Morgunblaðið - 26.04.1964, Blaðsíða 14
14
MORCUNBLAÐIB
Sunnudagur 28. apríl 1964
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Ú tbreiðslust j óri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
I lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
MILDASTUR
Á ÞESSARI ÖLD
■ffeðurfræðingar telja, að sá
' vetur, sem nú iiggur að
baki, sé hinn mildasti á þess-
ari öld hér á landi. Er þá
reiknað með meðalhita í mán-
uðunum desember til marz,
að báðum meðtöldum.
Næsthlýjasti vetur 20. ald-
arinnar er veturinn 1929.
Meðalhiti ,hér í Reykjavík
var á vetrarmánuðunum í
vetur 3,8 stig, en á Akureyri
2,1 stig, að Hólum í Horna-
firði 3 stig, en í Stykkishólmi
2,7 stig.
Yfirleitt má segja, að þessi
vetur hafi verið íslenzku
þjóðinni hagstæður til lands
og sjávar. Gæftir hafa verið
góðar við sjávarsíðuna og
sauðfé létt á fóðrum. Veturinn
1963—1964 mun því fá gott
eftirmæli í annálum. Ottinn
við vorhret hefur að sjálf-
sögðu verið ofarlega í hugum
manna síðustu vikur. Páska-
hretið í fyrra, sem olli stór-
felldu tjóni á trjágróðri, er
þjóðinni enn í fersku minni,
Víðs vegar um land eru tún
fyrir alllöngu tekin að
grænka og trjágróður er
lengra á veg kominn hér sunn
anlands en oftast áður. Að
sjálfsögðu er varlegast að
fullyrða sem minnst um fram
hald þessarar einstæðu veð-
urblíðu, en vonandi helzt hún,
og ef hún gerir það verður
sumarið að þessu sinni óvenju
langt.
Vetrarvertíðin hefur reynzt
útgerðinni í hagstæðasta lagi.
Fyrstu 3V2 mánuð ársins hef-
ur heildaraflinn orðið 260
þúsund tonn. Er það um 30
þúsund tonnum meira en á
sama tíma sl. ár. Þess ber þó
að gæta, að allmargir fiski-
bátar hafa ekki verið gerðir
út í vetur sökum skorts á
mannafla og nokkrir bátar
hafa ekki haft fulla áhöfn.
Er það vissulega áhyggjuefni,
að ekki reynist lengur unnt
að fullmanna bátaflotann.
Ellefu íslenzkir sjómenn
hafa farizt á þessari vetrar-
vertíð en 19 á sama tíma í
fyrra. Er sár harmur kveð-
inn að fjölskyldum þeirra,
vinum og frændum, og raun-
ar þjóðinni allri.
íslenzka þjóðin fagnar
sumri af heilum hug. Hún
hefur gert sumardaginn
fyrsta að almennum hátíðis-
degi. Það er vegna þess að
hann kemur með von og vissu
um hirtu og hlýindi. Þessi
c'.giir hefur nú verið gerður
að . hátíðisdegi barnanna. Er
það vissulega vel farið. Æsk-
an er ókomna tímans von.
Þess vegna ber að hlúa að
henni, efla þroskamöguleika
hennar og standa á verði um
andlegt og líkamlegt heil-
brigði hennar.
Eitt af því sem mestu varð-
ar fyrir börnin og fyrir ís-
land er að þau læri að þekkja
landið sitt, möguleika þess,
fegurð þess, sögu og menn-
ingu og baráttu kynslóða þess.
Það mun eiga ríkan þátt í að
treysta tengsl landsins og
fólksins í framtíðinni.
í skjóli þekkingarinnar á
landinu mun æskunni skap-
ast aukin trú á framtíð þess,
ríkari ábyrgðartilfinning
gagnvart þjóðfélagi sínu og
eigin hamingju og þroska-
möguleikum.
BARÁTTAN GEGN
HJARTASJÚK-
DÓMUM
l^að er alkunna, að hjarta-
* og æðasjúkdómar hafa
aukizt verulega hér á landi
hin síðari ár. Telja læknar
nú, að þeir séu mannskæð-
astir allra sjúkdóma hérlend-
is, enda þótt krabbameinið
sé einnig mikill og stórhögg-
ur bölvaldur.
Nú hefur verið stofnað til
samtaka, sem hafa á stefnu-
skrá sinni baráttu gegn
hjarta- og æðasjúkdómum,
varnir gegn þeim, afleiðing-
um þeirra og útbreiðslu. Hafa
nokkrir þjóðkunnir menn
gefið út ávarp til þjóðarinn-
ar, þar sem hvatt er til raun-
hæfra aðgerða og baráttu á
þessu sviði. Segir í ávarpi
þessu að framtíðarmarkmið
samtakanna hljóti að verða
það að reyna að hrinda í fram
kvæmd hóprannsóknum á
fólki á tilteknum áldursskeið-
um. Gæfist þá færi á að
greina sjúkdóma þessa, áður
en verulegt tjón hefur af hlot-
izt, þannig að hægt væri að
grípa til ráðstafana, sem kom
ið gætu í veg fyrir að menn
veiktust af þeim. Slíkar hóp-
rannsóknir eru nú fyrirhug-
aðar í nágrannalöndum okk-
ar. —
Fyllsta ástæða er til þess
að hvetja almenning til stuðn
ings við þessi samtök. Lækna-
vísindin verða að eiga vísan
stuðning fólksins í baráttu
sinni gegn sjúkdómunum.
