Morgunblaðið - 01.04.1964, Side 23
^ Miðvikudagur 1. apríl 1964
MORCUNBLADIÐ
23
................■________________I
Sveinn Sveinsson fs landsmeistari í stökki.
51.43, stig fyrir göngu 240.0. Úr-
slitastig: 494.0.
Haraldur: Rástími í göngu
60.13, stig fyrir göngu 143.8. Úr-
siitastig 318.8.
★ 30 km. ganga
• Laugardaginn fyrir páska fór
fram keppni í 30 km. göngu á
Seljalandsdal. Færi var gott og
sögðu göngumenn að það hefði
verið létt að ganga. Sjö kepp-
endur voru í göngunni, en einn
hætti keppnL
Gunnar Guðmundsson varð öx
uggur sigurvegari í göngunni og
var hress og óþreyttur er hann
kom að marki.
Úrslit:
Gunnar Guðmundsson, S. 1.43.01
Frímann Ásmundss., UÍA 1.45.37
Guðm. Sveinsson, S. 1.45.45
Sveinn Sveinsson, S. 1.47.42
Gunnar Pétursson, í. 1.49.37
Sigurður Sigurðsson, f. 1.50.25
★ Stórsvig
Stórsvig karla átti að fara
fram í Þverfjalli á laugardag.
Hafði verið lögð ágæt braut ofar
lega í fjallinu, skammt frá þjóð-
veginum yfir Breiðadalsheiði.
Þegar keppni skyldi hefjast, var
hávaða rok og rigning. Voru
margir keppenda illa klæddir og
urðu gegnblautir og kaldir.
Gerðu margir þeirra uppreisn og
neituðu að keppa og töldu að
mótsstjórnin ætti að fresta
keppninni. Varð þetta til þess,
að af 35 keppendum, sem skráð-
ir voru til leiks, mættu aðeins
7 til leiks. Þessi misklíð varð
til þess að ákvörðun mótsstjórn-
ar um að láta keppnina fara
fram, var kærð og kærunni vís-
að til yfirdómara mótsins, Helga
Sveinssonar frá Siglufirði. Var
úrskurður hans á þá leið, að
keppnin væri lögleg. Mun þess-
um úrskurði hafa verið áfrýjað
til dómstóls SKÍ.
Varð þessi ágreiningur til að
skapa nokkur leiðindi og setja
heldur óskemmtilegan blæ á mót
ið.
Olympíufararnir tveir, Krist-
inn Benediktsson og Árni Sig-
urðsson frá ísafirðL voru í fyrstu
eætunum, en þriðji varð Svan-
berg Þórðarson frá Ólafsfirði.
Stórsvig karla
sek.
Kristinn Benediktsson, í. 44.7
Árni Sigurðsson, í. 45.6
Svanberg Þórðarson, Ó. 46.7
Stórsvig kvenna
sek.
Árdís Þórðardóttir, S. 44.7
Kristín Þorgeirsdóttir, S. 59.9
Marta B. Guðmundsd., R. 60.6
Marta og Karólína Guðmunds-
dóttir kepptu nú báðar i tíunda
skipti á Skíðamóti íslands.
í Alpa tvíkeppni karla sigraði
Kristinn Benediktsson, í. og í
Alpa tvíkeppni kvenna Árdís
Þórðardóttir, Siglufirði.
í flokkasvigi sigruðu ísfirðing
ar með miklum yfirburðum.
Sveit Akureyrar varð úr leik.
ísfirzku sveitina skipuðu Björn
Helgason, Hafsteinn Sigurðsson,
Árni Sigurðsson og Kristinn
Benediktsson. Var tími hennar
439.9 sek. Önnur varð sveit
Siglfirðinga á 448Ö6 sek. 3. varð
sveit Reykjavíkur á 483.6 sek. og
fjórða varð sveit Ólafsfjarðar á
491.7 sek.
Á Skíðaviku Skíðafélags fsa-
fjarðar var keppt í stórsvigi og
Einn frægasti sundmaður
heims keppir hér?
ÍSLENZKUM sundunnendum
gefst ef til vill kostur á því
innan skamms að sjá hér fyrr
verandi heimsmethafa í
keppni. Er hér um að ræða
Skotann McGregor, sem á s.l.
ári átti 3. bezta heimstímann
í 100 m. skriðsundi, synti 100
yards á 54,0 sek., og áttu að-
eins tveir Bandaríkjamenn
betri tíma.
Það eru KR-ingar sem eru
að reyna að fá þennan ágæta
og heimskunna sundmann á
afmælismót sitt. Samningum
er ekki lokið og blaðið gat
ekki fengið staðfestingu frétt
arinnar í gær.
í röðum sundmanna var þó
talið nær fullvíst að af þessu
yrði og koma þá auk Mc
Gregor Skotlandsmeistari í
200 m. bringusundi kvenna
Ann Baxter, sem á mjög góða
tíma, og fjórsundsmaðurinn
Bobby Harrower, víðkunnur
sundmaður, mjög allhliða.
Afmælismót KR verður haíd
ið í Sundhöllinni 16. og 19.
apríl og verður keppt í þess-
um greinum:
Fyrri dagur:
200 m. skriðsundi karla
200 m. bringusundi karla
50 m. baksundi karla
50 m. flugsundi karla
100 m. skriðsundi kvenna
Flugf reyj ubikar
200 m bringusundi kvenna
50 m. skriðsundi ungl.
piltar f. 1946 o.s.
100 m. bringusundi
drengja f. 1948 o.s.
50 m. bringusundi
telpna f. 1948 o.s.
