Morgunblaðið - 01.04.1964, Side 16

Morgunblaðið - 01.04.1964, Side 16
16 MiðviTcudagur 1. apríl 19«4 MORCUNBLAÐIÐ Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjórar: Auglýsingar: Útbreiðslust j óri: Ritstjórn: Auglýsingar og afgreiðsla: Áskriftargjald kr. 90.00 í lausasölu kr. Hf. Árvakur, Reykjavík. Sigfús Jónsson. Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Árni Garðar Kristinsson. Sverrir Þórðarson. Aðalstræti 6. Aðalstræti 6. Sími 22480. á mánuði innanlands. 5.00 eintakið. VINNUFRIÐUR OG JAFNVÆGI Oinar miklu kaupkröfur á sl. ári voru að miklu leyti á því byggðar, að kjara- dómur hefði ákveðið opinber- um starfsmönnum svo há laun, að réttmætt væri að aðrar stéttir fengju hækkan- ir til að rétta sinn hlut. Allir höfðu þó verið sammála um það, áður en kjaradómur kvað upp úrskurð sinn, að opinberir starfsmenn yrðu að fá verulegar kjarabætur mið- að við aðra, þar sem þeir hefðu dregizt aftur úr. Nú hefur kjaradómur á ný kveðið upp úrskurð sinn vegna kröfu kjararáðs banda- lags starfsmanna ríkis og bæja um 15% kauphækkun og hrundið henni. Verða laun opinberra starfsamnna því ó- breytt og rökstyður kjara- dómur þá niðurstöðu m. a. með því að af áframhaldandi verðbólguþróun mundi skap- ast stórfellt vandamál að því er varðar afkomu þjóðarbús- ins í heild og þar af leiðandi kjör launþega, enda hafi fast- launafólk sérstaka ástæðu til að óttast áhrif áframhaldandi kaupphlaups á afkomu sína og aðstöðu. Launakröfur nú verða ekki byggðar á því að opinberir starfsmenn hafi fengið hækk- anir og aðrir þurfi að bæta kjör sín til jafns við þá. Þess er einnig að gæta að laun- þegasamtökin höfnuðu í des- emberverkföllunum tilraun- pm ríkisstjórnarinnar til að stuðla að því að hinir lægst launuðu fengju nokkru meiri kjarabætur en aðrir, enda lýstu samtökin því yfir, að þau teldu ekki að raska bæri , launahlutfalli stétta þeirra, sem eru innan Alþýðusam- bands íslands. Þegar þetta er haft í huga, liggur það ljóst fyrir, að ekki væri unnt að hefja kjarabar- áttu með. þeim rökstuðningi, að einstaka stéttir hefðu dreg izt aftur úr. Launþegasam- tökin sjálf hafa lýst því yfir, að launahlutfallið sé á þann veg, sem þau telji réttmætast. Og aðrir launamenn en opin- berir starfsmenn hafa rétt hlut sinn gagnvart þeim. Þannig hefur nú skapazt sá grundvöllur, að vinnufriður ætti að verða tryggður um alllanga framtíð. Þeir menn eru að vísu til, sem vilja koma á verkföllum verkfallanna vegna, en ef þeir reyna að hefja niðurrifsiðju, er sjálf- sagt að hindra hana, enda leikur enginn vafi á því, að launþegar almennt vilja vinnufrið, atvinnuöryggi og raunhæfar kjarabætur, sem yfirleitt fást aldrei með verk- föllum. Síðustu verðhækkanirnar, sem leiddi af kauphækkun- unum í desember, eru nú að koma fram og í kjölfar vinnu friðarins, sem framundan er, næst það jafnvægi í efnahags málum, sem tryggir mestar framfarir og stöðugt batnandi lífskjör. Þess vegna fagna menn þeim grundvelli, sem fenginn er til að treysta við- reisnina að nýju. Sjálfsagt munu einhverjir opinberir starfsmenn hafa orðið fyrir vonbrigðum og búizt við að þeir fengju kaup hækkanir umfram aðra. Reynslan er þó sú, að þegar laun einnar stéttar hækka, fylgja hinar í kjölfarið. Þess vegna er hætt við, að launa- hækkanir til opinberra starfs manna nú hefðu að litlu eða engu orðið. Og hvað sem öðru líður, þá ber að víta það framferði Kjararáðs bandalags starfs- manna ríkis og bæja, að drótta því að óháðum dóm- urum, að þeir hafi „gengið í berhögg við lögverndaðan rétt opinberra starfsmanna“, eins og komizt* er að orði í tilkynningu frá bandalaginu. BIFREiÐAEIGNIN CJkýrsla vegamálaskrifstof- ^ unnar um bifreiðaeign landsmanna 1. janúar 1964 er um marga hluti athyglisverð. íslendingar eiga nú 29,540 bif- reiðir. Af þeim eru tæplega 23 þúsund fólksbifreiðir, sem skiptast í hvorki meira né minna en 113 tegunÖir. Af vörubifreiðunum eru 107 teg- undir. Mjög hæpið er að þessi mikli fjöldi bifreiðategunda borgi sig. Endurnýjun og