.
á Egilsstóoum.
Hin nýja flugstöð
Flugafgreiðslan á Egils-
stöðum brann til ösku
Smith aðmíráll og kona hans í Reykjavík í gær (Ljósm.: Sv.ÞJ
Ketill og Halldór
til Tulsa / vikunni
— réttarhöld yfir Scaggs hefjast
6. april
ÞEIR félagar, Ketill Oddsson
og Halldór Gestsson, sem urðu
á sínum tíma fyrir skotárás,
er þeir voru við flugvirkja-
nám í Tulsa, Oklahoma, í
Bandaríkjunum, eru nú senn á
förum vestur aftur.
Mbl. fregnaði í gær, að 6.
apríl myndu hefjast málaferli
yfir J. D. Scaggs, manninum,
sem skaut á þá félaga.
Blaðið ræddi í gær stuttlega
við annan þeirra félaga, Hall-
dór, og skýrði hann svo frá,
að þeir myndu halda vestur
um haf nú um miðja vikuna.
Það mun venja, þegar vitni
(utanhéraðs) eru kvödd fyrir
rétt vestra, að yfirvöld standi
einhvern straum af ferðaokstn
aði þeirra.
Er Mbl. spurði Halldór að
því, hvort yfirvöld í Tulsa
hefðu á einhvern hátt greitt
för þeirra, sagði hann, að svo
hefði ekki verið, enn sem kom
ið er, a.m.k. Hefðu hann og
Ketill sjálfir orðið að standa
straum af þeim kostnaði, sem
leggja yrði í, í sambandi við
förina .
Þeir félagar gera ráð fyrir
að verða um 10 daga vestra.