4x50 m. skriðsundi karla
Seinni dagur:
400 m. fjórsundi karla
100 m. skriðsundi karla
100 m. bringusundi
Sindrabikar.
200 m. baksundi karla
100 m bringusundi kvenna
50 m. flugsundi kvenna
100 m. skriðsundi
drengja f. 1948 o.s.
50 m bringusundi sveina
f. 1950 o.s.
50 m. skriðsundi telpna
f 1948 o.s.
Afreksbikar SSt vinnst íyrir
bezta stigaafrek mótsins. Þátt
taka tilkynnist Jóni Otta Jóns
syni, Vesturgötu 36 A, í síð-
asta lagi 9. apríl.
svigi unglinga. í stórsviginu
sigraði Sigurbjörn Jóhannsson,
Siglufirði á 88.2 sek. og í svigi
áttu Siglfirðingar fyrstu fimm.
í báðum greinum sigraði Sigur-
björn Jóhannsson frá Siglufirði,
í stórsviginu á 88.2 sek. og í
stórsvigi á 88.2. Siglfirðingarnir
áttu fimm fyrstu menn í sviginu,
svo að unglingarnir frá Siglu-
firði gefa þeim eldri ekkert eftir.
Tveir elztu þátttakendurnir, Bjarni Halldórsson 51 árs gam-
all og Sigurður Sigurðsson. Bá ðir eru þeir ísfirðingar.
Ármann ógnaði Fram
en KR vann Víking
Á ANNAN páskadag var 1. deild
ar móti handknattleiksmanna
fram haldið. Tveir leikir fóru
fram. Fram vann Ármann 23—17
og KR vann Víking 27—16.
Leikur Fram og Ármanns fór
lengstum óvæntan farveg. Ár-
mann náði forystu yfir íslands-
meisturunum 6—0 og síðar 8—1.
í hálfleik stóð 9—7 fyrir Ár-
mann. Mikill barningur var
lengstum í síðari hállfleik en
5—10 síðustu mín. réðu Fram-
arar lögum og lofum og allt
brotnaði hjá Ármanni. 23—16
urðu úrslitin.
KR náði algerum tökum á
leiknum við Víkinga og unnu
jafnt og þétt á og lokaúrslit urðu
27—16. Víkingsliðið var afar
slappt og KR-ingar voru ákveðn
ir og harðir.
Staðan í mótinu er nú sú að
Fram hefur 1 stig, FH 11, ÍR
7, KR og Víkingur 6 og Ármann
4. Er hér ekki tekið tillit til upp
kveðins úrskurðar um leik FH
og Fram sem „leikast á aftur“
samkvæmt úrskurðinum sem nú
hefur verið áfrýjað.
Baráttan um fallið er afar
hörð og virðist staða Víkinga nú
einna verst.
Skíðamóti íslands var slitið
að kvöldi páskadags í hófi, sem
bæjarstjórn ísafjarðar hélt
starfsmönnum og keppendum í
Góðtemplarahúsinu. Voru þar
afhent verðlaun og ræður flutt-
ar.
\ Mótið fór mjög vel fram og
var stjórnendunum til sóma.
ísfirðingar urðu að taka að sér
að halda mótið með litlum fyrir-
vara og meðan á mótinu stóð,
sköpuðust ýmsir erfiðleikar
vegna veðurs, en framkvæmd
mótsins var mjög góð. Mótstjóri
var Einar B. Ingvarsson, banka-
stjóri.
Það er athyglisvert hve
frammistaða siglfirzku skíða-
mannanna var góð, þegar tekið
er tillit til þess, að þeir hafa
sáralítið getað þjálfað í vetur
vegna snjóleysis, og kvörtuðu
sumir Siglfirðinganna um æf-
ingarleysi.
Geysimikill _ fjöldi aðkomu-
manna var á ísafirði um páska-
helgina. Auk keppenda kom
mikill fjöldi gesta í bæinn til að
vera á mótinu og hinni árlegu
Skíðaviku. Flugfélag fslands
flutti eitthvað á þriðja hundrað
farþega til ísafjarðar um pásk-
ana og mikill fjöldi kom með
strandferðaskipinu Heklu að.fara
nótt föstudagsins langa, og voru
farþegar mjög óánægðir yfir
því, að skipið skyldi ekki sent
bena leið til ísafjarðar, heldur
látið koma við á öllurn höfnum
í vesturleið. Misstu því farþeg —
1 heilan dag frá skíðaiðkunum
Bridge
ÍSLANDSMÓTIÐ I bridge fór
fram í Reykjavík nú um pásk-
ana og lauik mótinu á annan
páskadag.
Úrslit í sveitakeppni urðu þau
að sveit Benedikts Jóhannssonar
bar sigur úr býtum og hlýtur
því Íslandsmeistaratitilinn fyrir
árið 1964. Auk Benedikts eru í
sveitinni: Jóhann Jóhannsson,
Jóhann Jónsson, Jón Arason og
Sigurður Helgason.
í meistaraflokki kepptu 7 sveit
ir og varð röð þeirra þessi:
1. Sv. Benedikts Jihannss. 32 st.
2. — Agnars Jörgenssonar 26 —
3. — Þóris Sigurðssonar 20 —
4. — Einars Þorfinnssonar 18 —
5. — Gísla Sigurðssonar 17 —
6. — Ólafs Þorsteinssonar 7 —
7. — Mikaels Jónssonar 6 —
Fjórar efstu sveitirnar í 1. fl.
urðu þessar:
1. Sv. Ólafs Guðmundss. 42 st.
2. — Jóns Magnússonar 39 —
3. — Jóns Ásbjörnssonar 39 —
4. — Elínar Jónsdóttur 36 —