STRÁKAVEGUR
ITndanfarin ár hefur verið
^ unnið að því að ráða fram
Það er ekki nóg með að „The
Beatles“ gangi eins til fara, greiði
sér eins og æpi og góli alveg
eins, heldur eru konuefnin þeirra
líka svotil alveg eins. Á mynd-
inni tii vinstri er George Harri-
son með tvítugri unnustu sinni,
Pattie Boyd, sem er fyrirsæta
og á myndinni til hægri er Paul
Mac-Cartney með sinni útvöldu,
Jane Asher, sem er átján ára.
Eins og sjá má af myndunum
gætu þær Pattie og Jane verið
systur og þar sem þær líka
greiða sér eins og eru þar að
auki jafnháar og svipaðar á velii,
er ekki að furða þó fólki þyiki
’Bítlarnir vera samir við sig.
P.S. Og þar sem einn Bítillinn
var kvæntur fyrir er nú ekki
eftir nema einn óiofað'ur —
Ringo Starr.
Soraya
Þau voru víst búin að ákveða
brúðkaupsdaginn sinn, Soraya
prinsessa Esfandiary, forðum
keisarafrú í Persíu og Maximilian
Sohell, bróðir hinnar frægu
Maríu.
En þá kom til skjalanna Dino
de Laurentiis, sá sem „uppgötv-
aði“ kvikmyndastdörnuefnið
Sorayu og bað þau blessuð að
bíða með þetta fram á haustið,
svo ljúka mætti töku myndarinn
ar sem á að verða eldskírn
Sorayu í heimi kvikmyndanna.
Alberto Lattuada er leiikstjóri,
en kvikmyndin á að heita
„Leyndarmálið“ og er byggð á
sögu eftir Henry James.
En svo Sorayu ekki leiddist
meðan verið væri að undirbúa
töku kvikmyndarinnar (sem
hefst í maí) kom Maximilian í
heimsókn til hennar í „húskof-
ann“ á Via Appia, sem Giuliana
Fiastri, eiginkona Carlo Ponti,
hefur leigt Sorayu, og þarna eru
þau í tennis bak við heljarmiikið
limgerði og annan gróður en ljós
myndari ítalska blaðsins sem við
tókum myndina úr, notaði fjar-
lægðarlinsu á hjónaleysin.
Maximilian
ANNAÐ aðalihlutverkið í hínu
nýja og umdeilda leikriti Art-
hurs Miller, „After tíhe Fall“, hlufc
verk Quentins er í höndum Jason
Robards, sem hlotið hefur mikið
lof fyrir þau skil sem hann gerir
þessu erfiða hlubverkL
Jason Robards er kvæntur kvik
myndaleikkonunni Lauren Bacatt
sem hljótt hefur verið um upp
á síðkastið. Það var mál manna
að Lauren hefði unnið mjög fyr
ir manni sínum, Humprey Bog-
art sem lézt 1957, og þykir mörg
um sem hún hafi hitt þar fyrir
annan Humprey sem Jason er, en
eins og innskotsmyndin af Hum
prey Bogart ber með sér, er mik-
ill svipur með þessum tveim
eiginmönnum Lauren Bacatl.
(Lei'kkonan er nú um fertugt og
á tvö börn, 11 og 15 ára).
í fréttunum
úr samgönguerfiðleikum
Siglufjarðarkaupstaðar á
landi. Eins og kunnugt er lok-
ast Siglufjarðarskarð í fyrstu
snjóum og opnast sjaldan til
umferðar fyrr en komið er
fram á vor.
Einar Ingimundarson, þá-
verandi þingmaður Siglfirð-
inga, beitti sér fyrir því, að
Siglufjarðarvegur ytri, sem
liggur fyrir Stráka, var tek-
inn inn á vegalög árið 1955.
Var síðan hafin ítarleg rann-
sókn á vegarstæði á þessum
slóðum.
Á grundvelli hennar var síð
an ákveðið að sprengja veg
gegnum Stráka og var fyrir
nokkru byrjað á því mann-
virki.
Nú hefur vegagerðin talið,
að frekari rannsóknir þurfi
að fara fram á berglögum og
allri aðstöðu við þessa jarð-
gangnagerð. Segir í tilkynn-
ingu frá vegamálastjóra, sem
nýlega var birt hér í blaðinu,
að ekki verði hjá því komizt
að fresta greftri jarðgangn-
anna til ársins 1965, meðan
endanleg rannsókn fer fram.
Hins vegar verður haldið
áfram vegagerðinni að öðru
leyti og er áformað að ljúka
undirbyggingu vegarins að
Strákum á þessu á*&
Vonandi lýkur þeim rann-
sóknum sem fyrst, sem nauð-
synlegar eru taldar til þess
að hægt verði að halda áfram
gerð jarðgangnanna. Stefnan
hefur verið mörkuð í þessu
mikla hagsmunamáli Siglfirð-
inga.