við- gerðir á þessum mikilvægu samgöngutækjum Væru vafa- laust auðveldari ef tegund- ir þeirra væru færri. Það er mála sannast, að bifreiðavið- gerðir hér á landi eru engan veginn eins vel ræktar og æskilegt væri. Hér eru aðeins til örfá viðgerðarverkstæði, sem fullkomin geti talizt og sambærileg við slík verk- stæði í nálægari löndum. Hér þarf mikið umbótaverk að vinna. Það er ekki nóg að tryggja þjóðinni mikinn bif- reiðakost. Það verður að halda honum við með skap- legum hætti. Bifreiðir eru dýr tæki, sem kosta árlega mikinn erlendan gjaldeyri í endur- nýjun og viðhaldi. Þess vegna er nauðsynlegt að í landinu UgYÆm Brigitte Bardot og Bob Zaguri í fiskiþorpinu Buzios í Brasilíu. Kvikmynd með Brigitte frumsýnd í París meðan hún matreiðir rækjur í Brasilíu FYRIR SKÖMMU var frum sýnd í París ný kvikmynd og að sögn fréttaritara New York Ximes hefur hún það eitt sér til ágætis að í aðal- hlutverkum eru leikarar, sem fjöldi manna fer að sjá án þess að hugsa nokkuð um efni myndanna. Þessir leikarar eru ir.:ðal þeirra allra vinsælustu í kvikmyndaheiminum um þessar mundir, Brigitte Bar- dot og Anthony Peidcins. Kvik myndin nýja nefnist „Une Ravissante Idiote“ eða í laus- legri þýðingu „Hrífandi kjá.n- inn.“ Myndin er frönsk, en fréttaritari New York Times kveður hana slæma eftirlík- ingu af breaku „Carry-on“ myndunum svonefndu, en margar þeirra hafa verið sýnd ar hér á landi. „Une Ravissante Idiote“ fjallar um njósnir. Brigitte leikur iðjusama saumakonu, en Anthony ástsjúkan rúss- neskan njósnara. Þau hittast auðvitað í fyrri hluta myndar innar og þrátt fyrir furðulegt og grunsamlegt háttarlag. Antlhony uppgötvar Brigitte ekki að hann er njósnari og verður óafvitandi meðsek. Hafizt var handa um töku myndarinnar í sumar í Lond- on, en eftir fáa daga gáfust framleiðendurnir upp. Atrið- in, sem taka átti utanhúss, Anthony Perkins og Brigitte var að töku „Une Kavissante fóru öll útum þúfur vegna þess hve margir forvitnir Lundúnabúar söfnuðust sam- an til þess að sjá hina frægu kviikmyndaleikara. Var hlé gert á kvikmyndatökunni um tíma, en í vetur tókst að Ijúka hennL • Undanfarna mánuði hefur Frh. á bls. 25 Bardot í London meðan unnið Idiote.“ séu vel rekin og fullkomin við gerðarverkstæði. Athyglisvert er að jeppa- eign landsmanna nemur nú nær 4000 bifreiðum. Það var nýsköpunarstjórnin, sem á sínum tíma beitti sér fyrir innflutningi þessara tækja í stríðslokin. Hafa þau orðið þjóðinni og ekki hvað sízt bændum að ómetanlegu gagni. Á sl. ári voru fluttar inn rúmlega 3000 bifreiðar. Er það mesta aukning bifreiða- kostsins, sem orðið hefur á einu ári. Æskilegt væri að bifreiðainnflutningurinn væri sem jafnastur frá ári til árs. Bifreiðin er eina samgöngu- tæki þjóðarinnar á landi. Hún er því ekki lúxustæki, enda þótt hægt sé að misnota hana eins og aðra góða og gagnlega hluti APRILMORGUN TJinn fyrsti aprílmorgun er 11 stundum tákn hins fyrsta vorboða. Köldustu mánuðir vetrarins liggja þá að baki og sól er tekin að hækka á lofti, daginn að lengja. En í okkar norðlæga landi eru veður öll válynd. Margt vorið hafa snjóar Iegið fram í apríl- og maí-lok. Jafnvel sjálf Jóns- messan hefur tjaldað hvítu um fjöll og heiðar. Sá vetur, sem nú er að líða hefur verið með eindæmum mildur. Á miðjum þorra sá- ust græn grös og á Góu skutu garðblóm undrandi upp koJUruro hér í Reykja- vík. Á sl. vori dundi páskahret með frosti og fannkyngi yfir þetta norðlæga land. Stór- tjón varð á trjágróðri, svo að einstakir garðar hér á suð- vesturlandi guldu mikið af- hroð. Sérstaklega varð öspin og einstakar grenitegundir hart úti. Að þessu sinni verð- ur varla sagt að um teljandi páskahret hafi verið að ræða, þótt nokkuð kólnaði í veðri. Og nú eru tún tekin að grænka og tré að laufgast. Engu verður spáð um fram- hald þessarar veðurblíðu eða komandi vor. Þjóðin býr sig af gamalli reynslu undir að kólna kunni. Engu að siður skapar veðurblíða vetrárins vorhug í sálina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.