Morgunblaðið - 25.04.1964, Side 3

Morgunblaðið - 25.04.1964, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 Laugardágur 25. apríl 1964 Barna- dagurinn hinn fjöl- SUMA RDA GURINjM fyrsti hefur hlotið nafnið „barna- dagurinn“, enda eru há- tiðarhöld þess dags miðuð við yngstu kynslóðina. í fyrra- dag var Reykjavíkurborg kvik af smáfólki og reyndar fylgdarliði þess af eldra stofni Barnavinafélagið Suimargjöí sá að vanda um hátíðarhöld- in. Munu aldrei áður hafa verið eins margir viðstaddir á útisamkomur og slkrúðgöng- ur á sumardaginn fyrsta. Hátíðahöldin hófust með skrúðgöngum tveim. Var önn- ur farin frá Melaskólanum, en hin frá Austurbæjarsikólan- Ség yfir úlisamkomuna í L ækjargötu. um. Lúðrasveitir léku fyrir göngunum, sem mættust í Lækjargötunni. Þar var hald- in útisikemmtun. Formaður Sumargjafar, Ásgeir Guð- mundsson, kennari, flutti ræðu, þá raeddi séra Ólafur Skúlason við börnin, Lúðra- sveit drengja lék sumarlög og Ómar Ragnarsson skemmti. Til þess að börnin mœttu öll sjá Ómar, lét hann krana hefja sig hátt á loft. Vakti það mikinn fögnuð. Þá voru víða skemmtanir innanhúss og réði húsrými áhorfenda- fjölda. Barnavinafélagið Sumar- gjöf er 40 ára um þessar mundir. Voru merki félagsins og Sólskin, blað þess, seld á götum Reykjavíkur. Allur ágóði merkja- og blaðasöl- unnar, og ennfremur af skemmtununum rennur til starfsemi félagsins, sem, eins og kunnugt er, beitir sér eink- um fyrir rekstri barnaheim- ila og dagheimila. .......ti til bessa Skrúðgangan frá Melaskólanum fer um Skothúsveg yfir Tjarnarbrúna. sGoit veður 9 i gær HÆÐIN fyi-ir A land var á! hreyfingu SA í gær og lægð- in SA af Hvarfi breiddist | , norður um Grænlandshaf., Færðist regnsvæði hennar ’ norður á bóginn og var bú- I izt við henni hér í dag. — | Veður var skínandi fagurt j , norðanlands í gær, nærri. logn og sólskin og hitinn allt 1 að 10 stigum. Sunnanlands' I dró upp flókaský í gærmorg- \ | un. Siðosti leikur Norðmonno í kvöld í KVÖLD leika norsku hand- knattleiksmennirnir síðasta leik sinn að þessu sinni. Þeir mæta FH að Hálogalandi. FH mun án efa ekki láta sinn hlut eftir liggja með sína snöggu og fræknu landsliðs- menn. Norðmennirnir munu og hyggja á að fara með sigur heimleiðis hvað sem hann kostar. Mjallhvit og dvergarnir sjö fara um borgina i vagni, ■Ílilll STAkSI FIWIÍ Danska „Alþýðubanda- Iagið“ klofnar Alþýöublaðið birtir leiðara um það sl. fimmtudag, að flokk- ur Aksels Larsens í Danmörku, hið svokallaða Alþýðubandalag, sé nú að klofna. Kemst blaðið m.a. að orði um þetta á þessa leið: „Nú hafa þau tiðindi gerst, að þetta danska Alþýðubandalag er að klofna. Tveir af þingmönnum þess hafa sagt sig úr flokknum og eru nú utanflokka á þingi. Varaformaður flokksins hefur lýst yfir, að hann verði ekki í kjöri fyrir flokkinn aftur og mik- ill fjöldi trúnaðarmanna og ó- breyttra flokksmanna hefur sent úrsagnir. Það eru hinir fyrrverandi Al- þýðuflokksmenn, sem eru að sprengja Alþýðubandalagið. Þeir tilgreina eina ástæðu fyrir þess- um klofningi. Þrátt fyrir fögur loforð og lýðræðislega stefnu- skrá, hefur danska alþýðubanda- lagið verið undir stjórn komm- únista. Héðinn og Hannibal Alþýðublaðið lýkur forystu- grein sinni á þessa leið: „íslendingar hafa tvisvar upp- lifað stofnun slíkra flokka. 1 fyrra skiptið gekk Héðinn Valdi- marsson með mörgum Alþýðu- flokksmönnum til bandalags við kommúnista og myndaði Sam- einingarflokk alþýðu. Héðinn sá fljótlega hvers kyns var. Hann sagði skilið við kommúnista, þeg- ar hið rétta eðli Sameiningar- flokksins kom í ljós. Hannibal Valdimarsson fetaði í fótsporin nokkrum árum siðar og myndaði Alþýðubandalagið, sem að vísu er ekki flokkur, heldur aðeins nafn fyrir sundur- laust kosningabandalag. Hanni- bal hefur vafalaust rekið sig á sömu staðreyndir og Héðinn. En hann er minni maður en Héð- inn og hinir dönsku þingmenn og hefur ekki þorað að horfast í augu við sannleikann eða taka afleiðingum hans.“ V-stjórnin og verkalýðssamtökin Vinstri stjórnin sáluga lýsti því yfir við valdatöku sína, að hún hyggðist hafa náið og gott sam- starf við verkalýðssamtökin í landinu. Niðurstaðan varð þó sú, að vinstri stjórnin lét það verða sitt fyrsta verk að setja bráða- birgðalög til þess að lækka kaup gjald, taka aftur hluta þeirra kauphækkunar, sem kommúnist- um og Framsóknarmönnum hefði tekizt að knýja fram með hin- um pólitísku verkföllum árið 1955. En Hannibal Valdimars- syni og Lúðvík Jósefssyni fannst sjálfsagt og eðlilegt að lækka kaupgald með bráðabirgðalögum, þegar þeir sjálfir sátu í ráð- herrastólum. Samstarf vinstri stjórnarinnar við verkalýðssamtökin varð eft- ir þessu, enda má segja, að aldrei hafi annar eins ófriður ríkt á vinnumarkaðnum eins og í tíð vinstri stjórnarinnar. Og það var kaldhæðni örlaganna, að AI- þýðusamband íslands skyldi verða til þess að fella þessa rík- isstjórn. Eins og kunnugt er gekk Hermann Jónasson, forsætisráð- herra vinstri stjórnarinnar, á fund Alþýðusambandsþings og grátbað verkalýðssamtökin að bíða í nokkrar vikur, meðan flokkar stjórnar hans reyndu að ná samkomulagi um einhver úr- ræði sín i milli í dýrtíðarmál- unum. Alþýðusambandsþingið vildi ekki veita þennan frest og þar með var vinstri stjórnin íallin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.